Alþýðublaðið - 16.12.1986, Page 6

Alþýðublaðið - 16.12.1986, Page 6
6 Þriðjudagur 16. desember 1986 AGÆTA TIMABII Pétur Valdimarsson verslunarmaður og for- maður Alþýðuflokksins á Sauðárkróki hefur sannkallaðan ævintýraferil að baki. Pétur hefur sem og margir íslendingar unnið flest algeng störf til sjávar og sveitar, enda fæddur og uppal- inn á Króknum þar sem tengslin við frumat- vinnuvegi þjóðarinnar eru sterk. Hann hefur því líkt og margir landsbyggðarmenn, ekki sloppið við að kynnast „lífsháttum íslendingsins“, sjómannslífinu, landbúnaðinum eða fiskvinnsl- unni. — Pétur hejfur hins vegar gert meira. Eins og fornkappar íslendingasagnanna er hann. sigldur, hefur kynnst þeirri sjómennsku sem margir þrá að kynnast, að sigla um heimsins höf til fjarlægra Ianda. Pétur er ekki nema 36 ára og því varla við hæfi að biðja hann um að rekja æviferilinn, eins og öldungar í friðarstóli gjarnan gera. Alþýðu- blaðið bað hann hins vegar að segja, frá óvenjulegum sjómanns- ferli sínum á norskum millilanda- skipum: Hundsjóveikur „Þetta var mest á árunum 1971 til 1973. Ég var aðallega í Kyrrahafs- siglingum. Sigldi á Bandaríkin, Austurlönd og Ástralíu. Sjó- mennskunni kynntist ég hins vegar fyrst hjá Guðmundi Árnasyni á Hegranesinu, sem þá var fyrsti skuttogarinn hér fyrir norðan. Það er svo sem lítið af því að segja nema hvað ég var alltaf hundsjóveikur, en einhvern veginn þá slæptist ég í gegnum það. Ég kláraði vetrarver- tíðina og fór þá beint út til Noregs. — Þetta var bara ævintýramennska og kunningi minn sem búsettur var í Noregi hvatti mig til þessa. Hann hafði reynslu af þessu lífi og ráð- lagði mér að prófa. Ég fór síðan á ráðningaskrifstofu og fékk strax ágætispláss. Flaug til Amsterdam og þar um borð í 38.000 tonna flutningaskip. Þetta skip var aðallega í flutningum á grófri vöru. Við byrjuðum í leigu hjá frönsku fyrirtæki og vorum fyrst í korn- flutningum milli Bandaríkjanna og Evrópu. Síðan vorum við mikið í Kyrrahafssiglingum!* Snaróður Spánverji „Jú, það voru náttúrlega allra þjóða kvikindi þarna um borð, þar á meðal einn snaróður Spánverji. Við vorum þá að flytja kox frá Þýskalandi til Bandarikjanna. Spánverjanum var í nöp við einn Norðmanninn um borð og vildi hefna sín á honum. Eitt sinn er hann var búinn á vakt klukkan fjögur, fór hann niður í íbúðir skípverja og kveikti í íbúða- ganginum þar sem liðið svaf. Síðan gekk hann yfir á sinn gang og lagð- ist til svefns meðan vistarverur skipsfélaganna biðu þess að brenna. Það var okkur til happs að einn þurfti að vakna og fara á vakt og sá hvað var á seyði og fljótlega tókst að slökkva eldinn. Þetta hefði hins vegar orðið með stærri Iogum á Norðurhveli því skipið var með 35 þúsund lestir af koxi um borð. Kappinn var settur í land þegar við komum til Bandaríkjanna. Nei, það var ekki komið lögum yfir hann, en hann var settur á svartan lista þeirra Norðmanna yfir þá sem ekki teljast æskilegir til sjós. Og lái þeim það enginn. Annars voru þetta yfirleitt ágætis menn. Þetta var mikil blanda allt frá 10 þjóðum um borð. Ég eignað- ist marga ágætis kunningja. Það voru t.d. margir svokallaðir Worka- ways, þeir sem eru að vinna sér far yfir hafið. Það var þó nokkuð um að bandarískir unglingar, náms- menn, notfærðu sér þetta. Af írönum og Kínverjum Við stoppuðum yfirleitt 4—5 daga í höfn, en það gat náttúrlega farið upp í lengri tíma. Ég var t.d. einu sinni mánuð í íran. Var þar í Banda Shapur, ég held það heiti Bandar Khomeyni í dag. Það var gert vel við okkur þarna. Við þurft- um að vera þar yfir jól og áramót. Fyrirtækið norska, bauð okkur í áramótagleði í Abba dan og hélt okkur uppi á ágætu hóteli þar. Ég lenti síðan nokkru sinni til Kína og var meðal annars með í fyrstu hóp- unum sem fengu að fara þangað eftir að Kínverjar opnuðu landið í kjölfar heimsóknar Nixons Banda- ríkjaforseta. Kínverjar opnuðu sín- ar hafnir töluvert eftir þessa heim- sókn. Þarna höfðu margir ekki séð hvítan mann og það var sérstæð til- finning að ganga eftir götum með mannhafið á eftir sér. Við vorum hreinlega eltir. Við vorum líkt og dýr í dýragarði. Okkur var hvergi meinaður að- gangur. Þetta var í hafnarborg í Pekingflóa, mig minnir að borgin hafi heitið Luta. Það var hins vegar nokkuð flókið mál hvernig að mót- tökunni var staðið. — Þegar skipið var lestað af korni í Bandaríkjun- um var skráð, að við ættum að losa í Suður-Kóreu. Þá var Nixon ekki Horft yfir Sauðárkrók. Hér hejur œvintýramaðurinn Pétur Valdi- marsson nú sest að og hyggur ekki framar á siglingar um heimshöfin. — „Því ágœta tímabili er lokið,“ segir hann. ennþá farinn til Kína og bandarísk- ir hafnarverkamenn lestuðu ekki skip sem fara áttu til kommúnísks Kína. Þegar skipið var komið suður á Mexikóflóa var tilkynnt að við ættum að fara þangað. Öryggisráðstafanir voru miklar þegar við komum þangað og allir læstir inni meðan skipið var skoðað hátt og lágt. Þá lágum við út á flóa. Allar myndavélar voru teknar. Kom heill herflokkur um borð. Þeir skil- uðu reyndar myndavélunum þegar við komum í land. Ég held að þeir hafi tekið vélarnar vegna þess að við þurftum að sigla framhjá her- skipalægi áður en við komum í höfnina. Þeir voru einnig varkárir gagnvart gjaldeyri því við þurftum að skila af okkur öllum gjaldeyri og gera skrá yfir hvert einasta sent. Við þurftum síðan að skrifa undir skuldbindingu um að við mundum skila öllu sem við ættum af kín- verskum gjaldeyri og sýna erlenda gjaldeyrinn okkar ef farið yrði fram á það. Það var reyndar aldrei gert. Það nægði alveg að hóta þessu. Eg verð að segja að Kínverjar voru með mjög góðan löndunarút- búnað á öllu. Þarna var mjög stað- viðrasamt og þeir lönduðu öllu um 38 þúsund tonnum í fjallháan haug sem lestir tóku síðan á hafnarbakk- anum og keyrðu inn í landið. Mér skilst að Kínverjar eigi nú mjög góðan flota og séu alltaf að stækka hann. Hjá Norðmönnum hefur þetta hins vegar farið mjög mikið niður á við. Þeir hafa átt i vandræðum með hvað þjóðir sem keyptu svo mikla fragt hér áður fyrr eru farnar að flytja mikið sjálfar. Eins og t.d. Rússar og Bandaríkja- menn. Norðmenn eru þó auðvitað gífurlega mikil siglingaþjóð í dag. Og leggja mikið upp úr góðri sjó- mennsku. Skipafélögin þar bjóða t.d. mönnum upp á að fara í nám þeim að kostnaðarlausu, með því skilyrði að viðkomandi skuldbindi sig til að sigla fyrir þá í þrjú ár að námi loknu. Þetta gera þeir náttúr- lega til að fá menn á skipin. Það er t.d. erfitt að fá fjölskyldumenn til að halda áfram í þessu. Mér var boðið að fara í nám, þá var ég búinn að vera hjá fyrirtækinu í eitt ár og átti kost á að fara í stýri- mannaskóla. Ég hafði hins vegar Hólmann aftur og vildi ekki vera að festa mig í svona. Árekstur í Frakklandi — Við lentum einu sinni í mikl- um árekstri í Dunkirque í Frakk- landi. Það hafði blokkerast tal- stöðvarsamband á milli dráttarbáta og skipstjórans, lóðsinn var að reyna að kalla í bátana og bátarnir í lóðsinn. Það skeikaði þannig ein- hverjum sekúndum þegar verið var að snúa skipinu og það keyrði þarna beint á hafnargarð og rifnaði heilmikið á stefni. Ég var við stýrið og það urðu heilmikil réttarhöld út af þessu, og meðal annarra kallaðir til þrír skipstjórar frá Noregi til að vera við sjóréttinn. Skipið var þarna sett í skipa-

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.