Alþýðublaðið - 16.12.1986, Side 11

Alþýðublaðið - 16.12.1986, Side 11
Þriðjudagur 16. desember 1986 11 INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 — Pbsthön 878 — 101 Reykjavik Utboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd bygg- ingardeildar Borgarverkfræðings og skólaskiifstofur Reykjavfkurborgar auglýsir eftir verktökum sem helðu áhuga á að hanna og byggja skóla í Ártúnshverfi sam- kvæmt svokölluðu allsherjar útboðsformi. Verktakar leggi inn nafn og símanúmer fyrir n.k. fimmtudag þ.e. 18. des. á skrifstofu vora Fríkirkjuvegi 3. Félagsfundur I Iðju, félagi verksmiðjufólks verður haldinn í Domus Medica miðvikudaginn 17. desember kl. 5 siðdegis. Fundarefni: Kjarasamningarnir. Önnur mál. Iðjufélagar fjölmennið Stjórn Iðju. stjóra: „Reykjavík er í hernaðar- ástandi, lögregla er í öllum götum og menn mega ekki hópa sig saman, bannaðir allir útifundir og nú á að ráðast að Ólafi kl. 12. í gærkvöld kom lögreglan til Hakansens í Iðnó kl. 11.30 og sagðist taka húsið fyrir lögreglustöð. Þeir hafa haft 400 manns í nótt og verði við allar opin- berar byggingar. Foringinn er Jó- hann skipstjóri á Þór. Þeir hafa 18 byssur. Eg komst að þessu þegar ég fór að drekka morgunkaffið." Þannig var málum komið í hinni litlu Reykjavík í lok nóvember 1921 og um þetta mál allt fjallar bókin Réttvísin gegn Ólafi Friðrikssyni. Nútímamaðurinn hlýtur að líta á þetta mál, út af umkomulausum rússneskum dreng, eins og reyfara- kennda lygasögu. Það er að minnsta kosti mjög auðvelt. Hitt er jafn merkilegt að hér skuli allt vera satt og rétt. Eftir ítarlegan inngang er i bókinni heimildarskrá um þessa atburði, sem eru til vitnis um það að hér er sannleikurinn lagður á borð- ið, — að minnsta kosti eins og því verður við komið með svo gamalt mál. Sú heimildarskrá er i nokkrum hlutum: Mál Nathans Friedmanns; Réttarskjöl; Réttarpróf; Dómur aukaréttar; Málið fyrir Hæstarétti; Náðun. Ennfremur Nokkur dönsk skjöl um Nathan Friedmann. Varsla bréfa og Nafnaskrá er síðan aftast í bókinni. Ástæða er til að hvetja fólk að kynna sér þessa bók vel. Hún er prýðileg heimild um þá miklu at- burði sem áttu sér stað á þriðja ára- tug þessarar aldar á íslandi og sýnir nokkuð vel eftir hvaða leiðum stéttaátökin mögnuðust og náðu ef til vill hámarki sínu í kring um 1930, þegar Kommúnistaflokkur íslands var stofnaður. Bókin er gott innlegg til þeirrar viðleitni að kynna því fólki, sem nú er að vaxa úr grasi og veit síst um þessa sögu, upp úr hvaða jarövegi atburöanna það er sjálft sprottið. Höfundur og útgefandi hafa hér unnið gott verk fyrir hönd íslenskr- ar alþýðu nútímans. Örn Bjarnason. Vinningstölur 13.dGS. 2-3-17-28-32 Réttvísin gegn Ólafi Friðrikssyni Slökkviliðsmenn á þaki hússins að Suðurgötu 14. Nathan Friedmann og fylgismenn Ólafs hafa búist til varnar í risherbergi. Dregið þungan járnkassa yfir lofthlera. Slökkviliðsmenn hóta að rjúfa þakið. ídagbók Slökkviliðs Reykjavíkur er skráð að slökkviliðsmenn takiþátt ílögregluaðgerðúm sem borgarar en ekki sem slökkviliðsmenn. Út er komin heimildabók um „Réttvísina gegn Ólafi Friðrikssyni, hjá Sagnfræðistofnun Háskóla fs- lands, rit nr. 16. Hafa þeir Pétur Pétursson hinn kunni útvarpsmað- ur og Haraldur Jóhannsson hag- fræðingur séð um útgáfuna, en rit- stjóri þessa bókarflokks er Jón Guðnason. Réttvísin gegn Ólafi Friðriks- syni? Hvað er áu við með því? Hvaða kærumál ei þetta svo merki- legt að tekin er saman um það sér- stök bók? Og hvernig hefur það þá farið fram hjá mér, ég hef ekki heyrt þess getið í fjölmiðlum undanfarið? Skýringin er sú að þessi ákærumál eru ekki ný, þau urðu fyrir u.þ.b. 65 árum og ollu meiri deilum í íslensku þjóðfélagi en menn voru vanir, — svo mikið er víst. Nathan Fried- mann, rússneski drengurinn sem hér dvaldi í fjórar vikur hjá Ólafi Friðrikssyni, átti eftir að verða ís- landi meiri örlagavaldur en menn óraði fyrir. Vera Nathans á íslandi átti eftir að vekja óróa, valda deild- um og hatri, efla samúð og vináttu, tengja tryggðabönd, dragast inn í pólitíkina og setja hugarfar ólíkleg- ustu manna á annan endann. Um þennan hildarleik í íslenskri verka- lýðssögu svo og sögu Reykjavíkur, fjallar þessi bók: Réttvísin gegn Olafi Friðrikssyni. Ólafur Friðriksson, verkalýðs- foringi og kommúnisti, var maður sem þótti viðsjárverður síðari hluta árs 1921. Hann hvatti verkalýðinn með ráðum og dáð og skoraði á þetta illa skóaða fólk, sem að auki átti léleg hús og var stundum svangt, að heimta rétt sinn og jafn- vel beita til þess valdi ef með þurfti. Margir verkamenn litu vonaraug- um þennan mjóslegna ræðuskör- ung sem sparaði sig hvergi og vildi berjast fyrir bættum kjörum þeirra. Á sama hátt voru andstæð- ingar verkalýðsins uggandi um sinn hag. Andrúmsloftið var eldfimt á þessum árum og stéttaátök urðu geigvænleg næstu áratugina á eftir. Atvinnurekendur þeirrar tíðar höfðu því horn í síðu Ólafs Frið- rikssonar og notuðu fyrstu tylli- ástæðuna sem þeir fundu til þess að reyna að koma honum á kné, — eða að minnsta kosti minnka áhrif hans meðal alþýðu. Og sú tylliástæða Hjónin Anna og Ólafur Friðriks- son. Myndin tekin um þœr mundir er Nathan Friedmann var í fóstri úí-'uy. þeirra. þtírm. Nathan Friedmann á tröppum Eyr- arsundsspítala 25. febrúar 1922. fannst: Rússneski drengurinn Nathan Friedmann og augnsjúk- dómur sem hann var haldinn! Ekki má gleyma að geta þess að allur heimurinn einblíndi á Rúss- land á þessum árum. Byltingin var ekki einu sinni útkljáð í lok árs 1921 og landið allt flakandi í sárum. Þar hafði Ólafur dvalið í fjóra og hálf- an mánuð til að kynna sér ástandið og læra af kommúnistunum hvern- ig ætti að bera sig til við verkalýðs- baráttu á íslandi o.fl. Enda fór svo að strax og Ólafur kom til Reykja- víkur byrjar hann að hvetja menn til dáða og halda ræður, hvar sem því var við komið. Frá Rússlandi hafði hann með sér þennan rúss- neska munaðarlausa dreng, sem hann hugðist taka í fóstur og ala upp ásamt Önnu konu sinni. Loft var því læviblandið, stéttaandstæð- ur mögnuðust og stéttarvitund jókst, — verkafólk gerði sér ljósa eymd sína og allt í einu er kominn maður úr fyrirheitna landinu:sem Pétur Pétursson, hinn góðkunni út- varpsmaður átti drjúgan þátt í til- urð þessarar ágœtu bókar. sagði að öllu væri hægt að breyta. Aldalöng kúgun alþýðufólks á ís- landi gerði það einnig að verkum, að fólkið vildi allt til vinna til að komast út úr þeim þrældómi og af- komulegri eymd sem það bjó við. Að sama skapi sáu atvinnurekend- ur sitt óvænna: Þennan mann varð að kveða niður með einhverjum ráðum. Menn hugsuðu um bylting- una í Rússlandi og allt sem henni hefði fylgt, — blóðbað og rjúkandi rústir. Ætlaði Ólafur Friðriksson að koma slíku af stað hér? Það skyldi þó ekki vera? Hann talaði þannig. Þennan mann varð að stöðva. En hvernig? Tækifærið kom að heita má upp í hendurnar á andstæðingum Ólafs. Rússneski drengurinn sem hann hafði komið með heim og vildi taka í fóstur, reyndist hafa augnsjúkdóm á byrjunarstigi, svonefnda Egyfska augnveiki eða „tracoma“ og vildu heilbrigðisyfirvöld láta vísa drengn- um úr landi vegna sýkingarhættu. Ólafur bregst hart við þessum til- mælum og ritar grein í Alþýðublað- ið þar sem hann kveðst munu „beita öllum tiltækum ráðum til þess að koma í veg fyrir brottflutn- ing Nathans Friedmanns!1 Orðróm- ur gengur um það 22. nóvember 1921 að Ólafur og menn hans hafi í ..hyggju að taka Stjórnarráðið á sitt vald og draga rauða fánann að húni“. Það var reyndar út í bláinn í augum allra þeirra sem til þekktu, en mun hafa verið vatn á myllu þeirra sem vildu koma Ólafi á kné og helst af öllu færa hann í fjötra. Og nú ganga hlutirnir hratt fyrir sig. „Valtýr Stefánsson segir i dag- bók sinni er hann vitnar í orð Sig- úrðar Sigurðssönaf búnaðarmála-■ — árið 1921 varð rússneskur drengur örlagavaldur ís- lendinga. Pétur Pétursson útvarpsmaður og Haraldur Jóhannsson hagræðingur segja með hvaða hætti. Utankjörstaðaatkvæða- greíðsla Alþýðuflokksins á Akureyri. Vegna prófkjörs sem fram fer 24.—25.janúar 1987 til næstu Alþingiskosninga verða skrifstofur Alþýðu- flokksins að Strandgötu 9 opnar sem hér segir: Laugardaginn 27. des. frá kl. 14—17. Sunnudaginn 28. des. frá kl. 14—17. Mánudaginn 29. des. frá kl. 17—20. Þriðjudaginn 30. des. frá kl. 17—20. Föstudaginn 2. jan. 1987 frá kl. 17—20, og síðan á laugardögum og sunnudögum frá kl. 14—17 og virkum dögum frá kl. 17—20 til 22. jan. 1987 kl. 20. Nánar auglýst á öðrum kjörstööum siðar. Stjórn kjördæmisráðs. Aðalfundur Alþýðubrauögerðarinnar hf. verður haldinn 18. des. 1986. kl. 17 f Iðnó uppi. Dagskrá samkvæmt félagslögum. Stjórnin. i. ■•■■■ . T...:............ RITDÓMAR

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.