Alþýðublaðið - 04.03.1987, Qupperneq 10

Alþýðublaðið - 04.03.1987, Qupperneq 10
10 Miðvikudagur 4. mars 1987 Frambjóðendur Alþýðuflokksins kynntir: 8. sæti GUÐRÚN ÁRNADOTTIR Þriðja stjórnsýslu- stigið er nauðsynlegt „Ég hef haft áhuga á stjórnmál- um síðan ég hafði vit til að fylgjast með þeim”, segir Guðrún Árna- dóttir og bætir því við að hún hafi stutt Alþýðuflokkinn frá því hún fékk kosningarétt. Um ástæðuna fyrir því segir hún að sér finnist Al- þýðuflokkurinn best sniðinn að skoðunum sínum á stjórnmálum. „Þriðja stjórnsýslustigið er nauð- synlegt”, segir hún, „sérstaklega fyrir landsbyggðina. Þegar það kemur getum við farið að búa betur að fólki út á landi. Ég hef búið bæði hér og í Reykjavík á undanförnum árum og verð að segja það að ég finn geysilegan mun á allri þjónustu á þessum tveim stöðum” Guðrún klykkir út með því að segja að fyrir sig hafi í raun aldrei annar flokkur en Alþýðuflokkur- inn komið til greina og hún segist eiginlega vera stein hissa á því að ekki skuli fleiri kjósa hann. „En mér skilst á öllu að það standi til bóta í komandi kosningum”, segir hún. „Alþýðuflokkurinn er heldur ekki rígbundinn við gamlar hefðir og er alltaf tilbúinn að endurmeta afstöðu sína í samræmi við breyttar aðstæður í þjóðfélaginu. Alþýðu- flokkurinn vill byggja upp, en ekki hjakka alltaf í sama farinu”, segir hún. Hún nefnir jafnréttismál sem dæmi um málaflokk sem er henni hugleikinn og segir að umhugsun um þau mál hafi laðað hana að flokknum. En stóra málið segir hún vera þriðja stjórnsýslustigið. Guðrún Árnadóttir, fóstra, skipar 8. sœtið á lista Alþýðu- flokksins íAusturlandskjördœmi. Hún er fæddá Seyðisfirði 27. júlí 1957 og er því tœplega þrítug að aldri. Guðrún lauk gagn- frœðaprófi frá Barna- og gagnfrœðaskóla Seyðisfjarðar, eins og hann hét þá, en fór síðan út á vinnumarkaðinn og vann ýmis störf, einkum á barnaheimilum en einnig við verslun og þjón- ustu, svo nokkuð sé nefnt. Þegar framhaldsdeild var sett á lagg- irnar við Seyðisfjarðarskóla haustið 1978, settist hún aftur á skólabekk. Ur Seyðisfjarðarskóla lá leiðin í Flensborg í Hafnar- firði og þaðan í Fósturskóla íslands, þar sem Guðrún lauk prófi vorið 1982. Síðan hefur hún starfað sem fóstra bœði í R eykjavík og heima á Seyðisfirði. Frambjóðendur Alþýðu- flokksins kynntir 6. sæti RÚNAR STEFANSSON Einn lífeyrissjóður fyrir alla landsmenn Rúnar Stefánsson segist hafa haft áhuga á stjórnmálum frá því um fimmtán ára aldur og hafi sá áhugi fremur farið vaxandi með aldrinum. Hann var raunar virkur meðlimur í Alþýðubandalaginu allt fram á síðasta ár en segist hafa fengið sig fullsaddan á bræðravig- um í þeim flokki. „Ástæðurnar fyrir því að ég tók sjötta sætið á lista Alþýðuflokksins eru margarý segir hann, „en m.a. má nefna að ég treysti Alþýðu- flokknum best til að sjá til þess að jafnvægi ríki milli landsbyggðar- innar og Reykjavíkursvæðisinsí* Rúnar segist einnig hafa fylgst með tillöguflutningi Alþýðuflokks- manna á Alþingi undanfarin ár og hrifist af ýmsu því sem þingmenn Alþýðuflokksins hafa haft fram að færa. í þessu sambandi nefnir hann t.d. tillögu um þjóðaratkvæða- greiðslu um einn lífeyrissjóð fyrir alla landsmenn. „Það er um fátt meira talað en lífeyrissjóðabáknið,“ segir hann og telur að tími sé til kominn að fækka hinum 90 lífeyris- sjóðum landsmanna. „Ég treysti því að Alþýðuflokk- urinn muni láta til sín taka í þessu máli þegar hann kemst til áhrifa í ís- lenskum stjórnmálum. Þetta tel ég vera einna stærsta málið um þessar mundirí* Rúnar segist einnig hafa mikinn áhuga á því að hugmyndir um stór- iðju í fjórðungnum komist í fram- kvæmd, enda þurfi meiri fjöl- breytni í atvinnulífinu á Austur- landi. „Fólk er orðið þreytt á því að þurfa alltaf að treysta á þennan eina atvinnuveg, sjávarútveginn, þótt gjöfull sé á stundumý segir hann. Rúnar Stefánsson í sjötta sœti A-listans í Austurlandskjör- dœmi, er borinn og barnfœddur Fáskrúðsfirðingur. Hann fœdd- ist á Fáskrúðsfirði 13. júlí 1953 og ólst þar upp. Að skyldunámi loknu fór hann á sjó og stundaði síðan þennan undirstöðuat- vinnuvegþjóðarinnar áýmsum stöðum á landinu um 15—16 ára skeið, þar til hann fluttist til Reykjavíkur um áramótin 1980/81. Þar réðst hann til starfa við vírasplæsingar hjá Bœjarútgerð Reykjavíkur og sinnti því starfi þangað til hann fluttist aftur heim til Fáskrúðsfjarðar haustið 1985. Rúnar hefur sinnt margháttuðum félagsstörfum um dagana. Þannig var hann til dœmis að taka í stjórn starfsmannafélags Bæjarútgerðarinnar á Reykjavíkurárunum og í fyrra var hann kjörinn í stjórn Verkalýðs- og sjómannafélags Fáskrúðsfjarðar og í varastjórn Alþýðusambands Austurlands. Ur Austur-troginu — Sumir eru jafnari en aðrir... Sjálfsagt kannast allflestir við reglurnar sem dýrin settu sér til að fara eftir í sögunni um félaga Napóleon, eða „Animal Farm” eftir George Orwell. Þar stóð cin- hvers staðar að öll dýr væru jöfn, en eftir að svínin höfðu endanlega tekið völdin í sínar „Hendur” undir traustri forystu félaga Napóleons, var því hnýtt aftan við þessa gullvægu lífsreglu, að sum dýr væru jafnari en önnur. Því er þetta rifjað upp hér, að fyrir nokkru bar svo við á Egils- stöðum að þar beið fjöldi manns eftir flugi, en það var ekki talið fært vegna veðurs. Meðal þeirra sem þarna biðu flugs var sameiginlegur fjármála- ráðherra okkar íslendinga, Þor- steinn Pálsson. íslendingar eru, sem kunnugt er, allir jafnir og það sannaðist þarna sem annars staðar, því allir urðu að láta sér lynda að ekki þótti fært að fljúga. Jafnastur allra var þó Þorsteinn Pálsson, því þegar stutt hlé varð á hríðarkóf- inu renndi flugvél Landhelgis- gæslunnar sér niður á hina marg- frægu flugbraut og sótti hann, en skildi hina eftir sem ójafnari þóttu. - Ljótt að stela Prentvillupúkinn er margfræg- ur af sögum og sennilega er hans oftar getið á síðum blaða en nokkurs annars þekkts íslend- ings. Svo sem kunnugt er, þá er prentvillupúkinn sá aðili sem um er kennt þegar einhver hefur gert mistök í vinnslu prentaðs máls, með þeim afleiðingum að í blað- inu eða bókinni stendur allt ann- að en það sem átti að standa þar. Stundum hefur meira að segja komið fyrir að góðviljaðir menn hafa hjálpað prentvinnupúkan- / um við starf sitt, oft með aldeilis/ hræðilegum afleiðingum og eru'~' til margar skemmtilegar sögur af slíkum tilvikum. Nú er það svo að þótt víða sé hægt að kenna prentvinnupúkan- um um, þá er það alls ekki algilt. þannig urðu umsjónamanni þessa blaðs á nokkur mistök um dag- inn, sem prentvinnslupúkanum verður ekki um kennt, þrátt fyrir góðan vilja. Þannig var að við höfðum verið beðnir að birta aug- lýsingu sem áður hafði birst í því ágæta og valinkunna blaði, Aust- urlandi. Þegar auglýsingin var sett í prentsmiðju yfir sást um- sjónarmanni að merkja hana sem handrit til setningar og því fór svo að hún birtist óbreytt og í sama formi og í Austurlandi. Þar hafði prentvillupúkinn reyndar komist í auglýsinguna á einum stað. Þetta grandist útgefendum Austurlands að vonum, enda töldu þeir að hér væri um að ræða þjófstuld af ásettu ráði. Eftir því sem ráða mátti af frétt blaðsins um þetta stórmál, virtist þeim hafa sviðið einna sárast að Al- þýðublaðið á Austurlandi skyldi þarna hagnast um þá upphæð sem setningarkostnaðinum nem- ur. Samkvæmt upplýsingum frá prentsmiðju þeirri er við skiptum við, er hér um að ræða uþb. 200 krónur. Blaðinu Austuriandi hef- ur nú verið send ávísun á þessa upphæð og vonumst við til að peningarnir verði til þess að renna nokkrum stoðum undir áfram- haldandi útgáfu Austurlands, enda er það skemmtilegt blað. Hvað hina siðferðilegu hlið málsins varðar, þá getum við hjartanlega tekið undir þá skoðun kolleganna á Austurlandi að það er afskaplega ljótt aö stela.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.