Tíminn - 24.08.1967, Blaðsíða 12

Tíminn - 24.08.1967, Blaðsíða 12
ÍÞRÓTTIR 12 TÍMINN FIMMTUDAGUR 24. ágúst 1967. tr' - ■ ' í; * ' ' .7 *“ 7 “ ' f'K f. .. .. •« W.,y,y, j»x#WMew>w _ , v ::,: |||||:|||||:í;| ■■ ■ .:’:• & - 3 - »-• 'v m gái illlg Eins og skýrt var frá á síðunni í gær sigraði FH í ísiandsmeistaramótinu i útihandknattleik og er það tólfta árið í röð sem FH verður íslands- meistari. Þessa mynd tók Kristinn Benediktsson af meisturunum eftir úrslitaleikinn við Fram. Annar frá vinstri í fremri röð er Birgir Björns- son, fyrirliði, sem hefur verið með i öll 12 skiptin og á myndinni eru einnig Einar Mathiesen, formaður Handknattleiksdeildar FH, og þjálfarinn Jóhannes Sæmundsson. ÁFOLL HJÁ COVENTRY J. Hillað hætta - Curtis fótbrotinn Fyrirliði og miðvörður þegar Coventry lék hér á landi Coventry City, Curtis, fét- brotnaði á þriðjudaginn í leik í 1. deild milli Nottm. Forest og Coventry. Þetta er annað stóráfallið, sem Coventry verður fyrir á stutt um tíma — en hinn kunni framkvæmdastjóri liðsins Jim my HiU er á förum frá félag- inu samkvæmt eigin ósk, og mun hætta afskiptum af knatt spyrnu. Þetta kom mjög á óvart — og þykir ekki stór- mannlegt hjá Hill, en hann hefur stjórnað liðinu af mikl um dugnaði undanfarin ár, og komið því úr 3. deild í þá fyrstu. Curtis hefur leikið með liðinu allan þennan tíma og þótt bezti maður þess — að minnsta kosti var hann það, fyrir nokkrum árum. Þrátt fyrir þetta áfall í leiknum í N(»ttingham, sem skeði strax á fimmtu mínútu, tókst Coventry að ná jafnteflj í leiknum 3—3 í æsispenn- andi leik. Einn annar leikur var háður í 1. deild. Liverpool sigraði Arsen al örugglega á Anfield Road með 2-0. f 2. deild vann Hudd ersfield Millvall með 1—0 — og hefur sigrað í tveimtir fyrstu leikjum sínum, en Mill vall tapað báðum. Þá lék Q. P.R. í Bristol og sigraði City með 2-0 Lundúnaliðið, sem sigraði í 3. deild í fyrra, he/ur byrjað vel — jafntefli fyrst í Portsmouth og nú sigur í Bristol. —hsím. Handknattleiksmenn Hauka leika gegn pólskum liðum Handknattleikisideild knatt- spyrnufélagsins Haulka í Halfnar- firði, hefur um nokkurt skeið kannað möguleika á uta-nför fyr- ir 1. deildariið félagsins. Leitað var eftir samvinnu við þýzka og pólskia aðila um skipti- heimsókn. Nú hefir þessi leit bor- •ið þann árangur, að fyrir milli göngu pólska þjálfarans Bregula og Þorieifs Einarssonar jarðfræð- ings, hafa tekizt samningar milli Hauka og pólska 1. deildiariiðsins ,,Spojnia“ frá Gdansk, á þeim grundvelli, að 13 liðsmenn Hauka ásamt 3 manna fararstjórn komi til Varsjá hinn 19. sept. n.k. og d-velji þar tvo daga og taki þát.t í hraðkeppni, síðan verði haldið til Gdansk þar sem verður m.a. jeik- ið við gestgjafana og haldið síð- an aftur heim þann 26. septem- ber. Samningar standa nú yfir um að leika í Kaupmannahölfn á leiðinni til Póllands og bindur stjórnin vonir við að af því geti orðið. Ákveðið hefur verið, að Hauk ar endurgjaMi heimsóknina á næsta ári með því að taka á móti „Spojnia“, yrði það vissu- lega fagnaðarefni fyrir íslenzka handknattleiksmenn og unnend- ur Iþróttarinnar, þar sem í liði þessu eru 5 liðsmenn sem hafa leikið upp á síðkastið í landsliði Póllands. Stjórn handknattleiksdeildár, gerir sér glögga grein fyrir, að slSk ferð er fjábhagslega mjög dýr, og til þess að létta undir með liðsmönnum, hefur verið áfcveðið að efna tii 4000 miða skyndihaþpdrættis á kr. 25. 00 pr. stk. þar sem vinningur verðúr húsgögn frá húsgagna verzluninni Dúna, fyrir kr. 30 000. 00. Vonar stjórnin að happ- drætti þessu verði vel tekið af öllum velunnurum handknatt leiksíþróttarinnar, því að á þann veg gera þeir að veruleifca að fá hingað til lands eitt þekktasta h andkn attle iksli ð Póllands og gera jafnframt liðsmönnum Hauka kleift að auka þekkingu sína á sviði handknattleiks með því að etja kappi við liðsmenn frá einni sterkustu handknact- leiksþjóð heimis. Stjórn deildarinnar færir þeim aðilum, sem greitt hafa götu hennar við undirbúning ferðarinnar, innilegustu þakkir. FRETTIR HEIMSMET Eins og við skýrðum frá í gær voru sett níu heimsmet í sundi á meistaramóti kvenna í Banda- rikjunum, sem háð var í Phila delphiu um helgina. Auk peirrá, sem sagt var frá, voru mer í þessum greinum sett. Pam Kruse, 15 ára, setti heimsmet í 200 m. skriðsundi. synti á 2.09.7 mín. og bætti hún met Pokey Watson um 8/10 úr sekúndu. í 400 m. fjór- sundi bætti hin 17 ára Clauija Kobl eitgið met úr 5.09.7 min. \ 5.08.2 mín. og í 4x100 m. boð- sundi setti sveit Santa Clara nýtt heimsmet, synti á 4.03.5 mín. í sveitinni syntu Linda Gustavson, Nancy Ryan, Laura Fritz og Pokey Watson. Úrslit á kéraðsaóti Ungmennasamb. Skagafjarðar í frjálsum íþróttum Héraðsmót Ungmennasam bands Skagafjarðar í frjálsum fþróttum fór fram að Sauðár- króki 11. og 12. ágúst 1967 í góðu veðri. Keppendur voru frá þremur félögum: ' Umf. Höfðstrend- inigi, Umf. Tindastól og Umt. Eramför. Alls voru keppendur um 40 talsins. Úrslit í einstökum greinum: Karlagreinar 100 m hlaup sek. Gestur Þorsteinsson H. 11.9 Guðm. Guðmundsson T. 12.0. Ingim. Ingimundarson F. 12.0 Ólafur Ingimarsson T. 12.1 400 m hlaup Guðm. Guðmundsson T. 56.8 Ingim. Ingimundarson F. 58.5 Gestur Þorsteinsson H. 58.8 Sigfús Ólafsson H. 59.8 1500 m hlaup Pálmi Sighvatsson T. 4-57,2 Sitgfús Ólafsson H. 4-57.5 Ólafur Ingimarsson T. 5-02.1 Ingim. Ingimundarson F. 5-03,0 4x100 m boðhlaup Sveit Höfðstr. 48.5 Sveit Tindastóls 48.7 Sveit Framfarar 48.7 Langstökk m Gestur Þorsteinsson H. 6.66 Ólafur Ingimarsson T. 6.12 Ingim. Ingimundarson F. 6.00 Sigmundur Guðmundsson H. 5.54 Þrístökk Gestur Þorsteinsson H. 12.98 Guðm. Guðmundsson T. 12.02 Sigmundur Guðmundsson H. 11.90 Öm Þórarinsson H. 11.70 Stangarstökk Guðm. Guðmundsson T. 3.00 Erlendur Sigurþórsson T. 2.75 Ingim. Ingimundarson F. 2.75 Hástökk Ingimundur Ingim.son F. 1.52 Gestur Þorsteinsson H. 1.62 Guðm. Guðmu’ndsson T. 1.55 Ólafur R. Ingimarsson T. 1.55 Framhald á 15. síðu. SVIAR sigruðu Finna í lands- keppni í frjálsum íþróttum, sem háð var í Sto’kkhólmi um helg- ina, með 212 stigum gegn 198 og er það þriðja árið í röo, sem Svíar sigra í þessari keppni. Tvö met voru sett á sunnudag — bæði í kvennagreinum. Ingela Ericson, Svíþjóð, hljóp 400 m. á 54.5 sek. — en þess má geta, að hún sigraði í þessari grein á dögunum í Montreal, þegar úrvalslið Evrópu og Ameríku áttust við. Hitt metíð var í 4x100 m. boðhlaupi. Finnska sveitin hljóp á 47.6 sek. FIMMTÁN ÁRA norsk stúlka Ann-Lise Wærness, setti á sunnu daginn nýtí Norðurlandamet í hástökki — stökk 1.71 metra. Hún bætti eídra metíð am einn sentimetra og voru fjorar stúlk ur um það mert — frá öllum Norðurlöndunuœ nema fslandi — eða Lorentson, Svíþjóð, — Kaarna, Finnlandi, H«sted, Dan mörku — og bizm nýi methafi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.