Tíminn - 24.08.1967, Blaðsíða 13

Tíminn - 24.08.1967, Blaðsíða 13
ÍÞRÓTTIR ÍÞRÓTTIR FIMMTUDAGUR 24. ágósí lð6SL TÍMINN 13 Versti dagurinn í sögu ís- lenzkrar knattspyrnu í gær DANIR SIGRUÐU í LANDSLEIKNUM MEÐ 14-2 Einkaskeytí frá Alfreð Þor- steinssyni, Kaupmannahöfn. Verstí dagurinn í sögu ís- lenzkrar knattspyrnu fyrr og síðar var í gær á Idretsparken í Kaupmannahöfn. Það var allt annað en gaman að vera íslenzkur blaðamaður í gær og horfa upp á landa sína leikna sundur og saman af danska landsliðinu. Fjórtán sinnum sendu Danir knöttinn i netið, en íslenzka liðinu tókst aðeins tvisvar sinnum að skora. Þarna unnu Danir sinn stærsta landsleikjatígur, ef undan er skilinn leikur við Frakkland einhvern tímann á þriðja tug þessarar aldar, en þá unnu Danir sextán — núll — en það er önnur saga. Og auðvitað þarf ekki að taka fram, að þetta er stærsti lands leikjaósigur íslands frá upp- hafi- Hvað skeði á Idretsparken í gærkvöldi? Ég reikna með að fólk vilji fá skýringu á ósköpunum, en þessi úrslit eru engan veginn eðlileg. Fyrsta skýringin er sú, að Danir voru fremri okk- ur á flestum, ef ekki öllum sviðum. En það segir ekki alla söguna. Við hefðum aldrei þurft að tapa svona stórt hefði einhver stjórn verið á íslenzka liðinu. Því miður var liðið eins og stjórnlaust rekald frammi fyrir um það bil tuttugu þúsund æpandi og öskrandi Dönum á áhorfenda- pöllunum, sem kunnu sér ekki læti- í knattspyrnu verða lið að haga sér eftir aðstæðum. Snemma kom í Ijós að danska liðið var mun sterkara —j enda skoraði það 4—0 á fyrstu 15 mínútunum. Með þessu voru Danir í raun og veru búnir að gefa íslenzka liðinu línuna. Það varð að draga einn eða tvo menn aftur í vörnina ti* að styrkja hana. En ekkert slíkt skeði. íslenzka liðið hélt uppteknum hætti, það hélt allan tímann fjórum mönnum frammi, mönnum, sem ekkert annað höfðu að gera en að fylgjast með því, sem var að gerast upp við þeirra eigið mark. Með því að draga ein- hverja af þessum m&inum Hér skorar Tom Söndergaard þriðja mark Dana í leiknum, sem jafnframt var 700 mark Dana í landsleik (Símamynd) aftur hefði verið hægt að styrkja vörnina og koma í veg fyrir markasúpuna. Ég hef persónulega aldrei verið fylgj andi því, að leggja varnar- taktík fyrir, en stundum eru lið beinlínis knúð til að leggja allt upp úr vörninni. Það var óhamingja og sorgarsaga íslenzka landsliðs- ins að skilja ekki þessa ein- földu staðreynd í gærkvöldi. Það var mikið um dýrðir á Idretsparken í gærkvöldi fyrir leikinn, þrjú hundraðasta lands- leik Dana. Héldn Danir upp á það með því að setja 299 blöðrur á loft fyrir leikinn, 137 rauð'ar blöðr ur, sem cáknuðu sigurieiki þejrra, 47 bláar, eins margar og jafntefl- in hafa verið og 115 gular, sem táknuðu tapleikina. Mikill mannfjöldi var samankom inn, eitthvið um 20 þúsund á- horfendur og tóku áhorfendur virk an þátt í leiknum með hvatningar hrópum sínum. Það er skemmst frá því að segja að yfirburðir Dana komu nær strax í ljós, að vísu átti íisland fyrsta markskot ið í leiknum. Kári Árnason á þriðju mínútu. en Kári lék fynr Elmar Geirsson, sem meiddist a höfði rétt áður en leikurinn bóts' Eru meiðsli Elmars ekki alva* leg, en urðu þó þess valdandi að hann gat ekki tekið þátt í leikn um. Mörk Dananna komu eins og hér segir: 1- 0 á 4. mínútu. Mark skorað af liinum snjalla, hægri útlierja Dan- merkur, John Steen Olsen. Hann fékk óvænt sendingu frá vinst.ri og skaut viðstöðulaust. 2- 0 korn á 6. mínútu. Framvörð* urinn Erik Sandvad skoraði mark ið með hörkuskoti. 3- 0 skoruðu Danir upp úr víta spyrnu, sem dæmd var á Anton Bjarnason. Skoraði Kersten Bjerre úr henni. 4- 0 skoraði Tom Söndergaard á 15. mínútu með góðu skoti. 5- 0 varð staðreynd á 28. mmútu- þegar íslenzka vörnin ætlaði að hreinsa frá marki, en ekki tókst betur til en það að knötturinn fór til Finn I.audrup, sem skoraði mcð föstu skoti. 6- 0. Síðasta markið í fyrri hálf leik skoraði Jolin Steen Olsen á 43. mín. eftir mistök í vörninni. Sex mörk í fyrri hálfleik var of mikið af því góða. Ýmsir gallar komu strax í ljós hjá liði okkar í fyrsta lagi töpuðu Eyleifur og Guðni Jónsson öllum einvígjum á miðjunni og voru eins og fissrr á þurru landi í samanburði við miðjumenn Dana. þá Tom Sönder gaard og Kersten Bjerre. Var auð vitað slæmt fyrir íslenzka liðið eiga enga hlutdeild að miðvahar spilinu og ráða angu um það O0 ekki bætti úr skák að staðsetn- ingar öftustu varnarinnar voru fá dæma lélegar og gátu dönski' sóknarmennirnir gert næstum allt sem þeir vildu, sérstakleg- fengu bakverðir okkar Jóhanne;. Atla son og Guðni Kjartansson slæma útreið hjá dönsku útherjunum, sem voru miklu fljótari en þ0’- Samkvæmt þessu mælti allt með því, að við drœgjum fleiri merm aftur í vörnina í síðari hálfleik til að forðast stórtap, en aí einhverjum ástæðum voru engar ráðstafanir g.erðar. Og þó virtíst allt vera í lagi í byrj.un síðari 'hálfl'eiks, meira að segja tókst íslenzka liðinu að skora mark. 6-1. Það gerði Helgi Númason á tíundu mínútu, eftir gróf varnar mist'ök Tom Sönderg.aard, seni ætlaði að senda í átt að eigin marki, en sendi á Helga, sem var fljótur að afgreiða knöttinn í netið framhjá danska markverð inum Jörgen Hendriksen. En Adam var ekki lengi í Para dís. Allt féll í sama horf og á 12. mínútu skoraði Erik Dyre- borg 7-1 fyrir Dani, og rétt á eft- ir kom 8-1 og var Dyreborg enn á ferðinni. Á 15. mínútu skornði svo vinstri útherjinn Ulrik Fevre 9-1. Þá var loks komið að íslandi að svara, en á sömu mínútu skor aði Hermann Gunnarsson 9-2. Danska vörnin var ekki búin að átta sig á hlutunum, þegar Her mann komst í færi Næstu þrjátíu mínúturnar voru hroðalegar. Miðherjinn Djrreborg skoraði 0-2 á 20. mínútu og þremur mínútum seinna bætti TTJ rik Fevre ellefta marki Dana víð. Á 27. mínútu var 12. markið sfað reynd, þegar vítj var dæmt Sigurð Albertsson, en hann kotn í stað Jóhannesar Atlasonar í síð ari hálfleik. Skoraði Kersten Bjerre örugglega úr vítinu. ÓsKÖp in voru ekki búin, því að Bjeræ skoraði i3. markið skömmu síðar og loks skoraði Finn Landrup 14-2 á fertuigustu mínútu. Sá, sem þessar línur ritar hefur sjaldan verið eins feginn og þegar flauta sænska dóm- arans Kurt Lindström kvað viS og gaf þar meS til kyiyia aS leiknum væri lokiS. ÞaS var myrkur umhverfis upp- lýstan Idretsparken, en síSari hálfleikur var leikinn í flóð- Ijósum. Og það varð myrkur í íslenzkri knattspyrnu- Þetta var einn af þessum leikjum, sem maður vildi helzt gleyma, en má ekki gleyma og getur ekki gleymt. Mér finnst eng- inn ástæða til þess að hrósa einum eða neinum í íslenzka liðínu. Flestir léku undir getu og voru miður sín. Ég held fast við þá skoðun mína, að hefði verið betri stjórn — eða eigum við að segja einhvér stjórn á íslenzka liðinu — hefði þessi leikur ekki þurft að tapast með meira en sex mörkum. Að þessari lýsingu iokinni set ég punkt aftan við harmsöguna á Idretsparken í gærkvöldi. — Alf.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.