Alþýðublaðið - 31.10.1987, Page 4

Alþýðublaðið - 31.10.1987, Page 4
4 Laugardagur 31. október 1987 SMÁFRÉTTIR Heimsmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson, t.v. og Héðinn Stein- grimsson, t.h. i húsakynnum Skákminjasafns Skáksambands íslands. Afrekssjóður Skáksam- bandsins Ákveöiö hefur veriö að stofna sérstakan afrekssjóö Skáksambands íslands. Is- land á nú marga efnilega skákmenn og því er nauðsyn- legt að efla fjárhag skák- hreyfingarinnar svo hún geti oröið skákmönnum sem sterkastur bakhjarl. Fyrsta verkefni sjóðsins verður að standa straum af kostnaði vegna þátttöku Jó- hanns Hjartarsonar í áskor- endaeinvígunum i janúar. Fé úr sjóðnum verður að öðru leyti veitt til styrktar efnileg- um skákmönnum og til þeirrs verkefna sem til falla. Safnað verður í afrekssjóð- inn meðal fyrirtækja og ein- staklinga um allt land. Enn fremur hefur verið opnaður sérstakur tékkareikningur í nafni Afrekssjóðs Skáksam- bandsins 8-16-8 í Landsbanka íslands. Velunnarar sjóðsins vilja beina því til íslendinga, að taka nú höndum saman og mynda öflugan sjóð. Jón Sigurðar- son ráðinn forstjóri Stjórn hins nýja ullariðnað- arfyrirtækis, sem stofnað hefur verió á grunni Álafoss og ullariðnaðar Iðnaðardeild- ar Sambands (sl. samvinnufé- laga, hefur ráðið Jón Sigurð- arson forstjóra fyrirtækisins. Jón hefur fram til þessa verið framkvæmdastjóri Iðnaðar- deildar SÍS. Auk þessa hefur dr. Gylfi Þ. Glslason verið valinn fimmti maður í stjórn fyrirtækisins, en aðrir í stjórn eru: Sigurður Helgason formaður, Valur Arnþórsson, Brynjólfur Bjarnason og Guðjón Ólafs- son. íslensk píanó- tónlist í Kristskirkju Snorri Sigfús Birgisson, tónskáld og pianóleikari, mun flytja eigin verk á vegum Tónlistarfélags Kristskirkju, á tónleikum í Safnaðarheimil- inu Hávallagötu 16, n.k. laug- ardag. Hefjast tónleikarnir kl. 16.00, og verða aðgöngumiö- ar seídir við innganginn. Verkin sem Snorri mun leika eru Æfingar (etýður), sem hann samdi 1981, og frum- flutti það ár á miðnæturtón- leikum á vegum Musica Nova. Þetta verk, sem er 21 þáttur og spannar mjög vítt svið hvað snertir tækni og túlkun, er vafalaust meðal merkustu tónverka sem hér hafa verið samin á síðustu ár- um. En Snorri mun einnig leika annað stórverk, Píanólög fyrir byrjendur, sem var á sínum tima pantað af Nomus, þ.e. nefndinni fyrir norræna tón- list, og er það nýkomið út á prenti. Þetta eru 25 stuttir þættir, þar sem farið er á fín- legan og tiltölulega auðveld- an hátt, í gegnum ýmiss nú- tíma tæknibrögð í ptanóleik. Nokkur laganna eru fyrir fjór- hent píanó og mun Anna Guðný Guðmundsdóttir að- stoða Snorra við flutning þeirra. Einnig eru tvö laganna fyrir píanóeinleik og segul- band. Tónlistarfélag Kristskirkju mun gangast fyrir all fjöl- breyttum tónleikum ( vetur. M.a. mun Hlíf Sigurjónsdóttir leika með David Tutt, fiðlu- píanó músík eftir Bach, Bar- tók og Richard Strauss, á tónleikum þ. 15. nóvember, Hljómeyki mun syngja verk eftir Hjálmar Ragnarsson um nýárið og Björn Sólbergsson organleikari mun flytja tón- list eftir Olivier Messiaen í byrjun árs 1988. Þá er einnig áformað að halda a.m.k. tvenna „portrétttónleika" með verkum (slenskra tón- skálda næsta vor. Félagið safnar nú áskrifendum að þessum tónleikum, og mun áskriftarskírteini að sex tón- leikum kosta kr. 2000, eða að jafnaði kr. 400 á tónleika. Væntanlegir áskrifendur geta fengið upplýsingar I síma 26335. Áritun félagsins er: Tónlistarfélag Kristskirkju, Hávallagötu 16, 101 Reykja- vík. Öryggis- hagsmunir - viðskipta- hagsmunir Varðberg, félag ungra áhugamanna um vestræna samvinnu, efnir til hádegis- fundar og ráðstefnu laugar- daginn 31. október l Átthaga- sal Hótei Sögu. Fjallað verð- ur um það hvort öryggishags- munir sjálfstæðra ríkja geti með einhverjum hætti tengst viðskiptahagsmunum þeirra eða jafnvel rekist á þá. Gunn- ar Jóhann Birgisson, formað- ur Varðbergs, setur ráðstefn- una en síðan verða flutt þrjú framsöguerindi um efnið „Öryggishagsmunir — við- skiptahagsmunir." Ráðstefnan er opin félags- Fulltruar ÍSÍ staddir skammt frá Rauða torginu í. Moskvu. F.v. Sveinn Björnsson, Sigurður Magnússon og Jón Ármann Héðinsson. mönnum I Varðbergi og fé- lagsmönnum ( SVS, samtök- um um vestræna samvinnu, svo og gestum félagsmanna. Nlinnisvarði um Egil Thorarensen Minnisvarði, sem Gunn- steinn Glslason hefur gert, um Egil Thorarensen verður afhjúpaður ( Þorlákshöfn sunnudaginn 1. nóvember. Egill Thorarensen er, ef svo má að orði komast, sá sem skapaði Þorlákshöfn. Hann fæddist 1897 að Kirkjubæ á Rangárvöllum en fluttist að Selfossi árið 1918 og hóf þar verslunarrekstur. Þegar Kaup- félag Árnesinga var stofnað gerðist hann þar fram- kvæmdastjóri og árið 1934 gekkst hann fyrir því að Kaupfélagið keypti jörðina Þorlákshöfn. Nokkrum árum seinna stóð hann fyrir stofnun útgerðarfélagsins Meitilsins. Þetta tvennt varð upphafið að Þorlákshöfn nú- tímans. Egils Thorarensen er nú minnst með gerð þessa minnisvarða og mun athöfnin á sunnudaginn hefjast kl. 14.00. Handunnir hlutir til sölu Eins og undanfarin ár held- ur vistfólk Hrafnistu sölu á handavinnu sinni. Hún byrjar í dag kl. 13.30 og stendur til kl. 17.00. Islendingar í Moskvu ÍSÍ gerði á dögunum íþróttasamning við Sovétrík- in. í framhaldi af honum fóru fram viðræður i Moskvu 12,—13. október sl. Sveinn Björnsson forseti ÍSÍ, Jón, Ármann Héðinsson ritari ÍSÍ og Sigurður Magnússon framkvæmdarstjóri sam- bandsins fóru út fyrir íslands hönd. Fulltrúar Sovétrlkjanna voru þeir hr. Gavrilin, varafor- maður íþróttanefndar Sovét- ríkjanna og Valery Thacheek forstöðumaður utanríkis- deildar íþróttanefndarinnar. Samningurinn áréttar vilja 7 beggja aðila til að efla sam- starf á sviði íþrótta, meðal annars með þvi að hafa skipti á þjálfurum og öðrum sér- fræðingum, halda námskeið og ráðstefnur. Viðræður þessar voru fyrst og fremst kynningarviðræður um aðstöðu landanna og er þetta jafnframt fyrsti fundur- inn. Hr. Gavrilin varð tíðrætt um frábæra frammistöðu ís- lenskra handknattleiks- manna, knattspyrnumanna og þá ekki síður skákmanna og hann lýsti enn fremur yfir stuðningi Sovétríkjanna að Heimsmeistarakeppnin í handknattleik fari fram á ís- landi árið 1994. miílMDH) 0 68 18 66 DJÓÐVIUINN 0 68 13 33 Tíminn 0 68 63 00 Blaðburður er og borgar sig LAUS HVERFI NÚ ÞEGAR: Seltjarnames Tómasarhagi Fríkirkjuvegur Laugarásvegur 1—30 Þingholtsstræti Dalbraut Laufásvegur 1—47 Smáragata Ármúla 38 0 68 18 66 Sogavegur 72—106 Sogavegur 101-212 Háagerdi Hlíðargerði Hafðu samband við okkur

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.