Alþýðublaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 7
Laugardagur 7. nóvember 1987 7 Það kom ekkert annað til greina." En, ef þú hefðir lent í öðru sæti? „Þá væri ég hættur. Ef menn eru með jafnmikil um- svif og ég er ekki um annað að ræða en að vera fremst- ur.“ í dag ertu vinsæll Ólafur Laufdal er fæddur I Vestmannaeyjum lýðveldis- árið. Foreldrar hans ólu manninn ( Austur-Eyjafjalla- hreppi, en fluttust til Eyja, af þvl að það „var ekki allt of mikið að bíta og brenna I sveitinni," eins og Ólafur segir. Guðlaug Guðbrandsdóttir og Jón Ólafsson fluttust til Reykjavíkur, þegar Ólafur Laufdal sonur þeirra var 11 ára. Hann er næstelsturö systkina. „Ég er kannski fæddur inn I það starf sem ég sinni i dag. Byrjaði sem pikkolló á Hótel Borg þegar ég var 12 ára og fór að læra aö verða þjónn 15 ára. Það ár var ég llka kokkur á síldarbát meö einn og kvart hlut." Vildirðu alitaf vera fremst- ur? „Nei, ekki held ég það, en ég var alltaf söluhæstur, hvort sem þaö var I blaðasölu eða i þjóninum. Þv( er ekki að neita að þetta virðist heppnast hjá mér. Fyrir þremur árum vildi t.d. ekki nokkur maður koma inn á Hótel Borg. Ég tók hótelið á leigu og eyddi ein- hverjum tugum milljóna I breytingar. Nú verðurðu helst að fara I biðröð til þess að komast ( hádegismat eða kaffi á Borginni.1' Er þessi hæfni i fingrunum á þér? „Ég hef fært starfsfólk, sem ég ræði við á hverjum degi. Starfsemin gengi alls ekki, ef ég hefði ekki svona gott fólk. Og ég er með á fimmta hundrað starfsmenn." Fylgistu með öllum allan daginn? „Eins vel og hægt er. Ég funda t.d. reglulega með framkvæmdastjórum allra deilda. Svona verður þetta að vera. Þetta er þannig bissn- ess. í dag ertu vinsæll — á morgun ertu kannski búinn... Ef eitt dæmi gengur ekki upp verðurðu aö finna upp á nýju." Óttastu að það geti komið upp hjá þér? „Ekki f dag. Ég er oröinn svo stór að það gerist ekki. Ég er að byggja stærsta sam- komusal (landinu og á þann stærsta fyrir." Af Bítlakynslóðinni Fyrir 6 árum opnaði Ólafur Broadway, breiðvang mikinn neðst I Breiðholti. Olafur segir að margir hafi spáö sér falli þá. En hann sneri á allt og alla, og fór að flytja inn skemmtikrafta úr útlöndum, sem aðeins höfðu sést hér stöku sinnum áður — einu sinni eða tvisvar á ári. Ólafur telur upþ röð af stórstirnum fyrir mig. Það er augljóst að gamla bltlatlma- bilið er endurvakið. „Ég er af Bltlakynslóðinni. Ég var búinn að sjá fyrir mér 1 hillingum að ef til vill gæti þetta gerst á íslandi, að þessir skemmtikraftar gætu komið hingaö. Og með Hótel íslandi sem ég er aö reisa get ég tekiö á móti enn stærri sýningum að utan en áður. Það var bylting meö komu þessara skemmtikrafta til íslands. Það verður enn ein byltingin þegar ég opna ísland." Ólafur trúir þvl að með Hótel íslandi verði hægt að halda samkomur hér á landi sem hafi fram að þessu veriö taldar óhugsandi. Ekki slst eigi þetta við útlendinga sem séu þegar farnir að renna hýru auga til íslands með stórar ráðstefnur. Ég spuröi hann hvort það væri ekki þó um mettun að ræða fyrir: „Jú, þaó má að vísu segja það. Við erum aö baka sömu kökuna eins og fjölmiðlarnir gera I dag, en ég hef trú á því að við eigum eftir að skapa enn meiri gjaldeyri en við gerum I dag I veitingahúsa- og hótelrekstri. Ég er llka I þessu vegna spennunnar. Það eru ekki einungis pen- ingar sem eru I boði. Ég hef t.d. ekkert við það að gera að bæta húsum á mig. Afkoman er engu betri en með einu húsi. En þetta er mitt fag. Ef þú vilt ná meiri árangri I starfi, þá geturöu stækkað viö þig og náð meiri völdum." Ólafur segir aö margir vinir úr Glaumbænum gamla séu með honum I dag. Hann hafi skemmt sér með þeim á árum áður. Nú séu þessir sömu menn I vinnu hjá honum. Ólafur nefnir meðal annarra af Glaumbæjartlman- um Gunnar Þórðarson og Rúnar Júllusson. „Það er afturhvarf I dag,“ segir Ólafur. „Ungt fólk hallar sér ekki að pönkinu lengurog diskóið er úr tisku. Útvarps- stöðvarnar hér heima og er- lendis leika gömlu Bltlalög- in.“ Ef ekki.... verðurðu undir Hvað er mest virði í dag? „Frelsið er gott — svo langt sem þaö nær. En það er orðið of mikið. Það er komiö út I talsvert miklavit- leysu." Hvað áttu við? „Það er t.d. allt of mikið byggt I landinu. Og ég tek þátt I þvl. Annars verður mað- ur undir I baráttunni. Blla- innflutningurinn og allar þessar verslanir sem rlsa eru endaleysa. Menn kroppa aug- un hver úr öðrum með þessu háttalagi. Ég er hér enginn eftirbátur, en ef þú tekur ekki þátt I þessum darraðadansi ertu undir. Þetta er stjórnleysi. Ég er t.d. á móti þessum hömlu- lausa innflutningi. Frekarvil ég að íslenskur iðnaður sé styrktur. Mér finnst þaö t.d. agalegt að allar saumastofur séu að fara á hausinn og sömuleyðis húsgagnafram- leiðsla." Þú vilt hömlur... „Það eru allt of margir að fást viö lltið. Ég get tekið dæmi: Ég er að byggja stórt hótel. Á hverjum degi hafa tugir manna samband við mig. Þettaeru óllklegustu menn, sem hafa afkomu át þvi áð flytja inn skrúfur eða eitt- hvert sérhæft dót. Allirvilja vera sjálfs slns herrar, en ég held að það sé allt of stór hluti þjóöarinnar sem er kom- inn út I verslun og viðskipti." En hvernig getur þetta gengið upp? „Stundum finnst manni ótrúlegt hvaðan allir þessir peningar koma. Krökkum eru t.d. I dag gefnar utanlands- feröir til þess að fara á mála- skóla. Hverjum hefði dottiö sllkt I hug áöur. Þá varð maöur að sjá fyrir sér sjálf- ur.“ Er þessi lausung andstæð þinni þjóðfélagsmynd...? „Auövitað vill maður frelsi, en ég held að þetta sé komiö á vitlaust spor. Sjáðu frelsið sem varð til þess að við höf- um bllasölur yfirfullar af verö- lausum bllum." Þú vilt skorður en ekki taumlaust frelsi. Viltu ekki beita þér pólitískt tii þess aö hafa áhrif? „Ég er ekki I pólitlk, og_ ætla mér ekki út I hana. Ég á fullt I fangi með minn fyrir- Ólafur Laufdal: „Ég bý i góðu húsi, á góða konu og fjölskyldu. Ég er hamingjusamur. Það er mér nóg.“ Myndin er af Haukanesi 10, heimili Ólafs Laufdals og fjöl- skyldu, 540 fermetra einbýlis- húsi. Ólafur Laufdal hugsar ekki smátt, þegar veitingahús eru annars vegar. Hér rís Hótel ísland, hótel með 120 herbergjum og víðáttumikl- um sölum, sem rúma> 2500 manns i einu. „Það verður enn ein byltingin, þegar ég opna ísland,“ segir Ólafur Hótel Borg. „Ég tók hótelið á leigu og eyddi einhverjum tugum milljóna í breytingar," segir Olafur Laufdal. Viðtal: Þorlákur Helgason Það fer fremur litið fyrir Stjörn- unni, útvarpinu sem Ólafur er með i bara til þess að styðja við bakið á vinum sinum.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.