Alþýðublaðið - 07.11.1987, Síða 9
9
Laugardagur 7. nóvember 1987
SKOTMA RKIÐ
Viðtal: Kristján Þorvaldsson
Sigfinnur Karlsson formaður Alþýðusambands Austurlands:
ÓLAFUR DREPUR
ALÞÝDURANDALAGID
Sigfinnur Karlsson í Neskaupsstað hefur
um áratugaskeið leitt verkalýðsbaráttu í
Austurlandsfjórðungi. Hann hefur verið
andlit sinna manna út á við og fram að
þessu hefur enginn ógnað veldi hans. A
aðalfundi Verkamannasambandsins, sem
lauk á Akureyri um síðustu helgi, mátti
hins vegar sjá veikleikamerki. Karlinn gaf
ekki lengur kost á sér til trúnaðarstarfa inn-
an VMSÍ og sagði að þeir vildu sig ekki
lengur fyrir austan.
— A þingi Verkamanna-
sambandsins gafst þú ekki
lengur kost á þér í stjórn og
framkvæmdastjórn. Björn
Grétar Sveinsson formaður
Jökuls á Höfn og flokksbróð-
ir þinn tók þitt sæti. — Þú
sagðir siðan í blaðaviðtali að
þeir vildu þig ekki lengur
þarna fyrir austan. Er það
svo?
„Þegar ég fór í pontu og
tilkynnti, að ég myndi ekki
gefa kost á mér hvorki í
stjórn eða framkvæmda-
stjórn, þávissi ég ekki annað
en þetta væri ósk frá for-
mönnum félaganna á Austur-
landi. Síðan kom I Ijós þegar
menn fóru að grafast fyrir um
þetta, að þetta var bara kom-
iö frá einum manni sem tal-
aði við mig. Eftir því sem
hann segir, þegar ég talaöi
við hann slðar, hafi ég mis-
skilið þetta. Formenn félag-
anna hérna á Austurlandi
hafa talað við mig eftir að
þetta skeði. Þeir segja að
aldrei hafi verið minnst einu
orði á þetta við þá, enda seg-
ir maðurinn sem oröaði það
við mig að ég ætti að hætta,
að þetta hefði komið frá hans
eigin brjósti."
— Var þetta arftaki þinn,
Björn Grétar?
„Þetta var Hrafnkell. Björn
Grétartalaði aldrei um þetta
viö mig.“
— Er þetta valdabarátta?
„Ég vil ekkert segja um
það. Ef þetta hefði ekki kom-
ið upp á hygg ég að ég myndi
hafa setið eitt kjörtlmabil í
viðbót. Þegar ég var búinn að
tilkynna fundarheim þessa
ákvörðun, þá kom fjöldi
manns til mín og báðu mig
um að taka þetta til baka.
Fulltrúarnir frá Keflavlk sóttu
það t. d. fast, að ég hætti
ekki og eins margir aðrir sem
ekki voru tengdir Austurlandi.
Mér var llka sagt það, aö for-
maður Fram áSeyöisfírði hafi
verið mjög óhress með þetta.
Hins vegar er þetta búið og
gjört og ég er sáttur við
þetta. Eg vona bara að eftir-
maður minn standi sig, þvi
það fara ekki allir I fötin mín
með það sem ég er búinn að
afreka I gegnum tímann.
Þetta er búið að vera mitt
lífsstarf frá því ég var 26 ára
gamall og stanslaust hef ég
verið I þessu síðan 1943.
— Það hlýtur að vera
hörku innbyrðis barátta
þarna hjá ykkur í Alþýðusam-
bandi Austurlands?
„Nei. Ég myndi ekki segja
það, enda mun ég reyna stýra
því að það komi ekki upp. Ef
menn vilja að ég vlki úr ein-
hverju, þá mun ég frekar velja
það, helduren láta menn ber-
ast hér á banaspjótum um
hver eigi að taka við.“
— Nú hefur verið sagt að
sambandið hafi í gegnum tíð-
ina staðið vel saman fyrst og
fremst vegna þín. Er þetta
ekki að breytast og sjá menn
ekki fram á það að samband-
ið muni sligast á næstunni?
„Nei. Ég hef ekki neina trú
á þvl. Það er meiningin hjá
mér sjálfum að hætta á aðal-
fundinum á næsta ári, sem
verður sennilega I september.
Það er ekki þar með sagt að
ég sé búinn að láta allt úr
höndunum þó að annar taki
við. Ég get vel hugsaö mér að
vinna með næsta formanni
og koma honum inn I mín
störf. Það gengur enginn inn
I sætið mitt án þess að hafa
nokkra reynslu af því áður,
því þetta er mikiö starf. Eg
hef oft lagt nótt viö dag og
ekki sett það fyrir mig að
vinna um helgar. Ég var t. d.
heima næstslðasta sunnu-
dag. Þá sagði konan að það
væri fyrsti sunnudagur síðan
um áramót sem ég væri
heima."
— Er gamla Norðfjarðar-
veldiö að falla?
„Nei. Ég hef ekki trú á þvl.
Það hlýtur að koma etn.hver
annar sem getur borið höfuö
og herðar yfir aðra hérna, þó
að ég hætti."
— AlþýðubaruiaAagið Wrð-
ist vera að missa tökm fyrir
austan. Að sama skapi er
„Norðfjarðarveldið" ekki það
sama og áður. Eruð þið ekki
að missa tökín?
„Já, Alþýöubandalagiö er
búið að missa forystuna
hérna á Austurlandi. Ef held-
ur fram sem horfir þá missir
það einnig forystuna I Nes-
kaup.stað, þá missa þeir
meirihlutann I næstu kosn-
ingum. Það er auövitað ósk-
andi að það yrði ekki. — Ég
er Alþýöubandalagsmaður,
en ég er hundóánægður með
þá.“
— Hvers vegna?
„Það er þessi valdabarátta
I flokknum sem er að keyra
allt I kaf. Það eru vissir hópar
sem stefna að þvl að eyöi-
leggja flokkinn, að mlnu
mati.“
— Hvaða hópar eru það?
„Þeir taka það til sín sem
eiga þetta. Það vita allir hvað
ég á við.“
— En hvað finnst þér um
forystuna á Austurlandi.
Menn segja þetta ekki vera
jafn glæsilega menn og hér
áður?
„Það fer enginn íslending-
ur I föt Lúðvlks Jósepssonar.
Það er ekki fættdur sá l’slend-
ingur ennþá getur tekið
við af honuíh"
— En* sam&k]ptavan4afnál
m«ti verkafýéshreyfmgar á
landsbyggðinni og í Reykja-
vtk?
„Það hefur alltaf verið svo-
Iftill kurr á milli. Með samflot-
unum seinni árin hafa félögin
þurft að koma sér saman um
ýmsa hluti og færst nær
hvort öðru. Hér áður fyrr
streittist hver á móti öðrum.
Ég gæti trúað þvl, aö stefni I
þennan gamla kurr aftur. Það
yrði vofveiflegt fyrir verka-
lýðshreyfinguna ef sú stefna
kæmi upp og þarf að vinna
gegn henni af öllu afli. —
Sameinaöir stöndum við og
sundraöir föllum, stendur
einhvers staðar í góðri bók.
Ég held mig við það.“
— Á formannafundi Verka-
mannasambandsins í haust
gengu formenn 11 verkalýðs-
félaga út, þegar greidd voru
atkvæði um kröfugerð. Meiri-
hluti þessa hóps voru félagar
þínir, Austfirðingar. Hvað
finnst þér um þá ákvörðun?
„Ég var ekki sáttur við það.
Ég hafði borið fram tillögur
til málamiðlunar I kröfugerð-
arnefndinni og vissi ekki bet-
ur en þeir sem voru óánægð-
ir væru búnir að sætta sig
við hana. Svo kom annað á
daginn. Björn Grétar hafði
veriö með athugasemdir,
greidcti atkvæði með þessu
en gerði sem sagt athuga-
semdíf vtð I hvaða ftokk við-
komandi hópar rööuðust. Það
kom bara ekki nðgu skýrt
fram hjá honum. Eg áttaði
mig t. d. ekki á þvl fyrr en eft-
„Eg hef alltaf verið
á móti Ólafi. Ég
sagði reyndar strax
þegar hann gekk úr
Möðru vallarhreyf-
ingunni, vegna
ágreinings við Ólaf
heitinn Jóhannesson,
að hann myndi
drepa Alþýðubanda-
lagið. Og það er að
koma fram. “
ir fundinn að hann hefði ver-
ið með athugasemdir um að
fiskvinnslufólkið yrði I efsta
þrepinu. En hann greiddi at-
kvæði með þessari tillögu
minni og Sigurður Ingólfsson
llka.“
— Þessi viöbrögð hafa þá
komið þér á óvart?
„Já. Það kom mér á óvart
þegar þeir snerust allir svona
hatrammlega gegn þessu. Ég
átti þessa tillögu og hefði
ekki getað gengið út af fundi
með þeim. Þeir hefðu raunar
verið farnir heföi ég ekki
reynt að afstýra því áður.“
— Hvernig líkar þér við
Ásmund Stefánsson?
„Við Ásmundur erum miklir
vinir og ég held mikið upp á
hann. Eg veit að hann á eftir
að verða mikil stjarna á ís-
landi og segi ekkert meira
um það:“
— Hefur verið unnið gegn
þér í Alþýðubandalaginu?
„Já, já. vissir hópar hafa
unnið linnulaust gegn mér
slðan þetta fræga Bjarnfríð-
armát kom upp. Þjóðviljinn
gerði þaö til dæmis mjög
skarpt og ég hætti að kaupa
Þjóðviljann og hef ekki gert
það siðan."
— Hljópstu á þig?
„Nei. Þetta var allt á mis-
skilningi byggt. Hún mis-
skildi þetta sjálf og síðan
stöppuðu aörirstálinu í hana
til að láta hana misskilja
það.“
— Það er verið að kjósa
formann í Alþýðubandalag-
inu, hvernig lýst þér á Ólaf
Ragnar?
„Ég hef alltaf verið á móti
Ólafi. Ég sagði reyndar strax
þegar hann gekk úr Mööru-
vallarhreyfingunni, vegna
ágreinings við Ólaf heitinn
Jóhannesson, að hann myndi
drepa Alþýöubandalagiö. Og
það er að koma frarn."
—r Hvernig lýst þér á hfnn
framb^óðandann, Sigriði?
„fMér lýst nokkúð vel á
hana og hefði gefið henni
mitt atkvæði hefði ég verið
kosinn á þetta þing.“