Alþýðublaðið - 07.11.1987, Side 18
18
Laugardagur 7. nóvember 1987
VERÐLA UNAKROSSGÁTA NR. 3
Stafirnir 1—16 mynda
málshátt.
Sendiö lausnir á Alþýðu-
blaöiö, Ármúla 38, 108
Reykjavik, merkt VERÐ-
LAUNAKROSSGÁTA nr. 3 fyr-
ir 17. nóvember.
Verölaun eru bókin Jónas
Árnason, viðtalsbók, sem
Svart á hvitu gefur út. Dregiö
verður úr réttum lausnum.
Dregið hefur verið úr rétt-
um lausnum (fyrstu gátunni
Lykilmálshátturinn var Auð-
lærð er ill danska.
Verðlaunahafi er Hlíf
Matthiasdóttir, Hæðargarði
40, 108 Reykjavik. Fær hún
senda bókina Hlutskipti
manns.
Fjölmargir sendu inn
lausnir og hvetjum við enn
fleiri til þátttöku.
Kristniboðs-
dagurinn
Kristniboðsdagurinn er að
þessu sinni sunnudaginn 8.
nóvember. Kristniboðsins
verður minnst í kirkjum
landsins og á nokkrum sam-
komum.
íslenskir kristniboðar hafa
starfað að þessum málum í
mörg ár m.a. er 34 ár slðan
íslendingar hófu starf meðal
Konsóþjóöflokksins í S-
Eþíóþlu. Þarer nú mikiö unn
ið á vettvangi kirkju, skóla,
heilsugæslu, þróunarhjálpar
o.fl. í Pókot í V-Kenýu hafa
risið fjórir söfnuðir, fimm
skólar verið byggðir fyrir fé
frá íslandi. Á þessu ári þarf
að safna hátt á áttundu mill-
jón króna og nú I dag vantar
tvær milljónir upp á þá upp-
hæð. Kristniboðssambandið
væntir þess að landsmenn
vilji styðja þarft málefni.
Framlög má afhenda ( Aðal-
skrifstofunni, Amtmannsstlg
2 B eða á glróseðil nr.
65100-1.
Aðallundur
Aðalfundur Norræna fé-
lagsins I Garðabæ verður
haldinn á sunnudaginn, 8.
SMÁFRÉTTIR
nóvember. Hann hefst kl.
20.30. og er fundarstaður
kennarastofa Garðaskóla,
gengið inn hjá bókasafni að
sunnaverðu.
Náttúru- og
umhverfismál
frá sjónarhóli
barnanna
í samvinnu við foreldraráð
Selásskóla fer Náttúruvernd-
arfélag Suðvesturlands I
heimsókn (Selásskóla v/Sel-
ásbraut og skoöar sýningu á
verkum sem 6—12 ára börn
hafa unnið að. Á sýningunni
lýsa þau I texta og myndum
hvaða náttúruvernd og um-
hverfisvernd er frá þeirra sjó-
arhóli. Einnig veröur sýnt
myndband og nokkrar
skyggnur frá undirbúningi
sýningarinnar.
Þetta er sjötta vettvangs-
ferö NVSV og allir eru vel-
komnir með. Sýningin er á
sunnudag kl. 14.00. í fréttatil-
kynningu um ferðina segir
enn fremur að auöveldast sé
að aka að Selásskóla frá
Rauðavatni.
Bergljót Baldursdóttir
Ljósvakinn
í gær, föstudag hóf nýjasta
útvarpsstöðin, Ljósvakinn, út-
sendingar. Stöðin er I eigu ís-
lenska útvarpsfélagsins og
sendir út á Fm. 95.7 allan sól-
arhringinn.
Ljósvakinn mun fyrst og
fremst leika tónlist og þá
helst rólega popptónlist,
klasslska tónlist, jazz og
gömul og ný dægurlög. Öll
tónlistin verður leikin af
geisladiskum eða böndum
sem bjóða upp á sambærileg
hljómlistargæöi.
Stefán S. Stefánsson og
Bergljót Baldursdóttir eru
dagskrárgerðamenn Ljósvak-
ans á virkum dögum.
Afmœliskaffi
Félag ungra jafnaðarmanna í Reykjavík
60 ára
Afmæliskaffi I Holiday-lnn klukkan 15.00
sunnudaginn 8. nóvember.
Kl.03.00 Húsið opnað og boöiö er upp á kaffi og
meðlæti.
Kl.03.30 Bjarni P. Magnússon veislustjóri setur
afmælið.
Afmælisræður:
Fulltrúi F.U.J. Valgerður Halldórsdóttir
Fulltrúi S.U.J. Erlingur Kristensen.
Fulltrúi eldri félaga Sigurður E. Guð
mundsson
Kl.04.30 Veislugestum gefið oröið.
Kl.05.00 Jóhanna Linnet syngur með undirleik.
Kl.05.30 Útnefning Heiðursfélaga.
Kl.05.45 Veislulok.
Afmælisnefnd FUJ.