Alþýðublaðið - 12.03.1988, Blaðsíða 4
4_____________________________________________________________________________________________ Laugardagur 12. mars 1988
FRÉTTA SK ÝRING ra
Haukur Holm skrifar Wm
Gefst þessum börnum aukinn timi til leikja í apríl, vegna verkfalls kennara?
KENNARAR MEfl 100 ÞIÍSUND
KRONUR A MANUOI
Félagsmenn Kennarasam-
bands Islands og Hins ís-
lenska kennarafélags munu
ganga til atkvæðagreiðslu
siðar í mánuöinum, þar sem
skorið verður úr hvort vilji sé
til að beita verkfailsvopninu
til að knýja á um bætt kjör.
Samkvæmt upplýsingum frá
launadeild fjármálaráðu-
neytisins eru meðal heildar-
laun framhaldsskólakennara
um 100 þúsund krónur á
mánuði, miðað við verðlag í
desember s.l.
Eins og fram hefur komið í
fréttum, ætla kennarafélögin
bæði, Hið íslenska kennara-
félag og Kennarasamband ís-
lands að afla sér heimilda til
verkfalls á næstunni. HÍK fór
í verkfall í fyrra sem stóð I
u.þ.b. hálfan mánuð, seinni
hluta marsmánaðar og árið
1985 þegar þau höfðu ekki
verkfallsrétt, lögðu þau
áherslu á kröfur sínar meö
útgöngu. KÍ fór síðast í verk-
fall ( BSRB verkfailinu árið
1984
Starfskjaranefnd
Við gerð kjarasamninga s.l.
vor, gáfu þáverandi mennta-
málaráðherra og fjármálaráð-
herra fyrirheit um bætt
launakjör kennara. Fylgdi
samningnum samkomulag er
leiddi til skipunar starfskjara-
nefndar, sem skoða skyldi
vinnutilhögun og launakjör
kennara, með það tyrir aug-
um að bæta skólastart i land-
inu.
Skilaði nefndin tillögum í
nóvember s.l. og kennir þar
margra grasa. í greinargerð
með tillögunum segir m.a. að
nefndin telji rétt að auka-
greiðslu fyrir heimavinnu og
ýmis aukastörf sem kennarar
inna af hendi, verði lagðar
niður, en í staðinn verði
umbunað fyrir önnur störf en
beina kennslu með lækkun
kennsluskyldu. Ennfremur
segir í greinargerðinni að
litlu fjármagni hafi verið varið
til endurmenntunarnám-
skeiða fyrir framhaldsskóla-
kennara, þrátt fyrir mikla þörf
og beri skólastarfið þess
merki á ýmsum sviðum.
í tillögum nefndarinnar
segir m.a. að til að jafna
vinnuálag framhaldsskóla-
kennara, verði samið um mis-
munandi kennsluskyldu eftir
námsgreinum skólans. Lagt
er til að hámarkskennslu-
skylda verði 26 kennslu-
stundir á viku og lægst 21
kennslustund. Telur hún eðli-
legast að gera ráð fyrir
lægstri kennsluskyldu í móð-
urmáli, sérstakar aukagreiðsl-
ur verði eftir sem áður vegna
nemendafjölda umfram 25 í
námshópi og að fullum
starfsaldri sé náð eftir 10 ára
starf f stað 18 og hækki laun
árlega þar til fullum starfs-
aldri er náð.
Kröfurnar
Meðal atriða í kröfugerð
HÍK er að gert er ráð fyrir
sömu almennu hækkunum
pg eru í kjarasamningi VSÍ og
VMSÍ og eins og í tillögum
starfskjaranefndar, komi
Starfsaldurshækkanir fyrr en
áður. Hækkanir verði mestar
fyrsta árið eða 5% og fari
stiglækkandi og verði 1%
eftir 10 ára starf. Launa-
flokkahækkanir komi til
kennara er starfi f dreifbýli,
sérstakar álagsgreiðslur
j<omi til vegna sérstakra
starfa og að gert sé ráð fyrir
sérstakri gjaldskrá fyrir út-
lögðum kostnaði t.d. vegna
afnota af eigin húsnæði,
tölvu og bókum. Þess er kraf-
ist að samningurinn gildi til
áramóta, en viðsemjendur
þeirra hafa lagt áherslu á að
hann gildi til loka mars 1989.
Laun kennara
En hver eru svo laun kenn-
ara? Samkvæmt upplýsing-
um frá launadeild fjármála-
ráðuneytisins eru byrjunar-
laun grunnskólakennara með
full réttindi kr. 48.205. en
framhaldsskólakennara kr.
51.140. Fylgdi það upplýsing-
unum að sárafáir kennarar
vaeru á þessum launum.
í samtali við Alþýðblaðið
upplýsti Indriði H. Þorláks-
son skrifstofustjóri í fjár-
málaráðuneytinu að meðal-
laun grunnskólakennara í KÍ
væru kr. 74. 820, þar af væri
dagvinnan um kr. 58.000,
framhaldsskólakennari í Kl’
væri með kr. 60.966 í dag-
vinnu og meðaltal heildar-
launaværi kr. 91.815. Grunn-
skólakennari i HÍK væri með
kr. 57.892 í dagvinnu og í
heildarlaun kr. 77.871, og
framhaldsskólakennari í HÍK
væri með 63.069 í dagvinnu
og kr. 98.703 í meðaltal heild-
arlauna. Er þetta miðað við
verðlag i des. s.l. og má bæta
um 2% ofan á þessar tölur,
vegna meðalhækkunar sem
kennarar fengu í febrúar.
Heildarlaun eru miðuð við
sama hlutfall yfirvinnu og
aukagreiðslan af föstum
launum, eins og þær voru ár-
ið 1986.
Verið er að reikna út tölur
miðaðar við árið 1987, og
segist Indriði eiga von á að
hlutfallið hafi hækkað, bæði
vegna þess að kennsluskylda
í grunnskólum hafi breyst og
reiknað með að hlutfall ann-
arra greiðslna ofan á dag-
vinnu sé hærra en áður. Með-
altalið vegna aukagreiðslna
er miðað við alla kennara,
einnig þá sem eru i hluta-
starfi. „Ef t.d. í grunnskóla
væru aðeins teknir þeir sem
eru í fullu starf, þá kæmu
verulega hærri tölur út,“ seg-
ir Indriði. Að sögn hans er
mikið um að kennarar í
grunnskólum séu í hluta-
starfi.
Verkföll framundan?
Eins og að framan greinir
ætla kennarafélögin að afla
sér verkfallsheimildar á
næstunni. Hjá KÍ verður
gengið til atkvæða um það
17. mars n.k. og er þá miðað
við að ef til verkfalls komi
hefjist það eftir páska. Hjá
HÍK verður atkvæöagreiðsla
18. og 21. mars n.k. og hæfist
verkfall þeirra þá 13. apríl.
Á fundi sem HÍK hélt fyrr í
vikunni var því lýsti yfir, að
þrátt fyrir nærri þriggja mán-
aða viðræður, hefði sama og
ekkert þokast í samkomu-
lagsátt. En má þá reikna með
að verkfall skelli á í næsta
mánuði? „Það er erfitt að
segja. Það er náttúrlega lang-
ur tími til stefnu, og það ætti
að vera hægt að ná samning-
um á þeim tíma, hins vegar
er ekki útlit fyrir það eins og
er, sýnist mér,“ segir Ómar
Árnason varaformaður HÍK.
Indriði H. Þorláksson vildi
engu spá um verkfall.„Ég trúi'
ekki öðru en að við finnum
leið að einhverri skynsam-
legri niðurstöðu en þeirri,"
segir hann. Það mun því
koma í Ijós síðar i mánuðin-
um hvort kennarar séu reiðu-
búnir að fara í verkfall til að
knýja á um kröfur sínar, og
hvort kennsla fellur niður í
apríl af þeim sökum. Óvíst er
hvort nemendur verði hressir
með að' fá „aukafrí" svona
skömmu fyrir vorprófin.