Alþýðublaðið - 12.03.1988, Side 16
16
Laugardagur 12. mars 1988
OPIÐ HÚS í HÁSKÓLA
ÍSLANDS 13. MARS
Háskóli íslands býður landsmenn alla velkomna til
kynningar á starfsemi sinni sunnudaginn 13. mars
næstkomandi. Framhaldsskólanemar og aðstand-
endur þeirra eru sérstakiega hvattir til að koma.
Efti rtaldar deilciir bjóða upp áopiö hús frá kl. 10-18 þar sem
kennararog nemendureru til viðtals og veitagestum upp-
lýsingar um sinar fræðigreinar i töluðu og prentuðu máli:
Guðfræðideild, lagadeild, viðskiptadeild, og félags-
visindadeild.
Skrifstofur og stofnanir verða opnar sem hér segir:
Aðalskrifstofa Aðalbyggingu 1. hæð frá kl. 10-18.
Háskólabókasafn Aðalbyggingu 1. og 2. hæð frá kl. 10-12
og 13-18.
Skrifstofa námsráðgjafa Aðalbyggingu, suðurkjallara frá
kl. 10-12 og 13-18.
Árnastofnun Árnagarði frá kl. 13-18.
Deildir og námsbrautir sem ekki hafa opið hús verða með
upplýsingaborð sem hér segir:
Læknadeild: læknisfræði, námsbrauti í hjúkrunarfræði,
námsbraut i sjúkraþjálfun og lyfjafræði. 2. hæð Aðalbygg-
ingu stofu VII frá kl. 10-12 og 14-16.
Verkfræðideild 2.hæð í aðalbyggingu stofu IX frá kl. 10-12
og 14-16
Raunvísindadeild 2. hæð Aðalbyggingu stofu IX frá kl.
10-12 og 14-16.
Heimspekideild. í Árnagarði stofu 201 og stofu 301 frá kl.
13- 18.
Tannlæknadeild. 2. Aðalbyggingu stofu IX frá kl. 10-12 og
14- 16.
Eftirtaldir aðilar verða einnig til viðtals:
Endurmenntun. (námskeið tengd símenntun). í Aðalskrif-
stofu, 1. hæö í Aöalbyggingu frá kl. 13-17.
Félagsstofnun stúdenta (húsnæðismál stúdenta, bók-
sala, ferðamál o.fl.). 2. hæð Aðalbyggingu stofu X frá kl.
14-17.
Fulbrightstofnunin (Upplýsingar um nám og styrki í
Bandaríkjunum). 2. hæð í Aðalbyggingu stofu X frá kl.
14-17.
Kennslumálanefnd (setið fyrir svörum vegna bæklings um
undirbúning náms við háskóla íslands). 2. hæð í Aðal-
byggingu stofu X frá kl. 13-16.
Lánasjóöur íslenskra námsmanna (LÍN) (lög og reglur
Lánasjóðs íslenskra námsmanna). 2. hæð í Aðalbyggingu
stofu X frá kl. 10-12.
Samband íslenskra námsmann erlendis (SÍNE) (upplýs-
ingar um nám erlendis). 2. hæð í Aöalbyggingu stofu X frá
kl. 13-18.
Stúdentaráð (hagsmunamál stúdenta, Stúdentablaðið
o.fl.). 2. hæð í Aðalbyggingu stofu VI frá kl. 10-12 og 13-18.
Myndbandasýning
Myndband I (Saga Háskóla íslands) verður sýnt í Aðal-
byggingu 2. hæð, stofu XI frá kl. 14.30 og í Lögbergi stofu
102 frá kl. 16.00.
Myndband II (Starfsemi Háskóla íslands) verður sýnt í
Aðalbyggingu 2. hæð, stofu XI frá kl. 16.00 og í Lögbergi
stofu 102 frá kl. 14.30.
Kaffiveitingar verða i boði Félagsstofnunar stúdenta
TILBOÐ
óskast í eftirtaldar bifreiðar og tæki sem veröa til sýnis þrióju-
daginn 15. mars 1988 kl. 13-16, í porti bak viö skrifstofu vora að
Borgartúni 7, Reykjavik og viöar.
Tegundir Arg.
1 stk. Mercedes Bens 280 SEL 1985
1 stk. Mazda 929 station 1982
1 stk. Mazda 626 2000 fólksbifr. 1982
2 stk. Mazda 323 station 1982
1 stk. Mitsubishi Colt fólksbifr. 1983
1 stk. Volkswagen Golf fólksbifr. 1982
1 stk. Chevrolet Malibu fólksbifr. 1980
1 stk. Volvo 244 1981
2 stk. Peugot 505 station (diesel) 1983
1 stk. Daihatsu Charmant 1982
1 stk. Lada station 1984
2 stk. Subaru 1800 station 4x4 1982-83
1 stk. Mitsubishi Pajero Turbo diesel 4x4 1984
1 stk. International Scout bensín 4x4 1980
2 stk. Toyota Hi-Lux pic-up m/húsi 4x4 1980
3 stk. Lada Sport 4x4 1981-84
1 stk. Poncin VP 2000 (snjóbíll) 1982
1 stk. Toyota Hi Ace sendif.bifr. m/gluggum 1986
2 stk. Ford Econoline sendif. bifr. E. 150 1979-80
1 stk. Volkswagen sendif. bifr. 1971
1 stk. Mersedes Bens LP 332 upptökubifr. 1962
1 stk. Hino KB 422 Vörubifr. 1980
Til sýnis hjá Rarik Akureyri.
1 stk. Toyota Hi-Lux pic-up m/húsi (skemmdur) 1981
Til sýnis hjá birgðastöó Vegageröar rikisins Grafarvogi.
1 stk. Hjólskófla IHR-540 1977
1 stk. Vélaflutningavagn Hyster 1963
1 stk. Dráttarvél Zetor 6718 m / ámoksturstæki 1979
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins Reyðarfirði.
1. stk. Jaróýta Caterpillar D 7E (180 hö) 1967
Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16.30 að viðstöddum bjóð-
endum. Réttur er áskilinn til að hafna tilboöum sem ekki teljast
viðunandi.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS^
Borgartuni 7. sim* 26844 -
ÍÞRÓTTIR fw* X
Umsjón: Halldór Halldórsson t.
Leikfimikennsla í barnaskólum:
ERU SKÓLAYFIRVÖLD
Á MÓTIÍÞRÓTTUM?
Leikfimi í barnaskólum hef-
ur hlotið mikla gagnrýni und-
anfarið og ekki að ósekju. Ég
hef fylgst svolítið með því
sem fram hefur farið í leik-
fimisölum og þar er fátt eitt
sem hægt er að hrópa húrra
fyrir. í einu tilvikinu voru
nemendur að leika sér frjálst
i körfubolta á meðan kennar-
inn fylgdist með af litlum
áhuga. í öðru tilvikinu var
blakað allan timann og í enn
ööru var langstökk án
atrennu og biðu nemendur,
sem voru yfir 20, að röðin
kæmi að þeim. —
Sérsamböndin
reki kynningarstarf
í skólum
Leikfimitímar í barnaskól-
um eins og gerist og gengur
í dag miðast viö að börnum
eru kynntar þær íþróttagrein-
ar sem iðkaðar eru í íþrótta-
félögunum. Það ætti öllum
að vera Ijóst að leikfimikenn-
ari sem hefur aðeins tvo tíma
til umráða í viku hverri kemur
litlu til leiðar. Þá hlýtur og að
vakna sú spurning hvort það
sé hlutverk skólanna að
standa að slíkri kynningu.
Miklu nær væri að sérsam-
böndin kæmu sínum íþrótta-
greinum á framfæri og þá ut-
an leikfimitíma í samráði við
kennara.
Hlutverk leikfimikennara á
hins vegar að vera að undir-
búa nemendur sem best lík-
amlega og þá ekki hvað slst
með mikilvægi góðrar
grunnþjálfunar að leiðarljósi.
Nemandi með gott líkams-
gervi og þrek eftir skóla-
göngu tekur með sér gott
veganesti út í lífið, auk þess
sem hann er betur búinn
undir að velja sér íþrótta-
grein, sé áhugi fyrir hendi.
Eins og nú háttar eru leik-
fimitímar oftast miðaðir við
áhugagrein kennarans. Hafi
kennari t.d. áhuga fyrir blaki
þá er hætt við að sá hinn
sami leggi höfuöáherslu á þá
íþróttagrein. Allir geta séð
fyrir hver útkoman er á líkam-
legu ástandi nemenda við
þannig aðstæður.
Hvaö meö þá
nemendur sem
eru á eftir?
I öllum kennslugreinum
barnaskóla eru geröar sér-
stakar ráðstafanir vegna
þeirra nemenda sem dragast
aftur úr, nema í iðkun iþrótta.
Hér þarf að verða breyting á
þvi. Oruggt er talið að þeir
nemendur sem hafa gott lík-
amlegt þrek gengur betur í
bóklegum greinum, svo ekki
sé minnst á félagslegu hlið-
ina.
Eru skólayfirvöld
á móti íþróttum?
Eins og kom fram á
Hlé
Vegna óviðráðanlegra or-
saka verður hlé á skrifum
mínum í Alþýðublaðið um
íþróttir. Þráðurinn verður tek-
inn upp af fullu sem fyrst.
— HH.
íþróttasíðu Alþbl. 20. febr. s.l.
þá hefur menntamálaráðu-
neytið veitt leyfi til að leik-
fimitímum í barnaskólum
verði fækkað. Kæmi slíkt til
greina ef bóklegar greinar
eru haföar í huga? Areiðan-
lega ekki. Því getur maður
spurt: Er iðkun íþrótta í skól-
um einhvers konar þriðja
flokks námsgrein sem ekki
ber að taka alvarlega?
Til eru og þeir kennarar
sem blátt áfram reka áróður
gegn íþróttaiðkun nemenda
og tala á niðrandi hátt um
allt er lýtur að íþróttum oq _.
íþróttastarfi. Þetta eru, í flest-
um tilvikum góðirog nýtir
kennarar og njóta virðingar
nemenda sem leggja því eyr-
un að íþróttir séu bara fyrir
skussa.
íþróttaiökun
gott veganesti
Skólunum ber að skila af
sér tápmiklum unglingum í
góðu líkamlegu sem andlegu
ástandi. Það er því mikil
ábyrgð sem hvílir á herðum
skólayfirvalda. Náist gott
samstarf milli skólanna og
hinna ýmsu sérsambanda
innan íþróttahreyfingarinnar
myndi það marka tímamót í
allri íþróttaiökun innan
veggja skólanna.
Fyrir stuttu voru í sjónvarp-
inu viðtöl við nemendur úr
skólum á Reykjavíkursvæð-
inu og var umræðuefnið af-
skiptir nemendur sem voru
lagðir í einelti af skólafélög-
unum. Svör krakkanna voru
yfirleitt á einn veg þegar þeir
voru spurðir hvað væri til
lausnar á vandamálinu: „Þau
ættu að stunda íþróttir, þá
kynnast þau best sínum
skólafélögum". Þetta afdrátt-
arlausa svar krakkanna gefur
vísbendingu um að hér sé
verk að vinna og vonandi
tekst vel til I þeim efnum.
Sá unglingur sem gengur i
gegnum öfluga grunnþjálfun
og markvissa iþróttakennslu
á sinni skólagöngu býr að þvi
síðar á Iffsleiöinni, ekki bara
líkamlegu atgervi, því við
skulum ekki gleyma þeim
viðamikla félagsþætti sem
iþróttaiðkun leiðir af sér.
Myndin er frá úrslitaleik KR og Stjörnunnar i 5. flokki á íslands-
mótinu í knattspyrnu, sem fram fór á dögunum. KR-ingar eru í
sókn og eiga þrumuskot að marki Stjörnumanna en markvörður
Garðabæjarliðsins, Sigurður Sigurbjörnsson, varði meistara-
lega. KR-ingar sigruðu 1-0 í afar spennandi leik.
AB-mynd HH.
REYKJkMIKURBORG
Aautew Sfödtci
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur óskar eftir að ráða
eftirtalið starfsfólk:
Hjúkrunarfræðinga við Barnadeild — bæði er um
fastar stöður og sumar-
afleysingar að ræða.
við Heimahjúkrun — sumar-
afleysingar.
Sjúkraliða við Heimahjúkrun — um er að
ræða hlutastarf á nætur-
vaktir og einnig sumaraf-
leysingar.
Ljósmæður við Mæðradeild — sumaraf-
leysingar.
Upplýsingar um ofangreind störf gefur hjúkrunarfor-
stjóri í síma 22400.
Umsóknum skal skilatil Starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, Reykjavík, fyrir kl.
16.00, mánudaginn 21. mars 1988.