Alþýðublaðið - 12.03.1988, Blaðsíða 10
10
Laugardagur 12. mars 1988
MMÐUBMÐIÐ
Útgefandi: Blað hf.
Framkvæmdastjóri Valdimar Jóhannesson
Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson
Fréttastjóri: Kristján Þorvaldsson
Umsjónarmaður
helgarólaðs: Þorlákur Helgason
Blaðamenn: Haukur Holm, Ingibjörg Árnadóttir
og Sigrlður Þrúður Stefánsdóttir.
Dreifingarstjóri: Þórdls Þórisdóttir
Setning og umbrot: Filmur og prent, Ármúla 38.
Prentun: Blaðaprent hf., Slðumúla 12.
Áskriftarsfminn er 681866.
Áskriftargjald 600 kr. á mánuði. í lausasölu 50 kr. eintakið virka daga, 60
kr. um helgar.
A BATAVEGI
Skoöanakönnun sú er Skáís geröi fyrir Helgarpóstinn á
fylgi flokkanna er aö mörgu leyti athyglisverö. Nú styttist
í ársafmæli rikisstjórnarinnar og hlýtur skoðanakönnun
um fylgi flokkanna aö endurspegla aö hluta til vinsældir
stjórnarinnar sem slíkrar, mat einstaklinga á hvernig ein-
stakir flokkar hafa staðið sig í ríkisstjórninni og hvernig
stjórnarandstööuflokkarnir hafa komist frá sínum hlut.
Þaö fyrsta sem blasir viö augum er hið gífurlega hrun
Borgaraflokksins. Þaö virðist Ijóst að Borgaraflokknum
hafi ekki tekist að haslasérvöll sem stjórnmálaafl kring-
um ákveðnar þjóðfélagshugmyndir, heldur hafi veriö póli-
tískur skyndibitastaöur í múgæsingunum fyrir kosningar
og eins konar samúöarhreyfing kringum Albert Guö-
mundsson. Þegar sú tilfinningaalda hefur gengið yfir,
virðist flokkurinn ekki hafanógu sterkan málflutning til að
ná trausti kjósenda. Þveröfuga sögu er aö segja um
Kvennalistann sem samkvæmt skoðanakönnunum er aö
festa sig í sessi sem sterkt stjórnmálaafl og orðinn næst-
stærsti flokkur þjóðarinnar. Hitt ber þó aö skoða, aö
sennilega hefur Kvennalistinn megnaö að safna saman
fylgi stjórnarandstæðinga í þjóðfélaginu og óánægju-
raddanna. Hvort sú líming endist til þess að veita Kvenna-
listanum stóran kosningasigur í næ°*- kosningum skal
ósagt. Greinilegt er þó að hin „mjt ..iai“ Kvennalistans
virðast höfða til almennings hversu óábyrgur og óraun-
sær málflutningurinn er á stundum.
Sjálfstæðisflokkurinn getur vel við unað að bæta við
nokkrum þrósentustigum, og í sama streng geta Alþýðu-
flokksmenn tekið. Hins vegar verða framsóknarmenn að
bíta í það súra epli að hrapa töluvert í fylgi. Af þessum
niðurstöðum má að sjálfsögðu draga margar ályktanir.
Samkvæmt skoðanakönnun Skáíss standa ríkisstjórnar-
flokkarnir sterkt eða með samanlagt 63% fylgi. En það er
ennfremur Ijóst að uppsveifla Sjálfstæðisflokksins
bendir til þess að samband sé á milli fylgisaukningar
flokksins og hruns Borgaraflokksins. Fall Framsóknar má
eflaust að einhverju leyti rekja til umræðunnar um SÍS en
vafalaust hefur athafnaleysi framsóknarmanna í ríkis-
stjórninni og „stikkfrí-pólitík“ átt sinn hlut í minnkandi
gengi þeirra f ummræddri könnun.
Alþýðuflokkurinn hefur nú 14.5% fylgi. Hið mikla
persónufylgi Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráð-
herrasem ersamkvæmt skoðanakönnun Skáíss næstvin-
sælasti stjórnmálamaður þjóðarinnar, hefur án efa haft
áhrif á vaxandi hag Alþýðuflokksins. En því má ekki
gleyma, að hinn mikli fimbulvetur flokksins virðist nú á
enda. Skattkerfisbreytingarnar og annar flórmokstur kall-
aði á óvinsælar aðgerðir en nauðsynlegar ef halda átti
verðbólgu í skefjum, tryggja hallalaus fjárlög, koma í veg
fyrirerlendarlántökurog haldagengi stöðugu. Hin ábyrga
efnahagspólitik sem Alþýðuflokkurinn axlaði nær einn í
ríkisstjórninni, kallaði á pólitískt hugrekki. Almenningi
virðist nú Ijóst að þessar aðgerðir voru nauðsynlegar og
er farinn að skynja hin jákvæðu áhrif kerfisbreytinganna
þar sem tekjuliðir rikissjóðs voru endurhannaðir til að
skapa skilvirkt og réttlátt skattakerfi sem getur fjár-
magnað velferðarþjóðfélagið. Kjósendur eru farnir að
skilja að sá ríkisstjórnarflokkur sem mest var skammaður,
var eini ríkisstjórnarflokkurinn sem hafði hugrekki og
hugmyndir til að spretta upp þjóðarvömbinni, nema burt
krabbameinið og setja sjúklinginn i rétta eftirmeðferð.
Sjúklingur á batavegi er þakklátui. Það sýnir hið vaxandi
fylgi Alþýöuflokksins.
ÖNNUR SJÓNARMIÐ
Ragnar Lár: Kenningar um hvernig
listamenn eru „búnir til“.
RAGNAR Lár myndlista-
maður með meiru segir
hressilega frá lífsskoðunum
sínum í nýjasta tölublaði af
hinu nýja karlatímariti sem
heitir því einfalda nafni „Við
karlmenn." Einkum eru sjón-
armið Ragnars varðandi list-
ina og listakaup athyglisverð.
Heyrum fyrst hvað Ragnar
Lár hefur að segja um lista-
mannalaun:
„Ég fæ ekki annað séð en
svoköliuð listamannalaun
undanfarinna ára hafi verið
hlægiiegar sposlur, sem að
mestu eru til komnar vegna
ýmiss konar kunningsskapar,
klíkuskapar og þrýstings,
jafnvel pólitísks þrýstings.
Þetta á einkum við um
lægsta flokkinn, en i þann
flokk raðar hin pólitíska út-
hlutunarnefnd eftir geöþótta
og jafnvel þeim aöferðum
sem að ofan er getið.
Allt öðru máli gegnir um
svonefnd starfslaun. Það er
að minnsta kosti nokkurt vit í
þeim. Það getur bókstaflega
skipt sköpum fyrir listamenn
að fá starfslaun til lengri eða
skemmri tíma. Starfslaunin
gera listamanninum kieift að
vinna óskiptur að list sinni
og það er honum ómetan-
legt. Skilyrðin fyrir starfs-
laununum eru þau, að lista-
maðurinn sýni afrakstur
vinnu sinnar, þann tíma sem
hann var á laununum, og er
ekkert sjálfsagðara.“
Um galleríin og „bisness-
inn“ í kringum listina, segir
Ragnar Lár:
„Það er ekkert nema gott
að segja um öll þau galleri
sem skotið hafa upp kollin-
um á undanförnum árum. Þó
er eitt um sum þeirra aö
segja, sem mér finnst alvar-
legt mál og varasamt. Ráða-
menn sumra gallerianna hafa
fetað í fótspor erlendra lista-
verkabraskara og tekið sér,
sjálfdæmi i því að segja við-
skiptavinum sínum hvað sé
„listaverk í dag“ og er mikil
og ógeðfelld spákaup-
mennska á bak viö þetta.
Það var til dæmis i hæsta
máta ógeðfellt þegar haldin
var sýning á verkum ungra
myndlistamanna um árið í
opinberum sýningarsal og
auglýst að starfsmenn eins
gallerísins yrðu á staðnum til
að ráðleggja fólki við kaup á
myndverkum. Þess má geta
að viðkomandi galleri stóð
ekki að sýningunni. Erlendis
tiðkast það, að fjársterkir
aðilar „kaupi“ listamenn og
„búi þá til“, ef svo mætti að
orði komast. Viðkomandi
listamaður er þá á samningi
og málar samkvæmt vilja
„eigandans", en í staðinn
fær hann nóg til hnífs og
skeiðar og vinnuaðstöðu.
Þaö sem á sér stað er nokk-
urn veginn það sama og verið
hefur í fréttum varðandi
hljómsveitina Sykurmolana,
en þeir sem þá hljómsveit
skipa virðast hafa það bein í
nefinu, að hafna þeim tilboð-
um sem hafa í sér fólgið, að
tjáningarfrelsi þeirra sé skert.
í nútímaþjóðfélagi er það
tiðkað að „búa til eftirspurn".
Þessi aðferð hefur einnig
verið notuð hér á landi hvað
iistamenn varðar. Ein aðferð-
in er sú að láta koma fram
myndir á listaverkauppboðum
eftir óþekktan listamann.
Þeir sem uppboðið sækja
þekkja að sjálfsögðu hvorki
haus né sporð á viðkomandi
listamanni né verkum hans.
En þegar til uppboðsins kem-
ur berast boö i umrædd verk
og eru þau seld á furðugóðu
verði. Að sjálfsögðu eru
þessi tilboð tilbúningur einn,
en gestir uppboðsins sjá og
heyra að þarna er um eftir-
sótt verk að ræða og fara að
velta vöngum yfir þeim efni-
lega listamanni sem þarna er
á ferðinni. Síðan er málinu
fylgt eftir með blaðaviðtölum
og greinum. „Plottið" er lang-
timaáætlun og endar gjarna
með stórsýningu á besta
staö. Áróðrinum er fylgt eftir
í fjölmiðlum, eftirspurnin
hefur verið búin til og þá er
ekki að sökum að spyrja.,,
Steingrimur: Sameiningartákn
kvenna?
TÍMINN birtir skemmtilega
fyrirsögn á frétt um skoðana-
könnun HP og Skáíss á fylgi
flokkana og persónuvinsæld-
um einstakra stjórnmála-
manna. Á fréttasíðu blaðsins
stendur: „Utanríkisráðherra
nýtur hylli kvenna." Þetta er
nokkuð frumleg athugasemd
gagnvart manni sem enn
einu sinni er kosinn vinsæl-
asti stjórnmálamaður ís-
lands, þó svo að saxast hafi
á fylgi hans og Jóhanna
Sigurðardóttir hafi skotist
upp sem ný aðalstjarna á
persónuvinsældarlista stjórn-
málanna og hreppt 2. sætið i
skoðanakönnun HP.
En lesum hvernig Tíminn
fer að því að skilgreina Stein-
gríminn sem „utanríkisráð-
herra sem nýtur hylli
kvenna.“:
„Þessar niðurstöður hafa
þó engin áhrif á vinsældir
Steingrims Hermannssonar,
formanns Framsóknarflokks-
ins og utanrikisráðherra.
Hann er enn langefstur á
lista yfir vinsælustu stjórn-
málamennina, svo sem i
undanförnum könnunum. Nú
hefur verið athugað hvaðan
þessi mikli stuðningur kemur
og vekur athygli hvílíkrar gif-
urlegrar kvenhylli Steingrím-
ur nýtur. Rúmlega fimmt-
ungur fylgis hans i vinsælda-
kosningunum kemur frá kjós-
endum Kvennalista."
Tíminn er með öðrum
orðum að segja að áhang-
endur Kvennalistans sjái
Steingrím í sjálfum sér eða
öfugt. Þetta er athyglisvert.
Það hlýtur að þýða að annaö
hvort er Steingrímur í stjórn-
arandstöðu eins og margir
hafa haldið fram eða að
Steingrimur sé orðinn að
sameiningartákni íslenskra
kvenna.
Alpýðnblaðið
s«n» éi rnt kua
armm
■ Gamla Bló BH
TAYLOR
SKIPSTJÓRI.
Stórfengleg og spennandi
kvikmynd gerð eftir hinni
áhrifamiklu sjóferða- og
æfintýrasögu
Ted Lesser: Souls at Sea.
Aðalhlutverkin leika hin-
ir vinsælu og ágætu leik-
arar:
GARY COOPER,
Georgc Raft og
Frances Dee.
Myndin bönnuð börnum
innan 14 ára.
Fffldjörf bankaráns-
tilraun i
OSLO, 15. marz. FB.
,/~V?ANALEGA bíræfnisleg til
raun til bankaráns var gerð
i Horten í Noregi í gær.
Rétt áður en lokað var kom
ungur maður inn í Hortens Pri-
vatbank og gekk að gjaldkeran-
um og miðaði á hann skamm-
byssu.
Sextán ára piltur — sendill
— sá þegar hvað var á seyði,
hljóp út til þes að kalla á lög-
regluna, en lítill Opelbíll, sem
úti var, ók þá af stað. Þá varð
bankaránsmaðurinn smeykur
og hljóp út, en yfirlögreglu-
þjónn að nafni Endrestad elti
hann og handsamaði.
Fangelsanir og
sjálfsmorðíAust
urríki.
Gyðingaofsóknirnar i al-
gleymingi.
LONDON í gærkveldi. FÚ.
HITLER skipaði svo fyrir í
dag, að allir embættis-
menn í Austurríki skyldu sverja
scr hollustueið, en að engir
Gyðingar mættu gegna opinber
um embættisstörfum.
Daglega eykst tala þeirra
Gyðinga, sem handteknir eru í
Austurríki. í dag var handtek-
inn meðal annara, Louis de
Rothschild barón, bankaeigandi
— en hann er af Gyðingaættum.
C AMÞYKKTIR verka-
^ lýðsfélaganna um frv.
um stéttarfélög og vinnudeil-
ur eru nú sem óðast að berast
til Alþýðusambandsins.
Verklýðsfélag Akureyrar.
..Verklýðsfélag Akureyrar tel-
ur eðlilegt að sett sé vinnulög-
gjöf sem tryggi aðstöðu verka-
lýðssamtakanna í landinu og
álitur að frumvarp það um
stéttarfélög og vinnudeilur,
sem samið hefir verið að til-
hlutun stjórnarflokkanna og
sent hefir verið verkalýðsfélög-
unum til umsagnar sé eftir at-
vikum ekki óaðgengilegt ‘fyrir
verkalýðssamtökin og sér ekki
ástæðu til að krefjast breytinga
á því eða mæla á móti samþykkt
þess.