Alþýðublaðið - 12.03.1988, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 12.03.1988, Blaðsíða 8
8 Laugardagur 12. mars 1988 Alþýðuflokkurinn getur því miður ekkert treyst því að góðu málin komist að... hugsi sem svo aö Jóhanna sé sterk og hún geti barist sem áöur fyrir sínum málefn- um. Ég er hundóánægö meö stuðning þingflokksins og þaö skulu menn vita aö þau mál sem Jóhanna berst fyrir eru aö stórum hluta mál sem Samband Alþýóuflokks- kvenna hefur unnið aö og flokkurinn lagt blessun sína yfir á flokksþingum, birt í stefnuskrám flokksins og gert að aöal kosningamálum. Þaö er þvi mjög alvarlegur hlutur fyrir okkur konurnar í Alþýðuflokknum ef við finn- um að þaö er ekki fullur stuðningur við okkar mál, sem Jóhanna berst fyrir á þingi." — Ertu aö tala um klofn- ing milli karla og kvenna í Al- þýðuflokknum? „Það hefur aldrei verið klofningur milli þeirra i flokknum, vegna þess að jafnaðarstefnan er svo sam- ofin þjóðfélagsaðstæðum og uppbyggingu i fjölskyldumál- um. Þó að við konur segjum að allt séu fjölskyldumál hvort sem um er að ræða skattamál eða dagvistarmál, þá viðurkennum við að það þýðir ekkert að hrópa á meira fjármagn til félagsmála nema að fjármagn sé til. Vönduö stefna í efnahagsmálum er þess vegna nauðsynleg alveg eins og það er ekki hægt að slíta félagsmál úr samhengi og hengja þau sérstaklega á konumar." — Þú kallar þaö „hugs- unarleysi11 aö þingflokkurinn styöur ekki nægilega Jó- hönnu á þingi, en benda ekki aögeröir ríkisstjórnarinnar sem neyöa Jóhönnu til aö greiða sératkvæöi á þingi, til þess að það sé einfaldlega ekki stuðningur við félags- málaráðherra? „Auðvitað er ég sár- óánægð með að menn láti það henda sig að storma ekki í pontu og fylgja málefn- um Alþýöuflokksins eftir og mótmæla ekki því, aö það skuli vegið að Jóhönnu með ummælum um slakleg vinnu- brögð. Það er ófyrirgefanlegt, og ég verð að viðurkenna að vinnubrögðin í sambandi við niðurskurð í félagsmálaráðu- neytinu langt umfram önnur ráðuneyti eru méróskiljan- leg. í fyrsta lagi er það veikt fyrir ríkisstjórn að mál skuli keyrð áfram í andstöðu við ráðherra. í öðru lagi skil ég ekki þá ákvörðun að beita hnifnum svo mjög að einu ráðuneyti, og það er athyglis- vert að samgönguráðherra gerir ráð fyrir þvi aö niður- skurðurinn til samgöngumála sé aðeins frestun og muni verða bættur á fjárlögum næsta árs. Því hlýt ég að gera þá kröfu sem formaður Húnæðismálastjórnar að skerðingin til húsnæðismála nú verði bætt á næsta ári. Eins mætti spyrja um Jöfn- unarsjóð sveitarfélaga, sem nú er skertur þrátt fyrir gefin loforð. Ég er ósátt við þau vinnubrögð að ekki skyldi setið yfir efnahagsaðgerðun- um þar til allir ráðherrar gátu sætt sig við þær.“ Skoðanalausar lufsur? — Ertu aö gagnrýna fjár- málaráðherrann sem heldur um peningakassann? „Eg gagnrýni ríkisstjórnina sem slíka, því að þetta er ekki einleikur fjármálaráð- herra. Mér finnst það hlálegt fyrir samstarfsaðila Alþýðu- flokksins í ríkisstjórn að því sé stillt upp þannig að allt sem er gert séu verk Alþýðu- flokksins, og öðrum stjórnar- liðum þá væntanlega lýst sem skoðanalausum lufsum — hins vegar hlýt ég að túlka það þannig að þeim þyki harla gott að vera Alþýðu- flokksins i ríkisstjórn miðist við það að Alþýðuflokkurinn sé gerður að blóraböggli í vondu málunum, en aðrir ráð- herrar spila stikkfrí með yfir- lýsingar út og suður. Það vekur traust fólks ef ríkisstjórn stendur saman. Hér I Kópavogi hef ég setið í bæjarstjómarmeirihluta i 10 ár. Oll þessi ár hefur okkar aðalsmerki verið samstaða um mál, þó að I örfáum tilvik- um hafi hefðbundin skipting meirihluta og minnihluta riðl- ast. Á sama tíma hefur það gerst hjá ríkisstjórnum að það er rekin heiftarleg fjöl- miðlapólitík. Menn virðast reikna með því að það skipti engu máli hvað er sagt fyrir kosningar. Fólk reiknarorðið með því að málin sem lofað var að standa við fyrir kosn- ingar, komi alls ekkert fram. Þar með gerir fólk ekki leng- ur kröfur til kosinna fulltrúa í rikisstjórn. Þeim er jafnvel hampaö sem svíkja mest, vegna þess að það sem stendur upþ úr er hvernig hverjum og einum tekst að hasla sér völl í fjölmiðla- áróðrinum. Fyrir bragðið verður umræðan í þjóðfélag- inu um stjórnmálamenn svo neikvæð, og fólk væntir lítils. Fólk treystir því ekki, ef boð- aðar eru erfiðar aðgerðir til að veita góðum málum braut-

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.