Alþýðublaðið - 12.03.1988, Qupperneq 17
Laugardagur 12. mars 1988
17
Þessi mynd var tekin viö afhendingu verölauna í samkeppni um gerö
handrits aö kennslumynd fyrir grunnskóla. Verðlaunahafarnir Einar
Guðmundsson (fjóröi frá hægri) og Viktor Arnar Ingólfsson eru í hópi
forráðamanna tryggingafélaganna og dómnefndarmanna. (Ljósm.:
Kristján Pétur Guðnason.)
Utboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
Byggingadeildar óskar eftir tilboðum í stálsmíði og
uppsetningu á hringsviði og framsviðslyftu í Borgar-
leikhúsi í Reykjavík.
Heildarþungi á stáli er um 22 þús. kg.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík gegn kr. 15.000 skilatrygg-
ingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 12.
aþríl kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 — Póstholf 878 — 101 Reykjavík
Viðskiptafræðingar
og hagfræðingar
Viðskiptaráðuneytiðóskarað ráða viðskiptafræðing
eða hagfræðing til starfa.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist ráðuneytinu fyrir 15. apríl n.k.
Viðskiptaráðuneytinu, 11. mars 1988.
Utboð
Innkaupstofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Hita-
veitu Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í ryðvarnar-
málningu fyrir Nesjavallaæð. Útboðsgögn eru af-
hent á skrifstofu vorri að Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboðin verðaopnuð ásamastað miðvikudaginn 13.
apríl kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Súui 25800 — Postholf 878 — 101 Reykjavik
Opið hús — Umhverfis-
mál
j Félagsmiðstöðinni Hverfisgötu 8-10, miðvikudag-
inn 16. mars kl. 20.30. Að þessu sinni verður fjallað
sérstaklega um umhverfismál.
Efni fundarins:
1. Gestur Ólafsson, arkitekt og skipulagsfræð-
ingur flytur fyrirlestur sem nefnist skipulag.
2. Meðlimir umhverfismálanefndar Alþýðuflokks-
ins stýra umræðum um umhverfismál.
Mætum öll.
Flokkstjórn —
Sveitarstjórnarmenn
Sameiginlegur fundur flokkstjórnar og sveitar-
stjórnarmanna Alþýðuflokksins verður haldinn á
Hótel Loftleiðum, laugardaginn 26. mars n.k. kl.
11-16.
Fundarefni: Samskipti ríkis og sveitarfélaga.
Skrifstofa Alþýðuflokksins.
Verðlaun
Nýlega voru afhent verð-
laun í samkeppni sem Farar-
heill '87 efndi til um gerð
handrits að kennslumynd um
umferðarmál fyrir 9. bekk
grunnskóla. Fyrstu verðlaun
hlaut Einar Guðmundsson
fyrir handrit um Danna, strák
utan af landi sem flytur til
Reykjavíkur og kynnist um-
ferðinni þar.
Önnur verölaun hlaut
Viktor Ingólfsson tæknifræð-
ingur og rithöfundur.
Amnesty
Mannréttindi
strax
Amnesty International er
aö hefja mestu herferd, sem
samtökin hafa gengist fyrir
til varnar mannréttindum.
Hafin er undirskriftasöfnun
þar sem fólk skorar á stjórn-
völd heims að virða Mann-
réttindayfirlýsingu Samein-
uðu Þjóöanna
Mannréttindayfirlýsingin
var samþykkt fyrir 40 árum. í
henni er skilgreindur grund-
vallarréttur sem allt fólk á
jafnan hvar sem er á jarðar-
kringlunni.
í janúar s.l. hóf hópur I,
innan íslandsdeildar
Amnesty International, bréfa-
skriftaherferð, sem beint er
gegn mannréttindabrotum
gagnvart bórnum. Bréfaskrift-
arherferó þessi er nú farin á
vegum Amensty International
um heim allan. Auk þess sem
deildir Al í hinum ýmsu ríkj-
um taka þátt i herferðinni eru
samtök og stofnanir, sem
láta sig málefni barna skipta,
hvött til þátttöku.
Á ári hverju eru mannrétt-
indi brotin á þúsundum
barna víða um heim. Mann-
réttindabrotin eru m.a. í því
fólgin að börn eru fangelsuö
t.d. með foreldrum sínum,
pyntuð m.a. í því skyni að fá
þau eða foreldra þeirra til
þess að gefa upplýsingar.Þá
eru foreldrar pyntaóir að
börnum sínum ásjáandi.
Slík afbrot gagnvart börn-
um eru daglega framin á ein-
hverju hinna mörgu ríkja hver
eiga aðild að Sameinuðu
Þjóðunum, sem og yfirlýs-
ingu samtakanna um rét
barna frá árinu 1959. í yfuiýs-
ingunni segir m.a.:
fíörrt skulu njóta verndar.
Þeim skal vera sé() fyrir þvi me<)
lögum e<)a öðrum hœtti að />au
fái tœkifœri og aðhúnað til að
geta þroskast líkamlega, and-
lega, siðferðilega og geðrwnt á
heilbrigðan og eðlilegan hátt við
aðstœður þar sem ríkja frelsi og
virðing fyrir lífinu.
Fyrirbyggt sé að nokkurt barn
þoli vanhirðu, misþyrmingar eða
misnotkun í annarra þágu.
Ekkert barn gjaldi kynþátta-
haturs, trúarofsókna né annars
misréttis, heldur séu þau öll alin
upp í anda friðar og bróðurþels.
Mánudagur í
stað sunnu-
dags
Samkvæmt vetrardagskrá
Kammersveitar Reykjavikur
fyrir þetta starfsár var ætlun-
in að síðustu tónleikar
hennar í vetur yrðu sunnu-
daginn 13. mars n.k. Nú hefur
verið ákveðið að þessir tón-
leikar verði haldnir í Lista-
safni íslands, en vegna
opnunartíma safnsins er ekki
unnt að halda þá á fyrirhug-
uðum tíma. Tónleikarnir
verða því haldnir í Listasafn-
inu mánudaginn 14. mars kl.
20.30.
DAGVIST BARNA
Ægisborg sérstuðningur
Sérmenntaður starfsmaður óskast til stuðn-
ings barni á Ægisborg. Um er að ræða heila
eða hálfa stöðu.
Upplýsingar veitir sálfræðingur á skrifstofu
Dagvist barna í síma 27277.
REYKJMJÍKURBORG
JLcuww Stödívi
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
auglýsir lausa stööu
Forstöðumanns
fjölskylduheimilis fyrir unglinga. Staöan er laus frá
1. maí n.k. Áskilin er félagsráógjafamenntun á sviði
uppeldis- og sálarfræði ásamt reynslu af meðferðar-
starfi.
Laun skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar.
Upplýsingar gefnar í síma 25500 (yfirmaður fjöl-
skyldudeildar) eða 622760 (unglingadeild).
Umsóknarfrestur er til 30. mars.
Nordisk Forum
Jafnréttisnefnd Reykjavíkur mun veita ferðastyrki til
farar á ráðstefnuna Nordisk Forum 88, sem haldin
verður í Osló dagana 30. júlí til 7. ágúst 1988.
Umsóknir um styrki sendist til Jafnréttisnefndar
Reykjavíkur, Austurstræti 16, fyrir 1. apríl n.k.
Tilkynning til
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að
nialddagi launaskatts fyrir mánuðina janúar og
feorúar er 15. mars n.k.
Launaskatt ber launagreiðenda að greiða til inn-
heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og af-
henda um leið launaskattskýrslu i þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiöenda skal vakin á því, að
gjalddagi söluskatts fyrirfebrúarmánuðer15. mars.
Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna ríkis-
sjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
Röntgentæki
Óskað er tilboða í röntgentæki fyrir Fjóðungsjúkra-
húsið á Akureyri.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Borgartúni
7, Reykjavík.
Tilboð verðaopnuð þriðjudaginn 3. maí 1988 kl. 11.00
f.h.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
Borgartuni 7, simi 26844