Tíminn - 27.10.1967, Blaðsíða 1
Auglýsing í TlMANUM
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
J-erist áskrifendui að
TÍMANTJM
Hringið i síma 12323
AUKAÞING BSRB KREFST VERÐTRYGGINGAR LAUNA!
Felldi „hugmynd77 ráðherra
um frestun samninga um ár
EJ—Reykjavík, fimmtudag.
£ Aukaþing Bandalags starfsmanna ríkis og bæja sam-
þykkti með 81 atkvæði gegn 7 að nafna þeirri „hugmynd“
Magnúsar fjármálaráðherra, að fresta samningum bandalags-
ins um eitt ár. Jafnframt samþykkti þingið samhljóða, að lýsa
algjörri andstöðu við ráðstafanir ríkisstjórnarinnar.
0 >á gerði aukaþingið ítarlega alyktun um efnahagsmál,
þar sem íögð var áherzla á það hcfuðatriði, að leitazt sé
við að stöðva dýrtíð og tryggja vaxandi kaupmátt launa- Kem-
ur þingið með ýmsar tillögur 1 bvi sambandi.
Aukaþingið var sem kunnugt er
sett 24. október og lauk því í gaer
kvöidi. Blaðinu bárust í dag álykt
anir pær, sem þingið samþykkti.
Um „hugmynd“ fjármálaráðherra
saovþvkkti þingið eftirfarandi:
..Þingið vísar til ályktana svð-
asta þings BSRB urn nauðsyn þess
að nota lagaheimild til uppsagnar
kj nasamninga og nýrrar kröfu-
gerðar á þessu ári. Telur þingið
þau rök, sem fyrir því voru færð,
enn fullu gildi, auk þess sem
nti hefur komið fram skýrar en
áðui'. hvernig réttmæt launaupp-
bót hefur verið höfð af launþeg-
um a undanförnum árum með
niðuigreiðslum vísitölunnar. Með
almennri atkvæðagreiðslu um upp
SUNNUDAGS-
BLAÐ TÍMANS
Hann hét Helgi Jbnsson og
var kynjaður úr Skriðdal, fædd
ur um miðbik ‘síðustu aldar. Á
þrítugsaldri fór hann úr landi
til þess að verða ríbur. Nokkr
um árum síðar brá hann sér
heim snögga ferð og barst tals
vert á. Háðfuglar nefndu hann
gullibaróninn. í næsta Suninu-
dagsblaði segir einmitt af
gróðabrögðum guMlbarónSins og
blaðinu, sem hann stofnaði.
Framhald sögunnar 'kemur ann
ain sunnudag.
Þar segir líka af þvd, hve
„djúpsæir" menn eru orðnir í
bókstaflegri merkingu. Sumarið
1906 voru teknar héT á landi
í myrkri flugmyndir, sem sýna
hitageisla undir yfirborði jarð
ar. Skyldi einhvem tíma verða
unnt að segja fyrir eldgosum
með slíkri aðferð?
í þessu blaði er einnig upp-
hiaf greinaflokks urn Finnland,
smágreinar um gömul skip og
siglingatækni, kvæði, þýdd
smásaga og fleira.
sögn samninga á s.l. vetri sýndu
starfsmenn einhug um þessur
álvkíanir siðasta þings.
Af þessum ástæðum telur þing-
ið ekki koma til greina að fresta
nú samningum og hvika þannig
frá .ögvernduðum réttindum opin
be;ra starfsmanna. Þvi meiri nauð
syn bei til þess að fylgja fast
fram þessu máli, að nú hefur ríkis
stjóinir. lagt til á Alþingi, að kaup
gjaldsvísitalan verði bundin um
þriggja mánaða skeið þrátt fyrir
stórfellda hækkun framfærslu-
kostnaðar* (Samþ. með 81 atkv.
gegn T,.
Þingið fagnaði „þeirri samstöðu
sem orðið hefur með ASÍ og BSRB
í viðræðum við ríkisstjórnina að
undanförnu og væntir þingið
hei.lavænlegra samskipta þessara
samlaka í framtíðinni"
ítarieg ályktun var samþykkt
um eínabagsmálin, og fer hún hér
á eftir:
„23. þing BSRB telur það höfuð
atriði fyrir alla launþega að leit-
azt við að stöðva dýrtíð og
tryggja vaxandi kaupmátt launa.
Til oess að svo megi verða, þarf
kaupgjald að vera verðtryggt,
þannig að launþegar fái bættar
verðiagsþækkanir sem einnig veit
ir stjómvöldum aðhald um að
hefta verðbólgu.
Þingið beinir því til fulltrúa
BSRB í viðræðunefnd við ríkis-
stjórnina að miða ákvarðanir sín-
ar við þau sjónarmið, að byrðar
sem nauðsynlegt kynni að verða
að xggja á landsmenn, komi ekki
niður á láglaunafólki og barn-
mörfeum fjölskyldum.
Þingið bendir sérstaklega á eftir
fara.idi atriði í þessum efnum:
t. Athugað verði, hvort ekki sé
unnt að draga úr fjárfestingu,
bæði opinberra aðila og einkaað-
ila, án þess að það hafi alvarleg
ábrii i> atvinnuástand. Jafnframt
verði tekin upp heildarstjórn fjár
festingar og hún einkum miðuð
við þarfir atvinnuveganna og al-
menna húsnæðisiþörf.
Framhald á bls. 15
'.svvv.-Vx''.:
i
Flugmennirnir þrír Rolf Storhaug, Einar Petersen, og Thor Tjöntveit nauðlentu í snjóauðnum
Yukons í Alaska 13. október, og sáust sunnudaginn 22. október. Mynd þessi var tekin úr flug-
vél. Þeir voru fljótlega fluttir á sjúkrahús.
Norskur flugmaður í blaðaviðtali eftir 10 daga íauðnum Alaska
EINS OG RISNIR
FRÁ DAUDUM
NTB-Osló, fimmtudag.
„Þegar ég lá í snjóauðninni
óskaði ég mér stórrar flösku
af isköldu Coca Cola, og þegar
ég kom heim fékk ég ískalt
kampavín. Pedersen vildi
lielzt fá ískalt öl“. Það er einn
flugmannanna þriggja, sem
týndust á leið yfir Alaska og
fumlust 10 dögum síðar —
Rolf Storliaug — sem segir
þetta í viðtali við NTB í dag,
en hann er nú kominn heim
til sín í Osló. Stofan heima
hjá honum er prýdd rúmlega
30 blómvöndum og skeytin
streymdu til hans. Á nokkrum
klukkustundum voru þau orð
in 70. Kampavínsflöskumar
stóðu í langri röð í stofunni
— þær voru gjafir frá vinum
Storhaugs.
— Einn vina minna sagði, að
það yrði tekið á móti mér eins
og ég hefði risi'ð upp frá dauð
um, og þar spáði hann réttileiga,
— segiir Storhaug. — Ef til vill
hef ég risið upp frá dauðum.
Hið eina, senj ég var raunveru
lega hræddur við var lending
in, og síðan birnirnir. Ég hef
heyrt, að menn hafi áður slopp
ið lifandi eftir nauðlendingu í
snjóauðnum Alaska, og síðan
orðið fórnardýr bjarndýra. Hið
síðasta, sem við gerðum á
kvöldin áður en við fórum að
sofa, var að hlaða Mauser-inn
okkar og hafa hann til reiðu.
Glóðarauga eru einu merikin,
sem Sitorhaug ber eftir nauð-
lendinguna, en hann meiddist
muin minna en hinir flugmenn
irnir. Strax að n'auðlendingunni
lokinni urðu þeir að flýta sér
út úr fiugivélinni og í nokkra
fjarlægð, þar sem hætta var
Framhald á bls. 15
0
DAGSKRÁ HLJÓÐVARPSINS í VETUR
BAKSÍÐA