Alþýðublaðið - 04.06.1988, Page 17

Alþýðublaðið - 04.06.1988, Page 17
17 Laugardagur 4. júní 1988 Sjóli í slipp i Reykjavík. Velta Sjólastöðvarinnar einn milljarður á ári: Aflaverðmœti Haraldar Kristjánssonar 65 millj. kr. í þrem fyrstu veiði- ferðunum Haraldur Jónsson á skrifstofu sinni. „Byrjaöir að endurbæta frystihúsin“ segir Haraldur Jónsson framkvœmdastjóri Nafn Sjólastöðvarinnar hf. í Hafnarfirði hefur veriö mikiö á iofti meðai almennings síðustu mánuðina, enda hef- ur fyrirtækið fengið tvo nýja frystitogara með skömmu millibili. Sumir hafa sagt að þeir Sjólastöðvarmenn munu aldrei ráða við þær miklu fjárfestingar, sem fyrirtækið hefur lagt i undanfarin ár, en þeir sem gleggst vita, segja að fyrirtækið eigi eftir að blómstrá á næstu árum, þar sem togararnir Sjóli og Har- aldur Kristjánsson hafi feng- ist á einstaklega hagstæðu verði. Fyrirtækið Sjólastöðin hf. hefur vaxið með ólikind- um á síðustu árum í það minnsta ef miðað er við ís- land og reiknað er með að velta fyrirtækisins verði um eða yfir einn milljarður króna á þessu ári, en um 200 manns starfa hjá Sjólastöð- inni um þessar mundir. Sjólastöðin hf. er orðin vel 20 ára gamalt fyrirtæki. Lengi vel átti fyrirtækið bát er Sjóli hét og 1971 keypti fyrirtækið fiskvinnsluhús við Oseyrar- braut í Hafnarfirði, þar sem höfuðstöðvar fyrirtækisins eru enn þann dag í dag. Þar var þá niðursuðuverksmiðja og minni háttar aðstaða fyrir frystingu, saltfisk- og skreið- arverkun. Segja má að hinn raunverulegi vöxtur fyrirtæk- isins hafi byrjað á árinu 1981, en þá keypti fyrirtækiö skut- togarann Sjóla frá Noregi. Sjóli varð fljótt þekktur á ís- landi, sérstaklega þegar for- ráðamenn fyrirtækisins tóku upp á því að stytta togarann aðeins, en með því móti mátti togarinn vera að veið- um nær landi en flestir togar- anna. Með tilkomu Sjóla gat fyrirtækið treyst á hráefni frá eigin skipi, en fram til þess höfðu forráðamenn þess orðið að kaupa mikið frá öðr- um skipum. Lengi vel sá Jón Guð- mundsson um daglegan rekstur Sjólastöðvarinnar, en nú hefur Haraldur sonur hans komið til viðbótar og hann segir þegar rætt er við hann að eftir að gamli Sjóli hafi verið keyptur, þá hafi mikið verið gert til að efla fisk- vinnslu fyrirtækisins. T.d. hafi tækjabúnaður verið aukinn mikið og við það hafi góður árangur náðst. Gátu ekki nýtt kvóta Sjóla „Það var svo um áramótin 1984-1985 að við keyptum ís- hús Hafnarfjarðar og um leið togarann Otur. Á svipuðum tíma ákváðum við að láta gera miklar endurbætur á Sjóla og vár togarinn bæði

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.