Alþýðublaðið - 04.06.1988, Blaðsíða 24

Alþýðublaðið - 04.06.1988, Blaðsíða 24
„í Grímsey og á mörgum öörum stöðum er þetta ein- asti eini atvinnuvegurinn. Þaö má því kannski segja að menn séu dæmdir til þessara starfa. Þeir sem ætla sér eitt- hvaö annað, veröa bara aö koma sér burt,“ segir Harald- ur Jóhannsson í Grímsey sem stundað hefur róöra í yfir 50 ár mestan part frá Grímsey, þar sem hann er uppalinn. Átta ára til sjós „Fyrsta sumarið sem ég réri, var ég átta ára. Og ég segi „réri“, því þaö var ekki fyrr en fimmta sumarið sem ég var á bát með vél í,“ segir Haraldur. Á þessum tíma var ein- göngu stunduð sjómennska yfir blásumarið. Höfn í Grímsey var nánast engin og kallast varla heldur höfn í dag. Bátar voru teknir upp þegar leið á haust, í sept- ember, og úr því var ekki róið nema þegar skroppið var á árabátskænu, sem hægt var að kippa á land eftir hverja sjóferð. „í þá daga voru stundaðar ekta handfæraveiðar," segir Haraldur. „Þá voru ekki kom- in þessi gerviefni sem eru í dag. Færin dregin upp i bát- inn, en ekki hringuð upp á rúllur eins og gert er með nælonið." Línuveiðar voru einnig stundaðar og sumir réru með línu allt sumarið. „Þá var beitan ekkert vandamál því síld var vaðandi í kringum eyjuna mestan part sumars- ins. Oft á tíðum var allt svart af síld og ekki sást neitt síld- arskip því þau þurftu ekki svo langt.“ En Haraldur man einnig eftir því, þegar allt var fullt af síldarskipum, sérstak- lega í brælum, austanbræl- um þegar leið á sumarið." Þau komu í var upp við eyj- una. Ég man að ég heyrði tal- að um að þarna hefðu verið talin á fimmta hundrað skip. Þetta voru Norðmenn, Sviar, Danir, Færeyingar og Finnar að ógleymdum íslendingum. Og eftir stríð voru Rússar þarna líka. Manni fannst mik- iö til um þegar fór að dimma á haustin. Það voru engin úti- Ijós og engin rafmagnsljós í Grímsey á þessum tíma. Það var eins og stór borg að sjá allt uppljómað á síldarflot- anum þarna úti fyrir. Svo fór heldur betur að draga úr þessu," segir Har- aldur og leynir sér ekki að hann saknar þessa tíma. „Eins og allir vita er engin síldin og engin síldveiðiskip- in i dag. Umskiptin frá því sem ég man sem stráklingur eru því mikil á þessu sviði.“ Breytingar hafa einnig orð- ið miklar í veiðunum frá þessum tíma. Haraldur segir ef til vill mestu byltinguna hafa orðið fyrir 11-12 árum síðan þegar Grímseyingar byrjuðu á þorsknetaveiðum. Hann hefur tekið saman afla- tölur, sem sýna að aflinn frá árinu 1975 hefur farið úr 730 tonnum í 2300 tonn 1986. Þessi afli er nánast veiddur af sama bátaflotanum. Stærsti báturinn er 29 tonn. „Sumir segja hann 29 tonn- um of stóran vegna hafnleys- unnar,“ bætir Haraldur við. Þá eru þrír 11 tonnabátar, en hitt eru allt bátar undir 10 tonnum. „Sem betur fer er höfnin ekki sú sama og ég man eftir sem stráklingur, því þá var al- gjör hafnleysa," segir Har- aldur. Það var algengt að gerði þau veður að menn misstu báta upp, ef ekki var tekið nógu snemma á land að haustinu til, jafnvel eftir að kom bryggjustúfur þurftu menn að taka báta upp á hverju kvöldi, vildu þeir róa um haust. „Grímseyingar voru alltaf lélegir með að útvega sér tæki til að setja með. Spil til að setja, fyrirfannst ekki,“ segir Haraldur. „Aðalaðferðin var að setja bakið undir þá. Þetta var auðvitað mikið álag á mannskapinn þvi það þurfti ekki bara að setja eina trillu, heldur kannski 5-6“ Illhveli og lífróður í land Haraldur byrjaði að róa með afa sínum. „Fjórða sum- arið lagðist hann veikur og dó úr krabba og seinnipart sumarsins, þegar ég var tólf ára gamall, réri ég einn á smákænu. Mér fannst það allt í lagi, en þegar leið á sumarið var mér komið fyrir hjá gömlum karli, sem réri á samskonar bát. Ég læröi margt af þessum gamla manni, sem var einn af þess- um kynlegu kvistum sem njóta sín best á stöðum eins og í Grímsey." Haraldur minnist einnig afa síns. „Það var annan eða þriðja róðurinn sem ég fór með afa, þá beit á hjá mér fiskur sem ég réði ekkert við. Afi tók við

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.