Alþýðublaðið - 23.07.1988, Side 6

Alþýðublaðið - 23.07.1988, Side 6
Sú óvenjulega staða mun koma upp íágústbyrjun að mörghundruð íslenskir karlar verða gras- ekkjumenn í u.þ.b. tíu daga. Slíkt ástand hefur tœpast nokkru sinni skapast fyrr hér á landi, þvíflestar konur gera lítið af því að skilja mennina sína eftir með börn og bú — hvað þá að þœr geri það í hópum. Við höfðum uppi á fimm körlum, sem verða orðnir kvenmannslausir um nœstu helgi, og spurðum hvernigþetta legðist íþá. Búastþeir viðþví að verða orðnir niður- brotnir, glorhungraðir, skyrtu- og sokkalausir, þegar konurnar snúa aftur? Eða eru þeir kannski fullir tilhlökkunar og sjá fyrir sér unaðslegar dýrðarstundir á veitinga- og danshús- um? Eins og kunnugt er ætla rúmlega sjöhundruð íslenskar konur á kvennaráðstefnu Norður- landaráðs — Nordisk Forum — í Osló. Flestar dvelja konurnar í tíu daga í Noregi, þar sem þær œtla m.a. að frœðast, bera saman bœkur sínar, njóta lífsins og slappa af. Margar hafa verið að safna fyrir þessari ferð í langan tíma og undirbúningurinn hefur tekið á sig ýmsar myndir. Einstaka kona hellti sér út í norsku- nám, aðrar dustuðu rykið af gömlu góðu dönskunni með því að lesa Alt for damerne og Familie Journal og konur á Suðurlandi skiptust á sniðum að ,Ég er nú svolítið j J ) léttum sumarpilsum og blússum fyrir ferðina. Gera má ráð fyrir því, að töluverð- ur fjöldi þessara kvenna sé giftur eða í sambúð. Það leiðir hugann óneitanlega að því hvað karlpening- urinn ætli að aðhafast á meðan „betri helmingurinn“ er úti í Osló. Skyldu þeir vera konunum reiðir fyrir að œtla að yfirgefa þá? Lang- ar þá með til Noregs? Eru þeir áhyggjufullir? Hrœddir um að geta ekki bjargað sér? Eða bíða þeir þess kannski með óþreyju að konan komi sér út á Keflavíkurflugvöll, svo þeir geti farið að hafa það náð- ugt? Við fengum fimm tiivonandi gras- ekkjumenn til að tjá skoðanir sínar á norrœnu kvennaráðstefnunni og segja frá því hvernig þeir œtla að bjarga sér á meðan konan er fjar- verandi. í byrjun ágústmán- aðar verða nokkur hundruð íslenskir karlar grasekkju- menn í rúma viku, á meðan konur þeirra sækja norrœna kvennaþingið í Ósló. Fyllast öll veitinga- og danshús lands- ins, eða verður mesta annríkið í þvottahúsunum? eftir Jóninu Leósdóttur

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.