Alþýðublaðið - 23.07.1988, Síða 7

Alþýðublaðið - 23.07.1988, Síða 7
táúgái-dagur'23:fúlí T98Ö Andrés Andrésson, aðalbókari „Nota tímann til að dytta að húsinu. “ Benedikt Lund, lög- reglumaöur „Treysti því að þetta skili mér betri konu. “ „VONA AÐ HÚN VERÐI BÚIN AÐ ÞV0!“ ANDRÉS ANDRÉSSON, aöalbókari hjá Bílaborg, sagöi eiginkonu sína hafa ákveöiö fyrir tveimur til þrem- ur mánuðum aö fara á Nord- isk Forum. Þetta er í fyrsta sinn, sem hún fer í burtu af heimilinu í svona langan tíma, en samt kveöst Andrés síður en svo hafa fyllst kvíöa viö tíöindin. Hann væri þokkalega fær um aö bjarga sér í eldhúsinu þessa tíu daga og þetta hlyti því allt aö bjargast. Ekki var hann þó búinn aö ákveöa neitt í sam- bandi viö eldamennskuna. Þau mál færu svolítið eftir þvl hvort synirnir tveir, 17 og 22 ára, yrðu I mat eöa ekki. „Maður gefur nú engar yfir- lýsingar um sllkt fyrirfram!“ sagöi hann og brosti íbygg- inn. „Annars getur vel veriö að ég bregði undir mig betri fætinum og grilli eða eitt- hvað í þeim dúr. Ég hef ákaf- lega gaman af því. Annars er ég einfaldlega ekkert farinn aö hafa áhyggjur af þessu. Maóur kaupir bara eitthvað, sem fljótlegt er aö matbúa. - Svo getur líka verið aö ég láti vinkonur strákanna bara um að elda ofan í þá!“ Andrés sagöist ekki hafa neitt viö sérstakar kvennaráð- stefnur aö athuga, en karla- samkundur í sama dúr væri engin þörf á að halda — þ.e.a.s. ekki ennþá! Þaö væri hins vegar sjálfsagt að halda fundi um málefni kvenna, á meðan konurnar teldu sig hafa af þeim gagn og gaman. Andrés kvaðst því vona aö ráðstefnan tækist vel og kon- urnar kæmu ánægóar heim. Hann sagöist raunar gjarnan vilja vera fluga á veggnum í Osló og heyra hvaö fram færi. „En bara smástund!" bætti hann síðan viö, eftir andartaks umhugsun. Þegar blaöamaður spuröi Andrés hvort hann byggist við því að eiginkonan kæmi eitthvað breytt til baka, hló hann og sagðist vona inni- lega aö svo yrði ekki. „Þetta er vonandi ekki það alvarlegt, að þær snúi aftur alveg heila- þvegnar!" Hann haföi hins vegar litlar áhyggjur af þvf að frúin yröi með mikla yfirvigt á heimleiðinni. Honum skyldist aö Osló væri með dýrari borgum heim að sækja, svo þaö yröi eflaust Iftiö gert af reyfarakaupum. Andrés Andrésson kvaðst kannast viö nokkra aðra karla, sem einnig yröu gras- ekkjumenn á meðan ráð- stefnan stendur yfir. Þaó heföi hins vegar ekkert borist í tal þeirra á meðal aö taka upp á einhverju skemmtilegu á meöan konurnar væru í burtu. Sjálfur sagðist Andrés helst búast viö því aö nota tímann til aö dytta að ýmsu í húsinu, sem setið hefói á hakanum. Einnig kæmi til greina að hann brygöi sér í heyskap uppi í sveit. Lokaspurningin var sú, hvort hann ætti von á því aö eiginkonan yrði búin að þvo allan þvott, þegar hún færi. Svarió kom að bragði: „Já, það ætla ég aó vona! Það hanga aö vísu einhverjar leiöbeiningar uppi á vegg við þvottavélina, en ég er ekki vanur aö sinna þeim málum — frekar en því aö strauja og pressa. En hver veit... Ef á þyrfti að halda, gæti maður svo sem prófaö þetta." „YRDI FEGINN, EF FRÚIN LÆRÐI AÐ SAUMA í 0SLÓ“ BENEDIKT LUND, lögreglu- maöur í Mosfellsbæ, er al- vanur því aö sjá um hin ýmsu verk innan húss. Fyrir sex ár- um tók hann sér t.d. frí í þrjá mánuöi til þess að annast ný- fædda dóttur sína eftir að eiginkonan fór aftur í vinnuna aö loknu barnsburðarleyfi. Blaöamaöur rabbaöi við Benedikt um Nordisk Forum. — Hefur þaö staðið lengi til ad konan þin færi á nor- rænu ráöstefnuna í Osló? Benedikt: Já, ,hún var nánast ákveöin í þessu frá upphafi, held ég. Hún frétti af ráðstefnunni fljótlega eftir áramót og varö strax áhuga- söm um að fara. Þetta eru mál, sem hún hefur mikinn áhuga á, og þess vegna hvatti ég hana eindregið til að taka þátt. blm: Þú öfundar hana ekkert af því aö vera að fara? Benedikt: Vissulega er skemmtilegt að feröast og það gæti veriö gaman aö vera á leiðinni til Noregs, en ég öfunda hana ekkert. Karlar hafa líka svo lengi veriö drottnunarvaldið I þjóöfélög- unum að viö þurfum ekki jafnmikið á svona ráðstefnu aö halda og konurnar. Við karlmennirnir erum heldur ekki haldnirsömu kjaftafíkn- inni og kvenþjóöin! blm: Heldurðu að ráö- stefnan skili einhverju áþreif- anlegu? Benedikt: Ég treysti því náttúrlega að þetta skili mér betri konu til baka! Hins vegar er ég svolítið óhress meö þaö — fyrir hönd þeirra kvenna, sem virkilega eru í þessu af lífi og sál — hve margar konur ætla aö fara út, þó þær segist engan áhuga hafa á þessum málum. Þær eru bara aö komast í ódýra skemmtiferð. Ég held, aö þannig þenkjandi konur muni skemma heildarsvip ráöstefnunnar. Ein sagöi mér t.d. um daginn aö samið hefði veriö við Norðmenn um aö ráöstefnukonurnar mættu koma meö aukaskammt af bjór og vini inn í landið! Raunar hef ég enga trú á því aö þetta sé rétt, en svona er hugsunarhátturinn. Og aöra spuröi ég hvernig henni litist á dagskrána og svarið var þaö, aö henni heföi ekki einu sinni dottið í hug að lesa pró- grammið! Ef þetta viöhorf er algengt meðal kvennanna, veróur ef- laust erfitt að halda aftur svona ráöstefnu. Það verður a.m.k. erfiðara að fá styrki hjá verkalýðs- og fagfélögunum í næsta skipti. Mér finnst, að það ætti aö styrkja þær kon- ur mjög vel, sem hafa áhuga og löngun til aö vinna aö jafnréttismálum. En láta hin- ar flakka. Konan mín hefur veriö á sí- felldum fundum allt frá því hún ákvaö aö fara á ráöstefn- una. í þessari viku er hún t.d. á þremur fundum. Þetta hef- ur eiginlega gengiö fyrir öllu ööru I vetur, enda finn ég vel hve þetta er henni mikilsvert. Svona á þaö líka að vera. blm: Þekkirðu aðra karl- menn, sem veröa „skildir eft- ir“ í ágústbyrjun? Benedikt: Reyndar ekki. Ég heimsótti aö vísu einn kunningja minn í vetur og sagöi honum, aö það væri al- veg upplagt fyrir konuna hans aö fara á Nordisk For- um. Hún var strax óskaplega spennt fyrir þessu og langaði mikið, þangaö til ég sagöist alveg geta séö um manninn hennar á meðan. Viö gætum skemmt okkur og jafnvel skroppið saman á Þjóöhátíð- ina í Vestmanneyjum. Þá guggnaði hún! Þoröi ekki að skilja hann eftir. blm: Hvernig helduröu aö þér muni ganga meö elda- mennskuna? Benedikt: Það veröur nú ekkert vandamál, enda elda ég eflaust oftar en eiginkon- an. Hún dræpist a.m.k. fyrr úr hungri en ég! Það segi ég al- veg satt. í gær var ég t.d. aö dunda viö aö búa til einar 150 fiskibollur og láta í frystinn. Og ég bý til slátur og allt mögulegt. Þaö eina, sem mér gengur illa meö, er þvottavélin. Mér gengur bölvanlega aö læra á hana. Ég er líka fjári lengi aó setja i vélina, þar sem ég les leiöbeiningamiöann á hverri einustu flík til aö sjá hvaöa hitastig hún þolir. Að vísu hef ég eitt ráð viö því. Það er að setja þvottinn bara á nógu vægan hita. Mér finnst þaó öruggast. Ég strauja hins vegar alltaf, vegna þess aö konan nennir því aldrei. Þegar ég varö þrítugur, stríddi frúin mér meö því að gefa mér saumavél í afmælis- gjöf, en ég hef ekki leyft henni aö snerta vélina. Fyrst hún var gjöf til mín, hlýt ég aö eiga hana! Svo konan hef- ur ekki fengið að snerta saumavélina. Ég sauma allt á heimilinu. Heyröu annars — heldurðu nokkuð aö hún geti lært aö sauma þarna úti í Osló? Mik- iö ofboðslega yröi ég þá feg- inn! blm: Er þetta mannmargt heimili hjá ykkur? Benedikt: Nei, nei. Viö eigum bara eina sex ára dótt- ur. Ég verö i sumarfríi á þess- um tíma og hugsa um hana. Þaö getur líka vel verið aö ég skreppi meö dótturina noröur í land og heimsæki foreldra mína, því konan mín veröur lengur í Olsó en sem nemur ráöstefnunni. Hún er nefni- lega rannsóknarlögreglu- þjónn og er aö fara á nám- skeið hjá norsku lögreglunni. Svo ég fæ þokkalegt frí út úr þessu! blm: Myndi þig langa til aö vera ósýnilegur áheyrandi aö því sem fram fer á Nord- isk Forum? Benedikt: Nei, alls ekki. Þaö held ég aó gerði hvern mann brjálaðan. Ég héldi það ekki út að hlusta á þetta blaður allan daginn. Raunar hef ég séö hluta af framlagi BSRB-kvenna, sem konan min kom meö heim á videó- spólu. Blessunin varö nú svo- Iftiö sár út í mig þá. Þaó var einhver léleg mynd í sjón- varpinu þaö kvöldiö, en ég kaus frekar aö horfa á hana en þetta jafnréttisprógramm. Ég reyndi f tíu mfnútur og gafst síðan upp. Efnið höfö- aöi ekkert til mfn, enda er þetta ekki karlaráðstefna — en ég var líka að stríöa henni meö þessu. blm: Telurðu Ifklegt aö þú farir einu sinni eöa oftar út aö boröa á meðan frúin er er- lendis? Gisli Þór Guömundsson „Ekkert farið að bjóða mér í mat ennþá. “ Benedikt: Nei, alveg örugglega ekki! blm: Ekkert farinn aö bursta dansskóna? Benedikt: Dansskóna!? Nei, ég er sko ekki farinn að gefa þvi gaum. Ég fer á ball, þegar mér sýnist. Þaö þarf ekkert svona til að ég fari út aö skemmta mér. Ef eitthvaó er, verður erfiðara fyrir mig aö komast á ball á meðan konan er í burtu en þegar hún er heima. Annars gengur náttúrlega ekki aö spyrja svona um mín mestu leyndarmál á prenti — loksins þegar ég losna viö konuna af landinu! Svörin gætu orðið hræðilegt áfall fyrir fjölskylduna. Fyrir utan þaö, aö frúin gæti líka hrein- lega hætt viö aö fara! „ÞETTA ER BARA UPPHITUN“ GÍSLI ÞÓR GUÐMUNDSSON er einn þeirra, sem sjá á eftir konunum sínum til Osló- borgar eftir tæpa viku. Þau hjón eiga rúmlega átta mán- aöa gamla dóttur, sem veröur eftir hjá pabba sínum, en hann vinnur í Kassageröinni á daginn og f unglingaat- hvarfi á kvöldin. Gísli tjáöi blaðamanni, aö þaö heföi strax lagst vel í sig aö konan færi til Noregs og taldi litlar líkur á þvi aö hann yröi orö- inn illa farinn af svefnleysi, þegar hún kæmi til baka. Þetta væri líka bara upphit- un, þvf konan færi aftur út í tvær vikur í september. Svo vill til að Gísli hand- leggsbrotnaöi nýveriö og má ekki vinna líkamlega vinnu í nokkurn tima. Þess vegna getur hann verið heima hjá Alfrúnu, dóttur sinni, á dag- inn. Kvöldvinnuna getur hann hins vegar stundað áfram og haföi litlar áhyggjur af því aö þau mál leystust ekki á far- sælan hátt, þó ömmur og aðrir aöstandendur væri stungnir af i sumarfrí. „Ég hef nokkrum sinnum þurft aö taka stelpuna meö mér í vinnuna, en í fyrsta sinn sem þaö gerðist afsakaöi ég mig í bak og fyrir og sagöist veröa að passa hana. Hugo Þóris- son, sálfræðingurinn sem ég vinn með, sagöi þá við mig: „Ég passaði aldrei börnin min, en ég var mikið meö þeirn!" Hann hefur sem sagt mikinn skilning á þessum málum.“ Gfsla finnst Nordisk For- um eiga fullkominn rétt á sér, engu sföur en aörar ráöstefn- ur. Finnst þetta raunar bráö-

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.