Alþýðublaðið - 23.07.1988, Side 9
Laugarda'gur 23. fúlí' 1988
Læknisskoðun
á salerninu
Allt dettur þeim nú í hug í
Japan. Nýverið komu þar t.d.
á markaðinn salernisskálar,
sem geta rannsakað heilsu-
far notandans. í hvert sinn,
sem eigandinn sinnir kalli
náttúrunnar, kannar tölvukló-
settið blóðþrýsting hans og
púls — þ.e.a.s. ef hann situr á
setunni — og þaö getur einn-
ig varað hann við hættu á
sykursýki og nýrnasjúkdóm-
um. Þetta gerist þannig að
þvagið er sjálfkrafa mælt og
upplýsingar sendar beint á
næsta sjúkrahús. Læknarnir
þar hringja síðan í notanda
salernisins og segja honum
niðurstöðurnar. Þetta undra-
tæki kallast „asa ichiban", ef
einhver skyldi hafa áhuga, en
það útleggst víst „í býtið á
morgnana".
I fangelsi fyrir
að sofa hjá
útlendingum?
Enn sem komið er hafa fáir
Asíubúar fengið alnæmi og
er mönnum þar um slóðir
auðvitað mikið í mun að svo
verði áfram. Á Indlandi hafa
einungis 24 látist úr þessum
hræðilega sjúkdómi, en 400
hafa greinst smitaðir. Ind-
verska heilbrigðisráðuneytið
hyggst bregðast við vandan-
um áður en hann verður óvið-
ráðanlegur og í því skyni var
læknaráðið þar í landi beðið
um ráðleggingar. Þær reynd-
ust vera á þá leið, að best
væri að banna kynmök við út-
lendinga með lögum. Þetta
úrræði er nú til alvarlegrar at-
hugunar í ráöuneytinu, þó
svo Ijóst sé að nauðsynlegt
verður að breyta stjórnar-
skránni, ef draga á fólk fyrir
dómstóla af þessum sökum.
Tillaga framkvæmdastjóra
læknaráðsins hefur hins
vegar orsakað gífurlega reiði
margra Indverja — einkum
meðal útivinnandi yfirstéttar-
kvenna í helstu stórborgum,
enda ku þær orðnar mun
frjálslegri í kynlífsmálum á
seinni árum en áður var.
Eina von andstæðinga til-
lögunnar er sú, að stjórnin
setji aldrei lögin, þar sem
hún sjái að ómögulegt muni
reynast að fylgja þeim eftir.
Reglugerð, sem skyldar alla
útlendinga til að láta eyðni-
prófa sig ef þeir ætla að
dvelja lengur en ár á Ind-
landi, er hins vegar gengin í
gildi. Og m.a.s. diplómatarnir
sleppa ekki við að sýna slík
vottorð.
Matur fyrir
milljón á dag
Þegar menn heyra minnst
á Wimbledon kemur tennis-
(þróttin auðvitað fyrst upp í
hugann, en þar fer líka margt
annað fram. Það er t.d. risinn
upp heilmikill iðnaður í kring-
um þjónustu við hina 30 þús-
und gesti, sem daglega
mæta til jpess að fylgjast
með tenniskeppninni í þær
tvær vikur sem mótið stend-
ur. Stöndug fyrirtæki og
sterkefnaðir einstaklingar
gera gjarnan fastan samning
við veitingamenn og eru
þannig með frátekið veitinga-
tjald með öllu tilheyrandi í
hálfan mánuð. Á boðstólum
eru gómsætar krásir eins og
humarsalöt, reyktur lax, fersk
jarðarber, rjómatertur og hið
ómissandi kampavín — enda
kostar þetta sitt. Eitt fyrir-
tæki borgaði líka rúma mill-
jón á dag fyrir veitingar ofaní
sitt liö.
Því miður urðu örlög kræs-
inganna I ár ekki þau að
lenda í maga rika fólksins,
vegna þess að miklar rign-
ingar settu strik í reikning-
inn. Fólkið hafði einfaldlega
ekki lyst á kampavíni og
kavíar í úrhellisrigningu og
því varð að henda hinum dýru
matföngum á haugana.
Þjónn, sem vann i veitinga-
tjaldi Rolls-Royce fyrirtækis-
ins, sagði t.d. i samtali við
breska fjölmiðla að hann
hafði hent humarsalati fyrir
u.þ.b. 40 þúsund íslenskar
krónur á degi hverjum. Tertur
voru líka látnar fjúka, ef búið
hefði verið að skera af þeim
eina einustu sneið, og annað
i þeim dúr.
Þegar veitingamennirnir
voru spurðir hvers vegna þeir
gæfu ekki matinn frekar á
sjúkrastofnanir, sögðust þeir
ekki þora það vegna hættu á
matareitrun. Þegar lax, nauta-
steik, humar og slíkt hefði
staðið á framleiðslufötum í
heilan dag væri ekki um
annað að gera en setja það
allt beint í tunnuna.
Spilling
Starfsfólk Evrópuþingsins
hefur hótað verkfalli, vegna
þess að því ofbýður hvernig
þingmennirnir nota áhrif sín
til að koma ættingjum og
vinum í þægileg embætti i
Brussel og Strassbourg.
Munu margir orðnir áhyggju-
fullir vegna þess hve mikið af
óhæfu fólki hefur fengið
ábyrgðarstöður innan þings-
ins og segist starfsfólkið því
verða að grípa til sinna ráða.
I yfirlýsingu frá starfsmanna-
fundi segir: „Formaður í póli-
tískri nefnd getur látið ráða
hvern sem er — alveg eins
og Caligula keisari gat á
sínum tíma látiö gera hrossið
sitt að næstæðsta valda-
manni í Róm.“ Er búist við
því að þingmönnunum verði
gert lífið leitt í haust, ef þeir
láti ekki umsvifalaust af
þessari pólitísku spillingu.
1*11
A
'V
ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
Garðyrkjudeildar Borgarverkfræðings óskar eftir til-
boðum í framkvæmdir við gerð hverfis- og sparkvall-
ar við Skeljagranda.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri að Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10.000.- skilatrygg-
ingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudag-
inn 11. ágúst næstkomandi kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frjkirkjuvegi 3 — Simi 25800 — Postholf 878 — 101 Reykjavik
DAGVI8T BARJVA.
Daggæsla á einkaheimilum
Leyfisveitingar fyrir daggæsiu barna á
einkaheimilum hefjast að nýju 1. ágúst -
1. október 1988.
Athugið að umsóknareyðublöð liggja
frammi á skrifstofu Dagvistar barna í
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu.
Nánari upplýsingar í síma 27277.
Umsjónarfóstrur.
‘(30);
nýjum umbúðum
Krydd er kjarni fæðunnar
Kjörbók Landsbankans L
Afturvirk vaxtahækkun á 16 og 24 mánaða innstæður.
Engu að síður er Kjörbókin algjörlega óbundin.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna