Alþýðublaðið - 23.07.1988, Page 10
10
Laugardagur 23. júlí 1988
TÓNLIST
Jór Bjarki Bentsson skrifar
VEISLA
í jeppa á fjalli
eða í sumarhúsinu.
Ekkert mál ef þú hefar
G-þeytirjómann meðferðis.
Skál og gaffáll duga til að þeyt'ann.
Hvort þú snarar svo íram heilli
rjómatertu eða írsku kafR
fer eftir tileíhinu.
G
geymsluþolinn
Peytiriómi
LAUS STAÐA
Laus er til umsóknar staöa sérfræðings í íslenskri
málfræði við Islenska málstöð. Verkefni einkum á
sviði hagnýtrar málfræði, málfarsleg ráðgjöf og
fræðsla og ritstjórnarstörf. Til sérfræðings verða
gerðar sams konar kröfur um menntun og til lektors
í íslenskri málfræði.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf
umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og náms-
feril og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 18. ágúst n.k.
Menntamálaráðuneytið,
19. júlí 1988.
Eiginkona m(n, móöir, tengdamóðir og amma
Guðlaug Sigurjónsdóttir
hárgreiðslumeistari, Skeiðarvogi 69,
verður jarðsungin í Fossvogskirkju miðvikudaginn
27. júli kl. 13.30.
Ólafur Galti Kristjánsson
Ágústa Jónsdóttir Guðmundur Reynisson
Kristján Ólafsson Björg Árnadóttir
Erla Ólafsdóttir Þorsteinn Oanielsson
Ólafur Örn Ólafsson Áslaug Alfreðsdóttir
og barnabörn
Ökum jafnan á hægri rein
á akreinaskiptum
vegum.
KlSS™*
Camerata Nova heldur tónleika í Kristskirkju
KLASSÍSK TÓNLIST
OPNAR NÝJAR VÍDDIR
— segja Signý Sœmundsdóttir söngkona og Hávarður
Tryggvason kontrabassaleikari
Hljómsveitin Camerata
Nova heldur tónleika í Krists-
kirkju i dag, laugardag, klukk-
an fjögur síðdegis. í Camer-
ata Nova eru ríflega 30
manns, ungt fólk sem ýmist
stundar tónlistarnám eða er
nýlega útskrifað. Stjórnandi
er Gunnsteinn Óiafsson, en
hann hefur stundað tónlistar
og tónsmíðanám m.a. i Ung-
verjalandi og á Ítalíu, og
nemur nú tónsmiðar og
hljómsveitarstjórn i Freiburg
i Þýskalandi. Signý
Sæmundsdóttir syngur ein-
söng með hljómsveitinni og
Hávarður Tryggvason leikur
einleik á kontrabassa. Blaða-
maður spjallaði við þau
Signý og Hávarð í vikunni og
spurði fyrst um þeirra nám.
Signý: „Að loknu námi
hér heima hélt ég til Vínar-
borgar þar sem ég var í fimm
ár við framhaldsnám f tón-
listarháskólanum. Því námi
lauk ég nú i vor.
Hávarður: Ég hef stundað
nám f París undanfarin ár og
er nú i framhaldsnámi við
einleikaradeild Konservator-
isins ( París.“
— Er námsfólki ef til vill
hollara að fara utan i fram-
haldsnám heldur en læra
meira hér heima?
Signý: „Það er mjög já-
kvætt að stunda sitt fram-
haldsnám erlendis þvi f öllu
listanámi skiptir umhverfið
miklu máli. Það er mjög
þroskandi að kynnast nýju
fólki og nýjum straumum.
Samkeppnin er llka geysi-
hörð úti og þá leggur fólk
harðar að sér.“
— Nú er tónlistarnám frá-
brugðið öðru námi hvað varð-
ar heimavinnu?
Signý: „Við verðum stöð-
ugt að halda okkur i þjálfun.
Söngvarar eyða helst að
minnsta kosti hálftíma á dag
f hreina raddþjálfun. Við það
bætast þau verkefni sem
verið er að vinna að hverju
sinni. Óperusöngvarar æfa
sig gjarnan 4-5 timá á dag, en
þá verða þeir líka að gæta
sín að þreyta ekki röddina því
þá er voöinn vís.“
Hávarður: „Hjá mér fara
að jafnaði 4-5 tímar á dag í
æfingar, þar af klukkutími í
hreina þjálfun og fingraæf-
ingar. Þegar stór verkefni
liggja fyrir getur æfingatím-
inn farið í 7-8 klukkustundir.
Það er heldur ekki hægt að
æfa marga tíma í striklotu án
hvíldar, þannig að oft fer allur
dagurinn í æfingar."
— Hvernig gengur að
finna einleiksverk fyrir
kontrabassann?
Hávarður: „Það hefur
vissulega ekki verið skrifað
eins mikið fyrir kontrabass-
ann og mörg önnur hljóðfæri.
Það er (rauninni fyrst á tutt-
ugustu öldinni að tónskáld
fara að semja stór verk sér-
staklega fyrir bassann. Á
nítjándu öldinni komu fram
nokkrir bassasnillingar, til
dæmis Bottisini, sem bæði
sömdu fyrir hljóðfæriö og
léku á tónleikum, og þá vakn-
aði áhugi tónskálda á bass-
anum. En eftir eldri meistara
eins og Beethoven, Mozart
og Brahms er ekkert til fyrir
kontrabassann. Bassaleikarar
taka lika oft verk sem samin
eru fyrir önnur hljóðfæri og
umrita þau fyrir bassann."
— Fyrsta verkið á tónleik-
unum verður einmitt kontra-
bassastykki.
Hávarður: „Já, það er
Consertino fyrir kontrabassa
og strengjasveit eftir Lars
Erik Larsson. Larsson er eitt
þekktasta tónskáld Svía á
þessari öld, en hann verður
einmitt áttræður á þessu ári.
Þetta verk er það ellefta f röð
slfkra einleiksverka fyrir hin
ýmsu hljóðfæri, sem hann
samdi á árunum 1953-57.“
__r=_£íðan leikur hljómsveit-
in Consert í D fyrir strengja-
sveit eftir Igor Stravinsky,
þann mikla meistara i óm-
þýðum ómstríðum. Því næst
er horfið aftur um rúma öld
því þriðja verkið á efnis-
skránni er „Ah, perfido,
spergiuro", konsertaría eftir
Beethoven.
Signý: Þessi konsertarfa
fyrir sópran og hljómsveit er
sú eina sem Beethoven
samdi. Hún er mjög drama-
tísk og erfið, spannar yfir
mikið raddsvið. Hlutur hljóm
sveitarinnar er stór og ákaf-
lega krefjandi. Arían er f ít-
ölskum stfl, en textinn er
lagður i munn konu sem
hefur verið yfirgefin af elsk-
huga sínum og hún hellir
ýmist úrskálum reiði sinnar
yfir hann eða syrgir hann og
lofar eilffri tryggð."
Hávarður: „Tónleikunum
lýkur síðan með Sinfóníu í
D-dúr, Pragsinfónfunni eftir
Mozart, sem er númer 38 í
röðinni. Þannig fikrum við
okkur aftúr í tfma, byrjum í
nútímanum svo að segja og
endum i háklassík."
— Það er skemmtileg til-
breyting, en að lokum, nú er
mikill áhugi á alvarlegri tón-
list i landinu. Haldið þið að
hann endist?
Bæði: „Eftir því sem
hraðinn og álagið I þjóöfélag
inu eykst, leitar fólk meira
eftir slökun og tilbreytingu.
Klassfsk tónlist er tilvalið at-
hvarf frá hversdagsamstri og
opnar manni nýjar víddir ef
maður gefur sér tfma til að
hlusta. Margireru hræddir
viö þessa tónlist og halda að
þeir þurfi að skilja hana til
hlftar til að geta notið henn-
ar, en það er hinn mesti mis-
skilningur. Og þegar menn á
annað borð eru farnir að
hlusta á þessa tónlist, þá
verður ekki aftur snúið.“
í Camerata Nova er fólk
sem hefur áhuga, kraft og
hæfileika. Þeirsem hafa
gaman af að láta ferska vinda
blása um gamla tóneyrað
ættu þvf að gera sér ferð í
Kristskirkju í dag.