Alþýðublaðið - 23.07.1988, Síða 18
18
Síldarsöltun
- stjórnunarstarf
Ríkismat sjávarafurða óskar eftir að ráða mann í
áhugavert stjórnunarstarf. Hafir þú þekkingu og
áhuga á verkun og mati á saitsíld, getur þetta verið
starf fyrir þig.
Umsóknum ber að skila til Ríkismatsins, á
eyöublöðum, sem þar fást, fyrir 15. ágúst n.k.
Nánari upplýsingarfást á skrifstofu Ríkismatsins,
Nóatúni 17, 105 Reykjavík, s. 91 - 627533
Ríkismat sjávarafurða hefur að leiöarljósi:
* Aö stuðla að auknum hráefnis- og vörugaaðum íslenskra
sjávarafurða.
* Aö þróa starfsemi sína þannig að hún veröi einkum fólgin
í miðlun þekkingar og faerni og að skapa sjávarútveginum
réttar forsendur til starfa.
* Að verða í krafti þekkingar sinnar og reynslu forystuafl í
gaeöamálum.
* Að skapa samstarfsvettvang stjórnvalda og sjávarút-
vegsins í stöðugri viðleitni þeirra til aö auka þekkingu og færni
í vinnubrögðum og vörumeðferð.
* Að móta afstööu þeirra sem við sjávarútveg starfa til
gæöamála og efla almenna gæöavitund.
Ríkismat sjávarfuröa telur það vera helsta verkefni sitt að
stuðla að vönduðum vinnubrögðum svo fslenskar sjávar-
afurðir nái forskoti á markaðnum vegna gæða og þar með
hærra verði en ella.
Útboð Svartárdalur um Fjósaklif, 1988
t//æ Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint verk. Lengd vegarkafla 1,4 r km, magn 21.000 m3. * Verki skal lokið 30. október 1988.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vega- gerð ríkisins á Sauðárkróki og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 25. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 8. ágúst 1988.
Vegamálastjóri
\
Útboð
Vesturlandsvegur, Eskiholts-
lækur — Gljúfurá, 1988
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum
í ofangreind verk. Lengd vegarkafla 6,9
km, fyllingar 117.000 m3 og grjótnám
26.000 m3.
Verki skal lokið 1. júlí 1989.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vega-
gerð ríkisins í Borgarnesi og Reykjavík
(aðalgjaldkera) frá og með 25. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum
fyrir kl. 14.00 þann 15. ágúst 1988.
Vegamálastjóri
KRATAKOMPAN
Alþýöufólk Vestmannaeyjum
Kvöldveröarfundur
Næstkomandi mánudagskvöld kl. 19 verður kvöld-
veröarfundur á Veitingastaðnum Munanum. Þing-
mennirnir Kjartan Jóhannsson og Sighvatur
Björgvinsson mæta á fundinn ásamt framkvæmda-
stjóra flokksins Guðmundi Einarssyni.
Tilkynnið þátttöku í síma 11422 eigi siðar en i hádeg-
inu á mánudag.
Fjölmennum.
Alþýðuflokkurinn i Vestmannaeyjum.
FERDASKRIFSTOF-
AN Á SÖLULISTA
/ haust á að stofna hlutafélagið Ferðaskrifstofa íslands hf og á
ríkið þá að draga sig úr ferðabransanum. En hvað tekur við?
Á siðustu dögum þing-
haldsins i vor var samþykkt
stjórnarfrumvarp, þar sem
kveðið er á um sölu á tveim-
ur þriðju hlutum Ferðaskrif-
stofu ríkisins til starfsmanna
skrifstofunnar, þegar hlutafé-
lag verður stofnað 1.
september næstkomandi.
Þrátt fyrir að lögin hafi verið
samþykkt og línur lagðar er
enn margt óljóst í framtiöar-
skipan mála hjá hinu nýja
hlutafélagi og t.d. hversu
margir starfsmannanna vilja
gerast hluthafar. Að sögn
Kjartans Lárussonar hefur lítt
verið aðhafst í máli þessu að
undanförnu vegna anna, en
hann vildi að öðru leyti ekk-
ert tjá sig um málið, sem
væri í biðstöðu.
Þegar máliö var til umræöu
á þinginu í vor kom berlega í
Ijós að markmið þess er
umdeilt. Andstæöingar máls-
ins töldu að hér ætti að selja
ríkisfyrirtæki bara til þess aö
selja og væri mottó pilsfalda-
kapitalismans í forgrunni, þar
sem ríkið á að sjá um það
sem óarðbært er, en losa sig
við fyrirtæki sem bera sig.
Reyndar hafði umræðan átt
sér stað um nokkurra ára
skeið og á valdatímabili ríkis-
stjórnar Steingrims Her-
mannssonar hafði verið
samþykkt að breyta fyrirtæk-
inu í hlutafélag, þar sem
starfsmenn þess ættu 30%
hlutafjár. Nú er kveðið á um
að þessi hlutur verði tveir
þriðju hlutafjárins og inni í
myndinni eru alls um 40
starfsmenn, þar af um 20
starfsmenn skrifstofunnar
sjálfrar og síðan um 20 hótel-
stjórar Edduhótelanna og
einhverjir aðrir.
ÓUÓS ATRIÐI
Ferðaskrifstofa ríkisins var
stofnuð 1936 og annaðist frá
upphafi landkynningu og
þjónustu vió erlenda ferða-
menn. Rökin fyrir lögunum
voru fyrst og fremst þau, að
bylting hefði átt sér stað í
ferðamálum, ferðamálaráð
væri komið til skjalanna og
ótal feröaskrifstofur er
kepptu á markaði ferðaiðnað-
arins. Því hafi veigamikill
hluti af upprunalegu hlut-
verki skrifstofunnar verið fal-
inn öðrum og í Ijósi þessa
þótti eðlilegt að draga á
þennan hátt úr hlutverki ríkis-
ins. Eftir aö fyrst hafði verið
samþykkt að starfsmenn
ættu 30% hlut í fyrirtækinu
kom í Ijós lítill áhugi þeirra á
slíkri minnihlutaeign, en
hann jókst til muna þegar þvl
var breytt í meirihlutaeign.
Samgönguráðherra lýsti
því yfir í vor að hann væri
sannfærður um að þetta fyr-
irkomulag myndi auka veg
fyrirtækisins og verða til efl-
ingar ferðamálum í landinu.
Skúli Alexandersson, Alþýðu-
bandalagi, taldi hins vegar
ekkert á móti þvl að stjórn-
völd hefðu á hverjum tíma
slíkt fyrirtæki til að beita sér
fyrir í ferðamálum og taka
fyrir sérstaka ferðaþætti.
Danfrlður Skarphéðinsdóttir,
Kvennalista, minnti á að
skrifstofan hefði aldrei fengið
þau fjarframlög sem þó væru
lögbundin í fjárlögum og var-
aði við þeirri tilhneigingu að
selja ríkisstofnanir nánast af
handahófi. Guðmundur
Ágústsson, Borgaraflokki,
spurði hvers vegna ríkið ætti
að halda eftir einum þriðja
hlut í fyrirtækinu, ef á annað
borð væri verið aö breyta
eignarforminu, og vildi að
öðru leyti ekki binda söluna
við starfsmenn skrifstofunn-
ar. Eiður Guðnason, Alþýðu-
flokki, sagði það deginum
Ijósara aö ríkið ætti ekki að
basla við að reka ferðaskrif-
stofu. Andstaðan við frum-
varpið var þó ekki ýkja hörð,
heldur til þess tekið að mörg
atriði væru óljós og ýmsum
spurningum ósvarað.
EDDUHÓTELUM L0KAÐ?
Þannig var sérstaklega vik-
ið að rekstri Edduhótelanna,
sem höfðu þriggja ára samn-
ing. Þau eru yfirhöfuð rekin í
skólum og ferðamálasamtök
landshlutanna hafa viðrað
áhuga sinn á því að nýta
þennan vettvang sjálf, ef á
annað borð á að fara að
breyta fyrirkomulaginu. Eftir
þriggja ára aðlögunartíma
nýja hlutafélagsins yrði það í
verkahring menntamálaráð-
herra að skera úr um fram-
haldið og er þá spurt: Fær
nýja fyrirtækið áfram inni í
skólunum, einkafyrirtæki,
sem ríkiö er I aukahlutverki?
Ennfremur liggur fyrir, að
sum Edduhótelanna hafa
ekki beinlínis þótt hagkvæm,
þótt flest þeirra séu það, og
má þá spyrja, hvort nýir
meirihlutaeigendur sjá sig
knúna til að láta hrein arð-
semissjónarmið ráða og loka
einhverjum hótelanna af
sinni hálfu.
Sjúkrahúsiö á Húsavík
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR
Hvernig litist ykkur á að koma til liðs við okkur á
Húsavík.
Okkur vantar hjúkrunarfræðinga til starfa í haust.
Kynnið ykkur kjör og aðbúnað.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 96-
41333.