Alþýðublaðið - 06.08.1988, Qupperneq 7
6
Laugardagur 6. ágúst '>986
Laugardagur 6.'ágúSt 1988
m
dregur Krúsjoff upp mynd af
Stalín sem gyóingahatara.
Krúsjoff er mjög í mun að
undirstrika andgyðinglegt at-
hæfi Stalíns og er það að
mörgum talið til að draga yfir
eigin slæma samvisku i mál-
efnum gyðinga.
Hins vegar skýrir Krúsjoff
frá athyglisverðum staðreynd-
um hvað varðar samskipti
gyðinga og Stalíns á síðustu
æviárum einræðisherrans.
meðal annars segir Krúsjoff
frá upplýsingaskrifstofu
sovéskra gyðinga sem dreifði
áróðri til erlendra ríkja og þá
aðallega til Bandaríkjanna og
ennfremur minnist Krúsjoff á
hugmyndir gyðinga um að
stofna sjálfstætt ríki á Krím-
skaga i Sovétrikjunum.
Krúsjoff segir orðrétt í bók
sinni: „í stríðslok voru stofn-
uð samtök sem báru nafnið
„Andfasísk nefnd gyðinga
innan sovésku upplýsinga-
stofnunarinnar." Gyðinga-
nefndin átti að safna upplýs-
ingum um land okkar og þjóð
og striðsglæpi Þjóðverja og
senda fjölmiðlum á Vestur-
löndum, aðallega í Banda-
ríkjunum þar sem gyðingar
eru mjög áhrifamiklir. Nefnd-
in var samansett af áhrifa-
miklum gyöingum í Sovétríkj-
unum og var undir stjórn
manns að natni Losovski
sem var meðlimur i miðstjórn
Kommúnistaflokksins. (Los-
ovski var þekktur meðal vest-
rænna fréttamanna á þessum
árum og almennt álitinn sem
opinber talsmaður Sovét-
stjórnarinnar. Hann hvarf
sporlaust 1948.) Meðal nefnd-
armanna voru einnig þekktir
leikarar í Leikhúsi gyðinga.
Ég held aö hugmyndin um
áróðursnefndina hafi upp-
runalega komið frá Molotov
en hún getur einnig hafa
komið beint frá Stalín."
Krúsjoff greinir frá því, að
gyðinganefndin hafi komið
þeirri tillögu bréflega á fram-
færi við Stalín að Krímskagi
yrði sjálfstætt ríki gyðinga
tengt Sovétríkjunum eftir að
tatarar yrðu gerður þaðan
brot'trækir.
Þar með voru dagar nefnd-
arinnar taldir. Stalín ærðist
og hélt þvi blákalt fram að
nefndin starfaði samkvæmt
skipunum frá Bandaríkjunum
þar sem rikir og áhrifamiklir,
bandaríksir gyðingar hefðu
fengið þessa hugmynd í þvi
skyni að hafa áhrif á innan-
rikismál Sovétríkjanna og
mynda njósnaríki i ríkinu.
Bandaríksu gyðingarnir ætl-
uðu sér síöan að lýsa yfir
sjálfstæði Krímskagans og
gera landsvæðið að árásar-
landi Bandaríkjanna gegn
Sovétríkjunum. Talsmaðurinn
Losovski og leikarinn Mik-
hoels voru handteknir. Sam-
kvæmt Krúsjoff var Losovski
skotinn en Mikhoels varpað
fyrir vörubíl og sagt aö hann
hafi látist í umferðarslysi.
Stalín var einráður hverjir
voru drepnir og hvort aftaka
þeirra var gerð kunn eður ei.
Krúsjoff heldur því fram í
endurminningum sínum að
leikfélag gyðinga hafi verið
útrýmt að mestu. Engin rétt-
arhöld voru haldin, engar
ákærur gefnar út. Stalín gaf
merki og menn voru teknir af
lífi.
Samkvæmt Krúsjoff hafði
Stalín yndi af að herma á eft-
ir gyðingum. Hann líkti eftir
sérstökum framburði þeirra
og skemmti gestum sínum
oft með gyðingabröndurum
og hafði gaman af að litil-
lækka þá á ýmsan máta. Krú-
sjoff skrifar: „Gyöingahatrið
óx sem krabbamein í heila
Stalíns. Eftir andlát hans
tókst okkur að stöðva þessa
neikvæðu þróun en aðeins
að hluta til. Þjóðfélag vort er
enn smitað af andgyðingleg-
um veirum, og enn er ekki
gert nóg til að útrýma þeim.“
Nú, rúmum 25 árum síðar
má spyrja hvar Sovétriki
Gorbatsjovs standa þegar
málefni gyðinga eru annars
vegar.
HUGMYNDAFRÆÐI HINS
STÓRA HUGSUÐAR
Stalín gerði mikið úr þvi að
vera hugmyndafræðingur
flokksins og hinn stóri pólí-
tiski hugsuður. Hin stóra ósk
Stalins var að setja persónu-'
leg merki á lenínismann.
Honum tókst það en tæpast
hugmyndafræðilega.
Krúsjoff segir í endurminn-
ingum sínum frá fremur bros-
legum atburði á síðustu ævi-
árum Stalíns sem snertir ein-
mitt þá ósk Stalíns að vera
hugmyndafræðingur.
Sumarið 1950 gátu lesend-
ur Prövdu lesið grein eftir
Stalin þar sem ráðist var af
miklu offorsi á kenningar
tungumálasérfræðingsins
N.Y. Marrs. Fæstir höfðu heyrt
getið um tungumalaserfræö-
inginn Marr en menn lásu
GYÐINGAOFSÓKNIR STALÍNS
endurmmningum sinum
Stalin, Roisevelt og Churchill á Teheran-ráöstefn-
unni 1943.
þess voru allir flokksritararnir
í Leníngrad-umdæminu tekn-
ir af lífi, forsætisráðherra
rússneska sambandslýóveld-
isins M.l. Rodionov og margir
aðrir voru einnig myrtir, þar á
meðal hinn ungi og efnilegi
leiðtogi skipulagsskrifstofu
ríkisins, N.A. Vosnesenski.
Það er athyglisvert að ann-
ar ungur maður, Kosygin að
nafni slapp með skrekkinn.
Hann vann náið með Kusnet-
sov á þessum tíma í Lenín-
grad og það var nóg til að
gera hann tortryggilegan í
augum Stalíns. Krúsjeff segir
í endurminningum sínum að
líf Kosygins hafi hangið á
bláþræði. Fólk sem tekið
hafði verið til fanga í Lenín-
grad meðan hreinsanirnar
áttu sér stað, höfðu ásakað
Kosygin um alls konar glæpi
og það eitt nægði í þá daga
til að menn voru skotnir. En
Kosygin slapp. Hann var
reyndar sviptur öllum ábyrgð-
arstöðum sinum og gerður
að áhrifalausri undirtyllu í
Texti
Ingólfur
Margeirsson
að Ijúka.
Hér má reyndar bæta við
að eftir dauða Stalíns börð-
ust einmitt Malenkov og Krú-
sjoff um völdin. í skamman
tima eftir andlát einræðis-
herrans var Malenkov bæði
aðalritari flokksins og for-
sætisráðherra landsins. En
Krúsjoff tókst að styrkja
stöðu sina og 1955 hrökklað-
ist Malenkov frá völdum og
varð að afhenda forsætisráð-
herraembættið til Bulganin
sem var strengjabrúða Krú-
sjoffs. Þar meö hafði Krúsjoff
tagl og haldir í flokknum og
1957 var Malenkov varpað út í
ystu myrkur eftir að hafa gert
árangurslausa tilraun ásamt
gömlum stalínistum að ná
völdunum á nýjan leik.
einu ráöuneytanna. Krúsjeff '
segir í bók sinni að hann
skilji alls ekki hvernig Kosy-
gin komst hjá því að verða
skotinn.
Eins og allir vita varð þó
frami Kosygins skjótureftir
dauða Stalíns og hann var
forsætisráðherra Sovétríkj-
anna og annar leiðtogi lands-
ins (ásamt Brésnjeff) á sjö-
unda áratugnum eftir aö Krú-
sjeff hafði verið steypt úr
valdastóli.
Hvað hreinsununum í Len-
ingrad viðvíkur er enn óljóst
hvað olli hinum víötæku af-
tökum annað en ótti Stalíns
við samsæri gegn sér. En
Krúsjeff gefur til kynna í bók
sinni og sagnfræðingar á
Vesturlöndum hafa stutt þá
skoðun, að flókið valdatafl
um arftaka Stalíns hafi legið
að baki. Georgi M. Malenkov,
Leníngrad-hreinsanirnar
eru meðal síðustu fjölda-
morða Stalíns. Krúsjoff upp-
Ijóstraði um moróin í hinni
frægu ræðu sinni á 20.
flokksþinginu þar sem hann
rakti helstu glæpi Stalíns. En
hann gefur einnig góða mynd
af þessum óhugnanlegu
hreinsunum í endurminning-
um sínum.
Upphaf hreinsananna var
dauði Andrei Sjdanov, leið-
toga Kommúnistaflokksins i
Leningrad og sem líklegastur
var talinn að taka við stjórn
Sovétrikjanna aó Stalín liðn-
um. Sjdanov lést skyndilega
1948 og andlát hans varó til
þess að Stalín hleypt, af stað
látlausum hreinsunum og af-
tökum bæði í Leníngrad og
Moskvu. Meöal þeirra sem
teknir voru af lífi voru Alexei
Kusnetsov, nánasti sam-
starfsmaóur Sjdanovs í ára-
raðir, ritari í miðstjórn flokks-
ins og einn af hetjunum í um-
sátrinu um Leníngrad i
heimsstyrjöldinni siðari. Auk
STALIN
Nafnið eitt vekur óhug. Hinn voldugi leiðtogi Sovétríkjanna
se/n náði völdurn á þriðja áratugnum og hélt þjóðinni í
heljargreipum allt til hann lést 1953. Enn á ný hefur nafni
hans skotið á loft. Stór liður í umbótastefnu Mikhaíl Gorba-
tsjov Sovétleiðtoga er að fordœma fjöldamorð og glœpi
Stalíns. Á flokksráðstefnunni íjúnímánuði í ár, lagði Gorba-
tsjov mikla áherslu á að perestrojkan — umbœturnar — vœri
andstœðan við stalínismann: Perestrojka erfrelsi og lýðrœði - JT ^
alþýðunnar, stalínisminn er kúgun, einveldi og harðstjórn.
Gorbatsjov endurreisti fjölda manns á flokksráðstefnunni í, Á
áir — menn sem voru niðurlœgðir og drepnir á Stalín-
tímanum. Þannig er stalínisminn orðinn nauðsynlegur liður
í perestrojkunni.
aðstoðarmaður Stalíns og
undirtylla Bería (yfirmaður
leynilögreglunnar og böðull
Stalíns), var nefnilega al-
mennt álitinn arftaki Stalins
ef frá var talinn Sjdanov. Óvit-
að er h,vort Malentov hafi rutt
Sjdanov úr vegi, en víst þykir
að hann hafi kynt mjög undir
ótta Stalíns um samsæri i því
skyni að ryðja stuðnings-
mönnum og vinum Sjdanovs
úr vegi, bæði í Leningrad og
Moskvu. Enda lögðu stuðn-
ingsmenn Malenkovs undir
sig valdastöðurnar i Lenín-
grad og styrktu mjög stöðu
Malenkovs sem arftaka Sta-
nns.
Krúsjoff er þeirrar skoðun-
ar að Stalín hafi ekki litist á
hina sterku stöðu Malenkovs
eftir dauða Sjdanovs og kall-
að sig til Moskvu, en Krúsjoff
hafði verið hæstráðandi í
Úkraníu árum saman og var
kallaður af Stalín til embætta
í Moskvu 1949 eða þegar
Leníngrad-hreinsununum er
KRÚSJOFF
Nafnið eitt vekur bros. En hann hafði sínar slóttugu hliðar.
Enginn þekkti Stalín betur en Krúsjoff. Og enginn fletti eins \
grimmilega ofan af Stalín eins og Krúsjoff. En stalínisminn
kom í bakið á Krúsjoff og þegar hann var látinn afsala sér
öllum völdum 1964 var áratugarlangt þíðutímabil á enda í
Sovétríkjunum. En nú er nýtt þíðutímabil runnið upp undir
formerkjum perestrojku og glasnost. Hvelengi varirþað? Til
að skilja perestrojku verður maður að skilja Stalín. I
endurminningum Krúsjoffs sem út komu 1970 í Banda-
ríkjunum, er Stalín lýst náið. I eftirfarandi grein er stuðst við
endurminningarnar og lýst síðustu æviárum og dauða
Stalíns.
SÍÐUSTU ÆVIÁR UG
9