Alþýðublaðið - 06.08.1988, Blaðsíða 22
22
Laugardagur 6. ágúst 1988
■ I.'.AV V.' r!r) ‘I J
TONLIST
Rikharöur H. Friðriksson
skrifar:
FJOLBREYTTIR KORTONLEIKAR
Þýskur kirkjukór í Hallgrímskirkju
Núna um siðustu helgi
hélt þýski kórinn „Kantorei
an der Pauluskirche" tónleika
í Hallgrimskirkju. Kór þessi
er alla jafna kirkjukór við
Pálskirkjuna í Hambach,
smábæ i Bæjaralandi.
Dagskráin var í allra
lengsta lagi, einn og hálfur
timi án hlés. Hins vegar var
hún mjög fjölbreytt og gerði
það gæfumuninn að þetta
urðu nokkuð vel heppnaðir
tónleikar.
Til þess að þreyta áheyr-
endur ekki of mikið á eintóm-
um kórverkum voru með i för
söngkonan Margrét Bóas-
dóttir, orgelleikarinn Heinz
Markus Göttsche og fjórir
aðrir hljóðfæraleikarar. Fóru
tónleikarnir þannig fram að
kórinn söng þrjú eöa fjögur
verk í einu en þess á milli
voru flutt orgel- eða kammer-
verk. Verk þessi vorq mjög
misgóð, allt frá nokkuð
skemmtilegri tokkötu eftir
Max Reger og niður í virki-
lega leiðinleg stef og til-
brigði eftir organistánn,
Heinz Markus Göttsche. Þau
UTBOÐ
SUNDLAUG í SUÐURBÆ
Haf narfjarðarbær leitar tilboða i 4. áfanga byggingar
Sundlaugar í Suðurbæ. í verkinu er innifalinn loka-
frágangur byggingar, þ.e. lóðargerö, múrverk, flísa-
lögn, lagnirog innréttingar.
Verktaki tekurvið uppsteyptu mannvirki.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjarverk-
fræðings, Strandgötu 6, gegn 25.000,- kr. skilatrygg-
ingu. Afhending frá þriðjud. 9. ágúst.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 6.
september n.k. kl. 10.00.
Bæjarverkfræðingur.
hefðu betur verið óspiluð því
þetta var tónlist af þeirri gerð
sem tónsmíðanemendur á
fyrsta ári basla saman með
erfiðismunum og láta engan
lifandi mann sjá framar eftir
að hafa heyrt frumflutning-
inn. Þarna hefði vissulega
fariö betur á því að hafa
venjulegt hlé, heldur en að
bjóða áheyrendum upp á
svona leiðindi.
FJÖLBREYTT VERKEFNAVAL
Það sem öðru fremur ein-
kenndi þessa tónleika var
óvenju fjölbreytt verkefnaval
af kórtónleikum að vera. Þar
var leitað fanga allt frá
Josquin des Prez sem var
uppi á síðari hluta 15. aldar
og til Guther Kretzschmar
sem er nýlátinn.
Ánægjulegast var þó að
heyra gömlu renaissance tón-
skáldin því þau komast allt of
sjaldan á verkefnaskrár hér-
lendis, og sérstaklega að
heyra „El grillo“ eftir Josquin
sem lengi hefur verið eitt af
uppáhaldslögum greinarhöf-
undar. Einnig var mjög
ánægjulegt að heyra tvær
mótettur eftir Heinrich
Schutz, eitt fremsta tónskáld
barrokksins sem því miður
hefur ekki verið kynnt sem
skyldi hér á landi.
Sópransöngkonan Margrét
Bóasdóttir söng einsögn í
Josquin des Prez (ca. 1450-1521)
átti verk á tónleikunum. Hann er
án efa eitt fremsta tónskáld rena-
issance-timans.
„Hyrnne" gullfallegu verki
eftir Mendelssohn. Margrét
hefur ekki mikla rödd, en
áferðarfallega og komst hún
vel frá sínu.
HLUSTAÐ Á HÚSIÐ
Húsið sjálft, Hallgrims-
kirkja tók mikinn þátt í tón-
leikunum, allt of mikinn ef
satt skal se^ja. Venjulega
þykir það kostur að hafa „lif-
andi“ tónleikasal til þess að
lyfta dálítið undir tónlistina
og létta undir með henni, en
þetta var allt of mikið af svo
góðu. Mótettan „Lobet den
Herrn alle Heiden" eftir Bach
varð illilega fyrir barðinu á
Hallgrímskirkju. Fíngerður og
þéttur kontrapunktvefur
hennar fór allur í klessu í
óendanlegu bergmálinu.
Hvenær ætlar einhver að
leggja það til að flutningur
kontrapunktískrar tónlistar
verði bannaður í þessu ann-
ars ágæta guðshúsi.
KÓRINN
Þegar á heildina er litið var
þetta nokkuð góður kór, vel
agaður, samtaka og söng
hreint. Vissulega langt fyrir’
ofan venjulegan standard á
íslenskum kirkjukórum. Hins
vegar vantaöi talsvert upp á
að jafnvægið milli karl- og
kvenradda væri sem skyldi.
Karlarnir urðu undir og heyrð-
ist litið til þeirra lengst fram-
an af.
Óhætt er að gefa stjórn-
andanum, Carolu Bischoff
bestu meðmæli, hún hefur
greinilega lagt mikla vinnu i
kórinn sinn. Einnig lagði hún
töluverða áherslu á uppstill-
ingu kórsins, og var gaman
að heyra hversu mjög tónn
kórsins breyttist þegar upp-
stillingu var breytt.
Tónleikunum lauk á áhrifa-
mikinn hátt þegar kórinn
gekk syngjandi í gegnum sal-
inn og út. Það var skemmti-
legt að heyra hann deyja
smám saman út í hljómmik-
inn bergmálsmassa kirkjunn-
ar. Þetta var viðeigandi endir
á tónleikum sem voru að
flestu leyti mjög vel heppn-
aðir.
Felipe Gonzáles, for-
maður Alþýöuflokks-
ins á Spáni og forsæt-
isráðherra.
.'Sfsa.sJöífv? ’W*
SKRIFSTOFU ALÞÝÐUFLOKKSINS hefur tekist að útvega góð kjör á ferð til Spánar. BOÐIÐ ER uppá
tveggja vikna ferð. EF ÞATTTAKA verður næg förum við til Madrid og heimsækjum spænska bræðraflokkinn og
skoðum höfuðborgina. FARIÐ VERÐUR 20. septemberog gist í góðum íbúðum á Benidorm. VERÐ frá
kr. 32.900.- tvær vikur. NÁNARI UPPLÝSINGAR hjá fararstjóra Guðlaugi Tryggva s: 681866 e.h. og hjá
Ferðamiðstööinni s: 28133,Fanney.FJÖLMENNUM til landsins þar sem jafnaðarmenn hafa skapað
efnahagsundur.
VIVA ESPANA ALÞÝÐUF10KKURINN
Guðlaugur Tryggvi
Karisson, fararstjóri.