Alþýðublaðið - 06.08.1988, Blaðsíða 24
Jll HUSIÐ
VERSLUNAR-
MIÐSTÖÐ
VESTURBÆJAR
Getur það verið kostur að fá lítið fyrir peningana?
Já, ef þú vilt vera
snögg(ur) að tína
upp úr pokunum
þegarheim
kemur!!!
bl I átt annara
KOSTABOÐ í HVERRI VIKU!!!
LEIK-
FANGA-
DEILD:
Val á leikföngum hjá
okkur er leikur einn.
STAÐGREIÐSLU-
AFSLÁTTUR!!!!
RAFDEILD:
Heimilistæki fyrir
nútíma heimili.
OPIÐ ALLA VIRKA
DAGA FRÁ KL. 9:00 TIL
KL. 18:30 OG FÖSTU-
DAGA TIL KL. 20:00
Húsgögn
við flestra hæfi!!!
RITFANGADEILD:
Við erum penna
(aflögu) færir.
GJAFA- OG
BÚSÁHALDADEILD
Gramsaðu í gjafa-
deildinni hjá okkur.
TILBOÐ VIKUNNAR
í MATVÖRUDEILD!!!
1,2 kg. úrb. lambaframpartur.
1 kg. nautahakk.
1kg. marinerað lambarif.
1 kg. bakaður beikonbúöingur
ALLT SAMAN Á
AÐEINS KR. 1800,-!!!
VELDU OKKAR KOST, HANN KOSTAR ÞIG MINNA!!!
JON LOFTSSON HF. - HRINGBRAUT 121 - SÍMI 10600
■JB JH Jll JB JIB JIS Jlfi J8B Jlfi Jti Jli Jil Jil JB JIB JH JIB JH!
Erfiðleikar ríða yfir hótel og veitingahús
Þrátt fyrir ferðamanna-
bylgjuna sem gengur yfir
landið eru miklir erfiðleikar
hjá mörgum veitinga- og
gistihúsum. Að undanförnu
hafa veriö haldnir nokkrir
fundir í stjórn Sambands
veitinga- og gistihúsaeigenda
þar sem erfið staöa hefur
verið til umræðu og mögu-
legar aðgerðir vegna mikilla
erfiðleika sem við blasa i
vetur. Hótelin kvíða vetrinum
mjög og skv. heimildum Al-
þýðublaösins mun nú i fyrsta
sinn i langan tíma vera
ákveðið að halda óbreyttu
veröi á komandi vetri en áður
höfðu hóteieigendur reiknað
með 20% hækkun á gisti- og
veitingaþjónustu fyrir næsta
vetur miðað við erlenda
gjaldmiðla.
Uppsagna starfsfólks er
þegar tekið að gæta og segir
Hans Indriðason, hótelstjóri
á Hótel Loftleiðum, að þar
hafi verið griþið til þess ráös
að segja upp nokkrum starfs-
mönnum i tengslum viðupp-
sagnir Flugleiða um daginn.
„Við fengum ráðgjafa frá SAS
til að fara ofan í saumana á
rekstrinum og höfum nýfeng-
ið í hendur skýrslu frá þeim
sem við ætlum að styðjast
við þegar við förum út í ein-
hverjar breytingar á veitinga-
rekstrinum. Það hefur sýnt
sig að það stoðar ekki að
hækka bara verðið. Nú verður
að leita leiða til að auka við-
skiptin og við sjáum að mörg
veitingahús í Reykjavík eru
að gera góða hluti til að
bjarga sér,“ segir hann.
Undanfarin tvö ár hafa
orðið mun meiri hækkanir í
ferðaþjónustunni hér á landi
miðað við viðskiptalönd.
Hækkanir á gistingu og mat
hafa verið um 10% á ári mið-
að við erlenda mynt og þá
farið langt framúr verðlags-
þróuninni í viðskiptalöndun-
um í kringum okkur. „Menn
hafa verið að verðleggja sig
út af markaöinum,“ segir
einn viðmælandi Alþýðu-
blaðsins.
Forstöðumenn ferðaþjón-
ustunnar kenna margir matar-
skattinum um hærra verðlag
en þar liggur aðeins hluti af
skýringunni. Kannanir verð-
lagsstofnunar á útseldum
mat nokkurra veitingahúsa i
vetur sýndu allt frá 10% og
upp í 37% hækkun frá des-
emberbyrjun til apríiioka.
Fullyrða má að söluskattur á
Síðustu tvö ár hafa
hótelin verðlagt sig
út af markaðnum.
Hœkkanir hafa verið
um 10% á ári miðað
við verðlag erlendis.
Ráðamenn í hótel-
og veitingabrans-
anum rœða nú
breytingar á veit-
ingarekstri og sam-
dráttaraðgerðir eru
þegar hafnar.
matvöru sé bara brot af
þessu — 2-3% hækkun á
mat veitingahúsa megi rekja
til matarskattsins.
Nú er það oþinbert leynd-
armál innan hótelbransans
aó mörg hótel standa tæpt.
Sumarið hefur komið verr út
en reiknað var með. Þrátt
fyrir miklar bókanir í vetur
hafa „góðar bókanir" ekki
skilað sér sem skyldi. Þrátt
fyrir aukningu í fjölda ferða-
manna hefur ekki orðið aukn-
ing í fjölda gistinátta í heild-
ina tekið. Staðan er þó
nokkuð mismunandi á milli
hótela. Þannig segir t.d. Hans
Indriðason á Loftleiðum að
þar hafi júní og júlí komið vel
út en erfiður timi sé framund-
an — sérstaklega yfir há-
veturinn. Voru viðmælendur
blaðsins á einu máli um að
nú sé þörf á að endurskoða
og endurskipuleggja veitinga-
rekstur hótelanna ef þau eiga
að standa af sér örðugleik-
ana sem við blasa á næsta
ári, sem menn í viðskiptalíf-
inu eru nú farnir að kalla
Gjaldþrotaárið mikla 1989.
MMBUBiin)
Laugardagur 6. ágúst 1988
GRIPIÐ TIL BJÖRGUNARAÐGERÐA
JB JB JB JB JB JB JH JBJBJBJBJBJBJBJBJBJBJBJBJBJBJBJBJHJtSJa