Tíminn - 08.11.1967, Side 3
»
MIÐVIKUDAGUR 8. nóvember 1967.
TÍMINN
Hver er Jónatan?
NÝTT FRAMHALDSLEIKRIT
í ÚTVARPINU
GÞE-Reykjavík, þriðjudag.
Næstkomandi fimmtudag liel
ur Ríkisútvarpið flutning á
nýju framhaldsleikriti, ,Hver
er Jónatan" eftir Francis
Durbridge. Árið 1963 flutti
Ríkisútvarpið framlialdsleikrit
eftir sama höfund, liét það
„Ráðgátan Van Dyke“, og var
mjög vinsælt. Þetta leikrit
fjallar um sömu persónur, sem
nú Ienda í nýjum ævintýrum,
ekki síður spcnnandi að sögn
Jónasar Jónassonar leikstjóra.
Aðalpersónurnar eru leyni
lögreglumaðurinn Paul Temple
sem tekur að sér rannsökn
sérstakra gkepamála, ef hon
um býður svo við að horfa, og
Framhald á bls. 15
Vij upptöku útvarpsleikritsins. Á myndinni má sjá leikstjórann
Jónas Jónasson og aðalleikendurna þrjá, Ævar R. Kvaran, GuS-
björgu Þorbjarnardóttur og Helgu Bachmann. '
Skipstjórinn býður Sigrúnu velkonma um borð. (Tímamynd GE)
500. þúsundasti farþegi Akraborgar
FÉKK SILFUR-
VASA AD GJÖF
Þann 4. þ. m. var undirritaður
í Reykjavík samningur milli Síldar
útvegsnefndar og Animex í Varsjá
um fyrirframsölu á 25.000 tunn
um af saltaðri vetrarsíld til Pól-
lands. í samningnum er gert ráð
fyrir, að kaupendur geti aukið
samningsmagnið upp í samtals
35.000 tunnur, en ákvörðun þar
að lútandi verða kaupendur að
taka fyrir 15. desember n. k.
Síld sú, sem seld er samkvæmt
samningi þessum, má vera af
stærðunum frá 300 — 900 stykki
í tunnu og á hún að flokkast í
þrjá stærðarflokka. Lágmarks
fitumagn skal vera 14%. Síldina
má afgreiða hvort heldur er hand
pakkaða á venjulegan hátt eða
vélpakkaða.
í samningaviðræðunum tóku
þátt af hálfu kaupenda Victor
Jabczynski sendifulltrúi Póllands
í Reykjavík og frú Dziwanowska
frá Animex í Varsjá og af hálfu
seljenda Gunnar Flóvenz fram-
kvæmdastjóri Síldarútvegsnefndar
í Reykjavík, Ólafur Jónsson fram
kvæmdastjóri í Sandgerði, Jón
Skaftason alþm. og Margeir Jóns
son útgerðarm. í Keflavík.
Eins og fram hefir komið í dag
blöðum og útvarpi, er sfld sú,
sem undanfarið hafur veiðzt í
Jökuldjúpi, mjög misjöfn að
stærð og fullnægir ekki þeim
Framhald á 15. síðu.
LEIÐRETTING
í greinum þeim, er birtust í blað
inu í gær um rússnesku bylting-
una, voru nokkrar prentvillur,
sem fæstar skipta máli. Þó segir
á bls. 16, að Plekihanoff hafi verið
„hinn mikli lærisveinn Lenins",
en á að sjálfsögðu að vera ,læri
faðir“. Leiðréttist það hér með.
GI-Reykjavík, þriðjudag.
Klukkan þrjú í dag varð sá
merki atburður í siglingasögu
Akraborgarinnar, að fimm hundr
uð þúsundasti farþeginn steig um
borð í skipið. Var það húsfrú af
Akranesi, Sigrún Claueen, og
færði skipstjórinn, Guðjón Vig-
fússon, henni silfurblómavasa full
an af blómum að gjöf, auk þess
sem hún fékk ókeypis far upp á
Akranes.
Frettamenn ræddu við Friðrik Þor
valdsson af þessu tilefni, en hann
er framkvæmdastjóri Skalla-Gríms
sem gerir skipið út. Hann sagði að
félagið hefði keypt Akraborgi^a
hingað til lands árið 1956, og
hefði skipið verið í stöðugum sigl
ingum æ síðan milli Borgarness,
Akraness og Reykjavíkur. Akra
borgin á nú að baki 2175 ferðir
til Borgarness, 7674 til Akraness
og 4315 til beggja staða í sömu
ferð, og er þá átt við siglingu
fram og til baka. Hæsta farþega
tala eins árs er rúmlega 48 þús.
en á þessu ári hafa þegar rúm-
lega 41 þús. manns tekið sér far
með skipinu. Eru því þó nokkrar
líkur á að fanþegatala slái nýtt
met í ár, þrátt fyrir þá samkeppni
sem svifnökkvinn veitti þéi*
Lramhald á 15. siðu.
Ræddi þátttöku iögreglunn-
ar í umferöarbreytingunni
Á föstudaginn hélt lögreglustjór
inn í Reykjavík Sigurjón Sigurðs
son, íund með yfirmönnum Lög
reglunnar í Reykjavík, svo og
yfirmönnum lögreglunnar í ná-
grannabæjum og yfirmönnum í
rannsóknarlögreglunni í Reykja-
vík. Er þetta stœrsti fundur sem
haldinn hefur verið með yfirmönn
um lögreglunnar og umræðuefnið
var væntanleg H-umferð á ís-
landi.
Sigurjón Sigurðsson hélt, á
fundi þessum, yfirgripsmikið er-
indi um væntanlega H-umferð, og
ræddi þar sérstaklega um þátt
lögreglúnnar í umferðabreyting-
unni. Þá ræddi Kristinn Ólafsson
um sektaraðgerðir lögreglunnar.
Innan lögreglunnar í Reykjavík
er unnið að því að skipuleggja
löggæzlustarfið fyrir H-daginn, og
er þar einkum um að ræða, hve
marga aðstoðarmenn þarf að fá
til að hjálpa til við umferðarstjóm
eða umferðaverði. Sigurður M.
Þorsteinsson aðstoðaryfirlögreglu
þjónn hefur umsjón með því
starfi innan lögreglunnar.
Frá fundi lögreglustjórans í Reykjavík með yfirmönnum lögreglunnar í Reykjavík og nágrannabæjum.