Tíminn - 05.12.1967, Síða 5
ÞRIÐJUDAGUR 5. desember 1967
TÍMINN
17
ætti að vera nægileg ábending
nm ihaldleysi viðreisnarstefnunn-
ar, því vitanlega verður ríkisstjórn
in hvað helzt dæmd eftir því
hvemig henni farnast að því er
tekur til verðlagsþróunar og
gengism'ála.
Atvinnumálin
En stærsti áfellisdómur-
inn er þó ástandið í atvinnu-
málunum. Sú stefna sem upphaf-
lega var sagt að ætti að treysta
grundvöll atvinnuveganna hefur í
reynd orðið til þess að grafa grund
vöHinn undan þeim. ísl. atvinnu
Kf verður nú að súpa seyðið af
þessari 8 ára tilraunastarfsemi,
sem stotfnað var til á röngum for-
sendum og misskilningi á því hvað
hentaði ísl. atvinnulífi. Sfeakkt
mat á hagsmunum ffumatvinnu
veganna og hins unga ísl. iðnaðar
hefur leitt til þess vandræða
ástands sem endar nú í ógöngum
gengisfeilingar. Ríkisstjórnm hef
ur lagt höfuðfeapp á, að halda uppi
svonefndri frjálsri innflutnings-
stefnu sem á undanförnum velti
árum hefur leitt til meira álags á
gjaldeyrissjóði en þeir rcyndust
færir um að þola, þegar ntokkuð
dró úr sjávarafla og v'erðlagshækk
uoum. Verzkmarfrelsi af því tagi,
sem ríkisstjómin hefur hallazt að
og barizt fyrir af meiri ákafa en
skaplegt má telja, veldur litlu
eða alls engu um varanlegau
hagvöxt á íslandi, en hefur hins
vegar orðið bein orsök að fárán-
Iegustu eyðslustefnu og gjaldeytr
issukki, sem enn er reynt að við-
halda með erlendum lántökum,
þegar eigin gjaldeyrir þjóðarinn-
ar er á þrotum. Það er framleiðsl
an til Iands og sjávar, atvinnulíf
ið í landinu og afkoma frumat-
vinnuveganna, sem bera uppi Iífs
kjörin á hverjum tima en ekki
miHiMðastarfsemi. En það er eitt
af einkennum stjórnarfarsins und
aufarin ár, að milliliðastarfsemin
hefur blómstrað, fjármagnið hef-
ur leitað í striðum straumum inn.
í verzlunina, fyrst og fremst gróða
væulega einkaverzlun og spákaup
mennsku en framleiðsluatvinnu-
vegirnrr bafa verið í fjármagns-
svertii.
Innflutnrngsmálin
Stefnan í innflutningsmál-
unum hefur einkum haft óheilla-
vænleg áhrif á þróun inniends iðn
aðar, hún hefur kippt fótunum
undan fjölmörgum einstökum iðn-
greinum og átt þátt í að draga
úr aimennum vexti iðnaðarins.
Slík þróun er skaðvænleg, því inn-
lendur iðnaður er tiltölulega ný
atvinnugrein og þarf enn um
skeið sérstaifcrar vemdar við. Vissu
lega er ísl. iðnaður ekki afmarka
laus og stenzt ekki í öllum grein
um harða gagnrýni um fjöl-
brey.tni og vörugæði. En hann er
sá atvinnuvegur sem flestum veitir
fasta og trygga atvinnu. Það er
að lang mestu leyti iðnaðinum að
þakka, að hægt hefur verið að
taka á móti hinni öru fólksfjölg
un í landinu, en íbúatalan hefur
tvöfaldazt á um það bil
þremur áratugum, þjóðinni hefur
fjölgað úr 100 þús. manns í
200 þús. manns á þessum tíma.
Án innlends iðnaðar hefði þessi
fólksfjölgun tæpast getað átt sér
stað og næstum víst, að mikill
hluti fólksaukningarinnar hefði
neyðzt td að flytjazt úr landi og
setjast að með öðrum þjóðum, lík.t
og átti sér stað um og eftir alda-
mlótin, þegar fólkið streymdi þús-
undum saman til Vesturheims.
Slík Iþróun á sér stað á íriandi enn
í dag og annars staðar þar sem
lítið er hlúð að inniendum iðnaði
og atvinnuframta.ki landsmanna
sjálfra, en í þess stað mænt
upp á útlenda forsjá og erlent auð
magn.
Iílutlaus dómur um stjórnar-
stefnuna undanfarin ár, mundi án
minnsta efa leiða til þeirrar niður
stöðu að öll megin markmið henn
ar í efnahagsmálum hefðu brugð
izt. Það væri verðugt verkefni
fyrir fræðimenn að útskýra, hvers
vegna hagstjórnartæki viðreisnar
innar og grundvallakenningar boð
bera hennar hafa brugðizt ger-
samlega eins og raun ber vitni.
Mætti vel hugsa sér að viðskipta-
og mennitamálaráðherra beittu
sér fyrir því, að góðir og bæfir
hagfræðingar hlytu sérstakan fjár
hagsstyrk til þess að rannsaka
sögu viðreisnarinnar og áhrif
nnar á ísl. efnahags- og atvinnu
Blekkingar
Núverandi ríkisstjórn hefur að
baki sér mjög nauman meiri hluta
á Alþingi. Þennan meirihluta fékk
hún í síðustu kosningum út á
þann málflutning sinn, að hún
ætlaði að halda áfram verðstöðvun
þeirri, sem hún kom á í nóvem
ber í fyrra. Þessi málflutningur
var blekkingin uppmáluð og er
það sízt í samræmi við lýðræðis
legar leikregiur sem haestv.
menntamálaráðherra þykist kunna
öðrum mönnum betur skil á.
Hrekklaus almenningur varaði
sig ekki á henni, þessari blekk-
ingu, og varð til þess að trúa orð
um stjlórnarherranna. Vitanlega
sáu allir sem fylgdust með þróun
mála, að atvinnu- og efnahagslífið
var helsjúkt og verðstöðvunin gat
ekki haldið áfram með þeim hætti
sem forystulið stjórnarflokkanna
vildi vera láta. Nú er þag.. líka
komið í ljós, að ríkisstjórnin hef-
ur allan tímann stefnt dð gengis
fellingu og talið hana óumflýjan
lega og niotað fyrsta tækifærið
sem gafst til þess að koma henni á.
Með öllu er óvíst hverjar hliðar
ráðstafanir eiga að fylgja gengis
lækkuninni. Ríkisstjjórnin hefur
enga viðhlítandi grein gert fyrir
því hvað ætla má að kjaraskerð
ingin verði mikil hjá almenningi,
hjá aldraða fólkinu, hjá öryrkj
um, hjá sparifjáreigendunum Á
þetta hafa hæstv. ráðh. er hér hafa
talað í kvöld ekki minnzt auka
teknu orði. Það eitt er víst, ' að
kjaraskerðingin verður mifei!, enda
strax farið að auglýsa verðhækk
anir ofan á þær hækkanir sem
urðu á matvörum fyrir skömmu.
Gengislækkunin er fyrst og
fremst talin gerð vegna atvinnu
veganna en eklci liggur fyrir nein
áreiðanleg greinargerð um það
hver áhrif hennar verða á einstak
ar atvinnugreinar, á það hafa
hæstv. ráðh. sem hér hafa talað
í kvöld ekki minnzt neinu orði
fremur en annað sem máli skiptir
í þessuin umræðum. Gengislækk
unin hlýtur að hafa mikil áhrif
á afkomu ríkissjóðs og
afgreiðslu fjárl. Allan þann tíma
sem gengislækkunarmálin hafa
verið til umr. á Alþingi og í dag
blöðum, hefur ekki aukatekið orð
verið sagt um það hver ríkisstjórn
in teiji að þessi áhrif muni verða.
Það er t.d. alls óvíst að tollar verði
lækkaðir og óvíst að söluskattur
inn verði skertur. Margt bendir
hins vegar til þess, að ríkisstjórn
in hugsi sér að gera gengislækkun
ina að sérstakri gróðaleið fyrir
ríkissjóð. Miðað við alla mála
vexti ,hin fálmandi tök ríkis-
stjórnarinnar að undanförnu, ó-
samhljóða yfirlýsingar hennar og
glatað traust hennar hjá almenn
ingi, sú staðreynd að ríkisstjóm
in hefur ekki á'hrifavald né getu
til þess að feoma í veg fyrir stór
felidar vinnudeilur innan tiltölu
lega stutts tíma, allt þetta og
ótal margt fleira staðfestir. þá
skoðun, að ríkisstjóminni beri
að leggja niður völd. Það er nauð
synLegt að leita nýrra leiða í því
skyni að auka áhrifavaidið að
baki þeim úrræðum sem gera þarf
til raunverulegrar viðreisnar ísl.
atvinnu- og efnahagslífi. Sé þess
ekki kostur að mynda víðtæk sam
tök áhrifaafla þjóðfélagsins án
undangenginna nýrra kosninga, þá
tel ég ekkert eðlilegra en að Al-
þingiskosningar fari fram á næsta
ári og þess freistað að rjúfa þá
sj'álfheldu sem ísl. stjórnmál ó-
neitanlega eru í.
» SKUGGSJA • SKUGGSJA • SKUGGSJA • SKUGGSJA • SKUGGSJA •
HANNA
KRISTJÓNSDÓTTIR
SKUGGSJÁ
Mióamir
vorn
þidr
Guðrún er Reykjavíkurstúlka, sem ekki er vön að
gera sér grillur út af smámunum. Þess vegna fœr
það ekki á hana þó foreldrar hennar skilji, meðan
hún er í fimmta bekk Menntaskólans. Hún heldur
áfram námi eins og ekkert hafi í skorizt, hún á
áfram í ástarœvintýrum með jafnöldrum sínum og
tekur lífinu iétt. Hún er af ríku fólki og hefur alltaf
getað veitt sér það, sem hugurinn girnist. Hún er hœnd að föður sínum, en ber
fakmarkaða virðingu fyrir móður sinni, duttlungafullri og glœsilegri konu, sem
eftir skilnaðinn tekur upp samband. við gamian unnusta sinn. Það er einmitt
þessi tilvonandi stjúpi Guðrúnar, sem raskar öllu lífi hennar, kemur róti á hug
hennar. Guðrún kemst að raun um, að lífið er ekki leikur, leyniþrœðir hjartans
eru flóknari en hún hugði. Hún kemst líka að raun um, að ástin er ekki að
sama skapi langvinn sem hún er djúp og heit.
Fyrri bœkur Hönnu eru „Ást á rauðu Ijósi" og „Segðu engum".
• SKUGGSJA • SKUGGSJA • SKUGGSJA • SKUGGSJA • SKUGGSJA •
Flugfreyjur
Loftleiðir h. f- ætla frá og með apríl/maí mánuði
n. k. að ráða allmargar nýjar flugfreyjui*1 til stara.
í sambandi við væntanlegar umsóknir skal eftirfar-
andi tekið fram:
★ Umsækjendur séu ekki yngri en 20 ára — eða
verði 20 ára fyrir 1. ii'ilí n. k. — Umsækjendur
hafi góða almenna menntun, gott vald á ensku og
einhverju Norðurlandamálanna — og helzt að
auki á þýzku og/eða trönsku.
★ Ekkert er því til fyrirstöðu, að giftar konur, sem
eiga vel lieimangengt, sæki um starfið, t. d. yfir
sumartímann, 1. apríl — 1. nóvember.
ic Umsækjendur séu 162—172 cm á hæð og svari
líkamsþyngd til hæðar.
ir Umsækjendur séu reiðubúnir að sækja kvöld-
námskeið í febrúar n. k. (3—4 vikur) og ganga
undir hæfnispróf að því loknu.
ir Á umsóknareyðublöðum sé þess greinilega getið,
hvort viðkomandi sæki um starfið til lengri eða
skemmri tíma.
I i* Umsóknareyðublöð fást í skrifstofum félagsins
Vesturgötu 2 og Reykjavíkurflugvelli, svo og hjá
umboðsmönnum félagsins úti um land, og skulu
umsóknir hafa borizt ráðningardeild félagsins
Reykjavíkurflugvelli tvrir 15. desember n. k.
'OFILEWM