Tíminn - 05.12.1967, Blaðsíða 12
„Þessi bók er eins dauð og draslið í ruslakörfunni minni“
278. tbl. — Þriðjudagur 5. des. 1967. — 51. árg.
Bók Svetlönu sels
110 ST.
HEITT
VATN
ÉJ—Reykjavík, mánudag.
,,Stóri borinn" hefur nú
veríð notaður um nokkurn
h'ma við borun eftir heitu
vatni í Breiðholti. Er bor-
hoian nú orðin um 870
metra djúp, og hefur feng-
izt nægilega heitt vatn til
nýtingar- Þó mun væntan
lega haldið áfram að bora
eitthvað enn, svo sem eina
viku eða svo. Það mun þó
ekki endanlega ákveðið.
Blaðið fékk þær upplýs-
ingar hjá Jarðhitadeild, að
boranirnar hefðu gengið
vel. Er búið að bora 870
metra djúpa holu, en mesti
hiti hefur verið 110 stig. Er
pað talinn ágætis árangur
miðað við dýpt holunnar.
Vatnsmagnið er nú um 12
lítrar á sekúndu.
ílla í Banda-
ríkjunum
EJ-Beykjavík, mánudag.
„Þessl bók er eins dauð og draslið
í ruslakörfunni minni. Við höfum
hana út um allt og enginn vill
kaupa lians. Við pöntuðum 50, og
veiztu hvað við höfum selt marg
ar? Þrjár“ — Þessi orð banda-
rísks bóksala eru um hina frægu
bók Svetlönu Stalínsdóttur, „Tutt
ugu bréf til vinar“, en sala bókar
innar er svo lítil að furðu hefur
vakið.
Útgáfufyrintækið, sem bókina
gefur út í Bandaríkjunum —
Harper & Row, keypti, ásamt öðr
um, einkarétt á bókinni þar í landi
fyrir 1.1 milljón dollara. Upphaf-
lega voru prentuð 125.000 eintök
af bókinni og búizt við, að stærra
upplag fylgdi á effir. Til þessa
hefur fyrirliækinu aftur á móti
ekki tekizt að koma nema 115.
000 eintökum í bókabúðir. Ekki
liggja fyrir tölur um, hversu mörg
þessara eintaka hafa selzt, en vit
að er að ýmsar bókaverzlanir hafa
þegar skilað aftur þeim eintökum,
er þær fengu upphaflega.
Það var talið sjálfsagður hlut
ur, að bók eftir dóttur Stallns
my.ndi verða metsölubók. Nú virð
ist sá draumur úti. Ástæðuna
telja þeir menn, sem kunnugir
eru þessum málum, augljósa; allt
of mikil skrif um bókina og birt
ing kafla úr henni áður en hún
kom út. Fólk hefur hreinlega feng
ið að vita nóg um bókina; hinn al-
menni lesandi hefuir fengið leið á
henni í Bandaríkjunum.
50 ára þjóðhátíðar-
dags Finna minnzt
Þar í landi hafa kaflar úr bók-
inni birtast í 60 dagblöðum og
tímaritinu Life. Um bókina sjálfa
hefur einnig verið mikið skrifað
allt frá því vitað var, að handritið
var til. Vegna alis þess, hefur hinn
aknenm lesandi fengið að vita
allt það um bókina, sem hann hef-
ur áhuga á — hann sér enga á-
stiæðu tíl að lesa hana.
Verður Bjarg
lagt niður?
f erindi Um daginin og veg-
irm, sem dr. Gunnlaugur Þórðar-
son flutti í rflrisútvarpkiu í gær-
fevöldi, drap hann á Bjargmálið
Framhald á Ms. 22.
Ný bók efiir þá
Sverri og Tómas
Finnlandsvinafélagið Soumi
minnist 50 ára þjóðhátíðardags
Finna 6. des. kl. 8.30 með kvöld
fagnaði fyrir velunnara Finnlands
í Þjóðleikhúskjallaranum.
Dagskrá kvöldfagnaðarins verð
ur þannig: sóra Sigurjón Guðjóns
son, prófaslur, flytur ávarp, Stoúli
Halldórsson, tónskáld, leikur verk
eftir Silbilius, dr. Gylfi Þ. Gíslason
flytur ræðu, Minni Finnlands,
sýnd verður kvikmyndin „Hjarfca
Finnlands", Juha K. Peura sendi
kennari les finnsk ljóð, tvöfaldur
kvartett syngur og að lokum verð
ur stiginn dans. Á milli skemmti
atriða verður almennur söngur
finnsk ljóð. Finnar sem búsettir
eru í Reykjavík og nágrenni munu
flestir koma til fagnaðarins.
Aðgöngumiðar verða afhentlr
við innganginn.
HAPPDRÆTTIÐ
Eins og kunnugt er verður
dregið 23. desember um 100
vinninga í Happdrætti Franv
sóknarflokksins. Fólki er
bent á, að skrifstofa happ-
drættísins er að Hringbraut
30, sími 24480, og þar er hægt
að fá miða, og einnig gera
skil fyrir selda miða. Sömuleið
is eru miðar afgreiddir á af-
greiðslu Tímans, Bankastræti
7, og þar er tekið á móti upp-
gjöri fyrir heimsenda miða.
Sverrir Kristjánsson
Nýlega er komin út á veg-
um Bókaútg. Forna bókin
Horfin tíð eftir Sverri Kristj-
ánsson og Tómas Guðmunds-
son. Bókin flytur sjö frásagn-
ir. Þær eru:
Prestssonurinn frá Ballará, sem
fjallar um Torfa Eggerz og hrna
svallsömu og skammlífu stúdenta
kynsióð Jónasar Hallgirímssonar.
Köld eru ómagans kjör. Þar seg
ir frá þvi, að umgur drengur var
sveltur til bana eftir síðustu alda
mót.
Böndinn á Eyri, þáttur af Þor-
valdi Björnssyni á Þorvaldseyri.
Hann Ieysti hnútinn, þáttur af
Þorleifi ríka á Háeyri.
Friðþæging. Þar segir frá morði
Fruimhaid á bls. 23.
Tómas Guðmundsson
Þórarinn
Flugferð til Evrópu - verðlaun í 4-urra kvölda keppni í Framsóknarvist
Fimmtudaginn 7. desember n.k. hefst á vegum Framsóknarfélags Reykja- Auk þess verða á öllum þessum vistum veití, eins og venja er, sérstök
víkur fjögurra-kvölda-spilakeppni á Hótel Sögu. Þessi keppniskvöld verða i.völdverðlaun, sem 1. og 2. verðlaun karla og kvenna.
haldin einu sinni f mánuði — í desember, feorúar, marz og aprfl. Verður Eins og áður segir hefst þessi 4-kvÓlda-spilakeppni fimmtudaginn
hér um einstaklingskeppni að ræða. i. desember næstkomandi að Hótel Sögu. Að spilum loknum flytur Þórarinn
Heildarverðlaun verða sem hér segir: 1. veiðlaun karla og kvenna, Þórarinsson, alþingismaðui ávarp, og síðan verður dansað.
flugför til Evrópu. 2. verðlaun kvenna verða kvenfatnaður að verðmæti Nauðsynlcgt er að vera með frá byrjun, og er vissast að tryggja sér
kr. 4000,00. 2. veríHaiin karia verða herrafatnaðui að verðmæti kr. 4000,00. miða scm fyrst í síma 24480.