Alþýðublaðið - 29.03.1989, Blaðsíða 12
Himiiiiiiriiin
Miövikudagur 29. mars 1989
Forsetinn
veitir
útflutnings-
verðlaun
Forseti Islands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, afhendir í
fyrsta skipti Útflutnings-
verðlaun Forseta íslands á
sumardaginn fyrsta, þann
20. apríl næst komandi.
Verðlaunin eru sambæri-
leg við hin velþekktu verð-
laun í Danmörku sem heita
Heiðursverðlaun Friðriks ní-
unda og Útflutningsverðlaun
Bretadrottningar á Bret-
landseyjum. Útflutningsráð
íslands hefur í samráði við
embætti Forseta íslands
ákveðið að verðlaunin verði
framvegis veitt einu sinni á
ári til einstaklinga eða fyrir-
tækja, inniendra eða er-
lendra, sem unnið hafa sér-
staklega gott starf til að auka
sölu á íslenskum vörum og
þjónustu á erlendum mörk-
uðum.
Við úthlutun verður m.a.
tekið sérstakt tillit til útflutn-
ingsaukningar, vægi útflutn-
ings í heildarveltu og árangurs
á sérstaklega erfiðum mörk-
uðum. Verðlaunahafinn fær
í hendur skjal og verðlauna-
grip, auk þess sem hann fær
sérstakt merki á kynningar-
efni sínu í fimm ár frá af-
hendingu útflutningsverð-
launanna.
Sérstök úthlutunarnefnd
hefur verið skipuð, en í henni
eiga sæti Þorvaldur Gylfa-
son, formaður, Olafur B.
Thors, Ragna Bergmann,
Kornelíus Sigmundsson og
Ingjaldur Hannibalsson.
Áform um umfangsmiklar herœfingar_____
ÁKVÖRÐUN HEFIIR EKKI
ENNÞÁ VERIO TEKIN
Málið verður aftur rœtt í ríkisstjórn þegar utanríkisráðherra
hefur fengið upplýsingar sem hann hefur óskað eftir.
Steingrímur Hermanns-
son forsætisráöherra segir
að áform um heræfingu
varaliðs landshersins á
Keflavíkurvelli komi til
umræðu í ríkisstjórninni
þegar Jón Baldvin utanrik-
isráðherra verði búinn að
fá upplýsingar sem hann
hefur óskað eftir en enn
ekki fengiö. „Nei, nei. Það
voru engar deilur í ríkis-
stjórninni. Málið var bara
rætt fram og aftur,“ sagði
forsætisráöherra við Al-
þýðublaðið í gær. Jón
Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra segir sjálf-
sagt að leyfa æfinguna
verði tryggt að allar áætl-
anir séu í fyllsta samræmi
við íslenska hagsmuni og
staðhætti.
„Mér virðist fréttaflutn-
ingur af áformum um æf-
ingar varaliðs á Keflavíkur-
flugvelli vera í bófahasar-
stíl,“ segir Jón Baldvin.
Steingrímur segir einnig
sýnt að fréttir af málinu
séu afar vafasamar og ýkt-
ar. Samkvæmt fréttum.
sem teknar voru upp úr
innanhússblaði hjá banda-
ríska hernum, er gert ráð
fyrir að æfingin hefjast á
þjóðhátíðardaginn, 17.
júní, og a.m.k. muni 1300
manns taka þátt í æfingun-
um.
Utanríkisráðherra segir
staðreyndir málsins, að
samkvæmt varnarsamn-
ingnum sé gert ráð fyrir
liðsauka sem berist til ís-
lands á hættutímum.
„Partur af þessum liðs-
auka er varalið, þ.e.a.s.
sjálfboðaliðar sem eru í
þjálfun og hafa það verk-
efni að koma til Islands ef
þörf krefur á hættutímum.
Fámennur hluti af þessari
sveit hefur tvívegis áður
komið til íslands til æf-
inga, árið 1985 og árið
1987, auk þess sem þessi
varasveit hefur stundað
æfingar í Kanada þar sem
vopnabúnaður hennar er
geymdur.“
Jón Baldvin segir í fyrsta
skipti vikið að þessum liðs-
auka í skýrslu Steingríms
Hermannssonar utanríkis-
ráðherra til Alþingis, vegna
ársins 1987. Þar segir:
„Hersveit í varaliði banda-
ríska landhersins hefur
verið þjálfuð og búin undir
að koma til landsins á
hættu- eða ófriðartímum.
Hluti hennar tók þátt í um-
fangsmiklum æfingum í
Kanada í sumar og fylgd-
ust fulltrúar varnarmála-
skrifstofu með þessum æf-
ingum. Til að slík þjálfun
komi að fullu gagni er
nauðsynlegt að íslensk
stjórnvöld hafi hönd í
bagga og tryggi að allar
varnaráætlanir séu í sem
bestu samræmi við ís-
lenska hagsmuni og stað-
hætti.“
„Ástæðan fyrir því, að
ekki hefur af minni hálfu
enn verið tekin ákvörðun
um hvort eða hvenær þess-
ar æfingar geti farið fram
er einfaldlega sú, að allar
upplýsingar hafa enn ekki
borist,“ segir Jón Baldvin.
„Það er Ijóst að frétta-
flutningur um 17. júní er
tilhæfulaus og tölur sem
nefndar hafa verið um fyr-
irhugaðan fjölda ' liðs-
manna eru ekki endanleg-
ar. Hin raunverulega
spurning sem þetta mál
vekur er þessi: Hvernig get-
um við ætlast til þess að
þegnar annarra þjóða taki
að sér að verja okkar land
á hættutímum ef við neit-
um þeim um að kynnast
staðháttum?“
Holiday Inn
komið í þrot
Fyrirtækið Guðbjörn hótelinu rekstrargrundvöll
Guðjónsson hf, sem átt og með því að finna nýja með-
rekið hefur hótelið Holiday eigendur og nýtt hlutafé. Til-
Inn, hefur verið tekið til boð barst frá hótelkeðjunni
gjaldþrotaskipta eftir að erlendu Trusthouse Forte
greiðslustöðvun hafði ríkt upp á 7 milljónir doliara eða
um 5 mánaða skeiö. um 350 milljónir króna, sem
Holiday Inn var byggt á eigendur hafa ekki sætt sig
mjög skömmum tíma, en eig- við. Búið hefur því verið af-
endur þess virðast hafa reist hent Skiptarétti Reykjavíkur
sér hurðarás um öxl. Undan- til gjaldþrotaskipta.
farna mánuði hefur mikil
vinna verið lögð í að tryggja “
JAFNAR TÖLUR • ODDATÖLUR • HAPPATÖLUR
Þettaeru tölumarsem upp komu 25. mars. Heildarvinningsupphæðvar kr. 19.987.529,-
1. Vinningur var kr. 12.081.440,- og 4 voru með fimm réttar tölur og því fær hver kr.
3.020.360,-
Bónusvinningurinn (fjórar tölur + bónustala) var kr. 1.172.598,- skiptist á 14 vinnings-
hafa og fær hver þeirra kr. 83.757,-
Fjórar tölur réttar, kr. 2.022.723,- skiptast á 379 vinningshafa, kr. 5.337,- á mann.
Þrjár tölur réttar, kr. 4.710.768,- skiptast á 12.801 vinningshafa, kr. 368,- á mann.
Sölustaðir eru opnir frá mánudegi til laugardags og er lokað 15 mínútum fyrir útdrátt.
Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511.
Hltastig i nokkrum landshlutum kl. 12 i dag.
ÍSLAND
hitastig
í borgum
Evrópu
kl. 12
i gær
að íslenskum
tima.
Bílainnflutningur
Geysi-
legur
sam-
dráttur
Alls ríflega 15 þúsund bif-
reiðar voru fluttar inn til
landsins á síðasta ári, sem er
nær 8.400 færri bifreiðar en
metárið áður eða sem nemur
36% minnkun. Milli ára
fækkaði nýjum innfluttum
fólksbílum um 5.823 eða um
32,2%.
Fyrstu tvo mánuði þessa
árs voru aðeins fluttar inn
885 bifreiðar, þar af 707 nýj-
ar fólksbifreiðar. Að
jóbreyttu stefnir heildarinn-
flutningurinn í nálægt 4-5
þúsund bifreiðar, sem yrði
taðeins tæplega fimmtungur
af innflutningnum metárið
1987. Yrði það um leið
minnsti innflutningur bif-
reiða frá því á árunum
1975-1976.
Sú meginbreyting hefur að
auki átt sér stað í bifreiðainn-
flutningnum að notaðar bif-
reiðar hafa skipað æ stærri
sess. Á árunum 1977-1984
var hlutfall notaðra bifreiða
um 6-7% af heildarinnflutn-
ingnum, fór í 10-11% árin
1985-1986 en stökk í tæp 21%
árið 1987. Síðan hefur hlut-
fallið verið ríflega 15%.