Tíminn - 24.01.1968, Blaðsíða 12

Tíminn - 24.01.1968, Blaðsíða 12
12 TÍMENN NAUÐSYN H-UMFERÐAR framnaiij ai si&o í þriðja lagi Mt ég alls ekki á Huimferðarbreytmguna sem al- mennt geðþóttamál, þar sem allir eiga að heiw að standa jafnt eða svipað að vígi- Hér er um að ræða talsvert afbrigðilegt sér mál, sem að vissu marki vel má flokkast undir fagmál eða ^ækni- mál, sem öllum sé alls ekki hleyy- andi að til að dæma. Umbúðalaus sannleikurinn erlsá, að allur al menningur í landinu hefir sára- lítið vit á þeim og fjölmargir alls ekkert. Ég sá í dagblöðum í gær og í fyrradag, að tveir þekktustu odd- vitar vin-strimeennskunnar í um- Sveina meista ra- mót íslands Sveinameistaramót íslands inm anhúss v-erður haldið sunnudag- inn 4. febrúar að Reykholti, Borg arfirði. Keppt verður í eftirtöldum greinum: Bástökk ) Þrístökk ) Án atrenu Lamgstökk ) Hástökk með atr-ennu. Þátttökutilkynningar berist fyr ir 31. janúar til Vilhjálms Einars sonar, skólastjóra, Reykholti. ferðinni utanþings. þeir Ingvi mmn Guðmundsson, formaður FÍV, og djákni hans, Daníel gamli Pálsson, telja að þjóðaratkvæða- greiðsla hér ætti „að geta orðið ráðgefandi fyrir þingið, alveg eins og hún var það á sínum tíma í Sviþjóð“. Ójá, við ættum að kaupa slíka „ráðgjöf“ miklu fé og fyrirhöifn! Þjóðþingið sænska — Rikisdagen — samþykkti nefni lega þvert ofan í þjóðaratkvæði og „sterkan þjóðarvilja“ — 83% ,yá sínum tíma“ — að taka upp H- umferð! Við hér á landi erum þeg- ar búnir að gera á þingræðislegan hátt það sama og Svíarnir gerðu, og spöruðum okkur „ráðgjöfina" og það held ég að hafi verði al- veg rétt, ef'tir atvikum. Að vísu segja þeir kumpánar, að enn meiri þörf sé þjóðaratkvæðagreiðslu hér, „vegna legu landsins sem eyland" (sic!), eins og þeir báð-! ir sameiginlega komast að orði í j ritsmíðinni sinni. Öllum viti- bomum mönnuim ætti þó að vera Ijóst, hver reginfirra þetta gamal- dags eyjarkjaftæði er. Ég hefi kannske mörgum f-rem ur átt kost á því að hlusta á af- f stöðu landa minna til H-umflerðar» málsins, vegna nokkurrar sérstöðu, j sem ég hefi notið. Ég verð því j miður að segja það, að heildar- reynsla mín í þessu efni er sú, að ég veigra mér við að velja henni opinberlega orð við hæfi. En til Úrvals finnskar rafhlöSur Stál og plasf fyrir Transistorfæki, segulbönd, leikföng, tannbursta — og vasaljós. Heildsölubirgðir jafnan fyrir- liggjandi. RAFTÆKJAVERZLUN ÍSLANDS H.F. Skólavörðustíg 3 — sími 17975—76. Félag járn- iðnaðarmanna Félagsfundur verður haldinn föstudaginn 26. janúar 1968 kl. 8,30, í samkomusal Landssmiðjunnar. DAGSKRÁ: 1. Félagsmál 2. Atvinnumál 3. Önnur mál Mætið vel og stundvíslega. Stjórn Félags járniðnaðarmanna. ÚTIBÚSSTJÚRI Viljum ráða útibússtjóra við útibú vort í Varma- hlíð, sem væntanlega tekur til starfa í apríl- mánuði n.k. Ný íbúð á staðnum. Skriflegar um- sóknir, ásamt upplýsingum um fyrri störf og kaup- kröfur, sendist oss fyrir 15. febr. n.k. KAUPFÉLAG SKAGFIRÐINGA, Sauðárkróki. þess nú að passa mig á því, sem mér hættir kannske slundum til; að taka heldur d'júpt í árinni, læt ég mér nægja að segja það, að viðhorf margs þessa blessaða fólks — skyldra og vandalausra — er sannarlega ekiki upp á marga fiska frá vitrænu sjónarmiði. Og að ætla sér að hlíta dómi slíks fólks í þessu máli . . . það gæfi ég ekki mikið fyrir. Drottinn minn dýri! Eitt af því. sem atbyglisvert er í umræddu máli, og þráfaldlega hefir komið fram — og auðvitað er innlegg í hina fátæklegu greinar- gerð þingmannanna 5 — er fram- hjáiga-nga ýmissa forystumanna bif reiðastjóra — og bifreiðaeigenda- félaga gagnvart félagsanönnum, þegar hinir fyrrnefndu voru spurðir álits um upptöku H-um ferðar og gáfu sín svör, sem undantekningarlaust voru með- mælt breytingunni. Nú tel ég, að á allan hiátt hefði verið bæði eðlilegt og æskilegt að ræða þetta mál í viðkomandi félögum, til upp lýsingar og fræðslu, sem áreiðan lega hefði leitt til víðtækara fylg- is við málið. Hins vegar hefði samþykkt eða mótmæli slíkra funda ekki breytt neinu um það, hvað rétt er að gera. Og það vil ég að komi skýrt fram, að ekiki nær nokkurri átt að vilja nú allt í einu gera umrædda forystu- menn ómerka orða sinna og telja þá ekki hafa vit á málinu til jafns við óbreytta félagsmenn al- mennt. Það er harla ótrúlegt, að þeir menn, sem árum og í sumurn tilfellum áratugum saman hafa sökum yfirburða sinan að dómi fé- lagsmannanna sjálfra þótt sjálf- sagðir til forystu, bregðist nú allt í einu, þegar taka skal á- kvörðun um svo örlagaríkt sér- mál stéttarinnar og almennings, sem hér er um að ræða. Van- traust á forgöngumenn og stjórn ir félaga bifreiðaeigenda og bif- reiðastjóra eru því harla léttvæg rök í máli þessu. í framihaldi af þessu er vert að minna á, að furðul'egt má það heita, að svo að segja allir þekkt ir embættis- og trúnaðarmenn hins opinbera og frjálsra félags- samtaka í landinu, í um- ferðarmálum, eru yfirlýstir H- umferðarsinnar á sama tírna og heil hersing síðborinna umferðar málagarpa rís upp til andstöðu við Huimferð á hinum furðulegustu „rökum“, talandi um allt, nema það, sem skiptir verulegu máli. Ég get ekki stillt mig um að nefna nokkur fél. og opinberan umferða- aðila, sem allir kannast við, og lýst hafa ótvíræðu fylgi við upp- töku H-umferðar, ýmist í gegnuim stjúrnarsamþykktir eða ályktanir i funda: 1. Slysavarnafélag fslands. 2. Varúð á vegum. 3. Félag íslenzkra bifreðiaeigenda 4. Bindindisfélag ökumanna. 5. Landssamband vörubifreiða- stjóra. 6. Klúbbarnir ÖRUGGUR AKSTUR. 7. Umferðarnefnd Rey'kjavíkur. Hvað sýnir þetta? Hver svari svo sem hann hefir vit og dómgreind til. En ég fyrir mitt leyti öfunda ekki þingm. 5 af því grugguga „farvatni", sem þeir eru nú að dorga í, og á helzt von á því — þrátt fyrir allt — að lítil ánægja og lítill fengur verði hlutskipti þeirra áður en líkur. Um dóm sög unnar efast ég ekki. Ég vona svo, að þegar löggjafar samkunda þjóðarinnar sezt nú aft ur á rökstóla að lokinni jólahvíld landsfeðranna, verði eitt fyrsta verk hennar áð ganga hreinlega milli bols og höfuðs á frestunar frumvarpi þeirra 5-m-enninganna. Það eitt sæmir! Reykjavík, 19.1. 1968. Baldvin Þ. Kristjönsson. MIÐVIKUDAGUR 24. janúar 1968. Undirstöður þjóðarauðs - Framhald af bls 2. að undrun sætir, hve vanrækt hún hefur verið. Enginn raun verulegur fiskiðnaðarskóli er til í landinu né er skipulega reynt að senda menn erlendis til náms. Einnig sk-ortir raun verulega kennslu í sjálfum fisk veiðunuim. Hér er brýn nauð syn úr að bæta. Víðtæk könnun á mörkuðum erlendis yrði enn- fremur ásamt kynningu á ís- lenzkum afurðum að vera í samvirkandi tenslum við endur nýjunina í sjálfum fiiskiðnaðin- um. Efnahagsstofnun útvegs og fiiskiðnaðar yrðu sjálfsagður hluti hi-nar nýju miðstöðvar og myndi hún vinna að sérstök um framkvæmdaáætlunum þess arar atvinnugreinar í samræmi við heildaráæitl'Uin þjóðarbú'sins. jafnihliða því á fyrstu árum að stuðla að raunverulegu sam- starfi eða samruna hinna fjöl- mörgu f iskiðnaðarfyrirtækj a, sem staðsett eru í sama byggð arlagi og æði mörg eiga til- veru sína meir að þak-ka póli- tízku-m valdasjónarmiðum en efnahagslegu m-ati. íslendingar verða að gera sér þess ljósa grein nú þegar, að á síðasta áratu.g hafa erlendis orðið gíf urlegar framfarir á öllum svið um sjávárútvegs og fiskiðnaðar með helztu samkeppnisþjóðum okkar. Þær hafa tekið í notkun mörg stórvirk og sjálfvirk fram leiðslutæki, sem auka til muna aifköst og verðmæti framleiðsl unnar jafnhliða því, að þær hafa varið stórfé i grundvallar og hagnýtar rannsóknir, til að byggja á frekari framþróun. Til að viðbalda sessi okkar meðal helztu fiskveiðiþjóða heims þarf stórvægilegt og skipulegt átak allra hlutaðeig andi aðila. Deilur um stundar gróða mega ekki villa mönn urn sýn og sundra kröftum, því að hér er of mikið í húfi, fram tíðarheill og hagsæld þjóðar innar. Jafnhliða stórsókn í sjávar- útvegi og fiskvinnslu verður iðnvæðing þjóðarinnar að efl- ast á sem flestum sviðum, bæði þeim, sem fyrir eru og öðrum nýjum. Frumskilyrði þess, að henni verði farsællega fram haldið er, að í upphafi aðgerða séu gerðar ítariegar rannsókn- ir á þeim möguleikum, sem nátt úra landsins og verkkunnátta þjóðarinnar bjóða upp á og vandlegur samanburður gerður á hinum miaingvíslegu nýju iðn- greinum, sem húgisanlegar eru. Engin slík iðnvæðingaráætlun hefur verið gerð- Allt tal um stóriðjutíma að loknum ál- framtovæmidum er marklaus orðaflaumur, þar eð engin grundvallaráform um íslenzka ■ efnahagsþróun lágu að baki ál- ákvarðananna. Eigi hinar ýmsu tilraunir einstaklinga og félaga til iðnþróuinar ekki að reynaist meiri ,og minni fjármunasóun og ístöðulítil ævintýramennska, verður hið \fyrsta að se-mja í samráði við samtök iðnaðarins og innlenda og erlenda sér- fræðinga raunverulega iðnvæð- ingiaráætíun. Slík áætlun þarf að fela í sér forgangsröðuu þeirra eldri iðngreina sem mesta þróunarmöguleika hafa bæði með tilliti til innlends og erlends markaðar og ítarlegar tillögur um framkvæmdaað'gerð ir í þessum greinum til að auka samkeppnishæfni þeiira til muna á stuttum tíma. ítarlegar rannsóknir á kostum og göllum ýmissa nýrra iðngreina með tillti til íslenzkra aðstæðna og' möguleika þeirra hverrar um sig til að geta af sér hliðar- greinar, sem myndu avdra fjöl breytni íslenzks iðnaðar, væru óhjáikvæmilegur undanfari iðn væðingaráætlunar, sem síðan fæli sjálf í sér ákveðin fram kvæmdaáform þeirra greina, sem hagstæðastar væru taldar í þessu tilliti. Tillögur um stað setningu og stærð hinna ýmsu iðnfyrirtækja væru nauðsynleg ur þáttur iðnvæðingaráætlunar til að fyrirbyggja margveríknað í framleiðsluigetu og hindra of mikla dreifingu iðnþróunar. Það er eðlilegt að hér mynd ist líkt og í öðrum löndum iðn- kjarnar: ákveðnir bæir sér- hæfi sig í tiltekinni framleiðslu, þar eð slíkt gæfi meiri mögu lieika á stærri framleiðsluein- ingum, ódýrari og samkeppnis hæfari vöru. Án slíkra skipu- lagðra og samræmdra vinnu- bragða, sem felast í samnin'gu og framkvæmd iðnvæðingar- áætlunar, verða draumar um öflugan og fjölbreyttan íslenzk an iðnað aldrei að veruleika- Vafasamt er, hvort notokur ís- lenzk atvinnugrein hefur á und anförnum áratugum tekið land búnaðinum fram í skjótri og almennri hagnýtingu nýjustu tækni og víðtækri samvinnu framleiðend-a á sviði vinnslu og markaðsdreifingar, sem í senn hefur lækkað kostnað til muna, bætt gæði og aukið þjónustu við neytendur. Breyttir sam- gönguihœttir, fækkun 'fólks í sveitum og tilkoma s-tórvirkra véla hafa hins vegar nú gert fyllilega tímabæra, ef ekki nauð synlega, víðtæka samvinnu bænda að sjálfri frumfram- leiðslunni, heyöflun og hirð- ingu búpenings. Slík sam-vinna myndi fela í sér lausnir á meg invandamálum landbúnaðarins í nánustu fram-tíð: vandamálum sem eru bæði félagisleg og efna hagsleg. Það þarf að styrkja stöðu sveitabyggðanna þannig að æskufólk fyllist nýjum land námshug jafnhliða því að fram leiðsla afurða verði gerð fjöl breyttari og ódýrari. Til að e-fla sveitirnar þarf að stuðla að myndun býlakjarna, sem skapa skilyrði fyrir félagslegt líf og verklega samhjálp, fjölbreytt ari framleiðslu og notkun stór virkra tækja. Einungis slík byggðaþróun mun forða ís- lenzkum landibúnaði frá að slig - ast undan efnahagskröfum þjóð arbúsins og félagslífskröfum upprennandi kynslóðar. For- ráðamenn bændasamtakanna ættu hið fyrsta að ha-fa for- göngu um ítarlega athugun á mögul-eikum slíkrar byggð-aiþró- unar, þa-r eð hún ein megnar að skapa lífvænleg skilyrði fyrir blómlegum landbúnaði á fs- landi á næstu áratugum. Hér að framan hafa verið raktar fáeinar tillögur um grundvallarþróun höfuðatyinnu greina íslendinga, sjávarútveg, iðnað og landbúnað. Um þær verða sjálfsagt deildar m-eining ar, enda er slíkt eðlilegt. Mark miðið er hinsvegar það eitt að vekja til umhugsunar um þá einföldu staðreynd, að sífellt stríð við stundarþrautir á kostn að framtíðaruppbyggingar sjálfra undirslaða þjóðarauðs- ins getur fyrr en varir leitt þjóðina út í óleysanlegt efna- ha-gslegt þrot. Og þá mun lítils vi-rði vort sjáifstæði.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.