Tíminn - 11.04.1968, Blaðsíða 1

Tíminn - 11.04.1968, Blaðsíða 1
BLAÐ II ÉfWWW í L ! I \ mm m RÆTT VIÐ SIGURÐ BJÖRNS- SON Á KVlSKERJUM Blcsaklettur í Öræfum. í nábýli við jökla og sanda Fróðleiksfýsn hefur lönguin bórt sterkasta aðalsmerk; ok> ar íslendinga, og enda þótt vmislegt glepji nú um fyrir okkur, og margt verði annað til dægradvalar en aður fyrri, höfum við enn sem áður á- huga á að viita sem mest úr sögu lands og þjóðar. Ýmsar góðar heimildir eigum við f-á liðnum dögum, sem varpa ljósi á það líf, sem hér var 'ifað, en ef menu vilja kafa dýpra, hrökkva þær stundum skammt, og myndirnar sem þær gefa verða ekki nægilega skýr- ar. Bn úr þessu geta vissulega góðar hendur bætt og með því að tína saman tiltækilegan fróðleik, skráðar heimildir, munnmælasagnir og ýmislegt fleira og samræma innan á- kveðins ramma, má skýra myndina að miklum mun, svo að hún verði jafnvel allt að Ijóslifandi. Nú hafa Austur-Skaftfell- ingar tekið sig til, og fengið fróða sýslumga sína til að safna heimildum og atriðum úr sögu sýslunnar í bók. Er efnisöfl- un lokið, og vonir standa til, að bókin komi út á næsta ári. Það er Siguirður Björnsson frá Kvískerjum í Öræfum, sem fenginn hefur verið til þess að safna samam efni úr Öræfa- sveitinmi, og þar sem hann átti leið hér um borgina fyrir skömmu þótti okkur ekki úr vegi, að fá hann til að skýra lesendum Tímans dálítið frá þessu starfi, og fá hjá honum brot úr sögu sveitarinnar milli sanda. — Er fjallað um ákveðið skeið í sögu byggðanna, eða er hún tekin frá öndverðu? —• Við höfum tekið saman efni um upphaf byggðanma og elatu sagnir, en einkum er það tímabilið frá 1800—1960, sem um er að ræða. — Er það að einhverju sér- stöku tilefni, sem þessi samantekt er gerð? —• Tilefnið er ekki annað en það, að fólk fýsir að fá meiri vitneskju um þessar byggðir frá fornum tímum og þróuin þeirra og umróti síð- ustu tíma. >að eru til ýmsar heimiildir, tíundaskrár, kirkju- bækur o.fl., en fremur er þetta nú suindurlaus fróðleikur og þurfti mikillar athugunar við. Ég hef í þessari samantekt einnig stuðzt nokkuð við forn- bréifasöfn og þau gögn önnur, sem ég vissi að voru til um Öræfasveitina, og þá hef ég tekið saman nokkrar murnn- mælasagnir frá fyrri tímum. Úr þessu hef ég leitazt við að myinda heild, sem ætti að sýna hver þróunin hefur verið í höfuðdráttum í Öræfasveit- inni. í fornurn skjölum er Öræfa- sveitin nefnd Hérað og hefur gi-einilega verið allmikil og góð sveit, og landskostir ágæt- ir. Það hefur jafnan þótt helzti ókostur sveitarinnar sem og annarra í Auistur-Ska'ftafells- sýslu, að höfin hefur engin verið nema í Hornafirði, og hún þó hvergi nærri góð í fyrri tíð. En í upphafi bygAða hefur verið allt öðruvísi um- horfs í Öræfasveitinni en nú er. Breytingar í náttúrunni hafa orðið geysimiklar, og sveitin hefur orðið fyrir miki- um skakkaföllum af völdum máttúruihamfara. Það sannast ekki sízt á sögu Öræfasveitar- innar, að það eru öngvar ýkj- ur hjá honum doktor Sigurði Þórarinssyni, að hér á landi geta orðið meiri breytingar í náttúrunni á einu ári en á þúsund árum erlendis. Sigurður Björnsson Breiðamerkursandur hefur verið miklu minni, þegar land byggðist, en hann er nú, eða um 10 km, í hæsta lagi á breiddina, og Sfceiðarársandur liefur verið allt öðruvísi en nú er. Fyrsta breytingin í sueitinni hefur sennilega orð- ið í hlaupi í Skeiðará á önJ- verðri 14. öld, en um það eru heimildir mjög óljósar, en par greinir svo frá, að eigur Jökul- fellskirkju hafi verið lagðar til Núpstaöarkirkju, þ. e. Lómagnúpskirkju, og má ætla, að það hafi orðið vegna nátt- úruhamfara. Árið 1362 gaus Öræfajökuili og eftir það bar sveitin aldrei sitt baír. Þá fara 17 bæir í eyði, að því er talið er, og ef til vill hafa fleiri verið farnir í eyði vegna Skeiðarárhlaupsins. Vitað er um þrjá bæi vestam jökuls á því svæði, sem Breiðamerkur- sandurinn nær nú yfir. Hann er þó ekki mótaður í sinn nú- verandi mymd fyrr en um alda- mótin 1700. Árið 1698 fer í eyði býlið Breiðamörk, en það er sama jörð og Breiðá þar sem Flosi fékk Kára Sölmundar- syini bústað eftir að sættir tók- ust með þeim. Nú enda þótt Njála sé ef til vill ekki svo örugg sagnfræðiheimild, þarf ekki að ætla höfundi hennar þá smekkleysu að láta Flosa fá Kára Breiðá til ábúðar, ef þetta hefði ekfci verið vildar- jörð á þeim tímum. Og gera má ráð fyrir, að Breiðamörk hafi verið allgott býli um 1S87, því að þá á bóndinn þar í málaferlum við Skálholtsbisk- up út af rekaréttindum, og það hefði hann vart vogað sér ef hánn hefði ekki verið sæmi- lega gildur. Sandurinn hét fyrr um Breiðársandur, og svo er að sjá, að nafn hans hafi breytzt, er farið var að kalla jörðina Breiðamörk. — Og ekki hafa jöklarnir síð ur tekið breytingum? —• Jú, þeir hafa breytzt og gengið fram. f jarðabók ís- ieifs Einarssonar frá þessum slóðum segir, að „byggð sé af fyrir vötnum og jökli.“ í sókn- arlýsingu séra Gisla Finmboga- sonar til Árna Magnússonar segir, að Breiðárfjall verði varla notað til lambagöngu lengur, því að þar girði nú jökull í kring, og svipuð orð viðhefur ísleifur Einarisson um Hafrafell. Landnámsjörðin Fjall fer snemma i eyði, og gengur jökull yfir tættumar um aldamótin 1700. Árið 1755 er sandurinn milli sævar og jökuils 1—2 milur danskar um Jökulsá eða hvergi minna en um 7 km. á breidd og jökuli- imn því fjær sjó við Jökulsá en hann er nú, en víða ann- ars staöar er fjarlægðim nú meiri en þá var. Breiðamerkur jökull virð'st hafa verið mjög hár. Daniel Bruun skrifar 1 lýsingu sinni á Öræfasveitinni, að Esjufjöll sjáist ekki af sand imum fyrir jöklinum, en hann læfckar nú og minnfcar ört og svo mum halda áfram, ef tíð kólnar ekfci til mifcilla muna. Eftir því sem jöklamir minnba, festast ámar í farvegn um og ámar á þessurn slóð- um eru allar komnar á lægstu staðima eftir að hafa breytt mjög um farvegi á umliðnum öldum. Árið 1954 sameinuðust Breiðá og Fjallsá og hafa nú verið brúaðar í einu lagi, og litlar líkur eru til þess áð þær skipti sér aftur, nema jöfcull gangi yfir. En nú sér maður hiilla undir að svo geti orðið, sem bóndi einn í Suðursveit lét orð um falla á síðustu öld. Það var verið að kvarta yfir því, að vart væri búandi á Is- landi, og þá sagði hann: — Nú, það mætti gera allan Breiðamerkursandinn að túni ef fjármagn væri til. — Hvað um íbúafjölda í Ör- æfasveit? — Um hann eru fáar tölur til fyrr en um 1800. Árna Maginússyni varð þess aldrei auðið að koma þangað og fékk þess í stað ísleif Einarsson til að gera jarðahók fyrir sig, en aðeins er nú til úrdráttur úr henni. En frá 1800—1960 mun láta mjög nærri að meðal- tal ibúafjölda sé 190 manns. Það vantar nokkuð upp á, að þeirri tölu sé náð um 1800, en byggðin eykst síðan og heldur svo áfram þar til árið 1900, em fólki hefur fækkað nokkuð á semni árum. Af- koma Öræfinga virðist frá önd verðu hafa verið nokkuð sæmi leg og helztu hlunnindi sveit ariinmar hafa verið selveiði og fuglatekja í Ingólfshöfða. Út- ræði hefur verið nokkuð fyrr á tím-um, en hefur aldrei get- að talizt verulegt, enda hafa róðrar frá þessum slóðum ver- ið mikið hættuspil og oft urðu miklir mannskaðar í þeitn ferðum. Árið 1758 verður þanna stórslys á sjó, og eftir það er að sjá, að Öræfingar treysti lítt á að sækja gull grepiar Ægi. Hins vegar hljóp oft fiskur á land, og var það að sjálfsögðu mikil björg í bú. Það er almennt talið, að af- koma í Austur-Skaftafells.sýslu hafi verið einna tryggust í Ör- æfunum. Á síðasta áratugi 18. aldar hefur þó verið talsverð fátækt þar, sem gæti stafað af völdum Síðueldanna óbeinlín- is, þvi þótt Öræfingar Framíhald á bls. 30.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.