Tíminn - 14.05.1968, Page 5
ÞRDQJUDAGUR 14. maí 1968
TÍMINN
Bílainnflutningur
Fyrst er hréf B.I.
„Nú þegar óvænkast hagur
margra og menn fara að huga
betur að f jármálum sínum, kem
ur mér í hug bílainnflutningur.
Hundruð millióna hafa verið
bundin í bílum á hverju ári
s. 1. sex ár. Ekki er að sjá að
sérstakrar hagsýni eða fyrir-
byggju hafi gætt í þessum inn-
flutningL Kaupsýslumenn, al-
gerlega „frjálsir", hafa keppzt
um að flytja inn hverja bílateg
undina á fætur annarri án til-
lits til hvort þær hentuðu okk
ar staðháttum. Verkin sýna líka
m«±im Við höfum nú nær
hundrað og fjörutíu tegundir
fólksbíla og ég mun ekki einn
um að segja það, að talsverður
hluti þeirra hefði betur aldTei
til landsins komið.
Margar þessar tegunda eru
ætlaðar til aksturs við mun
betri s'kilyrði en hér eru, t.
d. jafnara og hlýrra veðurfar,
þurra vegi og rennisléttar hrað
brautir. Ending er líka í sam-
ræmi við þetta, og alloft kem
ur það fyrir að hjólabúnaður
þessara bíla skekkist og gengur
úr lagi, við það eitt að lenda í
krappri holu í vegi. Þá eru vara
hlutir oft lítt fáanlegir, sem
reyndar von er, í öllum þessum
sæg ólikra bíla.
Vandræði á vegum
Undanfarna vetur hafa oft
orðið vandræði á vegum, þegar
litlir bílar komust ekki leiðar
sinnar, ef bylgusu gerðí eða
hálku og stöðvuðu þannig alla
umferð. Oftast hefur verið um
að kenna keðjuleysi þessara
bíla, en það verður aldrei
tryggt að allir hafi keðjur til-
tækar, sérstaklega snemma vetr
ar, auk þess sem fullerfitt er
að koma keðjum á sumar teg-
undir vegna þrengsla við hjól
in.
Það virðist því aðeins ein
leið til úrbóta og hún er sú að
flytja inn heppilegri bíla o£
þá sórstaklega jeppa og aðra
bíla með drifi á öllum hjólum,
sem geta komizt leiðar sinnar
í venjulegri íslenzkri vetrar-
færð á tiltölulega fjölförnum
vegum.
Margir hafa látið glepjast
af minni benzínnotkun litlu
bílanna, en athuga ekki að end
ing og notagildi jeppanna og
annarra daglegra bfla er langt
um meira virði.
Menn hljóta að sjá að mjög
óhyggilegt er að kaupa til
landsins dýr en ótraust og 6-
heppileg fanartæki og við eig
um ekki að láta bjóða okkur
óprúttna sölumennsku í þekn
efnum.
Vöndum því betur val bíls-
ins!“
Björn Indriðason,
Skólabraut 15 Seltj.
„Nú verður aftur
hlýtt og bjart um
bæinn“.
Þá hafa okkur borizt nokkur
bréf um sjónvarpsþáttinn hans
Sigfúsar Halldórssonar, sem
sýndur var 6. mai s. 1. Þar sem
þessi bréf eru flest öll á einn
veg birtum við aðeins eitt
þeirra aðeins stytt:
„Mér finnst ég verða að koma
á framfæri þakklæti til sjón-
varpsins fyrir þáttinn„Nú verð
ur aftur hlýtt og bjart um bæ-
inn, sem sýndur var í sjónvarp
inu 6. maí. Þetta er annar þátt
urinn sem helgaður er lög-
unum hans Sigfúsar Halldórs- j
sonar og verð ég að segja að
þeir hafa verið hver öðrum
betri. Lögin hans Sigfúsar eru |
hreinustu perlur og ljóðin við i
lögin eftir því. Sjálfur er hann j
alveg afbragð á sjónvarpsskerm :
inum, látlaus og sannfærandi. !
f síðari þættinum (þ. e. 6. maf) !
yljaði það mér að heyra og sjá |
aftur hann Kristján Kristjáns j
son, því að þó ég sé ekki gam
alL þá man ég vel eftir því
þegar hann var upp á sitt bezta
og mér finnst ennþá jafngam
an að hlusta á hann. Alveg ein
stakt hvað hann heldur sinni
ágætu rödd vel og lengi. Eins
þótti mér ánægjulegt að sjá og
heyra okkar ágæta skáld, Tóm
as Guðmundsson koma þarna
fram, en eins og allir vita hef
ur Sigfús samið mörg afbragðs
lög við ljóðin hans. Sem sagt
þetta var afbragðsþáttur og
eiga allir, sem að honum stóðu
þakkir skilið og vona ég að
sjónvarpið endurtaki hann
fljótt aftur.....
S.J., Keflavík.
Og enn vísan
Get ekki orða bundizt. Loks
birtist smá athugasemd í Land
fara — sem ég sendi fyrir
löngu síðan og Velkvakandi hef
ur nú birt fyrir mig orðrétt —
og með réttri undirskrift. -
BÚLGARÍA
Ánægjulegir sumarleyfisdagar á
Gullsöndunum
án vegabréfsáritunar
Flugferðir frá Kaupmannahöfn með 4ra mótora Turbo-þotu
8 dagar frá kr. 5.105.— (með fæði)
15 dagar frá kr. 6.430.— (með fæði)
Eða ennþá ódýrara: Flugferð og gisting hjá gest-
risnu og viðkunnanlegu fóM.
Næturgiisting . . . VerS kr. 4.250.— til 5.555.—
— m/morgunverð Verð kr. 4595.— til 6.155.—
— m/einni máltíð Verð, kr. 4.995.— til 7.230.—
— m/báðum mált. Verð kr. 5.155.— til 8.270.—
Brottför hvern laugardag.
Gullsandar, 17 km norður af
hafnarbænum Varna, er fal-
legasti og bezti sumarleyfis-
bær Búlgaríu. Þar er engin
landisloftslag (miilt á vetrum
og þœgiileigt á sumrim). Al-
sikýjað og rigning er sj'aldan,
og allt að 2240 sóliskinísstund-
ir á ári. Meðalhiti í júli 22°,
ekki yifir 33—34° heitustu
dagania. Hiti í sjlónum er miilli
20 og 28°.
Hótel: Perla, Palma, Mórsko
Oko er eitt af beztu og ný-
tízkulegustu hótetam á Guí-
söndunum.
Gullsandar — friðsælt,
sfcemimtilegt og sérkennilegt.
Gullsamdar — ákjiósainlegir
skemimtuiniarmöguiLeikar á
sanngjömu verði.
Gullsandar — miðstöð ferða-
til Istanlbul, Odessa, Sofu,
Gullsandar — miikill afslátt-
ur fyrir börn.
Biðjið um bæklimginn með rósinni á ferðaskriiflstiofu ýðar.
4. afþj. ballettsamk. 8. júlí—20. júií.
9. heimshátíðarmót fyrir ungt fóik 28. júlí—6. ágúst.
56. alþj. heimisfundur tanmlæknu FDI 16. sept.—22.sept.
— þar að auki aiþjóðlegir tónleikar, þjóðlaga og
þjóðdamsasýning o.s.frv
VELJIÐ BÚLGARÍU í ÁR.
Pantanir hjá öltam íslenzkum ferðaskriiflstofuim.
Balkanturist, Fredrifcsberggade 3,
KBH. K. Tlf. 193510
Vinsamlega sendið mér um hæl f erðabækling um Búlgaríu
Nafm
Heimilisfainig.
Hvernig dettur Landfara í hug
að Ingibjörg Magnúsdóttir,
skrifi um sjálfa sig í dag, bú-
in að liggja í gröf sinni á amn
an tug ára? Sem frænka henn-
ar vildi ég (M. Ásgeirs. —)
leiðrétta missögn, eða bera
brigður á rétt með farið um
höf. visu sem frú Ingibjörg sál.
Magnúsd. skrifar eigin hendi
í Nýja kivennabl. árg. ‘44 og
því setti ég það innan gæsa-
lappa, nafnið hennar og vís-
una. Bið um skýlausa leiðrétt
ingu á þessu, þvi ég hefi enga
löngun eða leyfi — til að
skrifa undir nafni löngu dáinn
ar konu — þó frænka mín hafi
verið — þvilík endemis vit-
leysa. — Lesið nú greinina hjá
Mogganum — þar er hún orð-
rétt og rétt umdirskrift — lærið
af honum að fara rétt með. —
M. Ásgeirs.
Símstöðin í Reykjavík
Sigurður Hallsson í Keflavík
skrifar:
„Það þarf að fara að athuga
símstöðina í Reykjavík. Ég
kom þar fyrir nokkru síðam
tvisvar á virkum degi. Þá tóku
dömurnar af mér 39 krónur í
hvert sinn fyrir ekki neitt. Á
annan í páskum kom ég þar. Þá
sátu dömurnar þar með eim-
hvens konar helgisvip og sögðu
að það mætti helzt efcki tala og
alls ekki tala Ijótt, því nú vœru
páskar. Mér leizt ekki vel á
þær svo ég fór til Hafnarfjarð
ar. Þar var stúlka sem ekki var
með neinn helgisvip og leysti
hvers manns vanda fljótt og
vel.
Það þarf að láta símstöðvar
stjórana í Reykjavik og Kefla-
vík fara að hætta. Menn mega
ekki verða ellidauðir í starfi.
Siðferðið virðist minnka hjá
ýmsum með aldrinum. Það
virðist vera svo að margir opin
berir starfsmenn þurfti að
temja sér betri uimgengnislhætti
við almenning. Þeir þurfa að
skilja að þeir eru þjónar fólks
ins en ekki herrar."
LAND-ROVER
Land/Rover eigendur, góð
benzínvél óskast í skiptum
fyrir lítið notaða dísilvél.
Sími (91) 84278.
Sveit
Drengur óskar eftir sveita
plássi í sumar. Upplýsing-
ar í síma 50338.
Bændur
16 ára stúlka alvön sveita-
störfum óskar eftir að
komast í sveit. Upplýsing-
ar í síma 23631.
Á VÍÐAVANGI
Endurreisn atvinnu-
veganna
í ræðu sinni í útvarpsumræð-
unum sagði Ólafur Jóhœnnes
son, formaður FramsöKnar-
flokksins, m. a. um eflingu at-
vimnulífsins:
„Framsóknarflokkurinn telur,
að eins og sakir standa, liljóti
aðalviðfangsefnið að vera end-
urreisn atvinnuveganna og
bættur þjóðarhagur. Það þarf
að breyta um stefnu gagn-
vart undirstöðuatvinnuvegun-
um. Það þarf að koma þeim í
það horf, að þeir geti starfað
og byggt sig upp með eðlileg-
um hætti. Það þarf að draga úr
fjármagnskostnaði þeirra, eink-
anlega með því að stórlækka
vexti af stofnlánum þeirra og
rekstrarlánum. Það þarf einnig
að létta af þeim ýmsum opin-
berum gjöldum, sem á þá hef-
ur verið hlaðið að undanförn’!,
og þeir fá ekki undir risið. Það
þarf að fullnægja lánsfjárþörf
þeirra með eðlilegri hætti en
átt hefur sér stað á aUra síð
ustu árum. Einkanlega þarf að
gefa þeim kost á sérstökum lán-
um til hagræðingar og fram-
leiðniaukningar en á þvi sviði
er umbóta þörf á ýmsum at-
vinnugreinum. Þá þarf og að
taka ýmsa þjónustustarfsemi
við undirstöðuatvinnuvegina til
gagngerrar endurskoðumar.
Hagræðing
Þar er áreiðanlega hægt að
koma við margvíslegri hagræð-
ingu. Það er enginn vafi, að
með þeim hætti má spara und-
irstöðuatvinnuvegunum veruleg
ar fjárhæðir. Ég nefni t. d.
bankakerfið, olíudreifinguna og
tryggingarnar. Hvaða vit er í
öllum bankabyggingunum og
bankaútibúum? Ilalda menn að
þetta kosti ekki neitt? Og ætli
væri ekki hægt að spara eitt-
hvað í mannahaldi, ef bankar
væru sameinaðir? Ætli það
væri ekki hægt að koma við
hagræðingu í olíudreifingunni?
Mörgum sýnist það. Tryggingar
eru sagðar hér miklu dýrari en
annars staðar. Sjálfsagt liggja
til þess eðlilegar orsakir. En
það er samt vissulega ástæða
til að athuga þau mál. Sjálfsagt
má hér einnig nefna ýmsa við-
gerðarþjónustu. Líklegt er, að
þar mætti koma við ýmissi hag
ræðingu. Með þeim ráðstöfun-
um, sem hér hafa verið nefnd-
ar, má efalaust stórbæta að-
stöðu atvimnuveganna. En lækk
un framleiðslukostnaðar er
ekki nema önnur hliðin. Hins
þarf einnig að gæta, að gera út-
fltuningsafurðimar sem verð-
mætastar. Þess vegna þarf m.
a. að leggja ríka og vaxandi
áherzlu á vöruvöndun og gæða-
eftirlit. Einnig þarf að sinna
markaðsleit og markaðskönnun
með allt öðrum hætti en hing-
að til.
Yfirbyggingin of dýr
Það þarf að taka upp sparn-
að í ríkisbúskapnum, ekki
neinn sýndarspamað, heldur
raunverulegan sparnað. Yfir-
bygging nkkar fámenna þjóðfé
lags ei orðin allt of dýr. Úr
kostnaði við hana verður að
draga. Það er undirstöðuat-
vinnuvegunuin ofviða að standa
undir henni Við verðum i
þeim efnum að !æra að sníða
okkur •itaks efth vexti. V:ð
getum ekki hegðað okkur að
Framhald é bls 15
•wjr>->ira,i>»w-a.