Tíminn - 26.06.1968, Side 5

Tíminn - 26.06.1968, Side 5
MÍÐVIKUDAGUR 26. júní 1968. TIMINN í SPEGLITÍMANS ★ Þessi. þrenning hér á mynd- inni er mjög þekkt, þótt við sjáum ekki oft myndir af þessu fólki í íslenzkum blöðum. Þau ætla að fara að leika í kvik- mynd, sem nefnist Good Mr. Chips og leikararnir eru talið frá vinstri: Sir Michael Red- grave, Petula Clark og Peter O’Toole. ★ Á næsta ári verða settir upp ejélfsalar víðs vegar um Parísarborg, sem selja dag íblö'ð. Verður þar hægt að velja um tíu dagblöð. ★ Kláus prins af Hollandi er nú farinn að gegna ýmsum opin- berum skyldum í Hollandi. Þessi mynd er tekin, þegar hann var að opna nýjan klúbbstað, sem stúdentafélagið í Leider- dtorp haifði sett á stofn. Það er víst ekki á því neinn vafi, að fjölmargar ungar stúlk- ur öfunda Önnu prinsessu af Bretlandi. En að sögn banda- rískra blaðamanna, sem hafa haft viðtal við Önnu, vita þess- ar stúlkur ekki, hvað þær eru að tala um. Anna er nefnilega að sögn ósköp óhamingjusöm, kannske óhamingjusamasta manneskja í heimi! Og það þótt móðir hennar sé drottning í Bretlandi og hún sé nýbúin að fá stóra, glæsilega bifreið. Önnu finnst, og það hafa ýmsir bent á, að hún sé neydd til þess að ganga til fara eins og hún væri fertug og hún hefur verið kölluð „tötralegasta prinsessa heijns“. Og það er sagt, að þessi klæðaburður eigi rætur sínar að rekja til drottningarinnar, sem fylgist vel með klæðaburði dótturinnar. — Ef hún ætti sjálf að sjá um fötin sín, myndi ¥ ★ hún ganga miklu stuttklæddari en sómasamlegt væri, segir drottningin. En að sögn Önnu er ekki nóg að móðir hennar velji á hana fatnað. Hún hefur ekkert sjálfstæði, að henni finnst, móðir hennar velur henni kunningja og þegar hún fer á dansleiki, þá er alltaf fylgzt vandlega með henni. — Líf mitt er ekki líkt lífi ungrar stúlku. Þær hafa þó að minnsta kosti leyfi til þess að gera stundum það, sem þær limgar til. Ég vildi óska, að ég væri dóttir slátrara. Þá gæti ég lifað mínu eigin lífi, án þess að. allir þurfi að skipta sér af því. ★ John Wodzynski er ungur fót boltaunnandi og engin fórn er of stór, þegar uppáhaldsfótbolta liðið hans á í hlut. Og einn góð- an veðurdag rétt áður en fót- boltaliðið hans, Chesham Unit- ed, átti að leika einn úrslitaleik, arkaði John sér til hárgreiðslu- konu og bað hana að lita á sér hárið. Það skyldi vera röndótt, litað með einkennislitum liðsins, ljósbláu og rauðu. Hárgreiðslu- konan var lengi að fást til þess að framkvæma þessi ósköp og John fór út úr hárgreiðslustof- unni með röndótt hárið og í sjö unda himni. Hins vegar var unnusta hans ekki eins hrifin. Hún sagði nokkur velvalin orð við John og tilkynnti honum það, að hún kærði sig ekki um að gera sig að því fífli, að láta sjá sig með honum með slíka litadýrð! Að lokum gafst John upp og leitaði aftur á náðir hár greiðslukonunnar til þess að kippa þessum málum í lag. ★ Fay Dunnaway, sem lélk aðal- hlutverkið í þeirri kvikmynd, sem einna vinsælust hefur orð- ið það sem af er þessu ári, Bonny og Clyde, var boðið til Cannes á kvikmyndahátíðina þar. Hún þáði boðið með því skilyrði, að það væri öruggt, að hún hitti þar ekki Warren Beatty, sem lék með henni í þessari frægu mynd. * Christobal Balenciaga, spánski tízkuteiknarinn, sem setti á stofn tízkuhús í Parísarborg fiyrir þrjátíu ánuim og hef- ur verið einn af þekktustu tízku frömuðum borgarinnar, er tal- inn munu hætta störfum í sum- ar og er búizt við að fyrirtækið verði lagt niður. Þegar þetta fréttist, urðu aðr ir tízkufrömuðir skelfingu lostn ir og létu ýmis orð falla. Yves St. Laurent sagði meðal annars, að það væri skömm að því, að Balenciaga yrði að hætta, með- an mörg ómerkileg tízkuhús gætu haldið áfram starfsemi. Mr. Bohan, einn æðsti maður hjá Dior-fyrirtækinu, sagði, að þetta væri mikið áfall fyrir tízk una í heiminum, en Coco Chan- el var ekki ýkja undrandi: — Tja, þetta er kannske ekki svo vitlaus hugmynd. Hvernig á ann að að vera, þegar fólk kærir sig ekki um tízku lengur. 5 Á VÍÐAVANGI Harmel-skýrslan Eitt aðalumræðuefni á ráð- herrafundi Atlantshafsbanda- lagsins, sem nú stendur yfir í Reykjavík, er skýrsla sú um framtíðarverkefni NATO, er kennd hefur verið við Harmel utanríkisráðherra Belgíu. _ Skýrslan í heild er birt í blað inu í gær lesendum til glöggv- unar og ennfremur Atlantshafs sáttmálinn sjálfur, svo menn eigi hægarg með að átta sig í þeim umræðum sem nú eiga sér stað um Atlantshafsbanda- lagið og framtíð þess og aðild íslands að bandalaginu í því sambandi. Að frumkvæði Harmels utanríkisráðlierra Belgíu, ákvað fastaráð NATO að kanna þau framtíðarverk- efni, sem bandalagið stendur andspænis og leiðir til að hrinda þeim í framkvæmd, á þann hátt, að bandalagið eflist sem ein af stoðum varanlegs friðar. ,S þágu minnkandi spennu" f Harmelskýrslunni segir meðal annars: ,,Leiðin tU friðar og festu í Evrópu er einkum fólgin í því, að bandalaginu sé beitt á uppbyggjandi hátt . í þágu minnkandi spennu. Lausn stjómmálalegra vandamála í Evrópu mun ekki nást án þátt töku Sovétríkjanna og Banda- ríkjanna“. Ennfremur: „Sérhver aðUi þarf að taka fuUan þátt í að efla og bæta tengslin við Sovétríkin og ríki Austur-Evrópu, minnugir þess, að aðgerðir tU þess að draga úr spennunni mega ekki verða tU þess að kljúfa bandalagið. Augljóst er, að mests árangurs má vænta, ef bandalagsríkin halda áfram að fylgja svipaðri stefnu, einkum að því er varð- ar málefni er skipta þau öll náið. Aðgerðir þeirra munu með því móti verða mun árangursríkari. Friðsamlegt ástand í Evrópu verður ekki skapað án verulegs átaks aUra sem hjut eiga að máU. Stefna Sovétríkjanna og Austur-Evrópuríkjanna hefur þróazt á þann veg, að hægt er að gera sér vonir um að stjórn völd þessara ríkja kunni um síðir að koma auga á kosti þess fyrir þau sjálf að ganga til samstarfs um ráðstafanir til að stuðla að friðsamlegri lausn. Engin endanleg og örugg lausn er hugsanleg í Evrópu, án þess að bundinn verði endi á Þýzkalandsmálið, sem er kjarni núverandi spennu í álf- unni. Hvers kyns lausn þess yrði að ryðja úr vegi hinum óeðlilega aðskUnaði Austur- og Vestur-Evrópu, sem skýrast og átakanlegast kemur fram í skiptingu Þýzkalands. f samræmi við þetta eru bandalagsríkin ákveðin í að beina mætti sínum að þessum markmiðum með raunhæfum aðgerðum til að draga enn frekar úr spennunni í samskipt um austurs og vesturs. Minnk- andi spenna er ekki lokatak- mark heldur áfangi á lengri leið í áttina að bættum sam- skiptum óg lausn evrópskra vandamála. Lokatakmark banda lagsins á stjórnmálasviðinu er Framhald a bls 15 (

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.