Alþýðublaðið - 14.09.1990, Blaðsíða 1
MÞYBUBUDIfi
Aktu ekki út i óvissuna
aktu ó
Ingvar
Helgason hf
Sæwarhotða2 Simi 91-67 4000
138. TOLUBLAÐ 71. ARGANGUR
FÖSTUDAGUR
14. SEPT. 1990
ALVERSBÆTUR TIL LANDSBYGGÐAR: Stein-
grímur Hermannsson forsætisráðherra telur að til
greina komi að bæta landsbyggðinni upp álver komi það til
með að rísa á Keilisnesi. Nefnir hann sem möguleika að
tekjur af raforkusölu til væntanlegs álvers verði notaðar til
að greiða niður húshitunarkosnað og jafnvel raforkuverð
á landsbyggðinni. Þjóðhagsstofnun telur að orkusaia til
væntanlegs álvers sé meiri en útreikningar Landsvirkjun-
ar gefi til kynna.
FORNÓS Á SAUÐÁRKRÓKIGJALDÞROTA: Fisk-
eldisfyrirtækið Fornós á Sauðárkróki hefur verið lýst gjald-
þrota. Gjaldþrotið er talið nema um 36 milljónum króna.
Stærstu kröfuhafar í þrotabúið eru Byggðasjóður og fóður-
verksmiðjan ístess á Akureyri. Nú hafa tvö fyrirtæki á
Sauðárkróki verið lýst gjaldþrota með aðeins um viku
millibili en hitt fyrirtækið var Melrakki.
TJALDHÝSIFUKU UM KOLL Á LAUGARVATNI:
I gær fuku nokkur hjólhýsi á Laugarvatni um koll í miklum
vindhviðum. Sum húsanna eru alveg ónýt og önnur nokk-
uð skemmd. Mikil fjöldi hjólhýsa er geymdur á svæðinu og
misvel frá þeim gengið.
ÞORSKAFLI HEFUR DREGIST SAMAN UM 7%:
243.000 tonn af þorski veiddust fyrstu 8 mánuði ársins eða
um 7% minna en á sama tíma í fyrra. Heildarafli hefur hins
vegar ekki dregist saman nema sem nemur tæplega hálfu
prósenti. Munar þar mestu að ufsaaflinn hefur aukist um
45.000 tonn, ýsa um 6.000 tonn, rækja um 5.000 tonn,
karfi um 2.000 og hörpudiskur um 2.000 tonn. Hins vegar
hefur grálúðuaflinn minnkað um 23.000 tonn. Mest afla-
aukning hefur átt sér stað á Norðurlandi enda hefur lang-
mestur kvóti verið keyptur þangað.
FLUGLEIÐIR TAPA MINNA: Tap Fiugleiða fyrstu sex
mánuði þessa árs miðað við sama tíma í fyrra. Tapið nam
424 milljónum króna á rekstrinum en sambærileg tala fyr-
ir tapið á sama tíma í fyrra var 569 milljónir króna. Heild-
artap félagsins var þó mun minna en fyrir sama tímabil í
fyrra vegna söluhagnaðar og óreglulegra tekna. Rekstur
millilandaflugs á íslandi gengur ávalt betur seinni helming
ársins.
LEIÐARINN Í DAG
Alþýðublaðið fjallar í dag í leiðara um tímamótasátt-
mála Fjórveldanna og sameinaðs Þýskalands sem
undirritaður var í Moskvu í fyrrdag. Sáttmálinn er
formleg endalok kalda stríðsins og skiptingar Evr-
ópu.
SJÁ LEIÐARA Á BLS. 4: EVRÓPA AFTUR SAMEIN-
UÐ
5-6
Ný sókn til
framfara
Jón Sigurðsson, viðskipta-
og iðnaðarráðherra, segir að
dregið hafi í sundur með ís-
lendingum og þjóðum iðnríkj-
anna hvað þjóðartekjur varðar.
Nauðsyn beri til að nú verði
hafin ný sókn til framfara.
Deilur um
þjóðarhöll
Guðmundur Oddsson, bæj-
arfulltrúi í Kópavogi, fjallar um
hinar makalausu deilur og það
moldviðri sem þyrlað hefur
verið upp í Kópavogi vegna
byggingar Þjóðarhallarinnar
svonefndu, sem rísa á fyrir HM
í handknattleik 1995.
Bylting í
verkalýðshreyfingu
Svo virðist sem talsverðrar
óánægju gæti innan verkalýðs-
hreyfingarinnar með marga af
forystumönnum sem þar hafa
setið um langa hríð. Sjá frétta-
skýringu Tryggva Harðarson-
ar, blaðamanns.
ísland beint ó
HM handbolta?
Svo gœti farid vegna sameiningar þýsku ríkjanna en er þó alls óvíst, segir Erwin
Lanc, forseti IHF.
Haustar að
Haustlægöirnar hrannast nú upp að landinu hver á fætur annarri. Ekki er þó að sjá á þessum
heiðursmönnum þar sem þeir hvíla lúin bein á Austurvelli að þeir kippi sér upp við það.
Kannski eru þeir bara svo niðursokknir í umræður um skjaldarmerkið á þinghúsinu. Nú eða
hvort stormar um stjórnina í vetur. A-mynd: E.ÓI.
Við sameiningu þýsku
ríkjanna hefur opnast
glufa fyrir að íslenska
handknattleiksliðið kom-
ist beint í næstu heims-
meistarakeppni og þurfi
þá ekki að leika í B-keppn-
inni um sæti í úrslita-
keppninni.
Eins og alþjóð er kunnugt
þá náðu íslendingar ekki
þeim árangri á HM í hand-
bolta að tryggja sér sæti sem
A-þjóð í handbolta og þar
með rétt til að leika í úrslita-
keppni HM árið 1993 í Sví-
þjóð. Var ísland næsta þjóð til
að tryggja sér sæti í næstu
heimsmeistarakeppni.
Erwin Lanc forseti Alþjóða-
handknattleikssambandsins
sagði í viðtali við blaðið í gær
að ákvörðun um það yrði
væntanlega tekin á þingi IHF
í Madeira á Spáni. Hann sagð-
ist sjálfur ætla að leggja til að
frá og með 1. janúar nk. tæki
nýtt handknattleikssamband
sameinaðs Þýskalands yfir öll
réttindi og allar skyldur
handknattleikssamband
beggja ríkjanna.
Lanc sagði aðspurður
möguleika íslands að lenda í
hópi A-þjóða í handknattleik
og þar með þátttökurétt í
næstu úrslitakeppni HM í
handbolta óvissan. ,,Mögu-
leikarnir eru reyndar tveir.
Annar er sá að sameinað
Þýskaland njóti réttar Aust-
ur-Þýskalands til þáttöku í úr-
slitakeppninni í HM. Hinn er
sá að sameinað Þýskaland fái
rétt Austur-Þýskalands viður-
kenndan en þá á Vest-
ur-Þýskaland rétt á þátttöku í
B-keppninni og þar með
möguleika á að vinna sér
þáttökurétt í lokakeppninni."
Þessi skoðun hans byggist á
að sameinað Þýskaland taki
við rétti og skyldum beggja
þýsku ríkjanna.
Þing IHF sem verður haldið
á næstunni mun væntanlega
taka afstöðu til þessa máls
þegar það kemur saman. Þar
sitja væntanlega fulltrúar frá
70 til 80 löndum. Það kemur
í þeirra hlut að túlka hvað
felst í orðunum ,,að taka við
réttindum og skyldum beggja
þýsku ríkjanna" verði tillaga
Lanc, forseta sambandsins, á
annað borð samþykkt. ís-
lendingar verða því að bíða
þings IHF til að fá endanlega
úr því skorið hvort þeir kom-
ast beint á HM í handbolta í
Svíþjóð árið 1993.
RITSTJÓRN r 681866 — 83320 • FAX 82019 • ÁSKRIFT OG AUGLYSINGAR '£ 681866