Alþýðublaðið - 14.09.1990, Blaðsíða 12
•••• ••••
• • •
•••• ••••
•. • •
• • • • • •
• • • •
• • • •
NÍKÓSÍU: Nú þegar
Persaflóadeilan hefur stað-
ið í rúmlega 6 vikur hafa
Sýrlendingar ákveðið að
senda herlið til liðs við heri
undir stjórn Bandaríkjanna
í Saúdí-Arabíu í þeim til-
gangi að verjast hugsan-
legri árás íraka. Flótta-
menn segja að íraskar lög-
reglusveitir gangi nú hús
úr húsi í Kúvæt-borg í leit að útlendingum.
BAGHDAD: írakar ásaka Bandaríkin um að reyna að
finna átyllu til að gera árás á írak og segja að þeir muni
halda George Bush, forseta Bandaríkjanna, persónulega
ábyrgan fyrir hverja árás erlendra herja á írak.
SAMEINUÐU ÞJÓÐUNUM: Yfirmaður nefndar Ör-
yggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sem fjallar um viðskipta-
bannið gegnTrak, ásakar íraka um að neita útlendingum
um matvæli og noti þau sem vopn til að brjóta hið alþjóð-
lega viðskiptabann.
NYJU DELHI : Bandaríkjastjórn hefur sagt yfirvöldum í
Nýju Delhí að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna muni fara
í kringum viðskiptabannið gegn írak til að leyfa Indverjum
að senda matvælabirgðir til Kúvæt handa indverskum
flóttamönnum, að sögn indversks embættismanns.
GENF : Embættismenn Sameinuðu þjóðanna sem ræddu
neyðarhjálp til handa flóttamönnum á Persaflóasvæðinu,
sögðu ekki ólíklegt að þeir flóttamenn sem nú þegar hafa
flúið frá írak og Kúvæt séu aðeins lítill hluti þeirra sem enn
eru innlyksa í löndunum tveimur.
DHAHRAN, (Saúdí-Ar-
abíu): Flokkur Palestínu-
manna sem hvarf inn í PLO
fyrir 25 árum hefur risið
upp aftur vegna óánægju
með afstöðu PLO í Persa-
flóadeilunni.
FREETOWN : Vestur-afrískar friðarsveitir í Líberíu hafa
flutt þúsund stuðningsmenn hins fallna forseta, Samuels
Doe, frá forsetahöllinni en ringulreið ríkir enn í borginni,
að sögn fréttamanns bresku fréttastofunnar BBC, sem
staddur er í Monróvíu. Tvær stríðandi uppreisnarfylkingar
eru staðráðnar í að drepa stuðningsmenn hins fallna for-
seta og að ná forsetahöllinni undir sig.
JOHANNESARBORG: 13 voru drepnir og u.þ.b. 100
særðir i vopnaðri árás svartra á lestarfarþega í Jóhannes-
arborg. Lögreglan segir að tala látinna gæti hækkað þar
sem enn er verið að leita fórnarlamba meðfram járn-
brautateinunum.
MOSKVU: Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi segir að
hugsanlega verði haldinn annar leiðtogafundur fyrir lok
ársins.
BELGRAD : Tveir Albanir létust í átökum við lögreglu í
Kosovo héraði í Júgóslavíu. Þetta eru fyrstu dauðsföllin þar
síðan 30 manns féllu í átökum í janúar og febrúar sl., að
sögn útvarpsins í Belgrad.
A-BERLIN : Hneyksli er í uppsiglingu vegna orðróms um
að ýmsir úr röðum stjórnarliða í A-Þýskalandi hafi verið á
mála hjá öryggislögreglu kommúnista. Umhverfisráðherr-
an, hefur verið sakaður um að hafa lengi stundað upp-
ljóstranir fyrir Stasi.
MOSKVU: Viðskiptaráðherra Bandaríkjanna segir að
Sovétmenn muni liðka útflytjendalög þar í landi innan
tveggja mánaða í þeim tilgangi að hljóta viðskiptaívilnanir
frá stjórnvöidum í Washington.
EHLENDAR FRÉTTIR
Umsjón: Glúmur Baldvinsson
Samningur um nýja Evrópu undirritaöur í Moskvu:
Reikitingsskil
vid fortiðina
V-Þjóðverjar og Sovét-
menn, sem hafa aukið
samskipti sín mjög á und-
anförnum árum, undirrit-
uðu í gær sáttmála sem
festir samvinnu ríkjanna
enn betur í sessi. Sáttmál-
inn kom í kjölfar friðar-
gjörðarsáttmála milli sam-
einaðs Þýskalands og
bandamanna úr seinni
heimstyrjöldinni, Banda-
ríkjanna, Sovétríkjanna,
Bretlands og Frakklands,
sem undirritaður var í
Moskvu á miðvikudaginn
og markar hann tímamót í
sögu Evrópu.
Sáttmálinn, sem nefnist
„Tveir plús fjórir", var undir-
ritaður af utanríkisráðherr-
um fjórveldanna og þýsku
ríkjanna tveggja. Með samn-
ingnum viðurkenna fjórveld-
in fullveldi sameinaðs Þýska-
lands og er hann formlegur
friðarsáttmáli milli sigurveg-
ara í heimstyrjöldinni síðari
og Þýskalands og litið er svo
á að með honum sé bundinn
formlegur endi á kalda stríð-
ið.
Þýsku ríkin verða eitt 3.
október nk. Samrunaferillinn
hefur aðeins tekið 7 mánuði,
sem þykir ótrúlega skammur
tími ef tekið er mið af öllum
þeim hindrunum sem stóðu í
veginum. Sovétmenn vildu í
fyrstu hafa áhrif á sameining-
una og settu fram margar
kröfur en féllu frá þeim er
fram í sótti.
Míkhaíl Gorbatsjov, Sovét-
leiðtogi, segir að stjórnvöld í
Bonn hafi boðið Sovétríkjun-
um þrjá milljarða marka í
beina fjárhagsaðstoð fyrir ut-
an þá tólf milljarða marka
sem Þjóðverjar hafa sam-
þykkt að greiða til að flytja
sovéska hermenn heim frá
A-Þýskalandi fyrir 1994.
Genscher, utanríkisráð-
herra V-Þýskalands, sagði að
vináttusáttmáli Sovétmanna'
og Þjóðverja sem undirritað-
ur var í gær, leiði ríkin inn í
21. öldina sem verði öld
ábyrgðar, trausts og sam-
vinnu. Sáttmálinn tengir Sov-
étmenn sterkari böndum við
Þjóðverja en nokkra aðra
vestræna þjóð.
Jóhannesarborg í S-Afríku:
Drápin
halda áfram
13 létust og u.þ.b. 100
særðust í árás hóps
svartra á lestarfarþega í
Jóhannesarborg í S-Afr-
íku í gær. Lögreglan þar í
borg sagði að tala látinna
gæti verið hærri því enn
væri leitað að fórnarlömb-
um meðfram járnbrautar-
teinunum.
Ekki er vitað hverjir árásar-
mennirnir voru eða hver til-
gangur drápanna var. Lög-
reglan veit aðeins að þeir
voru svartir.
Árásin var svipuð fyrri
árásum á lestir og strætis-
vagna í borginni í undan-
förnum mánuði en stríð hefur
geisað þar milli Ink-
hata-hreyfingarinnar og
stuðningsmanna Afríska
þjóðarráðsins og valdið
dauða 750 manna.
Sl. miðvikudag voru tveir
svertingjar sem biðu á leigu-
bílastöð skotnir niður og ann-
ar fyrir utan íbúðir verka-
manna í borginni.
Nelson Mandela, leiðtogi
Afríska þjóðarráðsins og de
Klerk, forseti S-Afríku, fund-
uðu sl. þriðjudag og þá hvatti
sá fyrrnefndi stjórnvöld til að
binda enda á óeirðirnar í
borginni.
Ástandiö í Kúvœt:
Útlendingar
Yfirmaður nefndar Sam-
einuðu þjóðanna, sem
stýrir framkvæmd _ við-
skiptabannsins gegn írak,
Marjatta Rasi, ásakaði Ir-
aka í gær fyrir að nota
matvæli sem pólitískt
vopn til að brjóta við-
skiptabannið. Rasi sagði
að írakar hefðu nægar
matarbirgðir en neituðu
útlendingum um matvæli.
Þetta sagði hún á blaða-
mannafundi sem haldinn
var í framhaldi af fundi ör-
yggisráðsins um neyðar-
hjálp til handa útlending-
um í Irak og Kúvæt. Javier
Perez de Cuellar, aðalrit-
ari Sameinuðu þjóðanna,
sagði að það væri ekkert
sem staðfesti það að mat-
væli send til handa flótta-
mönnum á Persaflóasvæð-
inu næðu til réttra aðila.
Öryggislögregia íraka gerir
nú víðtæka leit að útlending-
um í Kúvæt-borg. Bandaríska
utanríkisráðuneytið hefur
hvatt allar bandarískar konur
SAMEININGARFERILL
REUTER
2. maí 1989 Ungversk/austurísk landamæri opnuð
7. október 1989 Mótmæli skyggja á 40 ára afmæli Austur-Þýskalands
18. október 1989 Honecker, leiðtoga austur-þýskra kommúnista , sparkað
9. nóvember 1989 Berlínarmúrinn fellur
13. nóvember 1989 Hans Modrow verður forsætis- ráðherra A-Þýskalands
3. desember 1989 Einræði kommúnista afnumið
14. mars 1990 "2+4" öryggismálaviðræður
18. mars 1990 Hægri öfl vinna sigur í fyrstu frjálsu kosningunum
1. júlí 1990 Sameigninlegur gjaldmiðill
16. júlí 1990 Sovétríkin samþykkja inn- göngu A-Þýskalands i NATO
31. ágúst1990 Sameiningarsáttmáli undirritaður
12. september 1990 "2+4" sáttmálinn undirritaður
3. október 1990 Þýskaland sameinað
leitaðir uppi
og börn sem eftir eru í borg-
inni að hafa strax samband
við sendiráð Bandaríkjanna í
borginni svo hægt sé að und-
irbúa brottflutning þeirra.
Bretar hafa ákveðið að
senda aukið herlið og vopn til
Persaflóa. Þetta var ákveðið í
framhaldi af beiðni Bush
Bandaríkjaforseta til aðildar-
ríkja NATO um að taka á sig
þyngri byrðar af viðbúnaðin-
um við flóann. Breska þingið
var einhuga um málið og á
næstu dögum verða sendar
þúsundir landhermanna til
Saúdí-Arabíu ásamt þyrlum
og skriðdrekum.
Sýrlendingar hafa sam-
þykkt að senda u.þ.b. 14 þús-
und hermenn til Saúdí-Arab-
íu en þar eru 3 þúsund sýr-
lenskir hermenn fyrir og þús-
und í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum.