Alþýðublaðið - 16.02.1985, Page 11
Laugardagur 16. febrúar 1985
11
ilssonar, formanns Alþýðuflokksins, um ísland
þeim ógöngum, sem íslensku þjóð-
félagi hefur verið stefnt í. Þess
vegna fjölmennir fólk nú á fundi
Alþýðuflokksins.
Hér í opnunni birtum við nokkr-
ar myndir af fundaherferð Jóns
Baldvins. Einnig báðum við Jón
Baldvin að segja okkur frá nokkr-
um eftirminnilegum atvikum sem
gerst hefðu á ferðalaginu og brást
hann vel við því.
Þær frásagnir birtast hér meðal
myndanna.
| Eg á svo góðar bernsku-
minningar úr síldinni á
Sigló, að mér finnst ég alltaf
vera að koma heim þegar ég
kem til Siglufjarðar. Eg
gleymi ekki hvað kvenskör-
ungarnir hjá Þormóði
ramma veittu okkur óblíðar
móttökur i byrjun, þótt við
kveddumst með kossi þegar
yfir lauk. Ég skrifað leiðara
fyrir jól í Neista, sem hét
„Áfram stelpur“, ogfjallaðii
um þessar kvenhetjur. "
| Á Reyðarfirði gerðist rnargt
' eftirminnilegt. Sigfús Guð-
laugsson oddviti og raf-
veitustjóri, ætlaði að vera
fundarstjóri, en áður en til
átti að taka var búið að slíta
rafstreng og heilt hverfi í
þorpinu var rafmagnslaust.
Svo fundarstjórinn okkar
var ofan í skurði að gera við
allan fundartímann. Við
slógurn því náttúrlega föstu
að þetta hefðu verið komma-
strákar á gröfunni, að bekkj-
ast við okkur. Á þessum
fundi var mikið rœtt um
orkumál. Mér er það minnis-
stœtt að ég hef hvergi á fundi
fyrirhitt mann, sem hefur
veriðjafn fróður og skarpur
í þeim málum og vélgœslu-
maður á Reyðarfirði, Hauk- Á
ur Þorleifsson. %
Strax eftir flokksþing Alþýðu-
flokksins í haust, lagði nýkjörinn
formaður flokksins, Jón Baldvin
Hannibalsson, af stað í fundaher-
ferð um ísland, sem stendur enn.
Nú þegar hefur formaðurinn haldið
fundi á um það bil sextíu stöðum,
og hefur svo til alls staðar verið
troðfullt hús. Á fundunum hefur
Jón Baldvin kynnt stefnu Alþýðu-
flokksins og hefur hún alls staðar
átt mikinn hljómgrunn. Fólk er far-
ið að átta sig á því að hér á landi
þarf öflugan jafnaðarmannaflokk,'
til að standa gegn frjálshyggjunni
og afturhaldinu, sem hefur tröllrið-
ið íslensku samfélagi eftir að helm-
ingaskiptastjómin komst til valda.
Það þarf nýjar hugmyndir til að
vinna okkur út úr vandanum, sem
framsóknaráratugurinn hefur hlað-
ið upp. Það þarf að standa vörð um
velferðarþjóðfélagið, eigi aftur-
haldið ekki að fá að brjóta það nið-
ur. Það þarf réttlátari tekjuskipt-
ingu í þjóðfélaginu ef koma á í veg
fyrir að tvær þjóðir byggi þetta
land. Það þarf réttlátari skatt-
heimtu til að launþegar einir beri
ekki alla byrði af sameiginlegum út-
gjöldum landsmanna. Það þarf áð
bjarga húsnæðiskerfinu. Það þarf
að bjarga sjávarútveginum. Það
þarf að hreinsa til í stjórnkerfi
landsins. Það er svo margt sem þarf
að gera og fólk er farið að gera sér
grein fyrir að ekkert gerist fái
gömlu kerfisflokkarnir að ráða
ferðinni. Fólk hefur gert sér grein
fyrir því að öflugur jafnaðar-
mannaflokkur er eina leiðin út úr
Stykkishólmur
Ólafsvík
i Sennilega var fundurinn á
I Ólafsvík sá léttlyndasti af
þeim öllum. Troðfullt hús út
á götu. Ólafsvíkingar höfðu
verið á þorrablóti nóttina
áður, fram á morgun.
Stemmningin var þannig að
þegar farið var á sprett þá
veltist allur salurinn um af
hlátri. Það verður ekki ann-
að sagt en að húmorinn sé í
góðu lagi undir Jökli. S
Akureyri
Ólafsvík