Alþýðublaðið - 14.05.1993, Page 18

Alþýðublaðið - 14.05.1993, Page 18
18 Föstudagur 14. maí 1993 VINDÁSHLÍÐ Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur: SUMARFERÐ UM Það eru ekki ófáir sem hafa lagt leið sína einhvern tímann í æsku í sumarbúð- ir Kristilegra félaga ungra manna og kvenna (KFUM og KFUK). Þær eru eins og landslýður veit fimm talsins og stað- settar hér og þar í gróðursælum reitum uin landið. Þarna er komið eitt heillaráð- ið til höfuðs stressinu: í sumar ættu full- orðnir uppalendur að taka það rólega og -.sa«da afkvæmin í sumarbúðir sem rekn- ar eru í kristilegum anda. Það er hvort eð er miklu heilnæmara að leyfa þeim að sprelia í skjóli Móður náttúru heldur en að hafa þau vomandi í bensínmenguðum bakgörðum borgar og bæja. En hvað bjóða þessar sumarbúðir upp á fyrir litla fólkið sem landið skal erfa? Alþýðublað- ið athugaði það nánar. VATNASKÓGUR Vatnaskógur iiggur við Eyrarvatn í Svínadal og þar er jafnan nóg að gera fyrir athafnasama drengi, 9 ára og eldri. Vatnið, skógurinn og fjöllin í kring veita ómælda möguleika til leikja og útiveru. Bátsferðir, stangveiði, skógarleikir, gönguferðir, fót- bolti, körfubolti og aðrar íþróttir eru meðal Jjeirra atriða sem laðað hafa drengi að Vatnaskógi t áratugi. Þar er einnig íþrótta- VATNASKOGUR hús sem mikið er nýtt þegar illa viðrar til útiveru. VINDÁSHLÍÐ Vindáshlíð er á fallegum stað í Kjósinni, um 45 kílómetra frá Reykjavík. Skógi vax- ið umhverfið, fjöll og fossar gefa hressum stúlkum kost á skemmtilegri útivist. Má þar nefna skógarleiki, ratleik, leik í trönum, fjallgöngur, baðferðir, varðelda og leiki ýmiskonar. Iþróttir eru stundaðar af kappi, enda íþróttahús og brennóvöllur á staðnum. I Vindáshlíð geta dvalið stúlkur, 9 ára og eldri. ÖLVER Ölver er við Hafnarfjall skammt frá Borgamesi í umhverfi sem er kjarri vaxið í skjóli hárra fjalla. Þar er öll aðstaða til leikja góð, nýr grasvöllur, útileiktæki og fallegar gönguleiðir í nágrenninu. I vætutíð er gott að nota leikskálann til ýmissa íþrótta og leikja. I Ölveri geta dvalið drengir og stúlk- ur á aldrinum 7 til 14 ára. KALDÁRSEL Kaldársel er á fallegum stað skammt fyr- HÓLAVATN ir ofan Hafnarfjörð. Hraunið í kring býður upp á hellaferðir og spennandi leiki. Kaldá rennur um hraunið og í næsta nágrenni er Valaból, skógarreitir og fleiri áhugaverðir staðir sem gaman er að skoða. Nýr íþrótta- skáli hefur stórbætt allar aðstæður til inni- veru og leikja þegar illa viðrar úti. Kaldár- sel er fyrir drengi og stúlkur á aldrinum 7 til 12 ára. HÓLAVATN Hólavatn er í innanverðum Eyjafirði í skjólgóðum krika við norðvesturhluta Hólavatns. Vatnið býður upp á hressandi bátsferðir, stangveiði og sund á heitum dögum. Kvöldvökur eru fastur liður og ýmsar íþróttir em stundaðar af kappi. Fag- urt umhverfið gefur kost á ánægjulegum gönguferðum, skógarleikjunt og hollri úti- vist. Svefnaðstaða hefur verið endurnýjuð og á Hólavatni geta dvalist drengir og stúlk- ur, 8 ára og eldri. ALMENNAR UPPLÝSINGAR Ferðimar í sumarbúðir eru mislangar en þó standa þær yfirleitt í kringum vikutíma. Skráningargjaldið er 2.500 krónur en heild- arverðið er á bilinu 11 til 16 þúsund. At- hygli skal veitt á að 10% afsláttur er veittur fyrir systkini sem fara í sumarbúðir. Skrán- ingin fer fram í félagshúsi KFUM og KFUK á mótum Holtavegar og Sunnuveg- ar í Reykjavík, mánudaga til föstudaga klukkan 08 til 16. Tekið er við innritunum í sfma 91-678899 og 91-679209. Verði ykk- ur að góðu. Myndir fengnar að láni úr bæklingi KFUM og KFUK um sumarbúðir félaganna áríð 1993. KALDÁRSEL Sumarstarf KFUM og KFUK: LÍF OG FJÖR Í SUMARBÚDUM Þeir fullorðnu slappa afog senda börnin í sumarbúðir OLVER Vinn ngstölur r miövikudaginn: 12-maí 1993 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPH/EÐ Á HVERN VINNING n 6 af 6 1 (áísl.0) 77.250.000 C1 5 af 6 E2S+bónus 0 1.095.595 S 5 af 6 15 57.388 0 4 af 6 969 1.413 a 3 af 6 +bónus 3.558 165 Aðaltölur: 2 )(lB)(l0 34y36y45 BÓNUSTÖLUR Heildarupphæð þessa viku 81.162.682 á Isl.: 3.912.682 UPPLYSINGAR, SÍMSVARI91 - 68 1511 LUKKULlNA 98 10 00 - TEXTAVARP 451 BfflT MED FTRIRVARA UM PflEHTVlLLUfl SUÐURLAND „ Við vonum að jafnaðarmenn hvaðanœva að aflandinu komi í sumaiferð félagsins. Þetta er ekki hugs- að sem einhver sér- reykvísk ferð. Það eru allir velkomnir", segir Valgerður Gunnarsdóttir „Við í ferðanefnd Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur komum saman í fyrrakvöld og ræddum ferðalög reykvískra jafnaðar- manna í sumar. Hin árlega sumarferð var þar að sjálfsögðu efst á blaði og liggur nú fyrir hvert verður farið. Við höfuin hugsað okkur að laugardaginn 3. júlí verði lagt af stað með rútum frá Reykjavík og haldið á vit sunnlenskrar menningar eins og hún þekkist best handan heiða. Þetta verður skemmtileg dagsferð þar sent farið verður um víðan völl um Suðurlandið", sagði Val- gerður Gunnarsdóttir í samtali við Alþýðu- blaðið í gærmorgun. „Byrjað verður á því að fara austur á bóg- inn og Þorlákshöfn, Eyrarbakki og Stokks- eyri heimsótt. Gömul hús skoðuð og saga bæjanna könnuð. Þaðan verður eftir nokk- urt stopp farið austur í Fljótshlíð. Þaðan ætl- um við að keyra upp á hálendið þar sem gengið verður upp í Hvanngil sem er ein af alfallegustu perlum íslenskrar náttúru. í Hvanngili verður áð og menn geta gætt sér á nesti. Við höfum síðan hugsað okkur að þegar náttúru Hvanngils hefur verið notið um stund að þá verði keyrt á einhvem yndisleg- an stað á Suðurlandsundirlendinu. Þar höld- um við kvöldvöku með frábærri máltíð, söng og harmonikkuspili að kratískum sið. Magnús Jónsson veðurfræðingur hefur lof- að okkur góðu veðri, en varla er þörf á því Ferðanefnd Alþýðuflokksfélags Revkjavíkur (frá vinstri): Valgerður Gunnarsdóttir, Guðlaugur Tr.vggvi Karlsson, Aðalheiður Karlsdóttir. Á myndina vantar Jóhannes Guðmundsson. A.mynd-E.ÓI. loforði þar sem gott veður í sumarferðum jafnaðarmanna hefur ekki brugðist hingað til. Við vonum að jafnaðarmenn hvaðanæva að af landinu komi í sumarferð Alþýðu- flokksfélags Reykjavíkur. Það eru allir vel- komnir. Nánari tilhögun ferðarinnar verður svo auglýst síðar og upplýsingar verða gefnar á skrifstofum Álþýðuflokksins", sagði Valgerður Gunnarsdóttir að lokum um sumarferð Reykjavíkurkrata sem farin verður sem fyrr segir 3. júlí næstkomandi.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.