Alþýðublaðið - 24.02.1994, Síða 4
4 ALÞYÐUBLAÐIÐ
PRÓFKJÖRSBLAÐIÐ
Fimmtudagur 24. febrúar 1994
RAÐAUGLYSINGAR
Flugmenn -
flugáhugamenn
Fundur okkar um flugöryggismál verður haldinn í kvöld,
fimmtudag á Hótel Loftleiðum og hefst kl. 20.00.
Fundarefni:
- Álag tengt flugi. Fræðsluerindi - Dr. Eiríkur Örn Arnar
son.
- Ljósmyndun úr lofti. RAX - einn þekktasti
flugljósmyndari okkar.
- Spurningar og svör.
- Kaffihlé.
- Kvikmyndasýning.
Allir velkomnir.
Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík.
Flugmálafélag íslands.
Flugmálastjórn.
Öryggisnefnd FÍA.
Húsnæðisnefnd Hafnarfjarðar
Viötalstími
Magnús Baldursson og Magnús Gunnarsson verða með
viðtalstíma fyrir Húsnæðisnefnd Hafnarfjarðar á skrifstofu
nefndarinnar, Strandgötu 11,3. hæð, fimmtudaginn 24.
febrúar nk. kl. 18-19.
^ RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Útboð 94002
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í að byggja
lager-, verkstæðis- og skrifstofuhús við Vesturtanga 8-12
á Siglufirði.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Rafmagnsveitna
ríkisins við Suðurgötu 4, Siglufirði, Ægisbraut 3, Blönduósi
og Laugavegi 118, Reykjavík, frá og með fimmtudeginum
24. febrúar 1994 gegn kr. 15.000 í skiiatryggingu.
Verkinu á að vera að fullu lokið föstudaginn 28. október
1994.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins á
Blönduósi fyrir kl. 14.00 mánudaginn 14. mars 1994 og
verða þau þá opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem
þess óska.
Tilboðin séu í lokuðu umslagi, merktu „RARIK-94002
Siglufjörður - Húsnæði".
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 118
105 REYKJAVÍK
Ty4X 61- 91-M
Æfingabekkir
í Hafnarfirði
Þú ert í...
...betri málum...
...ef þú stundar líkamsþjálfun
Margrét
Guðlaugsdóttir:
í mörg ár hef ég
reynt að losna við
lærapokana en án
árangurs þangað
til ég fór að
stunda
æfingabekkina. Þá
fór ég loks að sjá
árangur og
sentimetrarnir
hurfu.
Sæunn
Sigursveinsdóttir:
Frábær aðstaða!
Hvetjandi leiðbeinandi,
mjög góður andi og
góður árangur.
Hólmfriflur
Berentsdóttir:
Mér finnast
bekkirnir henta
mér betur en
leikfimi þar sem
mikið er um
hopp.
Maður tekur vel
á í þægilegu
umhverfi og er
endurnærður á
eftir.
Ásta Baldvinsdóttir:
Ég lenti í slysi árið 1988 og hef verið mjög slæm
síðan þá. Nú hef ég stundað bekkina þrisvar í viku í
nokkra mánuði og er allt önnur.
Ath.
breyttan
opnunartíma:
Mánud.-fimmtud.kl.8.15-12.00 og I5.00-2I.00. Föstud.kl.8.l5-I3.00 og laugard.kl.10.00-13.00.
Bekkirnir tryggja árangurinn!
Ókeypis kynningartími!
Þú hefur engu að tapa nema
kílóum og sentimetrum!
betn ma
í ÆFINGABEKKJUM
LÆKJARGÖTU34a-0 653034
HAFNARFIRÐI.
M
Félag
járniðnaðarmanna
Aðalfundur
verður haldinn laugardaginn 26. febrúar 1994 kl. 13.15 að
Suðurlandsbraut 30, 4. hæð.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Kaffiveitingar.
Mætið stundvíslega.
Ath. Reikningarfélagsins liggja frammi á skrifstofunni milli
kl. 16.00 og 18.00 fimmtudaginn 24. og föstudaginn 25.
febrúar.
Stjórnin.
MENNTAMALARÁÐUNEYTIÐ
Styrkveiting úr
Þróunarsjóði leikskóla
Tilgangur sjóðsins er að stuðla að þróunarverkefnum
í leikskólum/-skóladagheimilum. Með þróunarverk-
efnum er átt við nýjungar, tilraunir og nýþreytni í upp-
eldisstarfi. Um styrk geta sótt sveitarstjórnir/-leikskóla-
stjórar/fóstruhópar og einstakar fóstrur. Sækja má um
styrk til nýrra verkefna sem þegar eru hafin. Umsókn
fóstru skal fylgja umsögn viðkomandi rekstraraðila.
Styrkumsóknir skulu berast menntamálaráðu-
neytinu fyrir 22. mars næstkomandi á þar til gerð-
um eyðubiöðum sem liggja frammi í afgreiðslu
menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150
Reykjavík.
SOKN
Allsherjaratkvæða-
greiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu
um kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs í Starfsmannafé-
laginu Sókn.
Tillögur skulu vera samkvæmt A-lið 21. greinar í lögum fé-
lagsins.
Framboðslistum eða tillögum skal skila á skrifstofu féiags-
ins, Skipholti 50a, eigi síðar en kl. 12 á hádegi miðviku-
daginn 2. mars 1994.
Kjörstjórn Sóknar.
FELAG UNGRA JAFNAÐARMANNA
í HAFNARFIRÐIKYNNIR:
Veist þú hvað er sameiginlegt með FUJ og frjálsum ástum?
Það er allt leyfilegt!
En veist þú hvað er sameiginlegt með FUJ og smokknum?
1 báðum tilfellum er öryggið á oddinum!
í stefnuskrá FUJ eru frjálsar ástir og aukin notkun smokksins
með haráttumála.
f FUJ er fólkið sem stuðiar að auknu heilbrigðu kynlífi meðal ungs
fólks.
Hvor heldur þú að falli þér betur í geð, karl/kona, á aldrinum 40-
50 ára eða ungur jafnaðarmaður á aldrinum 25-30 ára?
Við þurfum að koma fólki sem hugsar einsog við í stjórn bæjarins
og það gerist ekki af sjálfú sér!
Um þessa helgi verður prófkjör Alþýðuflokksins í Hafnarfirði
haldið. Við þurfum að fjölmenna og koma okkar fólki að!
Ef þú hefur ekki náð kosningaaldri (18 ára), geturðu látið skrá þig
í FUJ og færð þar með rétt til að kjósa í prófkjörinu.
Fólk er alltaf velkomið á kosningaskrifstofu FUJ að Bæjarhrauni
22, efri hæð (sama hús og Hraunhamar), og látið skrá sig eða far-
ið á skrifstofu flokksins að Strandgötu 32.
Notum smokkinn og göngum í FUJ!
FUJ! FÉLAG SEM SEGIR SEX!