Alþýðublaðið - 24.02.1994, Síða 13
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 13
Fimmtudagur 24. febrúar 1994
HAFNARFJÖRÐUR:
Guðjón Sveinsson
Vinnsluna í
land!
Fiskveiðar hafa
dregist saman á und-
anfömum ámm og
barist er um hvem titt
sem veiðist. Auk
samdráttar f veiðum
hefur það einnig auk-
ist að fiskurinn sé í
auknum mæli annað
hvort unninn um
borð frystitogumm
eða fluttur svo til
óunninn úr landi.
Þessi nýja þróun hefur skapað deilur á milli hags-
munaaðila.
Frystitogarar vilja vinna aflann um borð, fisk-
vinnslan vill vinna aflann í landi og útflutnings-
fyrirtækin vilja flytja ftskinn nær óunninn úr
landi. Til að leysa þessar deilur þarf að koma á
reglum um það hvemig við eigum að nýta þann
fisk sem veiddur er.
I dag emm við hráefnisútflutningsþjóð og í
staðinn fyrir að nýta allan okkar fisk sjálf sjáum
við þegnum EES-þjóða fyrir nægri vinnu. Þetta
gerir það að verkum að við fáum mun lægra verð
fyrir fiskinn en ef við myndum fullvinna hann
sjálf hér innanlands. Til að snúa þessari þróun
við þarf banna útflutning á óunnum fiski og
landa allri veiði á fiskmarkaði. Allur afli ætti að
vera fullunninn og ekki fluttur úr landi néma í
neytendapakkningum. Koma verður upp mark-
vissri útflutningsnefnd sem sæi um að markaðs-
setja íslenskan fisk um allan heim.
Það hefur sýnt sig að undanfömu að á meðan
verðfall verður á óunnum fiski, helst fiskverð á
fullunnum fiski stöðugt. Með útflutningi á óunn-
um afurðum emm við því mun berskjaldaðri fyr-
ir duttlungum markaðarins en ef um fullvinnslu
er að ræða. Til að auðvelda íslenskum íyrirtækj-
um aðlögun að breyttum aðstæðum gætu bæjar-
félög komið til hjálpar með aðstoð í ýmsu formi,
svo sem eins og með lægri fasteignagjöldum,
lægri sköttum á útflutningsíyrirtæki og svo mætti
lengi telja. Ef slíku fyrirkomulagi yrði komið á
myndi það auka atvinnu í Iandi til muna og skapa
auknar gjaldeyristekjur þjóðarinnar.
Umhverfismál
Mörg af mikilvægustu málum sveitarfélaga
eru ekki sýnileg kjósendum. Eitt af þeim málum
eru skolpfrárennslismál. Á því kjörtímabili sem
nú er að ljúka var fyrirhugað að setja upp hreinsi-
búnað fyrir skolp bæjarbúa við Norðurgarðinn í
Hafnarfirði. Mikill ágreiningur var um málið og
snerust umræður að mestu um það hvemig
standa ætti að útboði verksins. Þeir sem hvað
hæst lét í voru bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
sem notuðu sér málið í valdabaráttu innan eigin
raða. Það er sorglegt að jafn mikilvægt mál skuli
falla í skuggann af valdabaráttu örfárra manna.
Frárennsli fyrir skolp hefur setið á hakanum
síðastliðin 1100 ár. Það virðist vera að menn
standi í þeirri trú að ef ekkert sé gert í málinu þá
hverfí vandinn og þetta skipti kjósendur engu
máli.
Stjómmálamenn em yfirleitt duglegir að koma
á framfæri málum sem sjást greinilega, eins og
leikskólum, íþróttahúsum og skólum og vilja
gjaman gleyma því sem ekki sést jafn greinilega.
Leikskólar, íþróttahús og skólar em nauðsynleg,
sérstakíega í ört vaxandi bæjarfélagi eins og
Hafnarfirði, en ekki má samt gleyma öðmm jafn
mikilvægum málum, sem ekki em eins sýnileg!
Með fjölgun íbúa eykst notkun hvers kyns
aukaefna og sú lenska að „lengi taki sjórinn við“
gengur ekki lengur. Sjórinn, sjávargróður og allt
annað líf sem þar þrífst þolir ekki lengur þann
mikla átroðning sem við mennimir höfum við-
haft. Taka verður að taka á þessu máli strax og
bæta bæjarbúum upp þann slóðagang sem við-
hafður hefur verið í skolpmálum Hafnarfjarðar-
bæjar til þessa. Til að vinna að þessu og fleiri
mikilvægum málum bið ég um stuðning bæjar-
búa í 2.-3. sæti framboðslista Alþýðuflokksins í
Hafnarfirði, í komandi prófkjöri flokksins.
Höfundur er verslunarmaður. Hann tekur
þátt íprófkjöri Alþýðuflokksins í Hafnarfirði.
PRÓFKJÖRSBLAÐIÐ
HAFNARFJÖRÐUR: Helga
Hafdís Magnúsdóttir
Hafnar-
fjörður -
bærinn í
hrauninu
Þessi setning
hljómar kunnuglega
í eyrum okkar Hafn-
firðinga og annarra
landsmanna. „Hafn-
arfjörð - FERÐA-
MANNAbæinn í
hrauninu" þekkja
færri. Þetta á þó eftir
að breytast á næstu
ámm ef fram heldur
sem horfir á sviði
ferðamála. Hafnar-
fjörður hefur alla kosti sem þarf til að laða að
ferðamenn.
Undanfarin ár hefur markvisst verið unnið að
kynningu á Hafnarfirði sem góðum valkosti fyrir
ferðamenn og er það starf nú þegar farið að skila
sér í formi aukinnar þjónustu og auknum áhuga á
bænum og öllu því sem hann hefur upp á að
bjóða.
Sumarið 1992 var upplýsingamiðstöð ferða-
mála opnuð í Riddarahúsinu við Vesturgötu og
starfsmaður ráðinn. Síðastliðið sumar heimsóttu
eitt þúsund ferðamenn upplýsingamiðstöðina en
það er um 80% aukning frá árinu áður.
„VINIR HAFNARFJARÐAR" er sennilega
eitt athyglisverðasta kynningarátak ferðamála
síðustu ára. Óþarft er að kynna það nánar, en um
sex þúsund VINIR fá nú sent „Vináttu“-frétta-
bréf ferðamálanefndar Hafnarfjarðar.
Á síðastliðnu sumri lét ferðamannanefnd kort-
leggja byggðir álfa og hulduvætta, sem búsettir
eru í Firðinum. Boðið var upp á kynnis- og skoð-
unarferðir um álfabyggðimar undir leiðsögn Erlu
Stefánsdóttur sjáanda. Uppselt var í allar ferðim-
ar og urðu margir frá að hverfa.
Um 160.000 erlendir ferðamenn komu til
landsins á síðasta ári og gaf það um 16 milljarða
í tekjur. Auk þess er talið að íslendingar eyði 8
milljörðum á ferðalögum sínum innanlands.
140.000 ferðamenn fóm um Reykjanesbrautina,
FRAMHJÁ Hafnarfirði sem þar með missti af
6-700 milljónum í tekjur (miðað við höfðatölu).
Vekja þarf enn frekar athygli þessa fólks á
Hafnarfirði. Setja þarf upp stór þjónustuskilti við
Reykjanesbrautina og í miðbæ Hafnarijarðar þar
sem fram kemur hvað bærinn hefur upp á að
bjóða. Eins og til dæmis tjaldstæðið á Víðistaða-
túni, Kænumarkaðinn sem notið hefur gífurlegra
vinsælda, Hellisgerði, Hafnarborg, aðsetur
menningar og lista, Straum, Sjóminjasafnið,
Byggðasafnið, veitinga- og kaffihúsin, auk vík-
inganna sem em tákn Hafnarfjarðar í hugum
margra.
En betur má ef duga skal. Hlúa verður að þeim
vaxtarbroddi sem myndast hefur í ferðamálum
bæjarins. Athyglisverðar hugmyndir hafa fæðst
um nýtingu Kaldárselssvæðisins, merktar verði
gönguleiðir um nágrenni Hafnarfjarðar og ekki
væri amalegt að sjá skemmtiferðaskip renna akk-
emm hér í höfninni næsta sumar.
I september næstkomandi verður haldin í
Kaplakrika, Vest- Norræn ferðakaupstefna, þar
sem um 500 fulltrúar erlendra og innlendra
ferðaskrifstofa hittast og kynnast því hvað í boði
er fyrir ferðamenn á íslandi.
Heimsmeistarakeppni karla í handknattleik
sem verður haldin hér á landi í maí 1995 mun án
efa verða stærsti íþróttaviðburður á Islandi til
þessa. Einn riðill keppninnar fer fram í Kapla-
krika.
Viðburðir sem þessir kalla á aukið gistirými
og aukna þjónustu enda er búist við mikíum
fjölda gesta í tengslum við keppnina. Við þurfum
að nýta allt gistirými sem til er og einnig mun
koma sér vel sú gistiaðstaða sem nú er í bygg-
ingu, það er hótel, annað gistiheimili auk far-
fuglaheimilis sem skátamir hyggjast reisa.
Heimagisting mun og koma að góðum notum.
Mikilvægt er að vel verði staðið að svo um-
fangsmiklum heimsóknum svo gestum okkar líði
vel. Það mun nýtast okkur vel í framtíðinni ef
þeir fara með góðar minningar og fagra minja-
gripi til síns heima.
Höfundur á sæti í feröamálanefnd Hafnarfjarðar.
Hún gefur kost á sér í 3. sæti
í prófkjöri Alþýðuflokksins í Hafnarfiröi.
Enn og aftur býður Pizzahúsið upp á nýjung i
heimsendingarþjónustu.
Þú getur nú valið um 10 heita og Ijúffenga
pastarétti og fengið þá senda til þín.
Með pastaréttunum fýlgir hvitlauksbrauð og ný
rifinn parmesanostur.
Pastað er framleitt af Pizzahúsinu og tryggir
það að ávallt er nýtt og ferskt pasta í réttunum.
"þad er ineð ólíkindum hvað þeim hjá Pizzahúsinu tekst að laða fram frábœra pastarétti og
koma þeim til neytenda, án þess að það bitni á gceðum vörunnar, fyrir það eiga þeir hrós skilið."
Siguróur Hall Matreiðslumeistari
f. ííSeff£tc/ti/it\
Sveppir, paprika og skinka í rjómasósu
2. cTttttf/'i/tttt' i fótmtftmtttAi
Túnfiskur, sneiðar af svörtum og grcenum olífum, blaðlaukur í tómatmauki á pastaskrúfum
S. t ijbttt//teffi (/ttt*/ttmtuHt
Baconstrimlar og egg í rjómasósu með svörtum pipar og parmesanosti
4. djfttttj/iefii Œo/ot/ttetie
Itölsk kjötsósa á spaghetti
S. - /ittitrt/ttti
Nautahakk, gulrcetur, sellery og laukur, soðnir tómatar, ostur, krydd ásamt pastaplötum
61 -/tr.x' i fttmifi/ttmviésit
Reyktur lax, harðsoðin egg í rjómabasilikumsósu
7* iTtit/fittfeffi i o.tittsóstt
Gráðostur, rjómaostur, camembert og parmesanostur í rjómasósu með fmt skornum svörtum
olífum og rauðri papriku
tV. /ttHvtmtefi i ofi/ttoftit
Laukur, gulrœtur, sólþurrkaðir tómatar, sveppir og spergilkál í olífuolíu kryddað með hvítlauk
ofl. á pastaskeljum
jp. ÚBttcott ot/ ofi/itt* i fótnttfttititt/ti
Fínt skorið bacon, svartar og grcenar olífur í tómatmauki á pastaskeljum
/O. f/jttsfa i /ttitHH/
Lambafillestrimlar, sveppir og blaðlaukur í karrý