Alþýðublaðið - 20.01.1995, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
Um atvinnusköpun sem byggist
á mannauði og þekkingu
„Það eru sjálfsögð mannréttindi að allir
hafi jöfn tækifæri, forsenda þess að svo
verði í framtíðinni er að tryggja næga at-
vinnu sem byggist á mannauði og þekk-
ingu. Það mun auka brautargengi þess
unga þróttmikla fólks sem er framtíð
þessarar þjóðar.“
Undanfarin sjö ár hefur þjóðin
þurft að bregðast við stöðnun og
samdrætti í efnahagslífi sínu, með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Orsakir þessarar stöðnunar má
meðal annars rekja til samdráttar í
fiskveiðum, skipu-
lagsvanda í sjávar-
útvegi og landbún-
aði og fjárfestinga-
mistök á hinum
ýmsu sviðum. Auk
þess hafa okkar
helstu viðskipta-
lönd átt við efna-
hagslegan sam-
drátt og atvinnu-
leysi að etja. Þessi þrautaganga hefur
lagt þungar byrðar á herðar þjóðar-
innar allrar, ekki síst á herðar þeim
sem verst voru undir það búnir. Við
það óöryggi sem skapast á hinum al-
menna vinnumarkaði leiðir til þess
að réttindi launþega; sérstaklega
verkafólks hvers réttindi em oftar en
ekki fyrir borð borin.
Atvinnuleysi hefur gert vart við
sig, þessi draugur sem þjóðin hafði
vart kynnst nerna af frásögninni
einni. Við stöndum nú andspænis
þessum vágesti sem virðist því mið-
ur ekkert vera að fara. En núverandi
atvinnutryggingakerfi er ekki sniðið
að því nútímasamfélagi sem við bú-
um við í dag.
Hætta steðjar að æsku þessa lands
sem talin er verða „ein menntaðasta
kynslóð sem þjóðin hefur alið“. Það
er krafa ungs fólks að þjóðfélagið sé
í stakk búið til þess að taka við þessu
fólki og veita því það frelsi sem felst
í því að hafa vinnu og mannsæmandi
kjör í stað þess að vera heft í fjötra
fátæktarinnar. Staðan mun ekki
batna með tímanum nema stefnu-
festaog framtíðarlausn linnist, þann-
ig að ungt fólk vilji og geti hugsað
sér að búa á þessu landi sem hefur
svo marga ónýtta möguleika í sjálfu
sér.
Lausn á þessum vanda er ekki að
finna með einföldum eða fljótt af-
greiddum hætti, né heldur með því
að vernda óhag-
kvæma atvinnu-
vegi. Hugsa þarf
fram á veginn og
reyna að sjá hvað
fyrir okkur liggur.
Lengra verður
ekki gengið á
auðlindir hafsins
og þurfum við þá
að hugsa til þess
að róa á önnur mið okkur áður
óþekkt. Hefja þarf öfiugt starf til ný-
sköpunar um leið og auka þarf til
muna framleiðni í grunnatvinnu-
greinunum.
Velferð okkar verður án efa ekki
tryggð nema með því að þétta og
bæta hornstein velferðarkerfisins,
menntakerfið. Fámenni okkar gerir
það að verkum að menntakerfið get-
ur ekki haft framboð á öllum þeim
námsleiðum, sem ungt fólk hefur rétt
á að velja sér á háskólastigi, því hlýt-
ur það að vera liður í framtíðarsýn
þessarar æsku að opna menntakerfið
til Evrópu sem getur veitt bömum
okkar óhindraðan aðgang að þekk-
ingu sinni ef rétt er haldið á spöðun-
um.
En vissulega verður að halda best
á spöðunum hér heima og tryggja
háskólanámi hér á landi rneira en
lágmarksskilyrði. Þekking og mann-
auður em okkar helstu vopn gegn at-
vinnuleysi auk þess að styrkja okkur
Islendinga sem eigum nú kost á því
að taka virkan þátt í evrópsku at-
vinnulífi. Því miður er það svo að at-
vinnuleysið hefur knúið harðast að
dyrum hjá ungu fólki, allt að 15%
ungmenna sem em útivinnandi em
án atvinnu, eða rúmlega þrisvar sinn-
um fieiri en í öðmm aldurshópum.
Þetta em sláandi staðreyndir sem
geta haft alvarlegar afleiðingar í för
með sér fyrir einstaklingana sjálfa
sem og þjóðfélagið þegar til lengri
tíma er litið.
Atvinnuleysi snertir alla sem fyrir
því verða en ungt fólk kannski verst.
Það er ekki eingöngu fjárhagslegt
áfall að fá ekki vinnu heldur einnig
andlegt, þeir einstaklingar sem em
að stíga sín fyrstu spor úti á vinnu-
markaðinum mega síst við því að
láta kippa á þann hátt undan sér fót-
unurn. Þau em rænd tækifæri til að
sanna sig á vinnumarkaði og fá því
ekki tækifæri til að skapa sér lífskjör
sem ungt fólk óskar sér. Auk þess er
ekki unnið markvisst í þvf skyni að
tryggja þeim atvinnu sem hafa verið
án hennar til langs tíma. Vinnumiðl-
anir eiga ekki eingöngu að vera stað-
ir þar sem skrásetning atvinnulausra
og útgreiðsla bóta fer fram, heldur
einnig ráðgjöf fyrir atvinnulausa,
annars er lítil hvatning fyrir þá sem
ekki eiga rétt á bótum að skrá sig.
Námsstöður er athyglisverður
kostur til að virkja ungt fólk og raun-
ar alla sem ekki hafa fundið sig í
skólakerfinu. Námsstöður er verk-
efni sem samanstendur annars vegar
að námskeiðum og hins vegar lær-
lingsstöðu á vinnustað. Slík verkefni
hafa gefið góða raun á Norðurlönd-
um en em aðeins á tilraunastigi hér
enn sent komið er. Framhaldsskól-
arnir gætu vegið þyngra að mfnu
mati, samræma á skólagjöld bæði
milli skóla og einnig milli náms-
brauta. Það verður að viðurkennast
að það er ekki mjög fýsilegur kostur
að hefja iðnnám þar sem skólavistin
kostar allt að 23 þúsund fyrir hverja
önn.
Framfarir í verkmenntun er ein af
forsendum betri árangurs í atvinnu-
málum. Koma þaif á laggimar að-
stöðu og ráðgjöf þeim til handa sem
vilja fara út í nýiðnað og virkja þann-
ig þá sem vilja koma á fót eigin
rekstri.
Atvinnuleysisbætur eiga ekki
undir neinum kringumstæðum að
falla niður fyrstu sex mánuðina sem
viðkomandi bótaþegi er að reyna að
stofna sitt eigið fyrirtæki. Þeir sem
eru atvinnulausir ættu einnig að fá
sérstakan styrk eða ekki missa bætur
á rneðan þeir eru að ná sér í réttindi,
ef þeir hafa verið lengi án atvinnu.
Einnig ér ljóst að aukinn sveigjan-
leiki í efri stigum menntunar, fram-
halds- og háskólanemar ættu að eiga
rétt á þvf að stunda nám á sumrin til
þess að nýta þann tíma sem enga at-
vinnu er að fá.
Það em sjálfsögð mannréttindi að
allir hafi jöfn tækifæri, forsenda þess
að svo verði í framtíðinni er að
tryggja næga atvinnu sent byggist á
mannauði og þekkingu. Það mun
auka brautargengi þess unga þrótt-
ntikla fólks sem er framtíð þessarar
þjóðar.
Höfundur er formaður Félags ungra
jafnaðarmanna á Akureyri.
Pallborðið
Aðalheiður
Sigursveinsdóttir
skrifar
O, þeir finna fljótlega eitthvað fyrír þig að gera... Ég? Ég á að
blása sápukúlur til eilífðarnóns.
Ljóst þykir að talsverð
eftirmál og afdrifarík
verði vegna prófkjörs
Framsóknar í Norðurlandi
vestra. Framkvæmd þess
fór gersamlega úr böndun-
um, og svo virðist sem
stuðningsmenn Páls Pét-
urssonar hafi valsað að
vild með kjörgögn til
að afla Höilustaða-
bónda sem flestra
atkvæða. Stefán
Guðmundsson
nágar sig mjög í
handabökin fyrir að
hafa unnið að því
bakvið tjöldin að próf-
kjör færi fram, enda sá
hann ekki fyrir eitilhörð
viðbrögð Páls. Kunnugir
telja að óhugsandi sé að
þcir kumpánar, Stefán og
Páll, muni leiða listann í
sameiningu. Hin seinni ár
hefur ríkt kyrrð og fiokks-
eining hjá Framsókn á
Norðurlandi vestra, langt
umfram það sem gerist í
flestum öðrum kjördæm-
um. Nú er friðurinn sem-
sagt úti...
Framboðsmál Þjóðvaka
eru stöðugt í deiglunni
enda ófá þingsæti til skipt-
anna ef skoðanakannanir
ganga eftir. Á Vesturlandi
var Runólfur ÁgúsLsson
sterklega inni í myndinni.
Hann er ungur og vaskur
lögfræðingur, hefur
gegn stöðu full-
trúa sýslumanns
og lektorsstöðu
á Bifröst. Nú er
hinsvegar kom-
ið babb í bátinn
og allt útlit fyrir
að Runólfur fái
ekki efsta sætið.
Jóhönnu Sigurðar-
dóttur mun hafa fundist
kominn helstil
mikill svipur af
Alþýðubanda-
laginu á hinn
nýja flokk
sinn, en Run-
ólfur var mið-
stjómarmaður
allaballa og
áberandi í Birtingu. Svan-
fríður Jónasdóttir fyrr-
um varaformaður Alþýðu-
bandalagsins verður í
framboði á Norðurlandi
eystra, Sveinn Allan
Morthens fyrrum ntið-
stjómarmaður allaballa
verður efstur á Norður-
landi vestra og útlit er fyr-
ir að fyrrum félagar þeirra
verði ofarlega bæði f
Reykjavík og á Suður-
landi. En semsagt: enginn
allaballi á Vesturlandi...
Mál og menning held-
ur áfram að gefa út
góðbókmenntir, og snið-
gengur þannig þá stað-
reynd að jólabókafióðinu
er lokið. Bók mánaðarins
hjá MM er snilldarverkið
Fávitinn eftir Do-
stojevskí í þýðingu
Ingibjargar Haralds-
dóttur. Fávitinn kom
fyrst út á íslensku í
tveimur bindum árin
1986 og 1987 en er nú
endurútgefinn - ekki
síst þarsem leikgerð
verksins er nú á fjölum
Þjóðleikhússins...
Listaverk
dagsins
Félagar okkar á franska stór-
blaðinu Le Monde eru lítt hrifnir
af Ijósmyndum, en þar er löng
hefð fyrir teikningum. Nýverið
birtist í þessu virðulega blaði end-
urbót á Opi norska stórmeistarans
Munchs; af því tilefni að Norð-
menn sögðu Nei við aðild að Evr-
ópubandalaginu. Að öðru leyti
þarfnast teikningin ekki skýringa
við.
Fimm á förnum ve
Hvenær
eru alþingiskosningar? (Rétt svar: 8. aprii 1995)
Hákon Heimir Kristjónsson
lögfræðingur: Það veit ég ekki.
Halldór Guðmundsson tækni-
fræðingur: Þær em 20. apríl.
Anna Eiríksdóttir skrifstofu-
maður: 8. aprfi.
Kjartan Guðjónsson nemi: 22.
maí.
Eyjólfur Pálsson húsasmiður:
Ekki hugmynd um það.
Viti menn
Við vorum þarna í Perlunni
fyrir jólin á sýningunni Lífs-
stíll 2000, þegar það kemur
kona okkur að óvörum, með
sflikonbr jóst, -rass, -nef og al-
les og við erum kallaðar til
hennar ein í einu. Hún leit á
mann, potaði í magann og
sagði manni að brosa.
Kristin Asta Kristinsdóttir um tildrög
þess að hún gerðist fyrirsæta á ftaliu.
MP í gær.
íslenskar konur eru langt
á eftir í tískunni.
Helen Gunnarsdóttir
tískubúðareigandi.
Andstæðingarnir hræðast
Guðmund Arna.
Fyrirsögn á grein Tryggva Harðarsonar
þarsem hann hvetur fólk til að kjósa
Guðmund Árna Stefánsson í efsta sæti
í prófkjöri Alþýðuflokksins í Reykjanesi.
Mogginn í gær.
Rannveig Guðmundsdóttir
félagsmálaráðherra er
traustur kostur.
Fyrirsögn greinar Jóns Gröndals þar-
sem hann hvetur fólk til að kjósa Rann-
veigu Guðmundsdóttur í efsta sæti í
prófkjöri Alþýðuflokksins í Reykjanesi.
Mogginn í gær.
Góðum manni getur
ekkert grandað.
Fyrirsögn greinar Ómars Smára Ár-
mannssonar þarsem hann hvetur fólk
til að kjósa Guðmund Árna Stefánsson
í efsta sæti í prófkjöri Alþýðuflokksins í
Reykjanesi. Mogginn i gær.
Ég kýs Rannveigu.
Fyrirsögn greinar Snorra S. Konráðs-
sonar þarsem hann hvetur fólk til að
kjósa Rannveigu Guðmundsdóttur í
efsta sæti í prófkjöri Alþýðuflokksins i
Reykjanesi. Mogginn í gær.
Veröld Isaks
„Mér þykir það afskaplega leitt,
herra Kipling, en þú hefur bara ekki
nokkum skilning á enskri málnotk-
un. Þetta dagblað er ekki dagvistar-
stofnun fyrir viðvaninga á ritvellin-
um.“ Með þessum svfvirðilegu um-
mælurn var snillingurinn Rudvard
Kipling — sem þá þegar hafði skrif-
að einhverja albestu smásögu
heimsbókmenntanna,
Tlie Man Who Would Be King, —
rekinn sem fréttamaður af yfirmanni
bandaríska dagblaðsins
San Francisco Examiner.
Úr staðreyndasafninu Isaac Asimov's
Book of Facts eftir samnefndan höfund
tæpra tvöhundruð vísindaskáldsagna.