Vísir - 05.01.1976, Síða 1
Ofnarnir springa
hjá Seltirnmgum
— Orsakir ókunnar, segir Sigurgeir
Sigurðsson bœjarstjóri
N
J
KAUPSKIP
í TAUGA-
STRÍÐIÐ
GEGN
BRETUM?
Af hreinni tilviljun komu tvö islensk kaupskip
að miklu gagni i taugastriðinu gegn bretum á
miðunum um helgina. Vegna þessa óvænta liðs-
auka hefur sú spurning vaknað, hvort ekki sé
rétt að gera það að fastri reglu að islensk skip
sigli i gegn um togarahópinn, svo bretarnir hafi
varla undan að hifa inn trollin, og fari að lokum
á taugum.
ORKUMALASTJORI:
Bjartsýnn ó að nœg
orka fóist fyrir
Kröf luvirkjun í haust
„Allt bendir til þess að
orkan i Kröflu sé næg
fyrir virkjunina. Fyrir
því er ekki hægt að gefa
neina tryggingu. En það
er ekki ástæða til svart-
sýni.'
Þannig komst Jakob
Björnsson, orkumála-
stjóri, að orði í samtali
við Vísi i morgun.
„Það er almenn vitneskja
þeirra sem vinna að jarðborun-
um að ekki er hægt að segja
fyrirfram hvað borhola gefur
mikla orku. Það er öðruvjsi en
t.d. með vatnsaflsstöð, þar sem
hægt er að segja jafnskjótt og
byggingarframkvæmdum lýk-
ur, hve mikil orka fæst.
Við getum ekki nefnt neina
dagsetningu á þvi hvenær næg
orka fæst fyrir 30 megawatta
orku, en allar horfur eru á þvi
að það mikil orka fáist i haust að
nægi.”
Jakob var spurður að þvi,
hver ástæða væri fyrir hinum
mikla flýti við virkjunarfram-
kvæmdir við Kröflu:
„Ástæða þess að svona er
staðið að, er ástandið i raforku-
málum á Norðurlandi. Ef það
hefði veriðskaplegra hefði verið
öðruvisi að staðið.”
— EKG
,,Ég hef ekki athugað þessa
hugmynd. En ef af henni ætti að
verða, þyrftu þessar ráðstafanir
að vera formlegar. Skipin gætu
orðið fyrir óþægindum og tjóni,
og hver á þá að borga? Svona
ráðstafanir gætu einnig komið
niður á áhöfnum islenskra skipa
i Bretlandi. Það er ekki hægt að
einfalda þetta mál,” sagði Pét-
ur.
Beiðni verður að
koma frá æðri
stöðum j'i
„Þetta er athyglisver| hug-
mynd,” sagði Guðjón Teltsson,
forstjóri Skipaútgerðarindar og
hló við, þegar Visir bar undir
hann hugmyndina. j
„Að visu eru bresku tógar-
arnir nokkuð langt fr$ íandi
miðað við ieiðir strarýiferða-
skipanr.a. Skipin gangajum 11
milur, þannig að það ta^ki þau
svona 4 til 5 tima að sigla áð tog-
urunum. En ég held það þyrfti
að gerast i myrkri, þvi að að
degi til er óliklegt að þeir láti
plata sig. Ef strandferðaskipin
sigla með fullu álagi, eyða þau
oliu fyrir 10 til 12 þúsund krónur
á klukkutimann,” sagði Guðjón.
Hann sagði að áætlun strand-
ferðaskipanna væri nokkuð
þröng, svo ef til kæmi, þyrfti að
breyta henni eitthvað.
Giðjón Teitsson sagði það þó
hæpið að þessi hugmynd yrði
tekin upp hjá Skipaútgerðinni ef
beiðni kæmi ekki um það frá
æðristöðum. — ÓH
Fjallfoss var á austurleið til
útlanda, og sigldi gegnum tog-
arahópinn. Þegar skipið kom að
i myrkri, hifðu allir togararnir
vörpurnar. Þeim létti þegar i
ljós kom að þarna var bara
kaupskip á ferð. Þess vegna
voru þeir ekki eins varir um sig,
þegar annað kaupskip birtist i
kjölfar Fjallfoss. En þarna var
þá Ægir á ferð, með samskonar
ljós og um kaupskip væri að
ræða. Árangurinn varð svo sá
að Ægir náði að klippa á togvira
tveggja breskra togara.
Jökulfell var einnig á ferð
fyrir Austurlandi um helgina.
Skipið var að reyna að komast
inn á hafnir þar, en gekk illa
vegna veðurs. Ferðir skipsins
ollu bretunum miklum áhyggj-
um.
Hvað endast
taugar breta lengi?
Úrslit striðsins á miðunum
velta mikið á hverra taugar
reynast sterkari. Ef ferðir is-
lenskra skipa á miðunum hafa
slæm áhrif á taugar bretanna,
hlýtur það að koma að gagni að
skipin sigli þar sem oftast um.
Visir bar það undir Pétur Sig-
urðsson forstjóra Landhelgis-
gæslunnar hvort einhver grund-
völlur væri fýrir þessari hug-
mynd.
„Við höfum aldrei beðið aðra
um að taka að sér löggæslustörf.
Þetta væri eins og lögreglan
bæði annað fólk að taka að sér ó-
róaseggi,” sagði Pétur.
Dr.
Kristjón
Eldjórn:
Yfirlýsingar að vœnta
vegna forsetakjörs í sumar
Athygli vakti að forseti Is-
lands gat þess ekki i áramóta-
ávarpi sinu hvort hann mundi
gefa kost á sér til forsetakjörs á
þessu ári, en eins og kunnugt er
þá rennur kjörtimabil hans út á
miðju sumri.
Vísir hafði samband við dr.
Kristján Eldjárn i morgun og
innti hann eftir þvi hvort hann
yrði i framboði.
Hann kvaðst mundu gefa út
yfirlýsingu um það á næstunni
og þvi ckki vilja tjá sig um það á
þessu stigi. —VS
Er bresk réttvísi
úllen-dúllen-doff?
Röð tvírœðra dómsúrskurða hafa skekið trú
margra breta ó réttarfarið sem þeir eiga við
að búa. — Sjó „að utan" bls. 8