Vísir - 05.01.1976, Blaðsíða 2

Vísir - 05.01.1976, Blaðsíða 2
Strengdir þú einhver áramótaþeit? Ragnheiður Þorkelsdóttir, hús- móðir: Nei, ekkert. Eg hef aldrei strengt riein heit um áramót Guðjón Guðjónsson, versl.stj.: Nei, það hef ég aldrei gert. Ég er svo góður strákur að ég þarf eng- in heit að strengja. Guðmundur Helgason, gerir ekkert: Nei, það gerði ég ekki og hef aldrei gert. Maður svfkur þá ekki sjálfan sig. Kristborg Nielsdóttir, 15 ára nemi: Nei, ég haga mér alltof skikkanlega til að þurfa þess. „SJALFSALI VERÐUR MANNI AÐ FALLI" Nemendur voru orðnir óánægðir meö kaffigutlið dr sjálfsalanum og vildu fá heitt á könnu og engar refjar. Björn I.indal, Gunnar B. Kvaran og Haraldur Jóhannes- sen sendu eftirfarandi pistil, með fyrirsögninni sem er hér að ofan: „Að undanförnu hafa tvö af dagblöðum landsins fjallað litil- lega um sjálfsala og einhvern mann, sem sagði af sér vegna hans. bannig er málum háttað, að fyrrverandi inspector scholae M.R. sagði af sér, þegar kaffisali i kjallara Casa Nova var numinn á brott. Ástæðan fyrir að undirritaðir leggja sig niður við að skrifa um málið er sú, að fyrrverandi in-. spector scholae skuli ekki segja satt og rétt frá. t einstrengings- legu viðtali við Skafta Harðars. i Dagblaðinu 11. des. er svo komist' aðorði: „Skafti tók þetta verk (að undirritaðir skyldu fjarlægja sjálfsalann. innskot undirritaðra) sem vantraust, ekki sizt vegna þess að tveir af embættismönnum skólans, — ritstjóri skólablaðsins og formaður listafélagsins stóðu að þessu”. Hér gleymir fyrrver- andi inspector að minnast á hina embættismennina, sem tóku þátt i fyrrgreindu brottnámi maskin- unnar. Þess ber einnig að gæta, að inspectorinn gleymir að segja frá raunverulegum ástæðum þess, að undirritaðir skiluðu sjálfsalanum. Gleyminn maður þessi Skafti Harðarson. Nú skal sannleikurinn rakinn mönnum til fróðleiks og skemmtunar, þvi allt er mál þetta hið skemmtilegasta að þvi er inspectorinn fyrrver- andi segir, þegar hann ræðir um þá sem hann heldur að hafi flutt maskinuna með undirrituðum sbr. eftirfarandi kafla, sem tekinn er úr Dagblaðinu 11. desember „Dreifbýlisfélag þetta virðist vera samsafn af helztu brandaraköllum menntaskól- ans”. Eins og fram hefur komið var samþykkt á skólafundi að losna við sjálfsala nokkurn. Tæki þetta var hinn mesti gallagripur og voru nemendur orðnir dauðleiðir á að fá t .d. kaffi með mjólk, þegar þeir vildu fá kaffið sitt án mjólk- ur. Fyrrverandi inspector var sá eini, sem mælti með maskinunni. Hann hafði unnið að þvi að kappi, að nemendur fengju kaffisala og svo æsa þeir sig út af þvi að vélin hvorki gefi rétt til baka né af- greiði það, sem nemendur vilja. Inspectorinn virtist vera einn af fáum, sem reiðubúnir voru að drekka allt það sull, sem vélinni þóknaðist að veita. Nú liða 10 dagar frá skólafundi þar til undir- ritaðir fá blaðsnepil nokkurn i hendur, sem varð til þess, að sjálfsalinn sálugi var fjarlægður. Fyrrgreint blað heitir Skóla- tiðindi og er gefið út af Skólafé- lagi M.R. I þessum Skólatiðind- um birtist eftirfarandi klausa: „Ef einhvern langar i heitt kaffi á viðunandi verði eftir að sjálfsal- inn hefur verið f jarlægður (ef svo fer!) getur hann snúið sér til eftirtaldra aðila, sem vafalaust framreiða það hið skjótasta hve- nær sem er sólarhringsins”. Hér kemur það sem undirrituðum þótti furðulegt. Inspectorinn var að myndast við að vera fyndinn. Kannski til að fá inngöngu i' Dreif- býlisfélagið. Þetta er hótun um að fjarlægja ekki maskinuna og að sem meira er: Inspector Skafti ætlaði að hafa að engu lög Skóla- félags M.R. og hundsa óskir nemenda. Við undirritaðir sáum fram á valdbeitingu af versta tagi og fyrst að inspectorinn okkar ætlaði sér ekki hlita vilja nem- enda, þá tókum við sjálfsalann og keyrðum hann til föðurhúsanna. Þvi má bæta við, að maskina þessi er mjög þung og þurfti þvi um 20 hrausta drengi til að drösla henni út i sendiferðabil. Við kom- um svo tækinu til skila og var þvi vel tekið. En inspectorinn var ekki nægilega ánægður með framtakssemi nemenda og sagði af sér. Ekki virtist inspector- embættiðvera Skafta meira virði ensvo, að kaffimaskina varð hon- um að falli. Skafti hætti við að dreifa fyrr- greindum Skólatiöindum og kom þar aftan að undirrituðum. Nemendur M.R. fengu aldrei að sjá pésa þennan, sem var orsök þess, að maski'nan var fjarlægð. Nú þarf enginn að efast um hvað sé rétt i þessu máli. Inspectorinn ætlaði að nota vald sitt til að bjóða nemendum byrginn. Þar sem nemendur vissu ekki hvers vegna vélin var fjarlægð gengust beztu vinir fyrrverandi inspectors fyrir undirskriftasöfnun meðal nemenda um, að Skafti tæki við embætti að nýju. Ef Skafti hefði breytt rétt væru allir nemendur M.R. búnir að sjá hvernig málum er háttað. Undirskriftina ber að skoða f ljósi þessa. Það má eigin- lega segja, að sjálfsalinn og Skafti hafi „haldist i hendur” um að koma hvor öðrum frá. Skafti með greininni i Skólatiðindum og sjálfsalinn með þvi að vanrækja hlutverk sitt. Hvflik hneisa, að inspectorembættið skuli ekki vera meira virði i augum Skafta en raun ber vitni.” Matthildur Þórðardóttir, skrifst.- stj.: Ég vildi að nýbyrjað ár yrði betra en siðastliðið ár. Ég reyni að gera betur en á liðnu ári. Það er min heitstrenging. Steinunn Þórðardóttir, 3ja ára: Ég ætla að vera góð stelpa og vera dugleg i skólanum minum. Heyröu, ég sá brennu á gamlárs- kvöld! Lesandi skrifar: „1 dag, föstudag, birtist grein i Visi eftir Vilmund Gylfason, en hann hefurtekið að sér það hlut- verk að hreinsa til i dimmu skotunum i þjóðarskútunni. Eins og endranær er það vesalings Sólnes sem verður fyrir barðinu á honum og hann sakaður um að hygla vinum sin- um með framkvæmdir við Kröflu. Tilefni þessarar greinar er ný skýrsla frá Orkustofnun þar sem fram kemur að ekki sé vist að næg orka verði fyrir hendi i árslok 1976 til þess að knýja annan rafalinn til 30 MW raforkuvinnslu. Sólnes hefur hins vegar sagt nokkrum sinn- um, m.a. i frægu sjónvarpsvið- tali, að ástæðan fyrir þvi að verk við Kröflu voru ekki boðin út hafi verið sú að hraða bæri Framsóknarmenn og Sólnesar í Vilmundargreip verkinu svo að þvi væri lokið þegar Orkustofnun skilaði sinu i árslok 1976. Vilmundur spyr hvenær Jóni hafi borist vitneskja um álit Orkustofnunar um gufuaflið. Hvort hann hafi farið visvitandi með rangt mál i sjónvarpsþætt- inum fræga. Raunverulega er það aðal- málið hvort Sólnes hafi logið að þjóðinni eða ekki. Vafalaust er þó, að hann vikur sér undan þvi að svara spurningum Vilmund- ar, enda er eins og að stórmenn- unum leyfist allt gagnvart hon- um sem fréttamanni — og er sorglegt að sjá hvernig hann er oft og einatt niðurlægður isjón- varpinu. Það er vegna þejs að hann spyrmenn og krefst svars en lætur sér ekki froðusnakk nægja. Klúbbmálið Vilmundur vakti einu sinni i haust máls á merkismáli sem Klúbbmálið fræga er. Þar kom fram að Ólafur Jóhannesson dómsmálaráðherra, hafi stöðv- að rannsókn á rekstri Klúbbsins en eigendur fyrirtækisins höfðu gerst sekir við hin ýmsu lög. Menn lásu grein Vilmundar, urðu hneykslaðir og gleymdu henni aftur. Vitaskuld hefði átt að taka þetta mál upp, a.m .k. fá svar frá ráðherranum. En eng- inn sagði orð og Ólafur brosir enn út i annað. Kannski er Klúbbmálið ekki eina sakamál- ið sem ólafur hefur stöðvað rannsókn á. Það væri gaman að könnuð yrðu afbrotamál ein- staklinga innan Framsóknar- flokksins og athugað hvernig rannsókn og vinnslu þeirra gengur. Það má segja ýmislegt mis- jafnt um Vilmund Gylfason og sennilega er ástæðan fyrir þvi, hversu litillar samúðar hann nýtur meðal manna, að hann er stundum full-ákafur við spurn- ingar sinar. Það er hægt að vera ákveðinn, án þess að vera ákaf- ur. Hitt er svo annað mál að hann á allan minn stuðning við að fletta ofan af mönnum og gerð- um þeirra, svo lengi sem hann heldur sig við raunverulegar staðreyndir en býr þær ekki til.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.