Vísir - 05.01.1976, Blaðsíða 5

Vísir - 05.01.1976, Blaðsíða 5
Mánudagur 5. janúar 1976. 5 VÍSIR /-------------\ Arnór Hannibalsson skrifar: ^' Um hjólparkennslu kennaralið sé lyrir henai til að taka að sér stárfann. Lögum þessum er enn beitt, þótf form- lega hafi þau fallið úr gildi, er grunnskólalög voru samþykkt. Er 19. grein skólakostnaðarlaga einhver sú iliræmdasta, sem gilt hefur um starfsemi islenskra skóla, og erfitt að imynda sér, að þar hafi skólamenn nálægt komið. Þegar barn dregst aftur úr sinum jafnöldrum i bekk, þarf að veita þvi aðstoð, svo að það nái lágmarksárangri og hægt sé að flytja það milli bekkja. Sé það ekki hægt blasir við annar möguleiki: að láta barnið endurtaka bekk, eða sitja eftir sem kallað er. Venjulega er við það miðað, að barn nái einkunn- inni 5 i lestri upp úr niuárabekk. Takist það ekki er bæði þvi og skólanum vandi á höndum, þvi að ekki þýðir fyrir barnið að halda áfram námi illa eða ólæst og skólinn á venjulega frekar ó- hægt um vik að veita barninu þá aðstoð sem þarf til að nái viðun- andi árangri i lestri i tæka tið. Orsakir lestrarörðug- leika Orsakir lestrarörðugleika eru margvislegar. Sum börn eiga blátt áfram erfitt með að átta sig á þessu flókna kerfi, sem kallað er ritað mál. Orfá eiga við skyn junarerfiðleika að striða, en langflest hafa ekki á- huga á að kynna sér, hvað stendur i' bókum. Áhuginn bein- ist þá að einhverju öðru, eða þá að þau hafa lent upp á kant við skólann og neita með þrjósku að opna bók. Þannig iiður timinn og allt i einu er uppgötvað, þegar barnið á að fara að nota lestrarkunn- áttu sina til að læra ýmis fög i' 10 ára bekk, að það er illa eða ó- læst. Athugun, sem ég gerði vorið 1974 i 60 skólum benti til, að námsörðugleikar væru lang- oftast af tilfinningalegum toga spunnir, en greindarskortur væri höfuðástæðan i miklu færri tilfellum. Hvaða ráð hefur skól- inn Hvaða ráð hefur skólinn til þess að hlaupa undir bagga? Það er hægt að gefa nemandan- um aukatima. En þá koma i ljós nokkrir örðugleikar. Fyrst er nú það, að yfirleitt verður að taka barnið i þessa aukatima á skólatima. Það verður að taka barnið út úr tima i sinum bekk. Þetta verður til þess að ein- angra barnið frá félögum sin- um, og sumir verða jafnvel svo grimmir að kalla barnið tossa. Sé höfuðástæða námserfið- leikanna neikvæð afstaða til skólans, eykur þetta enn á örðugleika barnsins, og visast að aukatimar verði til litils gagns. Þá kemur og f annan stað i ljós, að til eru lög í land- inu, svokölluð skólakostnaðar- iög, sem skipa svo fyrir, að ekki megi taka færri en 12 nemendur saman i hjálparkennslu og að þeim skuli kennt sérstaklega i svokölluðum hjálparbekkjum. Þannig er hinum smærri skól- um, sem þurfa að veita færri en 12 nemendum aukahjálp, bann- að að gera það, jafnvel þótt Tiundi hver nemandi þarf á aðstoð að halda Af þeirri athugun, sem að of- an er nefnd, og ég gerði vorið 1974má álykta að um 10% nem- enda þurfi á einhverri aðstoð að halda á skyldunámsskeiði. Hvernig á að hjálpa þessu unga fólki. Fyrst og fremst þurfa skólar að fá fjárhagslega aðstöðu til þess, leyfi hjá rikinu til þess að mega hjálpa. Þetta á fyrst og fremst viö smærri skóla úti á landi, i' Reykjavik og á stærri stöðum á þetta siður við, þar er rikið fúst að borga, enda passar fjöldi nemenda betur þar við skólakostnaðarlögin. 1 öðru lagi þarf að vera til húsnæði til að sinna börnum sérstaklega. Viða um land eru þrengsli mikii i skólum og skortur á skólahúsnæði. En fyrst og fremst þurfa að vera kennarar i hverjum skóla, sem vilja og geta tekið að sér þá, sem bágt eiga. Sálfræðiþjón- usta, sem annast greiningu á vandamálum barnanna, er nauðsynleg, og er vonandi, að skólar um allt land fái að njóta slikrar þjónustu innan alltof margra ára. En skólar þurfa einnig að hafa aðgang að sér- menntuðum kennurum, sem hafa þjálfað sig i að leysa úr lestrarörðugleikum barna. Hinir stærri skólar þurfa að hafa slika kennara meðal starfsliðs sins, en hinir smærri þurfa að hafa aðgang að þeim, þannig að þeir komi i heimsókn eftir þörfum og segi fyrir um kennslu þeirra, sem sérhjálp þurfa. Lesver Verkefni sálfræði- og ráð- gjafaþjónustu ætti að vera að taka eftir þeim börnum, þegar við upphaf skólagöngu þeirra, sem myndu helst þurfa á sér- hjálp að halda, fylgjast með þeim og hlaupa undir bagga þegar þörf krefur. 1 nokkrum skólum hafa verið stofnuð lesver, kennslustofur, þar sem hjálparkennarinn hefur aðsetur með öll sin kennslu- gögn. Nemendur koma þangað eftir þvi sem þörf krefur. Þetta hefur gefist vel. Það má lita á þessi lesver sem nokkurs konar millistig milli hinnar hefðbundnu bekkjar- kennslu og þess sveigjanlega kennslukerfis, sem verður tekið upp fyrr eða siðar og mun taka við af bekkjarkennslukerfinu. Þá leysist fyrirkomulag hjálp- arkennslunnar af sjálfu sér, þvi að þá verða engir bekkir lengur til að taka nemendur út úr i aukatima, heldur lagar kennslukerfið sig að þörfum og getu nemendanna. •t Skyldi ekki vera komið að þér? Einmitt í þessari lotu. Þaö er nefnilega hjá okkur sem möguleikarnir eru einn á móti fjórum. Vinn- ingarnir 17500, tveir á milljón og 24 á hálfa milljón. 78 vinningar veröa á 100-200 þúsund. Þú veist þessir sem koma þægilegast á óvart. Lægstu vinningar eru 50 og 10 þúsund. Happdrætti Aukavinningurinn í júní. Þaö er þessi margum- ræddi Citroén CX 2000. Óskabíllinn í ár. Maður veit nátturulega aldrei. En miöinn kostar aöeins 400 kr. Og allir njóta góös af starfi SÍBS. Sláöu til - svo eitthvað geti komið þægilega á óvart. r^ Auknir möguleikar allra

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.