Vísir - 05.01.1976, Blaðsíða 24
VÍSIR
Mánudagur 5. janúar 1976.
Magnara og
gosi stolið úr
Lang-
holtskirkju
Brotist var inn i Langholts-
kirkju aðfaranótt sunnudags-
ins. Liklegast er að þarna hafi
unglingar verið á ferð og
greinilega i leit að gosi sem
félagssamtök eiga þarna
geymt. Innbrotsþjófarnir
höfðu einnig á brott með sér
magnara frá hljómflutnings-
tækjum og einn bauk með
smápeningum.
Innbrotsþjófarnir hafa farið
inn um kjallarainngang i ný-
byggingu. —VS
Mikill snjór
og 10 vind-
stig í Eyjum
Ófært var um flestar götur I
Eyjum i morgun, að sögn lögregl-
unnar. óvenjulegt er að svo mikið
snjói í Vestmannaeyjum að færð-
in teppist.
Jeppum og stærri bilum var
fært um göturnar, en eigendur
fólksbila þurftu að nota fæturna
til þess að komast til vinnu sinn-
ar.
Hvasst var i Eyjum, eða 10
vindstig og hrið, og ekki var byrj-
að að ryðja göturnar snemma i
morgun.
— EA
Þrœddu fyrirtœk-
in, en höfðu 4
þúsund upp úr
krafsinu
Brotist var inn i húsið við
Kaupvangsstræti 4 á Akureyri
aðfaranótt laugardags. Þeir
sem þar voru að verki höfðu
þó ekki meira en fjögur þús-
und krónur upp úr krafsinu, þó
viða væri leitað.
1 þessu húsi eru nokkur
fyrirtæki, þar á meðal Flugfé-
lag Islands, tslendingur og
verslanir. Farið var inn með
þvi að brjóta rúðu, en siðan
var gengið um skrifstofur og
reynt að hafa meira upp úr
krafsinu.
Hurðir voru brotnar, þar
sem þeim var sparkað upp, en
fleiri spjöll voru ekki unnin i
byggingunni. Málið er i rann-
sókn hjá lögreglunni á Ákur-
eyri.
—EA
Barn slasast í
þriggja bíla
órekstri
Barn slasaðist I þriggja bila
árekstri, á laugardagskvöld.
Tveir bilanna voru reyndar kyrr-
stæðir.
Áreksturinn varð um klukkan 7
á laugardagskvöldið, á Kringlu-
mýrarbraut sunnan Sléttuvegar.
Bill ók á kyrrstæða bifreið, sem
var kyrrstæð vegna snjókomu og
ófærðar, með þeim afleiðingum
að hann kastaðist á aðra bifreið
sem einnig var kyrrstæð.
t aftursæti fyrri bifreiðarinnar
sem varkyrrstæð, var 6 ára barn,
sem slasaðist og var flutt með-
vitundarlaust á slysadeild.
— EA
Fœrt austur ó Hvolsvöll
og norður í Hrútafjörð
AUgóð færö er nú austur yfir
Hellisheiði allt austur á Hvols-
völl og einnig er fært fyrir Hval-
fjörð og I Borgarnes, sa mkvæmt
upplýsingum frá Vegagerðinni i
morgun.
Hins vegar er viða þyngsla-
færi á Suðurnesjum og austur
undir Eyjafjöllum og i Mýrdal
eru vegir ófærir. Versta veður
var á Suðurlandi i gær, og má
búast við að fleiri vegir séu illir
yfirferðar.
Þá er ófært um Almanna-
skarð og Lónsheiði en reynt
verður að opna þar á morgun.
Fært er yfir Holtavörðuheiði
og norður Hrútafjörð, en Vega-
gerðinni höfðu ekki borist fregn-
ir af færð lengra norður. Vonsku
veður var á þessum slóðum i
gær, einkum i A-Húnavatns-
sýslu og Norðurleiðarútur, önn-
ur á leið suður og hin norður,
stöðvuðust þar vegna veðurs.
Ekki hafa borist nákvæmar
fréttir af ferðum þeirra siðan.
Fært er vestur i Dali og i
Saurbæ, en skafrenningur er
viða á Snæfellsnesi.
Vegagerðinni höfðu ekki bor-
ist fréttir i morgun um færð
annars staðará landinu, en talið
er vist að viðar sé umbrotafærð
eða jafnvel ófært. — EB
Snjómoksturinn
um helgina kost-
aði 800 þúsund
Að undanförnu hefur verið
þungfært um götur Reykja-
vikur vegna snjókomu og
skafrennings. Um helgina var
talsvert unnið að snjómokstri
á vegum ^ borgarinnar. Sam-
kvæmt uþplýsingum Péturs
Hannessonar hjá gatnamála-
stjóra kostaði snjóruðning-
urinn um helgina 6—800 þús-
und krónur.
Þá voru i' gangi 3—4 plógbil-
ar, 2 vegheflar og 1 hjóla-
skófla, auk 4—6 dráttarvéla,
sem notaðar voru við hreinsun
gangbrauta. 1 nágrenni
Reykjavikur var einnig illfært
og á laugardag þurfti Ar-
bæjarlögreglan að aðstoða
skiðafólk á Bláfjallavegi, sem
festi þar bila sina, aðallega
vegna dimmviðris. —SJ
Bílgreinasamband-
ið og FIB setja á
fót áfrýjunarnefnd
Félag islenskra bifreiðaeig-
enda og Bilgreinasambandið
hafa komið sér saman um að
setja á fót áfrýjunarnefnd til
þess að fjalla um ágreining bif-
reiðaeigenda annars vegar og
bilasala og bifreiðaverkstæöa
hins vegar.
Sérstakur viðgerðarsér-
fræðingur mun starfa á vegum
þessara aðila. Til hans geta
menn skotið ágreiningsmálum.
jFlogið með hútt ó sjötta
ihundrað farþega í nótt...
Laklegar horfur með flug í dag
í gærkvöldi og i nótt var flogið
með hátt á sjötta hundraö far-
þega milli Akureyrar og Egils-
staða og Reykjavikur.
Tvær ferðir voru flognar til
Egilsstaða og sex til Akureyrar
en vegna veðurs var ekki unnt að
hefja flugið fyrr en rétt fyrir
klukkan niu i gærkvöldi. Siðasta
vélin kom frá Akureyri klukkan
tæplega hálffimm i morgun en þá
voru eftir nyrðra tiu eða tólf af
bókuðum farþegum.
I gærdag var ófært á alla staði
innanlands nema Höfn i Horaa-
firði en siðan rættist úr veðri fyrir
norðan og austan i gærkvöldj.
Samkvæmt upplýsingum
Sveins Sæmundssonar blaðafull-
trúa Flugleiða i morgun er nú bú-
ið að flytja flestalla þá farþega
sem beðið hafa eftir flugi að
undanförnu.
Hins vegar er ekki glæsilegt út-
lit með áætlunarflug i dag þar
sem spáð er stormi viða um land,
en að sögn Sveins verður haldið
uppi flugi ef þess er nokkur kost-
ur.
— EB
Uni menn ekki mati hans má
skjóta ágreiningi til áfrýjunar-
nefndar. Starfsemi þessi er
sniðin að danskri fyrirmynd.
SÍS tryqq-
ir eklci
rekstur
Air Vikina
— Það hefur ekki komið til
tals að Samvinnuferðir eða önn-
ur samvinnufyrirtæki tækju að
sér að tryggja rekstur Air
Viking eða ferðaskrifstofunnar
Sunnu, sagði Erlendur Einars-
son, forstjóri Sambands isl.
samvinnufélaga, við Visi i
morgun. Þrálátur orðrómúr um
þetta hefur veriö á kreiki og
verið birtur sem staðfest frétt i
einu dagblaðanna.
— Samvinnuferðir hefja
starfsemi fyrrihluta þessa árs,
sagði Erlendur ennfremur. —
Þá verður auðvitað leitað eftir
aðila til að taka að sér flutninga
á farþegum hennar. Islenskir
aðilar verða að sjálfsögðu látnir
ganga þar fyrir. —ÓH.