Vísir - 05.01.1976, Blaðsíða 14

Vísir - 05.01.1976, Blaðsíða 14
Bikarmcistarar West Ham féllu á fyrstu hindrun i vörn sinni i bikarkcppninni þegar lift- iö tapaði fyrir Liverpool á heimavelli sinum, Upton Park i London.á laugardaginn. Þá var þriðja umferð ensku bikar- keppniniKir leikin og komu liðin 44 úr I. og 2. deild þá inn I keppnina, auk liðanna 12 úr neðri deildunum sem höfðu komist i gegnum forkeppnina. Þar af eru tvö liö sem leika utan deilda, Scarborough og Tooting & Mitcham. Scarborough tapaði fyrir Crystal Palace, cn Tooting & Mitcham náði óvænt jafntefli við Swindon 2:2 eftir að hafa veriðtveim mörkum undir—og á þvi enn möguleika á að kom- ast i næstu umferð keppninnar sem verður leikin 24. janúar. West Ham átti aldrei mögu- leika gegn Liverpool sem réð gangi leiksins frá upphafi. Kevin Keegan var frábær og sagði þulur BBC sem lýsti leikn- um að nii væru stóru félögin i Evrópu farin að lita hann hýru auga — og nefndi hann Real Madrid og Barcelona. Þulurinn sagði einnig að ef þau ætluðu sér að kaupa Keegan, þá yrðu þau einnig að kaupa John Toshack því að hann og Keegan væru hreint út sagt — frábærir sam- an. Keegan skoraði fyrra mark Liverpool i fyrri hálfleik eftir sendingu frá Toshack og Tos- hack skoraði siðara markið i siðari hálfleik — eftir sendingu frá Keegan. Besta marktæki- færi West Ham átti Trevor Brooking sem nú lék aftur með eftir langt hlé vegna meiðsla, en Ray Clemence i marki Liver- pool var vel á verði og varði skot hans. Fulham sem lék til úrslita við West Ham i keppninni i fyrra var lika slegið út, og tapaði óvænt 3:2 fyrir 4. deildarliðinu Huddersfield. John Conway náði forystunni fyrir Fulham, en Terry Gray svaraði með tveim mörkum fyrir Hudders- field. Þá tókst Viv Busby að jafna fyrir Fulham, en sú dýrð stóð ekki lengi, þvi að Jimmy Lawson skoraði sigurmark Huddersfield stuttu siðar. En litum þá á úrslitin i bikar- leikjunum : Aldershot—Lincoln 1:2 Blackpool — Burnley 1:0 Brentford — Bolton 0:0 Charlton — Sheff Wed 2:1 Coventry — Bristol C 2:1 Derby — Everton 2:1 Fulham — Huddersf. 2:3 Hull — Plymouth 1:1 Ipswich — Halifax 3:1 Leicester — Sheff Utd 3:0 Luton — Blackburn 2:0 Manch City — Hartelpool 6:0 Manch Utd — Oxford 2:1 Middlesborough — Bury 0:0 Norwich — Rochdale 1:1 NottsC —Leeds 0:1 Orient — Cardiff 0:1 Portsmouth — Birmingh 1:1 QPR — Newcastle 0:0 Scarborough — C Palace 1:2 Shrewsbury — Bradford 1:2 Southampton — Aston Villa 1:1 Southend — Brighton 2:1 Sunderland —Oldham 2:0 Swindon —Tooting 2:2 Tottenham — Stoke 1:1 WBA — Carlisle 3:1 West Ham — Liverpool 0:2 Wolves —Arsenal 3:0 York — Hereford 2:1 Bristol R — Chelsea 0:1 „Þessi hefði átt að vera á Wembley” ,,Það var aðeins eitt sem ég fann að þessum leik — hann átti að leikast á Wembley”, sagði fréttamaður BBC, John Adams, sem fylgdist með leik Derby og Everton á Baseball Ground i Derby. ,,Það var sannkölluð bikarstemming hérna allan leikinn, Charlie George skoraði mark strax á 3. minútu fyrir Derby eftir að Roger Davis hafði skotið i stöngina. En eftir það sótti Everton meira — og Garry Jones átti m.a. skot i þverslá. I siðari hálfleik hélt sókn Everton áfram og þeir Jimmy Person, Mike Bernard og Bryan Hamilton voru allir nálægt að skora. Það var þvi nokkuð I Mánudagur 5. janúar 1976. VÍSIR West Ham féll ó fyrstu hindrun! Þcssi mynd er frá leik West Ham og Everton á Upton Park f London í haust — leiknum lauk með sigri Everton 1:0. Þaðer fyrirliði Everton.Roger Kenyon sem hcfur bctur í viðureign sinni við fyrirliða West Ham Billy Bonds og skallar frá. A laugardaginn lék Everton við Derby og tapaði leiknum 2:1. mótsögn við gang leiksins þegar George skoraði aftur — en svona er nú knattspyrnan. Litlu munaði að George tækist að bæta þriðja markinu við og Davis átti lika gott marktæki- færi áður en Garry Jons skoraði fyrir Evertori eftir auka- spyrnu,” sagði Adams um leik- inn. Swindon fékk óskabyrjun I leiknum gegn Tooting & Mit- cham á County Ground i Swin- don — tvö mörk á fyrstu minútu ers kom i ljós að hann hafði einnig verið rekinn af leikvelli. Þessi augnabliks skapvonska Tuearts getur orðið liði hans dyrkeypt, því að nú eru miklar likur á að hann fái ekki að leika með gegn Middlesbrough i úr- slitaleik deildarbikarkeppninn- ar. Annars voru úrslit þessa leiks alveg eftir uppskriftinni — Alan Oakes skoraði fljótlega og Dennis Tueart bætti tveim mörkum við áður en honum var spyrnunni. Litlu munaði samt að markverði Oxford — Roy Burton — tækist að verja. Per- son var svo aftur felldur innan vitateigs siðar i leiknum og Daly skoraði úr vitaspyrnunni — skaut i sama horn”, sagði Hall um leikinn. Tveir skoruðu þrjú Tveir leikmenn skoruðu þrjú mörk á laugardaginn, Cris Gar- land skoraði öll mörk Leicester Bikarmeistararnir steinlógu fyrir Liverpool þegar þeir hófu vörnina fyrir titlinum á laugardaginn. Hitt úrslitaliðið, Fulham, tapaði óvœnt fyrir 4. deildarliðinu Huddersfield leiksiris. Fyrst skoraði Peter Eastoe og siðan Will Dixon. En leikmenn Tooting & Mitcham gáfust ekki upp — þeir börðust eins og ljón allan leikinn og þeir fengu umbun erfiðisins á siðustu fjórum minútunum — og skor- uðu þá tvivegis. Fyrst Mick Glover og siðan Derek Casey — og liðið á nú mikla möguleika á að komast áfram i fjórðu um- ferð bikarkeppninnar — i fyrsta skipti i sögu félagsins. Var fluttur á sjúkrahús eftir slagsmál Fyrirliði 4. deildarliðsins Hartelpool George Potter var fluttur i hasti á sjúkrahús eftir að hann hafði lent i slagsmálum við Denis Tueart, Manchester City, i leik liðanna á Maine Road i Manchester — rimmunni lauk með þvi að Tueart rotaði Potter. Dómarinn visaði Tueart umsvifalaust af leikvelli, en þegar varamaður Hartelpool ætlaði að koma inná i stað Pott- vfsað af leikvelli i lok fyrri hálf- leiks. Mörkin i siðari hálfleik urðu einnig þrjú — Tommy Booth (tvö) og Asa Hartford skoruðu þá fyrir City. ..Leikmenn Manchester Unit- ed tættu Oxfordliðið I sig strax i byrjun eins og hákarlinn við sundfólkið i myndinni ,,Jaws”, og þeir Gordon Hill og Steve Coppell voru hreint frábærir”, sagði fréttamaður BBC, Stuart Hall, sem fylgdist með leik Manchester Utd ogOxford á Old Trafford i Manchester. ,,Það kom þvi öllum á óvart þegar Oxford náði forystunni i lok hálfleiksins — og Alex Stepney i marki Manchester trúði ekki sinum eigin augum þegar Derek Clark skoraði óvænt með hjólhestaspyrnu og sömu sögu er að segja um þá 41 þúsund áhorfendur sem voru á leiknum. En Manchester náði sér aftur á strik og strax i upphafi siðari hálfleiks var Stuart Person felldur innan vitateigs — og Gerry Daly skoraði úr vita- gegn botnliðinu i 1. deild, Shef^ field United. Eitt i fyrri hálfleik og tvö i þeim siðari. Mick Lam- bert var hinn leikmaðurinn með ,,þrennu” — hann skoraði öll mörk Ipswich gegn Halifax. Allan Clark skoraði mark Leeds gegn Notts County strax i fyrri hálfleik, eftir góðan undir- búning Billy Bremner’s og Terry Yorath — sem splundruðu vörn County áður en Clark skor- aði með þrumuskoti af 15 m færi. Var þetta sæt hefnd fyrir leikmenn Leeds, sem töpuðu fyrir County i deildarbikar- keppninni i oktober. QPR iék betur en Newcastle á Loftus Road i London — en leik- menn liðsins voru ekki á skot- skónum. Tvö bestu marktæki- færin i leiknum átti Newcastle — Malcolm Macdonald skaut framhjá strax i upphafi leiksins, aðeins með markvörð QPR Phil Parkes fyrir framan sig. Seinna færið átti Alan Gowling i siðari hálfleik, eftir góðan undirbún- ing Macdonald — en hann klúðr aði lika. QPR varð að leika með 10 menn mestan hluta siðari' hálfleiksins, þvi þá leið yfir Dave Thomas — og áður hafði John Hollins verið sendur inná sem varamaður. Bæði mörkin i leik Tottenham, og Stoke á White Hart Lane r London voru skoruð eftir horn spyrnur. Fyrst skoraði John Mahoney fyrir Stoke eftir horn- spyrnu Geoff Salmons i fyrri hálfleik — og i þeim siðari jafn aði John Duncan, einnig eftir' homspyrnu. Ulfarnir voru i miklum viga ham gegn Arsenal og þótti heimamönnum að timi væri kominn til, þvi að Ulfarnir höfðu ekki unnið heima siðan 8. nóvember. Norman Bell skoraði fyrsta mark Ulfanna, John Richards annað markið og þannig var staðan i hálfleik. Er fallegasta markið átti eftir a koma, það gerði Ken Hibbit með skalla i siðari hálfleik efti góðan undirbúning Alanl Sunderland og Willie Carr. Jöfnuðu þegar 15 sekúndur voru eftir Litlu mur.aði að Aston Villa\ gerði vonir Southampton um af komast áfram i bikarkeppninnr að engu og það var ekki fyrr en 15 sekúndur voru eftir af leiknl um að Hugh Fisher tókst aS jafna. Ekkert mark var skorað i fyrri hálfleik, en i þeim siðarj skoraði Andy Gray mark Villa en hann lék hérna i haust meí Dundee Utd gegn IBK. Ficher skoraði svo jöfnunarmarkið fyrj ir „Dýrlingana”. George Wood, markvörðuj Blacpool, var hetja liðs sins leiknum gegn Burnley — og héll markinu hreinu. Mark Blackj pool skoraði Bill Bentley — og f lok leiksins var Ray Hankin visj að af leikvelli þegar hann lé skapið hlaupa með sig i gönur ei] tapið blasti við. Neðsta liðið i 2. deild, PortsJ mouth, náði óvænt jafntefli gef Birmingham. Trevor Francij skoraði strax á upphafs minútunum fyrir Birminghar eftir einleik. En stuttu siðai jafnaði Eddy Eames eftir aq Norman Piper hafði skallað stöng. Ted MacDougall skoraf mark Norwich gegn 4. deildarj liðinu Rochdale, strax á minútu úr vitaspyrnu. En hálf tima siðar jafnaði Ron Mulling' ton óvænt fyrir Rochdale. Eftij það sótti Norwich látlaust, ef markvörður Rochdale, Mikí Poole, varði mjög vel og áttí stærstan þátt i jafntefli 41 deildarliðsins. David Cross skoraði fyrrj mark Coventry gegn Bristo City eftir að hafa leikið á þrjj varnarmenn — og þannig val staðan þar til seint i sfðari hálf leik að Geoff Merrick skoraðl sjálfsmark og staðan breyttistí 2:0. Stuttu siðar minnkaði Mika Brolly muninn fyrir Bristol — oj þar við sat. Scarborough sem leikur uta| deilda var slegið út af Crysta Palace. Peter Taylor skoraij fyrstfyrir Palace, en siðan jafn aði Derek Happy fyrir Scarbij rough og þannig stóð þar til tiu minútur foru til leiksloka að Ial Evans skoraði sigurmarj Crystal Palace. Þau leika saman i næstu umferð Nú hefur verið dregið ur hvaða lið leika saman i næstj umferð bikarkeppninnar ser leikin verður 24. janúar — og ] leika eftirtalin lið samanl Sunderland — Hull eða Pl;f mouth, Bradford — Swindon eða Tooting, Huddersfield — Brenf ford eða Bolton, Derby — Liver pool, York — Chelsea, Coventrf — QPReða Newcastle, Charltoy — Portsmouth eða Birming ham, Tottenham eða Stoke Manchester City, Leeds Crystal Palace, Southend Cardiff, WBA — Lincoln, Ipsj wich — Wolves, Leicester Middlesboro eða Bury, Norwicl eða Rochdale — Luton, Manl chester Utd — Nottingham Foif esteða Peterboro og Southam(J ton Aston Villa — Blackpooj - BE

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.