Vísir - 05.01.1976, Page 4

Vísir - 05.01.1976, Page 4
4 Gleðileg jól, Liz Þetta er jólagjöfin sem Richard Burton færði Liz Taylor. Billinn heitir Panther J72 sport, hann kostar um 3,5 millj. isl. fyrir utan tolla auðvitað. Mánudagur 5. janúar 1976. vism Jane Fonda í örmum alentinos? Jane Fonda er efst á óskalista Ken Russels. Russel sem ætlar að gera hina margumdeildu kvikmynd um Valentino. Og það er enginn annar en Rudolf Nurejev sem verður i aðalhlut- verkinu. Russel hef ur valið Jane Fonda til að leika konuna í lífi Valentínós. Mörgum f innst að Jane sé sú síðasta sem hægt sé að hugsa sér í örmum Valentínós. NÚ FARA ALLIR TIL LONDON AÐ VERSLAi Útlendingar, sem færðu sér i 50 sterlingspund fyrir ferðina nyt hið lága breska verðlag frá Gautaborg, fóru frá Felix- híeyptu fjöri i kaupskapinn i stowe hlaðnir pökkum. London fyrir jólin. Var salan ein Einn n orðmaður sagðf verðið sú mesta siðan heimsstyrjöld- vera 5h% lægra en heima, og inni siðari lauk. ungur s;vii keypti sér vélhjól og í janúar hefjast einnig útsöl- sparaði sér með þvi 1300 sænsk- urnar og þangað munu fiykkjast ar krónur (50.000 isl. kr.) margir af meginlandi Evrópu — t Oxfordstræti kom til mikilla þar á meöai margir Skandi- umferðartruflana, en það er navar. mesta verslunargata Lundúna, Um 1.000 manns, þar á meðal en þar höfðu verið leyfð ókeypis margir sviar, sem höfðu greitt bilastæði yfir áramótin. ÍÍORMÓNAHYLKI - NÝ GETNAÐARVÖRN? Ný getnaðarvörn hefur gefið góðan árangur i rannsóknum sem gerðar hafa verið i bænum Jyvæskylæ i Finnlandi. — Hormónahylki er komið fyrir undir húðinni á öxlum eða hand- legg kvenfóiksins. Rannsóknirnar hafa staðið yfir siðustu fjögur árin og Jyvæskylæ er eini bærinn i Finnlandi sem hefur tekið þátt i þessum rannsóknum. Svipaðar rannsóknir hafa farið fram i Brasiliu, Chile, Danmörku og Jamaica. Þetta litla hylki inniheldur sömu hormóna og p-pillan. Það tekur einungis tiu minútur að koma hylkinu fyrir og áhrif þess eiga að vara heilt ár, segir Pentti Holma sem starfar við j Aðalsjúkrahúsið. Holma segir ennfremur að i ekki sé hægt að finna neinar I C V Umsjón: Þrúöur G. Haraldsdóttir. ▼ J aukaverkanir samfara notkun hormónahylkisins. Um það bil 100 konur i Jyvæskylæ hafa tekið þátt i rannsókninni, sem bandarisk stofnun fjármagnar. Rannsókn- um á að ljúka árið 1977. JÓLASVEINNINN VAR BANKARÆNINGI! Atvinnubankaræningjar gcrast stöðugt frum- legri. En við þessu hafði þó enginn búist. Að morgni aðfangadags, rétt áður en National City Bank i Evanston, Indiana átti að loka, yfirgaf jólasveinninn, sem er þar alla jal'na, bankann með úttroðinn poka á bakinu. En i stað jólagjafa innihélt pokinn 40,000 dollara i reiðufé. Enginn tók eftir neinu þvi „jólasveinn- inn” hafði skammbyssu falda i erminni. Hann neyddi gjaldkera nokkurn til að tæma kassann og tók hann siðan með sér sem gisl, þar til hann var kominn út úr dyrunum. Myndina tók falin ljós- mýndavél, en lögreglan hefur ekki mikið gagn af henni, eins og sjá má. Ryon O'Neal og Marisa Berenson eiga framtíð fyrir sér, segir Time! Margir biöa spenntir frum- sýningar á nýjustu mynd Kubricks, „Barry Lyndon”. Kubrick hefur eytt þremur árum, og um 300 miiijónum til að fuligera þessa mynd. Timaritið Time fékk forskot á sæluna og segir að myndin sé meistaraverk allra tima. Framleiðendur biða eins spenntir og aðrir, þeir hafa ekki einu sinni fengið að vera við- staddir upptökurnar sem fóru fram i trlandi og Englandi — Kubrick hefur búið i Englandi siðan hann lauk við myndina Lolitu árið 1961. Þegar hann er ekki bundinn vinnunni býr hann kyrrlátu lifi i smábæ fyrir utan London. Hann tekur engan þátt i samkvæmislifinu en kýs helst að umgangast fjölskyldu sina. — Aðalhlutverkin i Barry Lyndon leika þau Ryan O’Neal og Marisa Berenson. Blaða- maður Time spáir þeim miklum frama þegar hann sá hvað Kubrick tókst að laða fram hjá þeim. Bæði hafa þau orðið að láta sér nægja hlutverk sem einung- is kröfðust snoturs andlits. En eftir töku „Barry Lyndon” gefst leikurunum i rauninni fyrsta tækifærið til að sýna hvað i þeim býr, segir Time. Ryan O’Neal.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.