Vísir - 05.01.1976, Side 17
VISIR Mánudagur 5. janúar 1976.
c
17
D
Sjónvarp kl. 21.55:
Litli, svarti sauðurinn
Náttúrubarnið í sið-
menningunni er boðskap-
ur breska sjónvarpsleik-
ritsins í kvöld. Það er
byggt á þætti úr sjálfs-
ævisögu Rudyards Kipl-
ings.
Segir það frá sex ára gömlum
dreng. sem flyst með foreldrum
sinum frá Indlandi til Englands.
Þar er honum komið fyrir á
heimavistarskóla og lendir þar i
útistöðum við Rósu frænku. Hún
skilur ekki þann mun, sem erá
siðvenjum þess lands, sem hann
kemur frá og hins „siðmennt-
aða heims”. Hún tekur kurteis-
isvenjur hans sem hortugheit og
l'rjótt imyndunarafl hans sem
lygi-
Kipling er áreiðanlega mörg-
um kunnur hér, eða hvaða upp-
kominn maður kannast ekki við
sögur hans um Mowgli, litla
drenginn sem ólst upp meðal
dýra merkurinnar. úr bók hans
Dýrheimar, og bókina Nýir dýr-
heimar. Fleiri bækur hans hafa
og komið út i islenskri þýðingu.
—VS
Sjónvarp kl. 21.05:
Kynslóðir koma
kynslóðir fara
Vegferð mannkynsins
heldur áfram í kvöld.
Þessi f ræðslumynda-
flokkur um upphaf og
þróun mannkynsins hef ur
öðlast miklar vinsældir
enda mjög fræðandi og
sérlega vql gerður.
Erfðafræðinni verður gerð
skil i kvöld. Hefur sögumaður
ferð sina i Vin og segir frá
Mendel og erfðafræðilegum
rannsóknum hans á litningum
og þýðingu þeirra i allri liffræði-
legri uppbyggingu. Leiddu
rannsóknir hans til þess að hann
setti fram erfðafræðilögmál
sem kennt er við hann.
Rekur sögumaður nú þróun-
ina áfram og getur á leið sinni
tveggja frægra nútima erfða-
fræðinga. Þeir eru James Wat-
son og Frances Crick. Frægir
eru þeir fyrir að leysa gátuna
um kjaransýrurnar — venju-
lega nefndar DNA-sýrurnar.
—VS
Utvarp, kl. 20.30:
##
Býflugan
##
,,Býflugan" heitir saga
sem lesin verður upp í út-
varpinu í kvöld. Þetta er
smásaga eftir Valdísi
Öskarsdóttur.
Valdis hefur áður látið frá sér
fara nokkrar smásögur, sem
meðal annars hafa birst i Þjóð-
viljanum og Vikunni.
Hún er annar höfundur bókar-
innar „Rauði svifnökkvinn”
sem kom út rétt fyrir jólin, og
Valdis er þekkt fyrir ljósmyndir
sinar.
Þórhallur Sigurðsson leikari
les söguna i útvarpinu i kvöld,
en hún hefst klukkan hálf niu.
-E.\
Eitt get ég þó verið
viss um. Konan mín
saknar strax sjön-
varpsins þótt hún
sakni mín ekkert.
WS5
— Réttu mér kortið yfir Sahara, Ilildur.
/4-75
c=- ^s_
MANUDAGUR
5. janúar
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan:
„Kreutzersóna tan” eft ir
Leo Tolstoj. Sveinn Sigurðs-
son þýddi. Árni Blandon
Einarsson byrjar lesturinn.
15.00 Miðdegistónleikar.
Hljómsveit Tónlistarhá-
skólans i Paris leikur
„Spunaljóð Omfele”,
hljómsveitarverk op. 31
eftir Camille Saint-Saens,
Jean Martinon stj. John
Williams leikur ásamt fé-
lögum úr Filadelfiuhljóm-
sveitinni „Concierto de
Aranjuez”, tónverk fyrir
gitar og hljómsveit eftir
Joaquin Rodrigo, Eugene
Ormandy stjórnar/ Con-
certgebouwhljómsveitin i
Amsterdam leikur „Gæsa-
mömmu”, ballettsvitu eftir
Maurice Ravel, Bernard
Haitink stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn.
17.10 Tónlistartlmi barnanna.
Egill Friðleifsson sér um
timann.
17.30 Að tafli. Friðrik Ólafs-
son fjallar um bókina
„Hvernig ég varð heims-
meistari” effir Michael Tal.
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréltaauki. Til-
kynningar.
19.35 Ilaglegt mál.Guðni Kol-
beinsson flytur þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn.
Andrés Kristjánsson
fræðslustjóri talar.
20.00 Mánudagslögin.
20.30 „Býflugan”. smásaga
eftir V'aldisi óskarsdóttur.
Þórhallur Sigurðsson leik-
ari les.
20.50 Frá tónlistarhátiðinni i
Schwetzingen sl. sumar.
David Lively leikur á pianó.
a. Pianósónata i h-moll eftir
Franz Liszt. b. Tilbrigði
fyrir pianó eftir Aaron Cop-
land.
21.30 tJtvarpssagan:
„Morgunn”, annar hluti Jó-
hanns Kristófers eftir
Ronmin Rolland i þýðingu
Þórarins Björnssonar. Anna
Kristin Arngrimsdóttir leik-
kona byrjar lesturinn.
22,00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Myndlist-
arþáttur i umsjá Þóru
Kristjánsdóttur.
22.50 llljómplötusafnið i um-
sjá Gunnars Guðmundsson-
ar.
23.45 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
MANUDAGUR
5. janúar 1976
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.35 iþróttir. Umsjónarmað-
ur ómar Ragnarsson.
21.05 Vegferð mannkynsins.
Fræðslumynd um upphaf og
þróunarsögu mannkynsins.
12 þáttur. Kynslóðir fara —
kynslóðir koma.Þýðandi og
þulur óskar Ingimarsson.
21.55 Litli. svarti sauðurinn.
Breskt s jónvarpsleikrit.
byggt á þætti úr sjálfsævi-
sögu Rudyards Kiplings.
Leikstjóri er Mike Newell.
en aðalhlutverk leika Max
Harris, Gillian Hawser og
Paul Freeman. Sex ára
gamall drengur flvst með
foreldrum sinum frá Ind-
landi til Englands. Siðan er
honum skyndilega komið
fvrir hjá vandalausum.
Þýðandi Kristmann Eiðs-
son.
22.50 Ilagskrárlok.