Vísir - 24.01.1976, Page 4

Vísir - 24.01.1976, Page 4
4 Laugardagur 24. janúar 1976. VISIR A„RUNTINUM útsölum. Hallgrimur kynnti okkur fyrir umboðsmanni Iscargo i Alaborg, Knud Höj- berg, en hann er framkvæmda- stjóri hjá fyrirtækinu Samson transport sem sér um dreifingu varanna i Danmörku og aðra flugfragt. Ekki aftur snúið „Væk med dig” A leið frá flugvellinum inn i bæinn komum við að bil sem hafði oltið vegna hálkunnar. Loftur ljósmyndari tók myndir i bak og fyrir og eintak af Extra- bladet sem hann hafði keypt sást greinilega i vasa hans. Eigandi bifreiðarinnar hélt þvi að maðurinn væri frá þvi dag- blaði og ætlaði að banna honum að taka myndir. Vélin sú arna var keypt fyrir nokkrum árum frá Noregi og fer þangað á þriggja mánaða fresti i skoðun. Hallgrimur sagði okkur þetta og þá létti okkur. Hreyflarnir voru ræstir, hálk- an á brautinni athuguð, tækin yfirfarin og siðan hóf vélin sig til flugs. Okkur var á orði að nú væri ekki aftur snúið i þessu ævintýri. Frásagnir manna um ferðlag i svona flugvél sem við höfðum heyrt, reyndust allar ýktar A leið til Alaborgar I Danmörku. Til vinstri sér I Hallgrlm Jónsson, kaptein, til hægri er Refdar Kolsöe, aðstoðarflugmaður. t göngugötunni i Alaborg, sem er einskonar „strik” stöðvaði þessi unga stúlka Loft ljós- myndara og vildi endilega gefa honum eintak af „Kærlighedens blik”. 70% starfseminnar utan íslands 1 Alaborg var sent telex-skeyti til Bergen og spurt um sveifarásinn og kom i jós að hann var tilbúinn til afhending- ar. Það var þvi ekki eftir neinu að biða og við stefndum i átt til Bergan eftir um fimm stunda dvöl i Alaborg. Loftur átti þaðan hinar ljúfustu minningar, þvi hann haföi vart spókað sig á götunum lengur en i fimm minútur, þegar ung stúlka vatt sér að honum og spurði hvort hann vildi eintak af Kærlig- hedens blik, dreifibréfi jesú- barna, en þau börn setja svip á bæinn þar eins og hér. A leiðinni til Bergen fræddi Hallgrimur okkur á þvi að um 70% starfsemi Iscargos væri fólgið i flutningi allskonar vöru innan Evrópu, svo sem kúa- og hrossaflutningar en til íslands flyttu þeir aðallega húsgögn og varahluti i bifreiðar. Beðnar bænir yfir Bergen í aðfluginu að flugvellinum i Bergen var vélin komin niður i 400 fet þegar við Loftur sáum aðflugsljósin. Reyndar getur varla heitið að við sæjum ljósin, þvi i 600 fetum lokuðum við aug- unum og báðum bænirnar, MEÐ Blaðamenn Visis biðu tauga- spenntir og ósofnir út á Reykja- vikurflugvelli aðfaranótt laugardagsins siðasta og biðu þess með óþreyju að leyfi feng- ist fyrir flugtak. Það var verið að eyða hálku á brautinni. Köppunum haföi verið boðið með ,,á rúntinn” Reykja- vik — Alaborg — Berg- en—Reykjavik. Til Alaborgar átti að fara með ull frá Alafossi, en i Bergen að sækja sveifarás i skuttogarann Framnes frá Þingeyri. Engar flugfreyjur Hallgrimur Jónsson, eigandi Iscargos og kapteinn i ferðinni, tók okkur ágætlega og svaraði hræðslublöndnum spurningum okkar með hæfilegrisamúð. Við spurðum um aldur vélarinnar, flugstundafjölda og klykktum út með þvi að spyrja hvort ekki væri allt i lagi með hana. Við erum vanir að fljúga i stifbón- uðum þotum og hljóta 1. flokks þjónustufagurra flugfreyja, svo ekki var laustvið að ónotakennd færi um okkur þegar viö stigum um borð i farkostinn, Douglas DC 6, árg. 1956. ISCARGO... meira eða minna, þvi þótt flug- freyjuna vantaði voru þarna hin ýmsu þægindi, — þ.e. ef kröfurnar eru ekki of miklar. Sólin sást A leiðinni til Álaborgar sváf- um við ungbarnasvefni og niður hreyflanna lét vel i eyrum, uns við komum inn til lendingar i Alaborg. Þá fengum við hellur sem enn sitja i eyrunum. Við sá- um sólina i Alaborg og fólk gekk léttklætt um göturnar i góða veðrinu og virti fyrir sér vörur á þangað til Refdar Kolsöe, aðstoðarflugmaður, sagðist sjá brautarljósin. Það var rigningarsuddi og leiðindaveður þarna, Bergen er vist almesta rigningarbæli á norðurhveli jarðarogþáer Vik i Mýrdal meðtalin. Flutningabifreiðin, sem flutti sveifarásinn, beið okkar á vell- inum, svo hafist var strax handa við að ferma flugvélina og koma þessu fjögurra tonna flykki inn i hana. Til þess þurfti ýmsar tilfæringar og tókst ekki fyrr en eftir nokkrar tilraunir. Vissulega þurfti að gæta þess að kraninn eða kassinn rækjust ekki utan i vélina. En að end- ingu tókst þetta allt giftusam- lega og feg spurði: — Hallgrimur, hvernig ætlarðu að ná kassanum út aft- ur? — Ætli ég verði ekki að hafa hann sem ballast það sem eftir er, svaraði hann, en bætti þvi þó við að ekkert vandamál væri svo stórt að ekki væri hægt að leysa það. Hleðslustjóri — load- master Hleðslustjórinn, Sigurður Harðarson, sagði að þetta væri i fyrsta skipti sem kapteinninn tæki fullan þátt i að ferma vél- ina. Hleðslust.jóri heitir vist á finu máli loadmaster, a.m.k. var alltaf talað um loadmastera og auk þess co-pilota o.s.frv. Smeykur er ég um að flugmenn fengju ekki háa islenskueink- unn, ef þeir ættu að ræða saman á islensku um flug. Það var ekki við neitt að vera i Bergen, veðriö leiðinlegt og ein bjórflaska kostaði 12,50 d.kr., svo við smelltum okkur aftur i loftið og tókum stefnuna á ís- land. Skin milli skúra Við komum inn yfir landið og það var stjörnubjartur himinn. Það glampaði á Vatnajökul i tunglskininu. Þegar við flugum yfir Kirkjubæjarklaustur sáum við ljósin i Reykjavik. Loks lentum við um hálf-ellefu leytið og skömmu seinna byrjaði aftur að snjóa en það hafði snjóað i Reykjavik nær allan timann sem ferðin stóð. Þrátt fyrir það að þetta var reglulega skemmtilegt ævintýri og ánægjuleg reynsla var samt best að stiga fæti sinum aftur á fósturjörðina. — RJ. Við komumst heilu og höldnu á áfangastað og hér ganga flug- mennirnir sigri hrósandi frá boröi. Meðan viðskruppum i bæinn beið farkosturinn, TF-IUB, okkar á flugvellinum. Ullin frá Alafossi var tekin út, en i staðinn sett fáein tonn af varahlutum. Kassanum með sveifarásnum I skuttogarann Framnes frá Þingeyri skipað um borð i Bergen. Þetta er þyngsta stykkið, sem tekið hefur veriðum borð I vélina, en það vóg tæp fjögur tonn. t Reykjavik gekk greiðlega að ná kassanum út á sunnudagsmorgun, en þvi miður náðist ekki mynd af þvi. A flugvellindm heima beið okk- ar yfirvaldið til að athuga, hvort eitthvað ólöglegt væri með. Svo reyndist ekki vera.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.