Vísir - 10.03.1976, Qupperneq 24
VÍSIR
Miðvikudagur 10. marz 1976
.......1 V ......
y
ii
Brœla
r
a
loðnu-
miðum
Sjö skip með alls um 2300
tonn höfðu tilkynnt sig til
Loðnunefndar frá þvf á mið-
nætti. Aflahæst þeirra var
Helga Guðmundsdóttir BA
með 480 tonn.
Bræia tefur nú fyrir á loðnu-
miðunum i Breiðafirði. Fjórir
bátanna sem ioðnu fengu i nótt
eru á leið til Siglufjarðar, en
þangað er tæplega sólarhrings
sigling.
Ekkert þróarrými er laust I
Bolungarvik og viðast hvar
við Faxaflóann er einnig allt
þróarrými uppurið. Nokkrir
bátanna ætla að biða þar til á
fimmtudagað þróarrými losni
IFaxaflóahöfnum. Vegna veð-
urs er ekki hægt að sigla með
aflann fyrir Reykjanes og til
Vestmannaeyja og Grindavik-
ur. —EKG
Kosningar í
Hóskólanum
ó morgun
Kosningar til Stúdenta- og
Háskólaráðs Háskóla islands
fara fram næstkomandi
fimmtudag i Hátfðasal háskól-
ans.
Ef aö vanda Iætur verða
þetta hitakosningar hinar
mestu. Tveir listar liggja
frammi, listi Vöku, félags lýö-
ræðissinnaðra stúdenta — og
listi Vinstri manna, sem er að
sögn bræðingslisti.
A iista Vöku býður sig fram
til Háskólaráðs Bogi Agústs-
son, en til vara Asdis Rafnar.
Til Stúdentaráös eru átta
efstumenn: Steingrimur Ara-
son, Sigurður Hektorsson,
Pétur Sigurðsson, Rósa Isdal,
Arnór Egilsson, Kjartan
Kjartansson, Dögg Pálsdóttir
og Ólafur Isleifsson.
Á lista vinstri manna er
Kristinn A. Friðfinnsson i
framboöi til Háskólaráðs, en
varamaður Helgi Jensson. Til
Stúdentaráðs eru: Halldór
Arnason. Ingibjörg Gisladótt-
ir, Þorgeir Helgason, Þuriður
Jóhannsdóttir, Orn Þráinsson,
Ólafur Friðriksson, Ari Skúla-
son og Guðmundur Guö-
mundsson.
„Löggan tal aði við okk-
ur og gaf ol kkur snúð" .
Tveir tíu ára strákar iögðu einir af stað
upp í Hvalfjörð. — Komust alla leið en
sendir með Akraborginni heim
„Það er nú orðið soldið langt
siðan við ákváðum þetta. Svo
skrópuðum við bara i skólanum
I gær og fórum upp i Ilvalfjörð.
Við vorum svo búnir að labba
lengra en upp i Mosfellssveit,
þcgar við fengum far með vöru-
bfl upp i Hvalfjörð”.
Hann heitir Bjarni Bjarnason
sem þetta segir. Það væri
kannski ekki i frásögur færandi
þó hann og vinur hans, Guðlaug-
ur Hjaltason, hefðu lagt af stað
upp f Hvalfjörð, ef þeir væru
meira en 10 ára gamlir.
Þeir ákváðu að komast upp
eftir, annað hvort gangandi eða
á puttanum. Ferðin var hin
besta og þeir fengu sjóferð út úr
öllu saman. Lögreglan á Akra-
nesi sendi þá nefnilega heim
með Akraborginni.
Fengu að borða
i Mosfellssveit...
I Mosfellssveit börðu þeir að
dyrum hjá fólki sem þeir
þekkja. Þar fengu þeir eitthvað
i svanginn, en tæplega hafa þeir
sagt frá þvi að þeir hygðu á
langferð aleinir. Siðan þrömm-
uðu þeir af staö. „Jú, jú, viö
vorum vel búnir” segir Bjarni.
Þeir voru þó heppnir að komast
meö vörubiluppeftir. Þeir höfðu
þó gert sér vonir um að hitta
„pabba Gulla” einhvers staðar
á leiðinni þvi að hann keyrir
vörubil.
Svangir? Nei, það urðum við
ekki. Við fengum nú fyrst að
borða i Mosfellssveit, svo feng-
um við ókeypis pulsu i Hvalfirði.
Þar var vörubílstjórí sem
þekkir pabba hans Gulla og
hann keyrði okkurá Akranes.
Þar fórumvið svo til löggunn-
ar.” - .
„Talaði við okkur
og gaf okkur snúð!”
— Og hvað sagði löggan? Var
hún ekkert vond?
„Nei, nei, hún talaði bara við
okkur og gaf okkur snúð!”
Og eftir snúðinn voru strák-
arnir settir i Akraborgina. „Ég
hef aldrei farið með henni áður”
sagði Bjarni, en hann kvaðst
halda að Gulli hefði farið áður
með skipinu.
Sjóveikir voru þeir ekki og
það var ekki annað að heyra á
Bjarna en hann hefði haft mesta
gaman af.
„Pabbi og pabbi hans Gulla
biðu eftir okkur á bryggjunni.
Svo var farið borgað tvisvar.
Löggan á Akranesi borgaði fyrir
okkur og svo borguðu þau hérna
Ekki var að heyra annað en að Bjarni Bjarnason væri hinn ánægð-
asti meö ferðina sem hann og vinur hans, Guðlaugur, lögðu i. Loftur
tók myndina af Bjarna i morgun.
heima lika þegar við komum.”
„Jú, jú, við sögðum frá þvi, en
ég held að það hafi nú ekkert
verið. gert i þvi.”
Bjarni vildi ekki viðurkenna
neina þreytu, en svaf þó lengur I
morgun en venjulega. Hann
sagði að þeir félagarnir hefðu
oft komið upp i Hvalfjörð áður,
en hvort þeir hygðu nokkuð á
svona langferð aftur? „Nei-
ei.....” —EA
Þetta ó að vera óhuga-
vekjandi fyrir skókina
— segir Friðrik Ólafsson — Sjónvarpseinvígi
Guðmundar og Friðriks ráðgert
— Ég býst nú við að þetta sé
gert fremur okkur til styrktar en
að þessu fylgi einhver vinna aö
ráði, sagði Friörik ólafsson, stór-
meistari, i samtali við Vfsi i
morgun. Annars á eftir að ræða
alla nánari tilhögun. Ég býst við
að skákkennslan verði helst i
formi þess að við förum út I skól-
ana og teflum fjöltefli og segjum
þá nokkur orð i leiðinni. Þá býst
ég við að komið verði á stuttum
þáttum i útvarpi og sjónvarpi —
eftir atvikum.
— Þannig er þetta meira til að
vera áhugavekjandi um skák
fremur en að um raunverulega
kennslu verði að ræöa, sagði
Friörik.
Tilefni þessara ummæla er að
þeir Friðrik og Guðmundur
Sigurjónsson hafa verið ráðnir til
að annast skákkennslu i skólum,
útvarpi og fjölmiðlum.
Framundan sagði Friðrik að
væri fjögurra manna mót I Hol-
landi i mai, sem áður hefur verið
skýrt frá, og svo annað mót 1 Hol-
landi i júli. Er þaöárlegt
IBM-mót, sem i taka þátt margir
GAF SIG FRAM
flokkar. Verður það með svipuðu
sniði og mótið i Wiijk aan Zee.
— Ég er þakklátur fyrir þessa
launatilhögun, sagöi Friðrik að
lokum. Þetta er spor i rétta átt og
er okkur mikill styrkur.
Guðmundur Sigurjónsson tók
mjög i sama streng og Friðrik.
Sagði hann þetta mikla uppörvun
og styrk. Að visu ætti eftir að
semja um tilhögun þessarar
skákkennslu, en þetta stefndi allt
i rétta átt.
Framundan hjá Guðmundi er
mót i byrjun april á Kanarieyjum
ogsvo á Kúbu I mai. Lengra fram
i timann er ekkert fastákveðið.
Ráðgert er að þeir félagar heyi
sex skáka sjónvarpseinvigi i
næsta mánuði.
—'VS
Breskur
O
togarasjómað-
ur drukknaði
Mann tók út af
breska togaranum
Maretta FD 245 I nótt
og drukknaði hann.
Er álitið að þetta hafi
verið stýrimaður tog-
arans. Þegar þetta
gerðist var togarinn
staddur norð-austur
af Svinalækjartanga.
Bresku togararnir eru nú á
svipuöum slóðum og venju-
lega. Fyrir þremur dögum
færðu þeir sig og eru nú að
veiðum nákvæmlega á friðaða
svæðinu.
—EKG
Sá sem varð valdur að meiðsl-
um mannsins i Klúbbnum á laug-
ardagskvöldið, gaf sig fram viö
lögregluna i gærkvöldi. Sá hann
frásagnir blaðanna og gaf sig þá
strax fram.
Maðurinn sem slasaðist hefur
legið á gjörgæsludeild. en mun nú
vera á batavegi. Pilturinn sem
varö valdur að meiðslum hans,
var ölvaður, þegar þetta gerðist.
Hann fann að danglaö var i
hann, og lenti hönd I andliti hans.
Hann mun nýlega hafa gengið
undir aðgerð á andliti og var þvi
viðkvæmur fyrir. Taldi hann eitt-
hvað hafa. farið úrskeiðis og þvi
eklp barið frá sér af tómri mann-
vonsku.
—EA
Afnotagjöldin gjaldfallin — en upphœð
þeirra hefur ekki verið ákveðin
Akvörðun hefur ekki verið
tekin um það hversu há af-
notagjöld útvarps og sjón-
varps skuli vera fyrir árið
1976. Fyrri gajdldagi afnota-
gjaldanna var 1. mars sl.
Hjá innheimtudeild Rikisút-
varpsins fengust þær upplýs-
ingar i morgun að allt væri til-
búið til að tölvan skrifaði
reikningana, aðeins væri beð-
ið eftir þvi að rikisstjórnin á-
kveði hvað afnotagjaldið eigi
að vera. _sj
STUÐNINGSMENN
ÓLAFS SAFNA
UNDIRSKRIFTUM
í SKAGAFIRÐI
Mikil undirskriftasöfnun á sér
nústað i kjördæmi dómsmálaráð-
herra i Noröurlandskjördæmi
vestra. Stuðningsmenn Ólafs
Jóhannessonar dómsmálaráð-
herra ganga um með lista og
biðja menn um að ljá nafn sitt til
stuðnings ráðherranum um leið
og lýst er óánægju með skrif Visis
eins og þar segir.
Listar þessir hafa að undan-
förnu gengiö um kjördæmið — og
aö sögn Stefáns Guðmundssonar,
.formanns Framsóknarfélags
Sauðárkróks, reynist auövelt aö
fá menn til að skrifa undir.
Aö öðru leyti vildi Stefán sem
minnst segja um undirskrifta-
söfnun þessa. Sagði hann, að Visir
hefði ekki þurft að leita noröur i
Skagafjörð til að fá upplýsingar
um dómsmálaráðherra hingað
til. —EKG