Vísir - 11.03.1976, Page 1
Ríkissjóður skuldar
10.000 milljónir
í spariskírteinum
Menn virðast vera ákafir i að
lána rikissjóði sparifé sitt, þvi
verðtryggðu spariskirteinin alls
að fjárhæð 500 milljónir króna,
runnu út eins og heitar luraraur,
þegar þau komu i sölu i gær. Er
ekki annað vitað en þau hafi öll
selst upp á fyrsta degi.
Það þarf engan að undra, að al-
menningur vilji lána fé sitt með
kjörum sem fjórtánfalda upphæð-
ina á einum áratug. En hvernig er
þetta fyrir þann, sem skuldar?
Þær 47 milljónir króna, sem rikis-
sjóður fékk að láni árið 1965, þarf
hann i dag að greiða með 658 mill-
jónum króna.
Skuld rikissjóðs við almenning i
formi spariskirteina nemur nú
rúmlega lOmilljörðum króna. Til
samanburðar má geta þess, að
gjaldaliður fjárlaga fyrir árið
1976 nemur tæpum 59 milljörðum
króna. Skuldin er hærri en öll
spariinnlán Landsbankans, en
þau eru rúmir 9 milljarðar. Hún
er hærri en heildarinnstæður
einkabankanna, en þær eru rétt
innan við 10 milljarðar.
—SJ
Skipverjar á Skógey frá Hornafirði notuðu tfmann meðan þeir biðu eftir löndun til að laga til hjá sér.
Loðnuna veiddu þeir út af Bjargtöngum. Sögðu þeir ágæta veiði þar ennþá en aðeins timaspursmál
hvenær hún styngisér og hyrfi. Höfðu þeir hug á að athuga með loðnuna, sem fannst við Vestmannaeyj-
ar. Einhverjir bátar væru farnir þangað en hefðu sennilega tafist frá veiðum vegna veðurs, þannig að
ckkert væri vitað með vissu ennþá hvort ioðna fyndist þar I einhverju magni. —VS/Ljósmynd Loftur.
TILLOGUR RETTARFARSLAGANEFNDAR:
Lögréttudómar í Reykja-
vík og á Akureyri
Á fundi Lögfræðinga-
félagsins i gærkvöldi
kom fram, að réttar-
farslaganefnd hefur
samið frumvarp, sem
gerir ráð fyrir nýju
dómstigi. Lagt er til að
settir verði á fót lög-
réttudómar sunnan-
lands og norðan. Til-
lögur nefndarinnar
verða lagðar fyrir
dómsmálaráðuneytið
innan skamms.
Lögréttudómur fyrir Suður-
og Vesturland verður sam-
kvæmt tillögum nefndarinnar
staðsettur i Reykjavik, og lög-
réttudómur fyrir Norður- og
Austurland á Akureyri. Þrátt
fyrir þetta nýja dómstig er að-
eins gert ráð fyrir að mál komi
fyrir tvö dómstig. Mál, sem
fyrst koma fyrir héraðsdóm,
geta þá ekki gengið lengra en til
lögréttu, en málum, sem fyrst
koma fyrir lögréttu, má áfrýja
til Hæstaréttar.
Auk þess sem lögrétta verður
áfrýjunardómstóll er ráðgert að
hún taki við miklum fjölda
mála, sem nú byrja i héraðs-
dómi. Lögrétta á einnig að ná til
opinberra mála. Þau á að taka
þar fyrir á fyrsta stigi, ef opin-
ber ákæra er gefin út — og sókn
og vörn skulu fara fram lögum
samkvæmt.
Þá mun nefndin leggja til að
öll munnleg skýrslugjöf fyrir
dómi fari fram i beinum tengsl-
um við málflutning — i þvi skyni
að hraða meðferð mála.
—Þ.P.
NJOSNAÐ UM
NJÓSNARA
Stórveldin reka umfangsmikla njósnastarfsemi I Mexikó, ná-
grannariki Bandarikjanna. Rússar hafa hundruð starfsmanna
til að njósna um Bandarikin, en bandariska leyniþjónustan hefur
mun fleiri menn til að njósna um njósnarana.
Sjábls.8
Vanskilavíxlar
voru yfir 50
þús. á síðasta
ári í Reykjavík
Samtals voru 50.075
vixlar afsagðir hjá
borgarfógetaembætt-
inu á siðasta ári, að
sögn Friðjóns Skarp-
héðinssonar, yfirborg-
arfógeta.
—■ Þetta er aukning frá fyrra
ári, sagði hann aðspurður. Þessi
tala hefur vaxið jafnt og þétt frá
ári til árs, en um enga stökk-
breytingu er að ræða.
1 nýútkominni skýrslu
Verslunarráðs Islands kemur
fram, að vixilafsagnir hjá fyrir-
tækjum voru 10.423. Er það tæp-
lega fjórðungur af heildinni. At-
huga ber þó að þessi tala er yfir
vixilafsagnir hjá fyrirtækjum
með fimm afsagða vixla eða
fleiri — eða afsagða vixla að
nafnverði yfir kr. 300.000 sam-
tals i Reykjavik.
Aukningin frá fyrra ári er
helmingi meiri en frá árinu þar
á undan — tölulega séð.
Heildarfjárhæð vanskilavixla
fyrirtækja hafði vaxið um nær-
fellt helming frá fyrra ári og var
nærri þvi fjórir milljarðar.
—'VS
Átta bátar eru á
nýja loðnusvœðinu
Arni Friðriksson er nú kom-
inn á loðnusvæðið sem fannst
austur af Vestmannaeyjum i
gærmorgun. Þar eru lika áttá
loðnuveiðibátar en hafa litið
getað verið að vegna brælu.
Veður fer lægjandi á loðnu-
miðunum bæði á Breiðafirði
og austur af Vestmannaeyj-
um. t nótt fékkst engin loðna
vegna þess hve illa viðraði.
Sú loðna sem togbátar fen^u
i gær austur af Vestmannaeyj»r
um gefur til kynna að loðnan á
þessu svæði sé feit og góð og
virðist þarna vera um að ræða
verulegt magn.
—EKG
GÆSLUVARÐHALD-
IÐ FRAMLENGT
t morgun rann út gæsluvarðhaldsúrskurður þeirra þriggja ;
manna, sem fyrir 45 dögum voru handteknir vegna gruns um !
þátttöku i hvarfi Geirfinns Einarssonar. Vararikissaksóknari i
Hallvarður Einarsson kvað upp þann úrskurð klukkan ellefu i
morgun, að gæsluvarðhald þremenninganna yrði framlengt allt
að 30 dögum. —klp—
Fimmtudagur 11. marz
47. tbl. 66. árg.